Morgunblaðið - 05.03.1948, Blaðsíða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 5. mars 1948
Listin í RússEandi
Framh. af bls. 7
ur þessi meðferð á listinni að
rýra gildi hennar. En til þess að
skilja þessa stefnu, verður að
hafg í hyggju menningarástand
þjóðarinnar og áform stjórnar-
innar.
Þjóðin þráir allt það, sem er. af
hreinum rússneskum toga spunn
ið. A það við um öll svið listar-
innar. Það eru talin landráð að
skrifa á nokkurn annan hátt. Þeg
ar Zhdonov rjeðist sem ofsaleg-
ast gegn ymsum rithöfundum í
Leningrad, er grunaðir voru um
að hafa ovðið fyrir áhrifum er-
lendis frá, spurði hann af þjósti
miklum: „Finnst ykkur slík
þjónkun við erlenda listamenn
samboðin rússneskum föðurlands
vinum, er hafa skapað stjórn-
skipulag kommúnista, sem er
hundrað sinnum betra en nokk-
urt borgaralegt stjórnskipulag?"
Þess er ekki getið, að neinn rit-
höfundanna hafi svarað honum.
Listamennirnir
teknir að þreytast
Þegar litið er á þróun rússn-
eskrar lisíar undanfarna öld,
mun óhætt að fullyrða að ein-
hverjir hinna rússnes'ku lista-
manna sjeu teknir að þreytast á
því að endurmála gömul lista-
verk og framleiða ný verk, með
aðferðum hinna gömlu meistara.
Ef þeir eiga nokkra skapandi
gáfu, fullnægja endurtekningarn
ar þeim varla. Ef til vill var það
einmitt þetta, sem henti Shosta-
kovick og Prokofieff. Skapandi
snilligáfa þeirra gerði uppreisn
gegn sífelldum endurtekningum.
Það er miklu erfiðara að sníða
hljómlistinni þröngan stakk og
hefta hana í pólitíska íjötra en
verk rithöfunda eða málara. Ef
hljómlistin víkur um fet frá hinu
gamla, hefðbundna hljóðfalli og
haslar sjer nýjan völl, veit full-
trúi kommúnistaflokksins ekki
almennilega, hvað hann er að
hlusta á. Hann er viss um það
eitt, að það er ekki Tchaikovsky.
Þyki honum það torskilið, finnur
hann einhverja pólitíska' átyllu
til þess að banna það. Stjórnin
hefir lýst því yfir, að það, sem
við þekkjum sem nútíma hljóm-
list, sjeu „svik, við hina friðsælu,
rússnesku alþýðu“. Listamaður-
inn verður að skapa í samræmi
við smekk hennar.
Fá sígild lisíaverk
frá Rússum
Hvort sem þessi stefna er holl
þjóðinni og stjórninni eða ekki,
þá er hún listamanninum mjög
óholl. Undanfarin 25 ár hafa
rússneskir listamenn ekki skapað
mörg verk, sem við getum kallað
frumleg eða sjerstæð. Þegar þess
er gætt, hve ríflegan skerf Rúss-
ar hafa lagt til listarinnar á liðn-
um öldurrt, eru síðustu afrek þjóð
arinnar á því sviði til lítils sóma.
Frá okkar bæjardyrum sjeð eru
Prokofieff og Shostakovich snjöll
ustu tónskáld Rússa og meðal
fremstu núlifandi tónskálda ver-
aldarinnar. Fyrstu kvikmyndir
Eisensteins stuðluðu mikið að
framför kvikmyndalistarinnar í
heiminum; en snilligáfa hans
fjekk ekki að njóta sín sem
skyldi. Hið stranga eftirlit stjórn
arinnar rjeði því. Hann var jarð-
settur með tilhlýðilegri viðhöfn
fyrir skömmu, en sumarið 1946
var hann áminntur um að víkja
ekki af pólitísku línunni.
Að undanr.kildu leikriti Mikhail
Bulgakovs „The days of the Tur-
bins“, hafa leikritahöfundar
kommúnista ekki samið eitt ein-
asta leikrit, sem náð hefir heims-
frægð. Engin málverk, frá Rúss-
landi kommúnismans, hafa held-
ur náð heimsfrægð. Skáldsaga
Simonovs um orustuna við Stalin
grad er með því besta, sem ritað
hefir verið um stríðið og skáld-
saga Sholokovs „Lygn streymir
Don“, er með þeim bestu í sinni
röð. Þetta eru samt ekki einstæð
afreksverk þjóðar, sem gortar af
æskuþrótti og framförum á öllum
sviðum.
Þrátt fyiir „úrkynjun11 banda-
rískrar menningar, hafa Rússar
mikið dálæti á bandarískum leik
ritum, og eru bandarísk skáld
yfirleitt betur þekkt í Rússlandi
! en rússnesk skáld eru hjer. Ef
| litið er á þann fjölda, sem leggur
stund á listir í Rússlandi og hve
mikið ríkið hjálpar listamönnum
sínum, eru afköst þeirra furðu
lítils virði, frá listrænu sjónar-
miði. Með því að hnitmiða rússn-
eska list við smekk leiðtoganna,
hefir Rússland glatað þeirri virð
ingu, sem það áður fyrir naut í
heimi listarinnar.
Margir víðsýnir og mentaðir
Rússar gera sjer þetta Ijóst.
Moskva, Leningrad og Kiev eru
menningarborgir, þar sem þús-
undir vel menntaðra manna búa
og kunna þeir að meta hverskon-
ar list. Þeir vita einnig að þrótt-
ur og gæði rússneskrar listar hafa
þorrið undir stjórn kommúnista,
og list sú, sem ríkið leyfir, er
lítils virði. Þessir menn eru nú
ofsóttir sem áhrifagjörn snýkju-
dýr erlendra listahreyfinga. En
eins og nú standa sakir, eiga þeir
ekki annars úrkosta en játa
syndir sínar, þegar ríkið tilkynn-
ir þeim, að þeir hafi fallið í
ónáð.
- HeðaE annara orða
Frh. al bls. (J.
standsmeyja og að ýmsu leyti
áhrifameiri en æðstu embætt-
ismenn okkar eru í dag. Og
ekki þyrfti hann að hafa á-
hyggjur af næturakstursleys-
inu að undanförnu; hann
gæti bara hringt á skrið-
dreka og látið hann keyra sig
hvert á land sem hann vildi.
En eins og tekið var fram
þegar í Upphafi, er mjög ólík-
legt að við þurfum nokkum-
tima á íslenskum hershöfð-
ingja að halda.
I,ó milj. iil bygging-
ir Sjómannaheimilis
AÐALFUNDUR Sjómannadags
ráðsins var haldinn að Tjarnar-
café s.l. þriðjudag 2. mars.
A aðalfundinum voru lagðir
fram reikningar Sjómannadags-
ins. Hagn. af þeim 10 sjómanna-
dögum, er haldnir hafa verið,
nemur alls kr. 365.212.54. Um kr.
300 þús. kr. eru handbærar, hitt
er fólkið í ýmsum eignum, sem
sjómannadagurinn á.
Hagnaður af síðasta sjómanna-
degi var kr. 31.834.78,, þegar bú-
ið er að draga frá um kr. 26 þús.
vegna hugmyndasamkepni vegna
dvalarheimílis aldraðra sjó-
manna og annað því viðvíkjandi.
Alls voru um áramót í sjóði
kr. 1.238.254.89, sem verja á til
byggingar dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna. Alls eru hand-
bærar um 1,6 milj. kr. til bygg-
ingar dvalarheimils aldraðra sjó-
manna.
Ekki er enn ákveðið, hvenær
byggingarframkvæmdir hefjast.
Sjómannadagsráðið efndi til dýra
sýningar í Orfirisey á s.l. sumri.
Um kr. 70 þús. kr. hagnaður varð
af henni. Verður það fje lagt í
byggingarsjóð. Sjómannadagsráð
hefur hug á að efna til annarar
sýningar að sumri komandi, ef
möguleikar eru til þess.
Stjórn Sjómannadagsráðs var
endurkjörin og er hún þannig
skipuð:
Formaður Henry Halfdánar-
son. Gjaldkeri Bjarni Stefánsson.
Ritari Jón Halldórsson. Varaform
Þorvarður Björnsson. Varagjald-
keri Böðvar Steinþórsson. Vara-
ritari Pálmi Jónsson. Endurskoð-
endur Kristmundur Guðmunds-
son og Jónas Jónasson.
Þá var einnig kosin fjársöfn-
unarnefnd dvalarheimils og aðr-
ar nefndir til undirbúnings næsta
sjómannadegi, er haldinn verður
6. júní n.k.
MIUMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllliiiiiiMlllllllllllliiiiiiiiiiiiiiiitu.
Góð gleraugu eru fyrir
öllu.
Afgreiðum flest gleraugna
rerept og gerum við gler-
augu.
•
Augun þjer hvflið
með gleraugum frá
TÝLI H.F.
Austurstræti 20.
l■lM•ulMlllllllll•1lllllllllllll•■ll•lllll■f■l■n<*•amHaul
Nýstárleg málverka-
sýning í byrjun
næsta mánaðar
1 BYRJUN aprílmánaðar verð-
ur opnuð málverkasýning í Lista
mannaskálanum, á vegum Tón-
listarfjelagsins, sem flestir bæj-
arbúar munu hafa áhuga fyrir
að sjá. Þetta er einn liður í f jár-
öflun til skólabyggingarinnar
og munu flestir sammála um að
ánægjulegt sje, er saman fer ný-
mæli í skemtana- og menningar
lífi og stuðningur við gott og
nauðsynlegt mál.
Tónlistarfjelagið hefur snúið
sjer til fjölda listvina og málara
og beðið þá um að lána á þessa
sýningu uppáhaldsmynd sína.
Munu verða þarna nær 100
myndir. Hugmynd þessi er raun-
ar ekki íslensk, því samskonar
sýningar hafa verið haldnar í
öðrum löndum. Mún frú Erna
Grundt hafa gefið fjelaginu
þessa hugmynd og sjer hún
ásamt Jóni Þorleifssyni og Jóni
Engilberts, málurum, um hina
listrænu hlið sýningarinnar. —
Vönduð skrá mun verða gerð
yfir öll málverkin.
Á sjerstökum vegg verða 10
myndir, sem eru vinningar í
happdrætti er fjelagið hefir í
sambandi við sýninguna. Verð
happdrættismiðanna mun verða
1.00 kr. nema fyrir sýningar-
gesti, sem greiða hálft verð.
Þett.a verður áreiðanlega fjöl-
sótt sýning, því flesta mun
fýsa að kynnast smekk listvin-
anna í bænum og málaranna.
Tónlistarfjelagið hefir þeg-
ar fengið æðimikið fje í húsa-
sjóðinn. Ymsir tónlistarvinir,
sem leitað hefir verið til, hafa
með auglýsingum og gjöfum
lofað nærri 100.000.00 og
„Kattaklúppurinn“ hefir þeg-
ar gefið næstum 20.000.00 nettó
ágóða.
Niðurlöndin vilja
varnarbandalag strax
Haag — Það er fastlega gert ráð
fyrir að Holland og Belgía muni
krefjast þess að Vesturveldin
undirriti varnarbandalag innan
10 daga.
— Tjekkóslóvakía
Frh. af bls. 1.
ur og geti ekki komið til höf-
uðborgarinnar fyrst um sinn.
Hefir honum verið fyrirskip-
uð algjör hvíld af lækni sín-
um. í því sambandi hefir ver-
ið bent á, að ef hann segi ekki
af sier, þá geti forsætisráð-
herrann tekið að sjer störf hans.
SjálfiSæðiskvenna-
fjelagið í Bolungavík
Bolungarvík í gær.
Frá frjettaritara Mbl.
Sjálfstæðiskvennafjel. Þuríð-
ur Sundafyllir í Bolungarvík
hefur í vetur starfað á svipaðan
hátt og undanfarin ár.
Á fullveldisdaginn 1. des. helt
fjelagið myndarlega skemmtun,
sem bæði var fjölsótt og fór hið
besta fram. Lögðu konurnar
sjerstaka áherslu á að forðast.
að ölvun og aðrar samkomu-
skemmdir yrðu á hófinu, og
tókst þeim það með prýði, svo
samkoman varð þeim til hins
mesta sóma, og gestum til góðr-
ar skemmtunar.
Seinna í vetur efndi fjelagið
til söluborðs. Eru allar tekjur
f jelagsins lagðar í sjóð, sem ætl
unin er að verja til kaupa á
gegnlýsingartækjum fyrir kaup-
túnið, sem vafalaust mun verða
til ómetanlegs gagns í barátt-
unni gegn berklaveikinni, sem
verið hefur vágestur þar, sem
víða annarsstaðar. Þegar munu
konurnar hafa safnað um 5000
krónum í þessu skyni.
Kvenfjelagið „Brautin" í
Bolungarvík hefur fyrir nokkru
gefið hreppnum mjög vönduð
Ijóslækningatæki með öllum
búnaði, sem nýlega tóku til
staría í nýju húsnæði í einum
hinna nýbygðu verkamannabú-
staða í þorpinu. Hefur fjöldi
sjúklinga þegar sótt ljóslækning
arnar, og síðustu vikuna í febr.
var byrjað að veita skólabörn-
um öllum ókeypis ljósböð. Var
byrjað á yngstu börnunum og
verður haldið áfram og reynt
að veita öllum börnunum kost
á Ijósböðunum í vetur, eftir því
sem tími vinnst til. Er það ó-
metanleg hressing og heilsu-
vernd börnum eftir sólarlítið
sumar og strangan vetur.
Hreppurinn starfrækir ljósa-
tækin og annast Sigríður Guð-
mundsdóttii', ljósmóðir, gæslu
þeirra.
Standa Bolvíkingar í þakkar-
skuld við kvenfjelagið fyrir
framkvæmd þessa nauðsynja-
máls.
Danskir blaðamenn
mótmæla prentfrels-
fsskerðingu
Kaupmannahöfn í gær.
SAMBAND danskra blaða-
manna hefur samþykt mótmæli
vegna prentfrelsisskerðingar
kommúnista í Tjekkóslóvakíu.
Beinir sambandið því til Al-
þjóðafjelags blaðamanna, að
taka nú þegar afstöðu til þess
ofbeldis. — Páll.
X-9
&
Efttr Robert Storm
*i r-
lO AY, j pý
J fe-tí
“ukMPt EVE5'"
PiVTOL Z\PZ
INTO
Hl$ •
ÞHOT CíQí'í i
ovER Rl£ HEAD ....
•________________________________________________________________________________________,
. 1 7. I. r.p 1-c.iUiics Svndiíjlc, Inc., Wcrlc) riglifs rcscrvcd.l
'i'úOR )
SUÍTTDU ^
Ah EVIU FLA^rt 0F lN5.FiRA"f,'"í M
‘'óRAPE'&V'ív'1.,, TliEM------------------------------------------------•
) Áður en Fingralangur getur hleypt af byssu sinni, Burrps fer rjett fyrir ofan höfuðið á honum og í girnisglampa bregður fyrir í augum Gullaldins og
hefur Gullaldin skotið hann í brjóstið, en kúla vegginn. Burrps: Þín kúla drap hann, Gullaldin. 111- þá........