Morgunblaðið - 05.03.1948, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.03.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: LISTIN í Sovjet-Rússlandi í MINKANDI vcstanátt. — Þykknar sennilega upp með sunnan átt síðdegis. 58. tbl. — Föstudagur 5. mars 1948. » 700 þús. kr. fil nýrrar vafnsveHu á ísafirði. Rógbyrður Alþbl. veku»’ fyrirlifningti í bænum ísaflrði.. fimtudag. BÆJARSTJÓRN Isafjarðar af- greiddi á síðasta fundi sinum fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyr- ir árið 1948 Niðurstöðutölur á- ætlunarinnar eru krónur 4.446.500.00. Helstu tekjuliðið eru þessir: Útsvör 2,1 milj. kr., atvinnu- mál kr. 426 þús., mentamál kr. 348 þús., lýðtrygging og lýð- lhjáp kr. 131 þús. og framfærslu mál kr. 118 þús. Helstu gjaldaliðir eru: At- vinnumál 1,1 milj. kr„ menta- mál 693 þús. kr., lýðtrygging og lýðhjálp 524 þús. kr., heil- brigðismál 190 þús., til nýrrar vatnsveitu 710 þús. kr. Fulltrúar Alþýðuflokksins fluttu nokkrar breytingartillög ur við áætlunina, sem allar hnigu í sömu áttina að lækka útsvörin ýmist með því, að hækka tekjur ýmsra liða eða lækka giöid, og hafði engin þeirra tillagna við rök að styðj- ast, enda báru tillögumenn sig illa, er fulltrúar meirihlutans sýndu fram á og rökstuddu, að þær hefðu ekki við neiít að styðjast og væru bornar fram í þeim tilgandi að þrengja fjár- hagsáætlunina og skapa bæjar- sjóði greiðsluörðugleika. • A fundinum var harðlega víttur sá osvífni frjettaburður, er Alþýðublaðið birtir eftir frjettaritara sínum um fjérhags mál og framkvæmdir ísafjarð- arkaupstaðar og hefir þessi frjettaflutningur vakið al- menna fyrirlitningu meðal bæj arbúa. — MBJ. Bandaríkjamenn sefja I nýlí úlflulningsmel. % Washington í gær. BANDARÍKJAMENN settu 'nýtt útflutningsmet árið 1947. Flutt var út fyrir 19,600 milj. dollara, borið saman við 15.200 milj. dollara árið 1946. —Reuter. Breíar byggja risaSfugvjel ilm % milj. kr. hefur safnast lijer í bænum SlÐUSTU fimm daga hefur skrifstofu Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, borist dag hvern frá 60—70 þúsund krónur í pen ingum, auk fatagjafa. Peningagjafirnar eru mest- megnis frá starfshópum ýmissa fyrirtækja, skipshöfnum, fjelög- um og fyrirtækjum. Baldvin Þ. Kristjánsson fram- kvæmdastjóri Barnahjálparinn- ar, skýrði blaðinu svo frá í gær, að hjer í Reykjavík hefur nú safnast nær hálfri miljón króna. Um söfnunina um land alt er það að segja, að tölur hafa nú borist frá 20 umboðsmönnum Barnahjálparinnar víðsvegar á landinu, og samkvæmt þeim töl- um nemur heildarsöfnunin nú um 900.000 krónum. Enn hafa engar fölur borist frá 50 um- boðsmönnum. Ilinsvegar er kunnugt um að á þessum stöð- um hafa undirtektir verið ágæt- ar. \ Fatagjafir til Barnahjálpar- innar nema nú nokkrum smá- lestum. Er þetta yfirleitt nýr og lítt notaður fatnaður. BRETAR eru aö byggja risaflugvjel, sem á að vera tilbúin 1950. Þangað til fyrir skömmu var lítið vitað um flugvjelasmíði þessa, en nú hefur nokkuð verið látið uppi um smíðina. Vjelin á að geta borið 150 farþega í einu og öll þægindi verða um borð í henni. Hreyflarnir verða 10, áhöfn 14 manns. Meðal annars verður „bar“ i vjelinni, þar sem farþegar geta fengið sjer hressingu og sjest hann hjer á neðri myndinni, en efri myndin er af stjórnklefa vjel- r.rinnar. Vönduð skemfun fíl égéSa fyrir Barna- hjálpma AFGREIÐSLUMANNADEILD Verslunarmannafjelags Reykja- víkur, hefur ákveðið að gangast fyrir vandaðri skemtun á sunnu- daginn í Austurbæjarbíó, til á- góða fyrir Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna. Skemtunin hefst kl. 3. Þá flyt- ur hinn vinsæli leikari Alfreð Andrjesson gamanþátt. Þórberg- ur Þórðarson ætlar að lesa upp, Lárus Ingólfsson leikari fer með nokkrar gamanvísur og Óskar Clausen rithöfundur, les upp. — Þá verða sýndir norskir þjóð- dansar og Öskubuskurnar leika ög syngja. Aðgöngumiðar að þessari á- gætu skemtun, verða seldir hjá Silla og Valda, Laugaveg 43 og á Hringbraút 140, hjá Kron á Skólavörðustíg og Kronbúðinni við Langholtsveg, skrifstofu V. R. og í ritfangadeild ísafoldar við Bankastræti. Hjúkrunarkvenna- skélinn ræddur í bæjarsfjórn Á FUNDI bæjarstjórnar í gær skýrði borgarstjóri frá því, að landlæknir hefði sent bæjar- ráði brjef þess efnis, að bærinn tæki af hálfu þátt í byggingar- og reksturskostnaði hjúkrunar- kvennaskólans I brjefi landlæknis er því haidið fram, að bærinn verði sjálfur að menta sínar hjúkr- unarkonur. Brjef þetta kom bæjarfulltrúum mjög á óvart, því að fyrirlagi landlæknis var á sínum tíma flutt frumvarp á Alþingi, sem er orðið að lög- um, um að ríkið annist bygg- i.ngu hjúkrunarkvennaskóla og reki hann. Sagði borgarstjóri, að bæjar- ráðsmenn hefðu orðið sammála um að ekki kæmi til mála, að bærinn tæki þátt í stofnun og rekstri hjúkrunarkvennaskól- ans, þareð það væri hlutverk ríkisins samkv. lögurm" semja SAMNINGAR hafa tekist milli Verslunarmannafjelags Reykjavikur og atvinnurek- enda. I gærkvöldi voru samningar VR við atvinnurekendur út- runninn. Undanfarið hafa stað ið yfir samningaumræður milli aðila. Lauk þeim með því, að grunnkaupshækkun varð í lægstu launaflokkum og sum- arleyfi fyrir þá er starfað hfaa í 15 ár var lengt. Einnig voru tekin upp ákvæði um 48 klst. vinnuviku. I gærkveldi boðaði samninga nefnd V. R. til fundar og var þar gerð grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á samningnum. Voru þær samþyktar og nefndinni falið að undirrita þá. í samninganefnd V. R. áttu sæti: Adolf Björnsson form., Björgúlfur Sigurðsson, Bjarni Halldórsson, Gyða Halldórs- dóttir o^ Pjetur Nikulásson. í samninganefnd atvinnu- rekenda voru: Bergur Gísla- son form., Friðrik Bertelsen, Páll Jóhannsson, Lúðvík Jó- hannsson, Sigurliði Kristjáns- son, Gunnar Thorarensen, Hjörtur Jónsson og Sigfús Sig- urhjartarson f. h. Kron. Fiskiðjuverið rekur Fisksölumiðstöðfaia VITAMÁLASKRIFSTOFAN hefur enn einu sinni gefið út viðvörun til sjófarenda við ls- land vegna tundurduflasvæða. Tundurduflasvæði þessi cru enn bæði fyrir norðvestan íá- land og milli íslands og Fær- eyja. iúgésiafar méfmæia Washington í gær. JUGÓSLAFÍA h.efir sent Banda ríkjunum opinber mótmæli út af því, að Nicolas Horty var viðstaddur brúðkaupsveislu bandarísks liðsforingja í Mun- chen. Sagði í orðsendingunni að Horthy hefði verið ákærður fyrir stríðsglæpi af Júgóslaf- nesku stjónrinni. ÞAÐ hefir nú náðs samkomu- lag um að Fiskiðjuver ríkisins skuli reka Fisksölumiðstöð bæj arins. Borgarstjóri skýrði frá þessu á fundi bæjarstjórnar í gær. — Gat hann þess, að samningum væri samt ekki lokið enn. — Reykjavíkurbær hefur þegar lagt fram 250 þús. krónpr til Fisksölumiðstöðvarinnar og sennilega verða til viðbótar nú á næstunni veittar 100 þús. kr. lilekkjum. — Sjá grein á bls. 7, Valnavexiir í Arnes- sýslu í gær ÓVENJULEGA mikill vöxt- ur hljóp í Ölfusá í gær og staf ar mest af langvarandi og miklum rigningum, og í Tungu fljóti er sagður meiri vöxtur en verið hefir í síðustu 2 ára- tugi, talið t. d. að fljótið sje vansmeira nú en það var í miklum vexti sem kom í það árið 1930. Er blaðið átti tal við Sel- foss í gærkveldi, hafði ekki frjest um neitt stórtjón af völd um árflóðanna. En talið var að brúin á Hvítá að Brúarhlöðum kynni að vera í nokkurri hættu því áin rann í gær fyrir báða brúarsporðana. Við Selfoss rann áin síðari hluta dags í gær undir land- brúna, sem er austur af Ölfus- árbrúnni, og var komið vatn í kiallara í Tryggvaskála. En skálinn var ekki umflotinn eins og um árið, þegar farið var á bát umhverfið húsið. í Ólafsvallahverfinu var syo mikið flóð úr Hvítá, að þar varð að fara á ferju á milli bæja. í Auðsholti í Biskups- tungum voru hestar hætt komn ir að lenda í flóðinu. En þeim varð bjargað. Á FUNDI bæjarstjórnar í gær var rætt um hækkuh á inngangseyri í Sundhöllina. Sem kunnugt er af fyrri frjettum blaðsins, þá hefur inn gangseyririnn nýlega verið. hækkaður lítillega, en hann hefur verið óbreyttur frá því fyrir stríð, hvað börn snertir, en frá 1943 hvað fullorðnum. viðvíkur. Er þessi hækkun nauðsynleg, vegna __ stórlega aukins tilkostnaðar. Á síðasta ári var Sundhöllin rekin með um 350 þús. kr. halla. Með hækkun inngangseyrisins verð ur hallareksturinn kringum 170 bús. kr. Samþ. fyrir hækk un bessari þarf bæði frá fje- lagsmálaráðuneytinu og verð- lagsstjóra. Tilboð í hilavahis- leiöslona irá Mos- fellsdal BORGARSTJÓRI skýrði frá þv? á fundi bæjarstjórnar í gær, að unnið væri af fullum krafti að undirbúningi að virkjun heita- vatnsins í Mosfellsdal. Nú hefðu borist tilboð í pípur veitunnar, sem verður 3 km, löng. Tilboðin eru frá Italíu, Frakklandi og Þýskalandi. Þó fresturinn væri útrunninn þá hefðu nokkur fyrirtæki óskað eftir að fá að leggja fram til- boð. Fuliirúaráð Heimdallar FUNDUR verður í fulitrúa- ráði Heimdallar í Sjálfstæð- ishúsinu í kvöld kl. 8,30. Áríðandi að allir fulltrú- arnir mæti vel og stundvís- lega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.