Morgunblaðið - 13.07.1948, Síða 10

Morgunblaðið - 13.07.1948, Síða 10
10 MORGUNBLA&IB Þriðjudagur 13. júlí J948. KENJA KONA CftU A UÁ/Í icuni 126. dagur Honum þótti gott að fá þenn an frest. Honum fannst nú, þeg ar komið var að því, að hann ætti að hafa mikla ánægju af því að rifja upp gamlar endur- minningar og horfa á umhverf- ið, þar sem hann þekkti allt svo vel. Honum þótti jafnvel á- nægia af að lesa auglýsingarn- ar í „Wing and Courier“. ■— Hann las einnig greinar úr Suð urríkja-blöðunum, þar sem sagt var, að Norðurríkin væru að stofna til ófriðar og hann las yfirlýsingu Beauergards um að herir Norðurríkja-manna mundu ráðast inn yfir Suðurrík in og leggja alt undir sig, helga dóma sem annað. Þegar söng- flokkur ungmennafjelagsins í Gangor hjelt skemtun, sem stjórnað var af William Wild- er, fór Dan til að hlusta á Beth syngja. Hann fullyrti við hana á eftir, að hún hefði fegurri söngrödd en nokkur annar. Þegar birt var grein í „Demo- kratanum“, þar sem stóð, að 40 þúsund demókratar í Maine væru mótfallnir stríði, sagði hann föður sínum að Marcellus Emery væri lygari og rjettast væri að stinga honum ofan í tjörupott og fiðurhrúgu á eftir. En hann varð rólegri, þegar ,,Demokratinn‘‘ rjeðist næsta dag á „Tribune“ í New York, vegna þess að þar hafði verið sagt, að þetta væri stríð fyrir tilstilli stjórnmálamannanna. Áður en Dan fór frá Bangor, kom brjef frá Will. „Kæra mamma, pabbi og Dan“, skrifaði hann. „Jæja, stríðið er búið að koll varpa öllum mínum áformum. Jeg get ekki hugsað um neitt annað, svo jeg er búinn að láta skrásetja mig í herinn. Hjer hef jeg nóg að gera, en mjer er lítið borgað. Enda þótt það verði góð uppskera í ár og fólk vilji fara að borga mjer, verð jeg ekki hjer lengur. Hjeðan fer jeg með fyrstu herdeild- inni. Jeg ætla að reyna að kom ast að í skurðlæknadeild hers- ins. Jeg er ekkert á móti að menn berjist svona sín á milli, tuski hvern annan dálítið ræki- lega til. En þegar út í það er komið að skjóta og cfrepa, kýs jeg heldur að lækna, ef jeg get. Jeg vil samt eiga einhvern þátt 1 því að koma á aftur friði og spekt í þessu þjóðfjelagi okk- ar. Ef til vill væri rjettast fyr- ir mig að vera hjer kyrr, því hjer get jeg gert eitthvert gagn. En bað er svo mikill æsingur í fólkinu að jeg held að jeg mundi ekki hafa nokkra ró í mínum beinum. Norðurríkja- búar halda fram rjettum mál- stað og þeim verður að takast að lumbra á Suðurríkjabúun- um og binda enda á þessar deil ur. Mig langar til að eiga minn þátt í því. Skrifið þið mjer, strax og þið fáið þetta brjef, svo að ieg fái *það áður en jeg fer. Mig langar til að fá brjef frá ykk- ur öllum. Segið mjer hverjir eru helstu herforingjarnir þarna megin. Mjer leiðist þetta stríð og jeg vil hjálpa til að láta það taka enda sem fyrst. Yðar elskandi sonur og bróð Ir, Will. John las brjefið upphátt við kvöldverðarborðið. Þegar hann | hafði lokið við að lesa það, tók " Jenny það og las það aftur og aftur. Dan skrifaði Will strax um kvöldið til að segja honum, að hann hefði einnig gengið í herinn o gað hann mundi bráð- lega yfirgefa Bangor og fara ásamt herdeild sinni út á víg- stöðvarnar. Jenny skrifaði syni sínum ekki þennan sama dag nje held ur þann næsta. En að kvöldi þriðja dagsins sagði hún: „Dan, jeg er búinn að skrifa Will brjef. Jeg ætla að lesa það fyrir þig eftir kvöldverðinn, af því að jeg vil segja það sama við þig“. Það var eitthvað uggvænlegt í rödd hennar, sem gerði það að verkum, að það fór hrollur um Dan. Hann sá að faðir hans hafði einnig tekið eftir því. Þetta vor hafði þeim oft fund- ist vera eins og niðurbældur sársauki í framkomu og rödd Jennyar.' Dan hafði spurt hana einu sinni eða tvisvar, hvort hún væri alveg frísk, en hún svaraði altaf kæruleysislega: „Mjer er bara dálítið illt í bak- inu. Það líður hjá“. Spenningurinn, sem var í kring um kosningabaráttuna og kosningu Lincolns og óttinn um yfirvofandi stríð allan vetur- inn, hafði leitt huga Jennyar frá sorgum hennar sjálfrar, svo hún hafði verið ánægðari í skapi þennan tíma. En þetta kvöld fannst Dan einhver breyting vera á henni. Hann nærri því gat sjer þess til, hvað hún hafði skrifað Will. Hún_,byrjaði að lesa brjefið ró- lega og greinilega. Enginn var viðstaddur nema Dan og faðir hans. „Kæri Will, Það gleður mig, að þú ætlir að taka upp vopn til að tortíma grimmúðugum mannskepnum, sem hafa árum saman kvalið og pínt miljónir sálufjelaga sinna. Jeg vona, að jeg eigi eftir að sjá Suðurríkin sigruð og jeg vona að hver sá maður sem hefur haft þræla í þjónustu sinni, eigi sjálfur eftir að verða þræll, sem píndur er til að vinna erfiðisvinnu í steikjandi sólarhita með vöndinn yfir höfði sjer, ef hann hvílir sig nokkra stund. Og megi eigin- konur og dætur þrælahaldar- anna spillast og detta í skítinn, eins og þær hafa fellt og hrint í skítinn eiginkonum og dætr- um negranna. Og megi synir þeirra fæðast í þrælkun og megi þeir aldrei kynnast öðru en þrælavinnu. Um þetta bið jeg guð“. Dan vissi nú að ágiskun hans var rjett. Hann leit á föður sinn og sá að hann vissi líka hvað var í vændum. Jenny hjelt áfram lágri og þrunginni röddu: „Jeg er hreykinn af því, að þú og Dan, einu sönnu synir mínir, ætlið að styðja að því að bessum ófriði ljúki. Dan ætlar að berjast. Jeg veit ekki, hvort þú ætlar að skjóta eða lækna sár. Ef þú ætlar að skjóta, dreptu þá og dreptu og dreptu. Ef þú ætlar að lækna, bjargaðu þá lífi okkar manna, þar sem þú getur. En Will, jeg ætla að biðja þig einnar bónar. Gefðu ekki andstæðing þínum svo mikið sem vatn að drekka, ef hann er særður, svo að hann geti dá- ið, emjandi af sársauka og þorsta“. Hún þagnaði augnablik og leit í augu Dans, eins og til að biðja hann, að taka nú vel eft- ir því sem hún læsi. „Það eru tveir ungir menn frá Bangor, tveir ungir menn, sem þú þekkir, sem kusu að fara til þrælaríkjanna og blanda* blóði við þrælahaldara og gleyma fæðingarstað og upp eldi. Enginn veit, hvað kann að ske í þessum ófriði. En það gæti skeð, ef þú ert í fremstu víglínu, að þú þekkir , aftur þessa tvo svikara. Ef svo verð- ur, ^miðaðu þá beint, Will. Dreptu hann. Það.gæti einnig skeð, þegar herir okkar fara að leggja undir sig Suðurríkin, að þú komir að húsi, þar sem anar þessara svikara hefur bú ið í. Brenndu það til ösku. Eyðilegðu landið í kring um það. Hlífðu engu, sem var þeirra eign, nema vesalings þrælunum þeirra, sem þeir hafa skilið eftir hjálparvana. Eða segjum svo, að þú verðir lækn- ir og þjer berist upp í hend- urnar annarhvor þessara manna, láttu þá þá drepast eða nuddaðu salti í sárin þeirrá. Gerðu þetta fyrir mig“. Hún leit aftur í augu Dans, eins og til að undirstrika orð sín. Hún leit einnig viðvarandi augnaráði á John. Hann mátti ekki grípa fram í fyrir henni. „aÞð gæti verið, að þjer fyndist óeðlilegt að jeg talaði svona sem móðir. En það er satt, að jeg er móðir óheilla og fjandsamlegra sona, sem hafa svikið okkur öll. Jeg hef útilokað þá frá lífi mínu og hjarta. Og jeg vildi óska þess núna, að jeg hefði fætt þá and- vana. Dreptu þá, Will. Dreptu þá, ef þú getur. Þú og Dan er- uð einu synir mínir. Þín elskandi móðir“. Hún las brjefið allt án nokk- urra svipbreytinga. Orðin sjálf töluðu sínu máli. Dan horfði á föður sinn, meðan hún las. En John horfði niður fyrir sig og studdi höndum á hnje sjer. Hapn langaði allt í einu til að grípa um sterklega hönd föð- ur síns til að leita styrks frá föstu handtaki hans. Honum fannst móðir sín ekki vera af þessum heimi, meðan hún las brjefið. Hún var verri en nokk_ urt dýr, sem guð hafði nokk urn tíma skapað. Svitadropar spru.ttu fram af enni hans, og runnu niður kinnar hans. Hon- um varð óglatt, svo hann lang- aði til að kasta upp. Hann skalf af geðshræringu. Hann langaði mest til að leggja á flótta und an orðum hennar og hlaupa eins langt og hann mögulega gæti. Loksins var hún búin að lesa brjefið. Hún talaði til hans og þvingaði hann til að líta á sig. „Jæja, Dan. Hlustaðir þú á mig?“ Dan gaf ffá sjer eitthvert undarlegt hljóð, sem enginn vissi. hvað átti að þýða. „Jeg bið þig þessa sama. Það getur vel verið, að tækifærin komi aldrei. Það getur eins verið að þeir drepi ykkur með einhverj- um sviksamlegum ráðum áður en bið getið tortímt þeim. Jeg veit, að þeir gera' það ef þeir geta Slíkt er siður svikara og morðingja. En ef þú getur, 1111111111111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini Vanur heyskapamiaður óskast að Stekkum í Flóa. Uppl. gefur Guðm. Hannesson Stekkum (sími um Sel- foss). Nýr hálfsíður (meðalstærð), til sölu á. = | .Njálsgötu 62. | ^táíha | óskast strax til starfa við | gróðurhús. Uppl. í síma I 5818. í fjarveni minni j gegnir hr. læknir Axel | Blöndal störíum mínum. | Viðtalstími hans er frá kl. f 1.30—3 í Hafnarstræti 8. 1 Sími 2030. Olafur Jóhannsson f læknir. = umiiiininii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Pillur l verslunarskólagenginn, | sem hefur minna bílpróf, f óskar eftir einhverskonar = atvinnu. Tilboð merkt: „20 í ára ■— 308“ sendist afgr. | Mbl. § I iiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiil Frenskt sjal óskast keypt. Uppl. í | síma 229-7. iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiinimu Kenni f frönsku, ensku og þýsku. | Bý undir hverskonar próf. I Til viðtals daglega kl. 6 I —8. 1 Dr. Melitta Urbantshitsch, f Hverfisg. 35, neðri bjalla. i I óskast í sveit í lYz mán- f uð. Má hafa með sjer stálp | að barn. Uppl. á skrifstofu | i Skógræktar ríkisins Borgartúni 7, kl. 10—12. | uiKtiiiiiiiiiiimiiiiiiiitsiiiim | 3jn herbergja íbúð ! ■ ■ ■ ■ j í rishæð við Bragagötu til sölu. — Upplýsingar gefur ■ ■ ■' j STEINN JÓNSSON, lögfræðingur Tjarnargötu 10, III. hæð. — Sími 4951. Chevrolet einkabifreið, 2 tlyra, model ’4I Du Lux, í góðu standi er til sölu. — Til sýnis í kvöld við Leifsstytt- una kl. 8—10. ; Hraðfryst lambalifur ■ ■ j er ein hin eftirsóttarverðasta fæðutegund sem til er. ■ I heildsölu hjá ■ FRYSTIHtJSINU HERÐUBREIÐ ; Sími 2678. j HREÐAVATNSSKÁU j ■ ■ ■ ■ ■ er hjer um bil miðja vega milli Reykjavíkur og Blöndu- ; ; óss eða Kinnastaða. : ■ ■ Þar stansa ferðamenn almennt, sem eru frjálsir ferða j j sinna — til þess að fá sjer hressingu hjá Yigfúji og ; ■ bensín á bílinn. ;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.