Morgunblaðið - 12.08.1948, Side 1
:
Sendimenn Vesturveld-
anna í Moskvu ræða við
Molotov í dag
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SENDIMENN vesturveldanna þriggja i Moskvu höfðu fund með
sjer í dag í bandaríska sendiráðinu og stóð hann yfir í rúma
klukkustund. — Sendimennirnir munu ekki hald'a neinn fund
méð Molotov í kvöld, en líklegt er, að þeir muni ræða við hann
aftur á morgun. Menn eru ennþá engu nær um það, hver árang-
urinn af Moskvu-viðræounum heíur orðið.
Tillaga Clay.
Frá Frankfurt herma fregnir,
að Clay, yfirmaður bandaríska
hernámssvæðisins í Þýskalandi
hafi farið þess á leit við Christ
ian Stock, forsætisráðherra
Hesse-ríkisins, að hann frestaði
gildistöku laganna um „at-
,vinnuráð“, þar til ný síjórnar
skrá fyrir Vestur Þvskaland
yæri gengin í gildi. — Stock
ræddi málið i kvöld við ráðu-
neyti sitt. Lög þessi sem eru
studd af öllum verkalýðsfjelög-
um mæla svo fyrir að „atvinnu
ráðin“ skuli taka þátt í stjórn
iðnaðarf yrir tæk j anna.
Mótmælaverkf al 1.
Verkamenn í öllum borgum
Hesse munu leggja niður vinnu
á morgun til þess að mótmæla
hinu hækkandi verðlagi og
þeiyn drætti. sem hefir orðið á
þvi að lögin öðluðust gildi. —
Verkfall þetta hafði venð á-
kveðið, áður en Clay oar fram
tillögu sína.
Æfingaflugi mótmælt.
Frá Berlín herma fregnir,
aS Vesturveldin muni ætla að
mótmæla æfingaflugi Rússa
yfir hernámshluta þeirra í borg
inni í dag, en þeir flugu mjög
lágt og höfðu ekkert tilkynnt
um æfingaflug þetta fyrirfram. |
Þá skýrir blað eitt á breska!
hernámssvæðinu frá því, að
markaseðlar þeir er gilda á her
námssvæðum Vesturveldanna
muni að öllum líkindum verða
stimplaðir á ný innan skamms,
til þess að fyrirbyggja að þeir
verði notaðir á ólöglegan hátt
á rússneska hernámssvæðinu.
Schuman bjartsýnn
París í gærkvöldi.
SCHUMAN, fyrv. utanríkis-
ráðherra Frakka, virtist frem-
ur bjartsýnn um árangur
Moskvu-viðræðnanna, er hann
flutti ræðu í dag á lokuðum
fundi utanríkismálanefndar
franska þingsins. Hann sagði,
að viðræðurnar hefðu farið
fram í vinsamlegum anda •—
og bættj því við, að það væri
meira en hægt væri að segja
um síðasta fund utanríkisráð-
herranna fjögurra.
. — Reuter.
«>■
Sex íslenskir
Olympíukeppendur
fara til Norðurlanda
London 'i gærkvöldi.
, Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Frá Þorbirni Guðmundssyni.
SEX OLYMPfUKEPPENDANNA íslensku fóru í dag loftleiðis
til Noregs ásamt Olle Ekberg, þjálfara sínum. Ætla þeir að
keppa á nokkrum stöðum í Noregi, Svíþjóð og ef til vill í Finn-
landi á næstunni. — Þeir íþróttamenn, sem fóru til Norðurlanda
eru Finnbjörn Þorvaldsson, Örn Clausen, Sigfús Sigurðsson, Torfi
Bryngeirsson og Óskar Jónsson. ✓
Keppa í Oslo í dag.
Þeir keppa í Oslo á morgun
(fimtudag) og á föstudag. í
Bergen þann 16. og 17. þ. m.
Síðan fara þeir til Svíþjóðar
og keppa þar á nokkrum stöð-
um og loks ef til vill til Finn-
lands.
íþróttamennirnir sex koma
sennilega ekkj heim fyr en í
byrjun september.
Ollum íslendingum, sem eru
hjer á Olympíuleikunum líður
vel og flestir koma heim um og
eftir helgina.
rshall deilir harðlega ó stefnu
sso ó Dónórráðstefnunni
-s>
Arthur Vandenberg er formaður
utanríkismálanefndar öldunga-
deiídar Bandaríkjaþings. Ilann
barðist meðal annars ákveðið
gegn því, að framlagið til Mars-
hallaðstoðarinnaar yrði minnkað.
Segir, að þeir vilji ekki
leyfa öðrum en sjálfum
sjer og leppríkjum sínum
siglingar á fljótinu
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter,
GEORGE MARSHALL, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ljet
svo ummælt í dag, að Bandaríkin myndu halda áfram að reyna
að komast að samkomulagi við Rússland um ágreiningsmálin,
en bætti því við, að Bandaríkin hefðu ekki í hyggju að semja
aðeins til þess að gera samninga. — Utanríkisráðherrann neitaði
að segja nokkuð um Berlínarvandamálið og umræðurnar í Moskvu,
•— Á blaðamannafundi fyrr í dag deildi hann harðlega á Rússa,
vegna stefnu þeirra á Dónárráðstefnunni ,sem nú stendur yfir
í Belgrad.
Bernadotte óánægður
*
með ástandið í Jerusalem
Jerúsalem í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
LEIÐTOGAR Araba hafa samþykkt tillögu Bernadotte greifa
þess efnis, að frá kl. 6 að morgni n.k. föstudag þá muni hvorugur
deiluaðili svara skothríð, er hinn kunni að hefja, eftir því sem
tilkynt var í Rhodos í dag. •— Þá lýsti Bernadotte því yfir í dag,
að hann væri engan*veginn ánægður með ástandið hjer í Jerú-
salem. Hann sagði, að leyniskyttur væru sífellt að verki og mikil
skothríð væri altaf snemma á mórgni hverjum.
Einfaldasta leiðin.
Hann sagði, að eftjr því sem
sendimenn sínir víðsvegar um
borgina staðhæfðu, þá væru
það Gýðingar, sem ættu altaf
upphafið að skothríð þessari,
enda þótt þeir segðu á hinn
bóginn, að Arabar byrjuðu alt-
af að skjóta á þá. Greifinn
ræddi í dag við yfirhershöfð-
ingja Gyðinga í borginni og
sagði hershöfðinginn, að ein-
faldasta leiðin til þess að koma
á friði og ró í borginni, væri
sú, að fjarlægja þaðan arab-
isku herfylkin.
300 þús. flóttamenn.
Aætlað er, að arabískir flótta
menn í Palestínu sjeu nú yfir
300 þúsund. — Bretar hafa
heitið því, að leggja þegar í
stað fram 100 þús. pund til þess
að liðsinna þessum flóttamönn-
um. —
Frá Amman herma fregnir,
að Glubb Pasha, hershöfðingi
Araba, muni fljúga til London
um næstu helgi.
Tólf sfríðsglæpa-
menn dæmdir í
lelgíu
London í gærkvöldi.
TOLF þýskir stríðsglæpamenn
voru í dag dæmdir til dauða af
herrjetti í Belgíu og eru þeir
allir fyrverandi SS-menn. Þeir
verða skotnir á næstunni. Þetta
er í fyrsta sinn, sem belgískur
dómstóll dæmir þýska stríðs-
glæpamenn til dauða.
— Reuter.
Ræff um gjaldmiðil
París í gærkvöldi.
TILKYNNT var hjer í kvöld,
að fjármálasjerfræðingar Breta,
Frakka, Belgíu og annarra
Marshall-landa hefðu byrjað
umræður um gjaldmiðil vissra
Evrópulanda, borið saman við
bandaríska dollarann.
— Reuter.
" ^Rússar vilja ekki
frjálsar siglingar. *
Marshall sagði: „Tillögur
Rússa á Dónárráðstefnunni hafa
allar miðað að því, að ekki yrði
öðrum en þeim sjálfum og
leppríkjum þeirra, leyft að
sigla um Dóná, og hirða þeir
eigi um það, þótt það verði á
kostnað hinna Evrópuríkjanna,
er hlut eiga að máli. Við get-
um ekki gefið samþykki okk-
ar til þess, að komið verði í
veg fyrir frjálsar siglingar á
þessu mikla fljóti á þennan
hátt“.
Ágætt dæmi.
Þá sagði ráðherrann, að Dón
árráðstefnan væri ágætt dæmi
um þá erfiðleika er Vesturveld
in ættu við að stríða er þau
vildu leysa vandamálin í Ev-
rópu. „Við tókum þátt í þess-
ari ráðstefnu vegna þess að við
litum á það sem skyldu okkar
að ræða þessi mál og hlýða á
álit annarra þjóða á þeim. —
Við gátum ekki vitað það fyr-
irfram, að ekkert samkomulag
myndi nást“, sagði utanríkis-
ráðherrann.
Vill ekkert segja um
Moskvu-viðræðumar.
Hann neitaði algjörlega að
segja nokkuð um það, hvort
fregnir breskra blaða í dag um
það, að Moskvu-viðræðurnar
hefðu borið sáralítinn árang-
ur, hefðu við rök að styðjast.
Hann neitaði einnig að láta
nokkuð uj-pi um það, hvenær
tilkynnt myndi opinberlega um
árangurinn af viðræðum sendi
manna Vesturveldanna í
Moskvu.
Frh. á bls. 8.
I