Morgunblaðið - 14.08.1948, Síða 12
VEÐURÚTLITIÐ (Faxaflói):
SUS-VESTAN kalldi___og
skúrir. _________
190. tbl. — Laugardagwr 14. ágúst 1948.
ÞEGAR ENGINN þurfti að
flýta sjer. — Viðtal við dr.
Zadig á bls. 7. sæJS
______ ^
Fjórir íslenskir sigur-
vegurur i Oslo í gær
i i ii.i i
i Óskðr setur ísl. met í 800 m.
Óskar.
Á NORRÆNU íþróttamóti, sem
haldið var á Bislet-íþróttavell-
inum í gær urðu f jórir íslend-
ingar fyrstir hver í sinni grein.
Þar var sett nýtt islenskt met í
800 metra hlaupi og setti Óskar
Jónsson það.
í 200 metra hlaupi varð Hauk
ur Clausen fyrstur á 22 sek. —
Annar varð Norðmaður.
Sigfús.
í 110 metra grindahlaupi
varð Örn Clausen fyrstur á 15,3
sek.
í 800 metra hlaupi varð Óskar
Jónsson fyrstur á 1,51 (?) og í
kúluvarpi var Sigfús Sigurðs-
son fyrstur, kastaði 14,48 m.,
og Örn annar.
Örn.
Fiugyjel verður stað-
sett á ísafirði
S.L. MIÐVIKUDAG flugu þeir
Erling Ellingsen, flugmálastj.,
Sigurður Jónsson, skrifstofu-
stjór*, og Kristán Jóhann Krist-
jánsson, formaður stjórnar
Loftleiða, vestur til ísafjarðar
og áttu þar fund með hafnar-
nefnd bæjarins um byggingu
hins fyrirhugaða flugskýlis í
Suðurtanga. Hefur þegar verið
byggð þar steinsteypt lending-
arbraut fyrir sjóflugvjelar, en
bygging sjálfs flugskýlisins
hefur tafist nokkuð vegna þess
að með byggingu brautarinnar
hefur skapast ný hætta á land-
broti af völdum sjávargangs
við eyrina.
A þessum fundi náðist sam-
komulag um það að bygging
skýlisins yrði hafin nú í sumar
gegn því að gerðar verði nauð-
synlegar ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir frekari spjöll
á eyrinni.
Flugvjel staðsett á ísafirði.
Með byggingu þessa flug-
skýlis munu aðstæður til flug-
samgangna við ísafjörð batna
mjög. Verður þá unnt að geyma
þar flugvjelar, ef veður hindr-
ar heimferð þerrra.
Er það áform Loftleiða að
hafa eina flugvjel að staðaldri
á fsafirði og láta hana annast
farþegafiutninga milli þorp-
anna á Vestfjörðum innbyrðis
og til Réykjavíkur eftir því,
sern tími vinnst til.
Flugferðir til ísafjarðar hafa
1 sumar verið mjög tíðar. Hafa
bæði flugfjelögin haldið uppi
Sáetlunarferðum þangað. Hefur
það dregið verulega úr fólks-
flutningum landleiðina yfir
Þorskaf j arðarheiði.
Vaxandi uppskera.
HAMBORG — Gert er ráð fyrir því
að hveitiuppskeran á hemámssvæði
Bieta í Þýskalandi verði í ár um 30
prósent hærri en síðastliðið ár.
Aldraður Vesfur-ls-
lendingur fersl í
umferðarslysi
NÝKOMIN Winnipeg-blöð
skýra frá því, að fyrir nokkru
hafi Gísli Blöndal, háaldraður
maður farist í umferðarslysi á
Sargent Ave. í Winnipeg. Varð
hann fyrir bifhjóli og hlaut svo
mikinn áverka að hann beið
bana.
Gísli var 82 ára og var sonur
sjera Markúsar Gíslasonar
prests á Blöndudalshólum og
síðar á Stafafelli í Lóni í Aust-
urskaptafellssýslu. En móðir
hans hjet Matta Einarsdóttir
prófasts í Stafholti. Kona Gísla,
Lára Vigfúsdóttur, ljest fyrir
nokkrum árum, hún var skapt-
felsk að ætt.
Gísli kom vestur um haf fyr-
ir 50 árum, hann bjó um skeið í
Nýja-íslandi, en lengst af í
Winnipeg og stundaði húsamáln
ingu.
Börn þeirra Gísla og Láru
voru þrjú: Mrs. Lillian Bowley
í Winnipeg, Mrs. S. Fowler í
Schumacker, Ont. og Gustav, er
býr í Chicago.
Umsóknir um verk-
fræðiháskólann í
Þrándheimi
VERKFRÆÐIHÁSKÓLINN í
Þrándheimi hefir tilkynnt, að
ákveðið hafi verið, að veita
framvegis upptöku einum ís-
lenskum stúdent ár hvert. Þó
mun ekki verða tekið við nein-
um íslenskum stúdent á þessu
hausti. Hinsvegar æskir háskól
inn þess, að umsóknir um upp_
töku haustið 1949 komi fram
sem allra fyrst.
Upplýsingaskrifstofa stúd-
enta tekur við úmsóknunum.
Þýskir laumu-
farþegar með
!«_rí
?r
Frá frjettaritara vorum
á Siglufirði í gærkveldi.
TOGARINN ELLIÐI kom
til Siglufjarðar í kvöld úr
Þýska’andsferð. Með skip
inu voru tveir ungir þýsk
ir laumufarþegar, sem
höfðu stolist um borð í
þýskri höfn.
Elliði kom við í Eng-
Vuidi og ætlaði að láta
hina ungu Þjóðverja þar í
land, en bresk yfirvöld
neituðu að taka við þeim
og varð skipstjórinn á
Elhða að taka þá með
hingað til lands.
Líklegt þykir, að pi'It-
arnir bíði næstu ferðar
Elliða til Þýskalands eða
að þeim verði komið fyr-
ir í annað skip, sem fer
bangað.
Skip sem var að flytja
hjeðan fisk stór-
skemmist af eldi
-------- I
Tveir af áfacfn þess fórusf
SÆNSKA fiskflutningaskipið Westhor, sem var að flytja hjeðan
frystan fisk frá Reykjavík til Hollands, stórskemmdist í eldi í
fyrradag. í eldsvoðanum biðu tveir af skipshöfninni bana. —
Þýskum björgunarskipum tókst i gær, að bjarga skipinu til
hafnar í Þýskalandi.
Treg sildvei
þrátt fyrir besta
veiðiveður
Siglufirði í gærkvöldi
frá frjettaritara vorum.
BESTA veður hefir verið fyr
ir Norðurlandi í dag, logn og
blíða, en engin síld hefir verið
uppi og því tíðindalaust aí mið
unum. Síldarleitarflugvjelarn-
ar eru nú að leita bæði á austur
og vestursvæðinu og hafa ekki
borist neinar frjettir frá þeim
er þetta skeyti er sent.
Talsvert til söltunar.
Frá því í gær hafa borist um
3000 mál síldar til verksmiðj-
anna, mest slattar og gömul
síld. Hinsvegar komu inn í dag
20 skip með nýja síld til sölt
unar, sem veið6t hafði við
Skaga og á Skagafirði. En ekki
var aflinn mikill hjá skipunum
eða frá 50 -— 200 tunnur.
1 gær og í nótt var saltað í
741 tunnu hjer á Siglufiiði og
669 annarsstaðar á landinu.
Var þá búið að salta samtals
á öllu landinu 28,542 tunnur.
Reknetaveiði var mjög treg
í nótt er leið. — Guðjón.
Líklegf að alsherjar-
þing S. Þ. ræði
Palesfínudeiluna
London í gærkvóldi.
VEL kann svo að fara, að als-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna taki Palestínudeiluna til
athugunar, er það kemur sam
an í næsta mánuði. Trygve Lie
aðalritari S.þ. skýrði frjetta-
mönrium frá þessu í dag, og ljet
þess jafnframt getið, að hann
byggist við því arð þingið stæði
yfir allt til jóla.
Alsherjarþingið verður í
París að þessu sinni. — Reuter
Systurskip Folðarinnar.
Westhor, sem er systurskip
íslenska fiskflutningaskipsins
Foldin, var hjer fyrir nokkru
; síðan og lestaði þá fisk til Þýska
lands og Flollands.
300 smálestir til Hollands.
Skipið var búið að afferma
þann hluta farmsins er fara
átti til Þýskalands, í Hamborg,
og var það á leið til Amster-
dam með 300 smálestir af fryst-
um fiski, er eldurinn kom upp í
skipinu, snemma á fimmtudags-
morgun.
í vjelarúmi.
Samkvæmt skeyti er barst
umboðsmönnum skipsins hjer,
Einarsson & Zoega, var West-
hor í Norðursjó er eldur braust
út í vjelarúmi þess. Að sjálf-
sögðu gerði skipshöfnin tilraun
til að ráða niðurlögum eldsins,
en hún f jekk ekki rönd við reist
og að lokum gaf skipstjórinn
fyrirskipun um, að yfirgefa
skipið.
Tveir fórust.
í eldsvoðanum fórust tveir af
skipshöfninni á Westhor. Menn-
irnir voru fyrsti vjelstjóri og
brytinn. Með hverjum hætti
þessir menn fórust er ekki kunn
ugt. Sama er að segja um elds-
upptökin, að umboðsmönnum
skipsins er ekki kunnugt með
hverjum hætti þau áttu sjer
stað.
* Dregið til Emden.
Þýsk björgunarskip komu á
vettvang og munu skipshafnir
þeirra hafa barist lengi við að
ráða niðurlögum eldsins í West-
hor, því í morgun barst skeyti
um að björgunarskipin væru
komin til þýsku hafnarborgar-
innar Emden með skipið.
Skip og farmur.
Westhor mun hafa stórskemst
í eldinum og líkur eru taldar
til að fiskfarmur skipsins hafi
stórskemst eða eyðilagst með
öllu. Farmurinn var sendur út á
vegum Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og var hann að
sjálfsögðu vástryggður.
Þeir flýja enn
London í gærkvöldi.
ENN einn tjekkneskur stjórn-
málamaður hefir nú flúið ætt-
jörð sína. Það er fyrverandi
landbúnaðarráðherra Tjekkó-
slóvakíu, sem kom til banda-
ríska hernámssvæðisins í Þýska
landi i gær. — Reuter.
65 miljóa dollara
lán til S. Þ.
Washington.
TRUMAN forseti undirritaði
s. 1. miðvikudag lög þau, sem
heimila Bandaríkjastjórn að
lána Sameinuðu þjóðunum 65
miljón dollara, til byggingar
aðalbækistöðva stofnunarinnar
í New York. Lánið er vaxta-
laust.
Meðal þeirra, sem viðstaddir
voru', er Truman undirritaði
lánsheimildina, voru Trygve
Lie, aðalritari S. Þ., Marshall
utanríkisráðherra, Warren
Austen, aðalfulltrúi Bandaríkj-
snna hjá S. Þ., William O’Dwyer
borgarstjóri í New York, og
Tom Connally öldungadeildar-
þingmaður.
Tilkynnt var í síðastliðinni
viku, að byrjað yrði að reisa
,,heimshöfuðborgina“ 1 New
York í október.
Fulltrúi Tjekka segir
af sjer
FULLTRÚI Tjekkóslóvakíu í al
þjóðasambandi flugmála, Plicka
að nafni, hefur sagt af sjer em-
bætti sökum þess, að hann er
ósammála „stefnu tjekknesku
stjórnarinnnar" og því „á hvern
hátt þeirri stefnu er framfylgt“,