Morgunblaðið - 13.04.1949, Page 9

Morgunblaðið - 13.04.1949, Page 9
Miðvikudagur 13. apríl 1949. MORGUNBLAÐIÐ 9 Allsherjar berklaskoðun á Akureyri innan skamms Ný ferðaröntgenfæki notuð þar og síðar í öðrum kaupstöðum Á LIÐNUM árum hefur öðru hvoru í blöðum og útvarpi al- ingi verið gefinn kostur á að fylgjast með gangi berklavarn- ana hjer á landi. Hefur þetta verið gert með sjerstöku tilliti til þess, að hjer er að ræða um málefni, er varðar alla þjóð- ína og þátttaka almennings í berklavarnastarfinu hefur verið merkileg og mikilvæg. Hefur skilningur manna á gildi berkla- rannsóknanna greinilegast komið í Ijós í þeim hjeruðum, þar sem heildarrannsóknir hafa verið framkvæmdar, svo sem við berklarannsóknina í Reykjavík árið 1945. sakaðir 53371 manns á öllu landinu, en það eru 40.8% allra landsmanna. Aldrei fyrr hafa jafn margir verið rannsakaðir á einu ári. Síðastliðin þrjú ár hefur berklavörnunum verið hagað svipað og áður. Á heilsuvernd- arstöðvum og með röntgentækj- um í rannsóknarferðum um landið, hefur árlega verið rann- sakað 15 til 20 þús. manns, auk þeirra, sem hafa verið berkla- prófaðir, en þeir skipta einnig þúsundum. Berkladauðinn. Dauðsföllum af völdum berklaveiki fer stöðugt fækk- andi. Flest voru þau árið 1925 og 1930. Dóu þá úr þessum sjúk dómi 21.7 af hverjum 10 þús. íbúum landsins. Árið 1945 var berkladánartalan 6.8, ef miðað er við 10 þús. íbúa. Var þetta lang lægsta berkladánartala, sem skráð hafði verið fram til þess tíma hjer á Iandi, frá því árið 1911, er tekið var að gera úr garði dánarskýrslur sundur- liðaðar eftir dánarmeinum. Árið 1946 varð berkladánar- talan lítið eitt lægri en árið áð- ur. Áreiðanlegar tölur eru enn þá eigi fyrir hendi um árin 1947 og 1948, en sýnt þykir, að þá muni hafa dáið hjer færri úr berklaveiki en árið 1945 og 1946. Munum við nú vera meðal þeirra þjóða, er Iægstan berkla- dauða hafa í Evrópu. Þá hefur nýskráðum berklasjúklinfum einnig fækkað til muna og berklasmitun meðal barna og unglinga minnkað ár frá ári. Bólusetning gegn barnaveiki. Árið 1945 var berklabólusetn íng hafin hjer á landi. Til að byrja með var aðeins bólusett fólk, sem öðrum fremur var tal- íð í smitunarhættu, svo sem börn og unglingar á berkla- heimilum, hjúkrunar- og lækna nemar o. s. frv. Síðan var farið að berklabólusetja börn og ung linga í skólum og nú nýlega hafa verið hafnar víðtækar að- gerðir á þessu sviði, sem miða að því, að bólusetja í ýmsum hjeruðum allt fólk á ákveðnu aldursskeiði. Hefur nú þegar verið berklabólusett hjer á landi um 4 þús. manns. Berklarannsóknir hafnar með nýjum mikilvirkum röntgentækjum Það hefur verið talsverðum örðugleikum bundið á undan- förnum árum að framkvæma berklarannsóknir í hinum ýmsu hjeruðum landsins með gegnumlýsingum einum, vegna skoits á æfðu starfsliði. Til þess að ráða bót á þessu voru á síðastliðnu ári útveguð rönt- gentæki, sem sjerstaklega eru gerð fyrir berklarannsóknir og sem flytja má til ýmissa staða á landinu, þar sem nægjanlegt rafmagn er fyiir hendi og nauð synlegt er talið að framkvæma slíkar rannsóknir. Eru tæki þessi mjög mikilvirk, jafn vel hægt að rannsaka með þeim eitt til tvö hundruð manns á klukkustund að jafnaði. Svipar þeim á ýmsan hátt til tækja Landspítalans, sem notuð voru við berklarannsóknina í Reykjavík, en hafa þann kost, að auðvelt er að flytja þau stað úr stað. Má taka með þeim bæði smáar myndir og stórar. Eru smáu myndirnar (photo röntgenmyndirnar) teknar á samhangandi filmu og eru um 340 myndir á hverri spólu. Er mjög auðvelt og fljótlegt að framkalla hverja spólu. Mynd- irnar eru síðan rannsakaðar í sjerstöku áhaldi, sem stækkar þær nokkuð og eru þær þá mjög greinilegar. Var þessum tækjum komið fyrir til bráða- birgða í húsinu Thorvaldsen- stræti 6 og eru þau starfrækt þar í sambandi við berkla- varnastöðina, sem er í næsta húsi. Hafa bæði skólanemend- ur og fólk úr ýmsum starfs- greinum, undanfarið verið rannsakað þar og hafa tækin reynst mjög vel. Er ráðgert að reyna að berklarannsaka með þeim alla íbúa Akureyraikaup staðar á þessu vori. Má fullyrða, að þessi tæki muni auðvelda og stórauka berklarannsóknirnar og alla berklavarnastarfsemi hjer á landi, jafn framt því sem þau spaia starfsl'ið til mikilla muna. Aílxherjarþingið ræðir Sndónesíumálið FLUSHING MEADOWS, 12. apríl. — Allsherjarþing S.Þ. samþykkti í kvöld, með 41 at- kvæði gegn 3, en tólf fulltrúar sátu hjá, að taka Indónesíu- málið á dagskrá sína. Tillaga fulltrúa Noregs um að fi'esta umræðum um málið var felld. ’ — Reuter. Rosetfo vann á skák~ mótinu í Buenos Aires SKÁKMÓTINU í Bucnos Aires er nú lokið með sigri Argentínumannsins Rosetto, en síðustu umferðinni tapaði hann þó skák sinni við Czerni- ak. Hættulegasti keppinautur hans, Eliskases, tapaði þá einn- ig sinni skák við Guimard svo að það kom ekki að sök. Fjárlagofrumvarpið komið til 3. umræðu Kommúnistar viídu 40 milj. kr. greiðshihalla é fjárlögunum Endanleg úrslit urðu þessi: 1. Rosetto, Argentína, 13 v., 2.—3. Eliskases, Austurrríki og Guimard, Argentína 12 v., 4. Szerniak, Palestína, 11V2 v., 5. Luckis, Lithauen, 10 v., 6. j Allar breytingatillögur ein- —9. Bolbochan, Argentína, Flor stakra þingmanna, nema tvær, es, Chile, Letelier, Chile og voru annaðhvort feldar eð,a Michel, Þýskaland, 9% v., 10. teknar aftur til þriðju urtiræðu. Iliesco, Argentína, 9 v„ 11.—13. j Að lokinni atkvæðagreiðsl- Cruz, Brasilía, Lasker, USA og Unni var frumvarpinu vísað til Martin, Argentína, 7x/i v., 14. 3 Umr. með samhlj. atkvæðum. Maderna, Argentína, 6% v., ATKVÆÐAGREIÐSLA við 2. umræðu um fjárlagafrum- varpið hófst í gær kl. 1.30 og stóð til kl. 10 í gærkvöldi. —• Breytingatillögur meiri hluta fjárveitinganefndar voru flestar samþykktar, en nokkrar voru þó feldar. Breytingatillögur kommúnista voru allar feldar, enda hefði greiðsluhalli fjár- iaganna orðið um 40 milj. kr., ef þeir fengju að ráða. 15.—16. Pomar, Spánn og Ben- koe, Ungverjaland, 5. v., 17. Cabrae, Ungverjaland, 4M* v. og 18. Corte, Argentína, 4 v. Eliskases varð efstur á þessu móti í fyrra. Þá vann hann m. a. Pólverjann Najdorf og Sví- ann Stahlberg. Kvenráðherra beðinn að segja af sjer. SEOUL, Koreu. — Eftirlitsráð Koreu hefir farið þess á leit við stjórnina að Louise Yim, versl- unar- og iðnaðarmálaráðherra, segi af sjer, en hún var eina konan í stjórninni. Tillögur fjárveitinganefndar feldar. Þessar eru helstu breytinga- tillögur fjárveitinganefndar, sem voru feldar: Að fella niður risnu hæsta- rjettar. Að fella niður útgáfu hæsta- rjettardóma. Að lækka framlag til saka- dómaraembættisins. Að lækka framlög til lög- reglunnar og sakamála. 1 Að lækka útgjöld til húsa- leigunefnda. Að lækka útgjöld til Lands- spítalans. Fimmfugur Guðmundur H, Guðmundsson GUÐMUNDUR Helgi Guð- mundsson, húsgagnasmíðameist- ari, form. Iðnaðarmannafjelags Reykjavíkur, er fimmtugur í dag. Hann er einn helsti áhrifamað- ur í fjelagssamtökum iðnaðar- manna, og hefur verið það síðan 1931, þá liðlega þrítugur, að hann var kosinn í stjórn Trje- smiðafjelags Reykjavíkur, og formaður þess tveimur árum síð- ar. Hafa hlaðist á hann trúnaðar- störf í þágu iðnaðarmanna síð- an. Á iðnþing var hann fyrst kos- inn 1939 og hefur átt sæti sið- an, og sama árið í stjórn Lands- sambands Iðnaðarmanna og er í | henni enn. I Iðnráði Reykjavíkur ( hefur hann verið síðan 1938, vara , formaður þess 1940 og formaður , þess nú. Hann var kjörinn vara- formaður Iðnaðarmannafjeagsins í Reykjavík árið 1940 og for- maður þess 1942 og hefur verið það síðan. Auk þess hefur hann j átt sæti í ríkisskipuðum nefndum ( og fjölda nefnda fyrir iðnaðar-, menn. , Guðmundur er í eðli sínu hlje- | drægur maður og má því ef til vill furðu gegna hvað hann hefur flækst inn í mikið af trún- aðarstörfum. En hann er greind- ur vel og gætinn, athugar hvert mál og málsliði vandlega, og tekur einarða afstöðu þegar hann telur sig kominn að rjettri nið- urstöðu. Hann er vel máli far- inn, glöggur og góður fundar- stjóri og orðhagur og hnittinn í tilsvörum. Guðmundur er einkaframtaks- maður og þess vegna öruggur sjálfstæðismaður en ekki aftur- haldsmaður. Hann myndar sjer sjálfstæðar skoðanir við athug- un málefna og heldur þeim fram hvað sem skoðunum meiri hlut- ans liður. Tækifærismennska í stjórnmálum er því fjarri skap- gerð hans. Hann er vara-álþingis- maður Reykjavíkur, og varafull- trúi í bæjarstjórn Reykjavíkur, og hefur jafnan þar fylgt þeim málstað, er reynslan hefur sýnt rjettastan. Guðmundur er vinur vina sinna, glaður í góðvina hópi og góður heim að sækja. Jeg óska honum allra heilla á þessu mið- skeiði mannsævi hans. H. H. E. 13,000 í verkfaili LONDON, 12. apríl. ■— Meira en 13,000 hafnarverkamenn í London hafa nú' lagt' niður vinnu. Um 50 skip bíða nú af- greiðslu í höfninni, ög eru 14 þeirra hlaðin matvælum, sem liggja undir skmdum. Að lækka útgjöld til flug- mála. Að fella niður útgjöld til ljoa og hita í biskupsbústaðnum. Að lækka ferðakostnað bisk- ups úr 8 þús. kr. í 6 þús. kr. Að lækka framlag til eflingar kirkjusöngs. Að fella- niður útgjöld tiíi: námskeiðs í uppeldis- og kenslu. fræðum í Háskólanum. Að lækka útgjöld til útgáfu* námsbóka fyrir gagnfræðask. úr 25 þús. kr. í 10 þús. kr. Að fella niður 25 þús. kr. til lagfæringar íþróttavalla. Að fella niður 10 þús. kr. tili blaðamannafjelagsins. Að lækka framlag til Alþýðu- sambandsins úr 10 þús. kr. i, 8 þús. kr. Að fella niður 72 þús. kr. tili rannsókna á þroskastigi isl. skólabarna. Að fella niður 9 þús. kr. 4iis> Vísindafjelags íslendinga. Að fella niður 15 þús. kr. til útgáfu hjeraðssagnrita. Að fella niður 5 þús. kr. til< Norræna fjelagsins. Að lækka styrk til vísinda- manna og fræðimanna. Að lækka útgjöld til veður- þjónustunnar. Að lækka framlag til fram- ræslu skv. 37. gr. jarðræktar- laganna um 100 þús. kr. Að lækka um 50 þús. kr. fram lag til byggingu iðnskóla. Að fella niður styrk til tó- vinnuskóla Halldóru Bjarna- dóttur. Að fella niður 100 þús. kr. styrk til norræna yrkisskóla- þingsins. Að fella niður útgjöld til upp tökuheimilisins á Elliðahvammi Að lækka framlagið til vinnu< miðlunak um 50 þús. kr. Að lækka framlag til flug- vallagerðar úr 1.550.000.00 í 1.000.000.00. Þessar tillögur nefndarinnar voru allar feldar. Hinar voru samþykktar, en alls bar nefnd- (in fram 159 breytingatillögur við frumvarpið. j Samþykkt var tillaga frá i Jónasi Jónssyni um að veita 15 þús. kr. styrk til að reisa í Skál- holti minnismerki Einars Jóns- sonar myndhöggvara um Jón Arason, fyrri greiðsla. Gunnar Thoroddsen bar fram, svohljóðandi tillögu: ,.Því fje sem veitt er til skóla bygginga samkv. þessum fjár- lögum, skal varið til þeirra skóla, sem nú eru í smíðum og skipt milli þeirra í hlutfalii við íbúatolu hvers fræðsluhjeraðs*1. Þessi tillaga var felld með 23:12 atkv. og gengu kommún- istar ötullega fram í að koma henni fyrir kattarnef.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.