Morgunblaðið - 23.08.1949, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. águst 1949.
Merkur kirkjuhöfðingi
í ÐAG er til moldar borinn
frá Akraneskirkju merkilegur og
hugstæður fulltrúi á sviði and-
legra mála hjer á landi, sjer Þor-
steinn Briem prófastur. Hann
Ijest í Réykjavík 16. þ. m. eftir
langa vanheilsu.
Sjera Þorsteinn Briem er
fæddur á Frostastöðum í Skaga
firði 3. júlí 1885, sonur hins
þjóðkunna sæmdarmanns Olafs
Briem alþingismanns og bónda
á Álfgeirsvöllum og konu hans
Halldóru Pjetursdóttur.
Sjera Þorsteinn ólst upp hjá
foreldrum sínum á Álfgeirsvöll-
um, en gekk ungur mentaveginn
og lauk hann stúdentsprófi tví-
tugur árið 1905. Hóf hann á því
ári guðfræðinám og lauk að þrem
ur árum liðnum guðfræðiprófi í
prestaskólanum. Dvaldi hann að
prófi loknu ' um skeið erlendis
við framhaldsnám í guðfræði.
Árið eftir að sr. Þorsteinn lauk
guðfræðiprófi tók hann vígslu til
prestsþjónustu og var óslitið upp
frá því þjónandi prestur á fjór-
um stöðum til ársins 1946, að
undanteknum þeim tíma, sem
hann var ráðherra, en lengst
þjónaði sjera Þorsteinn Garða-
prestakalli á Akranesi eða um
aldarfjórðungsskeið. Sjera Þor-
steinn ljet af prestskap vegna
vanheilsu vorið 1946 og sigldi
samsumars til Svíþjóðar sjer til
heilsubótar. Dvaldi hann eriend-
is nokkuð á annað ár. — Fekk
hanrí* nokkra bót meina sinna
í fyrstu, en brátt sótti í sama
horfið og mátti segja að hann
tæki aidrei á heilum hjer eftir
heimkomuna.
Sjera Þorsteinn Briem var
bráðgjör maður. Á unga aldri,
þegar hann hefur fjóra um tví-
tugt, hikar hann ekki við, að
varpa á herðar sjer þeim mikla
vanda, sem því er samfara, að
taka að sjer ábyrgðarríkt og þýð-
ingarmikið embætti með því, að
gerast þjónandi prestur í einu af
fjölmennasta prestakallí landsins
Og hann gerir þetta ekki með
hálfum huga eða neinni vanmátt-
arkend, heldur af þeirri ábvrgð-
artilfinningu sem mótuð er í
hugskoti hins ráðsetta og þrosk-
aða manns. Hann finnur svella
í brjósti sjer þann áhuga og
þann kraft og veit sig gæddan
þeirri einlægni sem er undirstaða
þess og meginskilyrði fvrir því,
að starfið geti borið tilætlaðan
og raunhæfan árangur, Og það
var ekki langt til alið þegar
reynslan skar úr um það, skýrt
og ótvírætt, að hinn ungi mað-
ur færðist hjer ekki meira í fang
en það sem efni stóðu til, að
hann fengi undir risið. Sr. Þor-
steinn Briem varð brátt lands-
kunnur sem einhver snjallasti og
tilþrifamesti prjedikari í kenni-
mannastjett. Bar margt til þess
að almenningsálitið skipaði hon-
um þennan öndvegissess.
Sjera Þorsteinn var einlægur
trúmaður, sannfæringarkraftur-
inn fyrir kenningum þeim, sem
hann flutti misti ekki marks hjá
þeim, er á hann hlýddu. Hann
vandaði ræður sínar mjög, var
hugmyndaríkur og orðhagur,
enda var ræðusnið hans alt hið
athyglisverðasta og formfegurð-
in laðaði til sín. En það. sem af
bar í kennimannsstarfi sjera Þor
steins, var það, að prjedikanir
hans náðu til hjartans.
Vissuiega var það svo, að
kennimannsstarfið var megin-
þátturinn í lífsstarfi sjera Þor-
steins frá því, er hann ungur
lagði út á starfsbrautina og til
þess, er hann þraut heilsa og!
kraftar. En gáfur hans og hygg-j
indi greiddu honum götu að því
að helga öðrum starfsviðum jafn i
§»os*steinn Hi'iem préf.
framt nokkru af kröftum sínum.
Bóndaeðlið var snar þáttur í'
Sr. Þorsteinn Briem.
i líí'i sr. Þorsteins. Hann var fædd-
í ur og uppalinn í sveit og átti
:til þeifra að telja í ættir fram,
1 er erjað hafa jörðina. Hann hafði
. óbifanlega trú á framtið land-
í búnaðarins og brennandi áhuga
jfyrir framförum öllum á því
l sviði og hagsæld og velferð þess
j fólks, er helgaði þessum atvinnu-
1 rekstri krafta sína og einbeittu
að því allri orku sinni að rækta
og bæta landið. Hann leit svo á,
j og hafði sannfæringu fyrir því,
! að öryggi og kjölfesta á efnahags
j sviðinu væri, þegar öll kurl
kæmu til grafar, öðru fremur
.fólgin í landbúnaðinum, eins og
farið er að reka hann nú og með
hliðsjón af því, sem þar stendur
| til bóta. Engan vegínn var því
, þó svo varið, að sjera Þorsteinn
j liti smáum augum á afkomuskil-
yrði vor á öðrum sviðum, t. d.
sjávarútveginum sem svo mikið
I mæðir á um afkomu vora. — „En
landið og gæði þess eigum við
einir“, sagði sjera Þorsteinn, „og
nóga orku og dug til að hagnýta
þá auðlind, en' meðan rjettur ís-
| lendinga umfram aðrar stærri og
jfjölmennari fiskveiða þjóðir, er
ekki ríkari en hann nú er, til
hagnýtingar fiskimiðanna við
j strendur landsins getum vjer ver
j ið nokkuð uggandi um að byggja
; afkomu okkar alt um of á þeim
' atvinnuvegi einum saman og
I beina fjármagninu um of að hon-
um“. Er þessi skoðun hins gjör-
hugula og raunsæa vitsmuna-
manns fullkomlega athj'’glisverð.
Ávalt eða lengst af stundaði .sr.
Þorsteinn sjálfur búskap sam-
hliða preststarfinu
Norður í Es'jafirði og austur
í Árnessýslu rak hann að hætti
eldri presta bú á prestsetursjörð-
unum og hafði þar í fullu trje
um búrekstur við bændur í sókn-
um sínum. Og eftir að hann flutti
á Akranes rak hann þar og, þó
við erfið skilyrði væri að ýmsu
leyti, bú, bæði með kýr og sauð-
fje og var hann allt til þess er
hann varð að láta af embætti,
stærstur fjárbúandi kaupstaðar-
ins. Búskaparhneigðin var hon-
um ásköpuð, enda hafði hann af
því mikið yndi að umgangast
búpening sinn og gæta þess að
þar væri viðhöfð nærgætni og
forsjá-
Á sviði fjelagsmála og stjórn-
mála inti sr. Þorsteinn af hendi
merkilegt starf og hefur sumt
af því sem þar liggur eftir hann
markað varanleg spor á fram-
þróunarbraut vorri. Eins og að
líkum lætur um slíkan hæfileika
mann, beindist skjótt athygli
manna í sóknum hans að því,
að fá hann til að taka þátt í
ýmsum fjelagsmálum heima fyr-
ir og fela honum trúnaðarstöð-
ur. Varð sú og raunin á, að sæti
hans var þar ávalt vel skipað
og mátti einu gilda hvert verk-
efnið var, framkvæmdamál á
verklegu sviði. menta- eða menn
ingar og mannúðarmál eða fjár-
mál, en á því sviði var hann
einkar glöggur, var öllum þess-
um málum og öðrum er forsjá
hans lutu vel og farsællega stýrt.
En hljedrægur var sjera Þor-
steinn frekar um þátttöku í mál-
efnum utan síns eiginlega verka-
hrings.
Sjera Þorsteinn gegndi ráð-
herrastörfum um skeið og nutu
hæfileikar hans sín vel á því
sviði um þá málefnaflokka, er
hugur hans og áhugi beindust
sjerstaklega að, en það voru
kirkjumál. landbúnaðarmál og
samgöngumál.
Allmörgum málum er snerta
kirkju og kristindóm kom hann
fram á Alþingi í ráðherratíð
sinni. Hafði hann ’áður átt sæti
í milliþinganefnd, sem vann að
undirbúningi þessara mála og
lagði þar fram drýgstan skerf
við samningu lagafrv. þessara.
Var sr. Þorsteini einkar sýnt um
lagasmíð og þó einkum þá hlið
málsins, að sjá fyrir fram hvern
ig lögin mundu verka í fram-
kvæmd. N^aut glöggskygni hans
sín þar vel, en þeim eiginleika
var hann gæddur í ríkum mæli.
Um önnur merk mál, er hann
undirbjó í ráðherratíð sinni,
c-g fekk lögfest, má nefna ábúð-
arlög, sem allmikil deila hafði
staðið um, en honum tókst far-
sællega að leysa.
Síðar var sr. Þorsteinn kosinn
á þing. Fyrst sem landskjörinn
þingmaður, en síðar kjördæma-
kjörinn og á hann að baki all-
langa og viðburðaríka þingsetu.
Sjera Þorsteinn var ávalt mikils
metinn á þingi og naut þar
trausts sökum vitsmuna sinna og
hygginda og tillögugóður var
hann í hvívetna. Sjera Þorsteinn
var víðlesinn maður og fjölfróð-
ur. Hafði hann mikla hneigð til
vísindaiðkana, einkum á sviði trú
mála. Hafði hann í mörg ár unnið
að rannsóknum um sálmakveð-
skap íslendinga og viðað að sjer
miklu efni í vísindarit um þenn-
an menningararf þjóðar vorrar.
Sennilega hefur heilsubilun hans
tafið framkvæmd verksins og má
ske orðið þess valdandi, að hann
hefur ekki getað lagt síðustu
hönd á þetta gagnmerka vísinda-
starf.
Sjera Þorsteinn var tvíkvænt-
ur. Báðar voru konúr hans ment-
aðar og merkar ágætiskonur, er
bygðu upp með honum gott og
ánægjulegt heimili, þar sem gest
risni og innileiki skipaði önd-
vegi. Fyrri kona hans var Val-
gerður Lárusdóttir frikirkju-
prests Halldórssonar. Varð þeim
hjónum fimm barna auðið og eru
fjórar dætur þeirra á lifi. Val-
gerður ljest 1924. Seinni kona
sjera Þorsteins, sem lifir mann
sinn, er Emilía Pjetursdóttir,
verslunarstjóra og útvegsbónda
á Vopnafirði Guðjohnscns.
Við fráfall þessa merka kirkju-
höfðingja á þjóðin á bak að
sjá gáfuðum og djúphyggnum
mannkostamanni og er, ekki síst
með fámennri þjóð, jafnan skarð
fyrir skildi við fráfall slíkra
manna.
Pjetur Ottesen.
Nýr utanríkisráðherra
BUENOS AIRES — Hínn nýskip
aði utanríkisráðherra Argentínu
er 32 ára gamall lögfræðingur,
Hipilito Jesus Paz, að nafni. —
Hefir hann lýst yfir, að stefna
landsins muni óbreytt í utanrík-
ismálum.
!
• gótum vjer útvegað fró Englandi til afgreiðslu strax
• ge'gn nauðsynlegum leyfum.
Sími 1275.
I TILKYIMNIIMG
1 (Tilefni augl. Viðskiptanefndar 18. óg. 1949).
i Við höfum tirvals viðskiptasambönd á sterlingspumla-
I svæSi í eftirtöldum vörugreinum:
a
; ReiShjól og varahlutir í þau.
a
• Þvottavjelar með og án rafmagnsliitunar.
■
a
j Snyrtivörur (greiður og kaniba).
■
Leyfishafar geta tvímælalaust gert mjög góð inn-
j kaup hjá samböndum okkar og ættu því að kynna sjer
■ verðlag og athuga sýnishorn og myndir hjá undir-
j rituðum.
a
j JjóL. Ölafóóon & Co.
m
j Reykjavík.
Matreiðslunámskeið
; Húsmæðrakennaraskóli Islands heldur 2 matreiðslunóm
j skeið í húsakynnum sínum i Háskólanum, Reykjavík,
■ fyrir ungar stúlkur. Það fyrra hefst um miðjan októ-
• ber og er í 2 mánuði, hið síðara e'ftir nýjár.
; Kennt er 3 daga vikunnar e. h. (Jmsóknir sendist
: Húsmæðrakennaraskólanum að Laugarvatni.
•
■ Helga Sigurðardóttir,
l skólastjóri.
m
• kiyggingarjjelag alþýðu.
íbúð til sölu
: 2ja herbergja í 1. byggingarflokki er til sölu frá 1.
j okt. n. k. Umsóknir sendist skrifstofu fjelagsins fyrir
• 6. sept. n. k. —-
■ Stjórnin•