Morgunblaðið - 30.09.1949, Síða 16
VEÐURÚTLIT — FAXAFLÓI:
Vesþm síinningskaldi og smá-
skúrir.
Frjáls verslun og afnám haft-
anna eina ráðið. — Sjá grein
á bis. 2.
i
Sfúikybarri fiiiur
bana á Njálsgötu
ÞAÐ sviplega slys vildi til hjer í bænum í gærdag, að lítið
stúlkubarn hljóp á vörubíl, og varð undir honum, með þeim
afleiðingum að hún beið þegar bana. Litla barnið hjet A.nna
Óskarsdóttir og átti heima að Frakkastig 19.
Rannsóknarlögreglan fjekk
þetta mál þegar til meðferðar,
en slysið varð um klukkan 3,30
á Njálsgötunni, rjett austán við
gatnamót Frakkastígs. Strax
eftir að slysið varð, var litla
stúlkan flutt í sjúkrahús. Hún
var látin þegar þangað var kom
ið, enda mun hún hafa látist
samstundis.
Þegar slysið varð
Bílstjóri sá er ók bílnum,
M-225, er Páll Sigurðsson frá
Fornahvammi. Er hann talinn
einn hinna traustustu bílstjóra,
enda á hann mjög langan starfs
feril að baki sjer sem bílstjóri.
Hahn gaf rannsóknarlögregl-
unni skýrslu í gærkvöldi og
sagði hann, að m. a. er slysið
varð hafi hann verið á leið
austur eftir Njálsgötunni. Hann
telur sig hafa ekið með 15 til
18 km. hraða. — Engin börn
sagðist hann hafa sjeð á sjálfri
götunni, en á gangstjettunum
beggja vegna.
Páll sagðist hafa orðið þess
var, að vinstra afturhjól hafi
farið yfir eitthvað, en kvaðst
ekki hafa gert sjer grein fyrir
því, fyrr en eftir á, þegar hann
kom út úr bílnum, að svo hörmu
legt slys hefði orðið.
Sá telpuna hlaupa
út á götuna.
Bíistjórinn á fólksbílnum
R-2042, ók rjett á eftir Páli
og gaf rannsóknarlögreglunni
skýrslu í gærkvöldi. — Telur
hann sig hafa sjeð það, er tvær
telpur hlupu út á götuna, rjett
í því er vörubílnum var ekið
hjá. Sú telpan er á eftir hljóp,
lenti með höfuðið á vörupalli
bílsins og hnje hún niður í göt-
una.
Það skal tekið fram að bíll
Páls var í góðu lagi.
Rannsókn málsins heldur á-
fram í dag. — Þess er fastlega
vænst, að þeir er gætu gefið
upplýsingar í málinu, litlar sem
miklar, gefi sig fram við rann-
sóknarlögregluna hið allra
fyrsta.
Foreldrar telpunnar eru Ósk-
ar Óskarsson og Ágústa Guð-
mundsdóttir, Frakkastíg 19.
Æíia Rússar að siífa
sfjommálaiaiRbandi
BELGRAD, 29. sept. — Það
vakti athygli í Belgrad í dag,
að starfsmenn rússnesku sendi-
sveitarinnar í borginni hófu að
pakka niður öllu lauslegu. Þyk-
ir þetta benda til, að Rýssar
muni ætla sjer að slíta öllu
stjórnmálasambandi við stjórn
Ti í;os í Júgóslavíu. Sendiherrar
Póllands og Ungverjalands fóru
í dag frá Júgóslavíu heimleiðis.
—Reuter.
a—---------------------
Segir V.R. upp
samningum í kvöld!
VERSLUNARMANNAFJEL.
Reykjavíkur hefur að undan-
förnu staðið i samningaumleit-
unum við kaupsýslumenn og
K. R. O. N., um kjarabætur
verslunarfólks. — Núverandi
kjarasamningar ganga úr gildi
1. janúar n-k., en eru uppsegj-
anlegir með 3 mánaða fyrir-
vara.
Síðastliðið vor fóru launþeg-
ar fram á allt að 35% grunn-
kaupshækkun, auk ýmissa ann-
ara fríðinda. Áður en gagntil-
boð kom frá kaupsýslumönn-
um og K. R. O. N-, fengu starfs-
menn ríkis og bæja uppbætur
á sín laun. Veitti almennur
launþegafundur í V. R. Launa-
kjaranefnd sinni fullt umboð
að semja á ekki lakari grund-
velli en þeim, er opinberir
starfsmenn fengu.
Kaupsýlumenn svöruðu þess
ari síðustu tillögu með gagn-
tilbðoi, 10% grunnkaupshækk-
un frá áramótum, 8,3% upp-
bót á 3 síðustu mánuði ársins
1949. Þessu hafa launþegar
hafnað og mun samningum
verða sagt upp í kvöld, svo
framt að ekki verði gengið að
síðasta tilboði V. R.
Framkvæmdum f
Reykjahlíðmiðarvel
FRAMKVÆMDIR við hina
nýju viðbótarvirkjun Hitaveit-
unnar að Reykjahlíð í Mosfells-
dal miðar vel áfram.
Fyrir nokkru er lokið við
að steypa stokkinn fyrir leiðsl-
una frá Rekyjahlíð um Skamma
dalsskarð að Reykjum. Er nú
verið að undirbúa sjálfa DÍpu-
lögnina í stokkinn, með því að
sjóða tvö og tvö rör saman. Er
það verk unnið hjer í bænum.
en síðan eru rörin flutt upp að
stokknum. Verður þeim komið
þar fyrir, þegar steypan sem
heldur járnum þeim, sem leiðsl
an hvílir á, er orðin örugglega
hörðnuð.
Heima í Reykjahlíð er búið
að stéypa sjálfa dælustöðina og
þar miðar framkvæmdunum
einnig vel áfram.
Handteknir af Rússum.
BERLÍN — Tveir amerískir hjól-
reiðamenn, sem voru á skemmti-
ferðalagi í Þýskalandi fóru inn
fyrir landamæri rússneska her-
námssvæðisins. Voru þeir hand-
teknir af rússnesku lögreglunni.
Hafðir í haldi nokkra daga en
loksins sleppt eftir mikið vafst-
ur.
iivöldvaka Heimdallar í :
SjáSffsSíDS !sSaúsiisaa á 'ivöld
Jóhann Hafstein.
HEIMDALLUR, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna, heldur
kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld kl. 8,30.
j Ræður flytja: Jóhann Haf-
stein, alþm., og Hannes Þor-
steinsson, verslunarmaður. —
Alfreð Andrjesson syngur gam
anvísur og Kristinn Hallsson
syngur einsöng. Undirleik ann-
ast F. Weishappel. Að lokum
Hannes Þorstcinsson.
verður dansað.
Aðgöngumiðar verða seldir í
skrifstoíu Sjálfstæðisflokksins
i dag og kosta 10 krónur.
Kvöldvökur Heimdallar eru
með afbrigðum vinsælar og allt
af mjög vel sóttar. Er nauðsyn-
legt fyrir þá er sækja vilja
kvöldvökuna að tryggja sjer
aðgöngumiða sem fyrst því að
búast má við mikilli aðsókn.
ÞAÐ mun hafa komið á óvart,
að vefnaðarvörureitir skuli
ekki vera með á skömmtunar-
seðli þeim, sem nú tekur gildi.
Skömmtunaryfirvöldin, eða
öllu heldur Fjárhagsráð, sem
ákvað þetta, hefur ekki gefið
út neina tilkynningu í tilefni
af þessu. — En Mbl. hefur
freenað, að aðalástæðan fyrir
ákvörðun þessari sje sú, að
ve^na vöruskorts sje enn mjög'
mikið af skömmtunarseðlum
þeim sem gefnir hafa verið út
til þessa ónotaðir, — og því
ekki, að svo stöddu, ástæða til
að gefa út vefnaðarvörumiða.
Skömmtunaryfirvöldin munu
hinsvegar gera nauðsynlegar
ráðstafanir, ef úr rætist með
gjaldeyri og vörukaup til lands
ins og nauðsynlegt þykir að
gefa út vefnaðarvörumiða. —
Mun þá annaðhvort verða gefn
ir út vefnaðarvörumiðar, eða
einhverjum „skammtanna“ gef
ið innkaupagildi fyrir vefnað-
arvöru.
Barnaverndarfjelag
Reykjavíkur
Fjelagsskapur um uppeldi
afbrigðilegra barna
HINN 3. okt. n.k. verður gengið endanlega frá stofnun fjelags-
skapar, sem Reykvíkingum og raunar öllum landslýð mun þykja
fengur að. Samtök þessi, er hlotið hafa nafnið Barnaverndar-
fjelag Reykjavíkur, hafa það takmark að vekja áhuga á og bæta
uppeldi afbrigðilegra barna.
Aðdragandi.
Uppeldismálaþingið, sem háð
var á s.l. sumri, hafði eitt mál
til meðferðar, stórmálið um upp
eldi afbrigðilegra barna. Á þing
inu ríkti sterkur áhugi manna
á að bæta úr kjörum þeirra.
Komu þar fram raddir um
að stofna bæri fjelagsskap til
að halda þessu máli vakandi.
Er fjelagsskapur þessi nú stofn-
aður að formi til, en framhalds-
stofnfundur verður haldinn í
Góðtemplarahúsinu hinn 3. okt.
n.k.
Afbrigðileg börn.
Til afbrigðilegra barna verða
í þessu tilliti taldir 2 flokkar
þeírra. Vandræðabörn (þjófn-
aður, drykkjuskapur, lausl o.
fl.). Almenningur veit tiltölu-
lega mikið um þenna flokk
barna, en ekkert hæli er til hjer
á landi fyrir þau, og vaxa stöð-
ugt þau vandræði, sem af þeim
hljótast. Sveitaheimilin vilja af
eðlilegum ástæðum helst efíki
taka við þeim, en þó að hægt
sje að koma þeim fyrir, þá vill
oft fara svo, að þau spillast á
flækingnum og strjúka enda oft
úr vistínni.
Til hins flokksins teljast þau
börn, sem vantar mjög mikið
en éru þó ekki fávitar. Hópun
þessara barna er miklu stærri
en almenningur hefur hugmynd
um.
Þessi börn, sem ekki eru fá-
vitar, geta þó ekki fylgst með
námi í venjulegum skólum. Þau
verða þannig utan gátta og
' lenda oft út á glapstigu, rata í
ýmis vandræði, þar sem engin
stofnun er til, sem tekur við
uppeldi þeirra.
Þessir tveir hópar barna, sem
hjer hafa verið nefndir, valda
miklum örðugleikum við upp-
eldi hjer á landi. Kleppjárns-
reykjahælið veitir hjer enga úr-
bót, þar sem það er fyrir algera
fávita.
Hinn nýi fjelagsskapur.
Hlutverk þessa fjelagsskapar,
sem nú er í uppsiglingu, er að
koma með tímanum upp hæl-
um fyrir þessi börn, sem hjer
hafa verið gerð að umtalsefni,
svo og að vekja áhuga almenn-
ings á þessum málum.
Hælin þurfa að vera slík, að
börnin geti litið á þau sem heim
ili sín, en ekki sem fangelsi. —
Hlutverk þeirra yrði þá að
hjálpa unglingunum að ná fót-
festu í lífinu og útvega þeim at-
vinnu eða auka hæfni þeirra til
starfa.
Sums staðar erlendis eru t.d.
reknir iðnskólar í sambandi við
heiinilin.
Kosningaskrifstofa
Sjálfslæðisflokksins
í Ámessýslu
SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN í
Arnessýslu hafa ákveðið að
starfrækja kosningaskrifstofu
á Selfossi frá 1. okt. og til kosn
inga 23. okt.
Er mjög nauðsynlegt, að þeir
Sjálfstæðismenn er aðstöðu
hafa tií láti sltrifstofunni í tje
allar þær upplýsingar er að
gagnj mcga verða í kosningun-
nm. Sjerstaklega skal brýnt fyr
ir öllum þeim er styðja vilja
lista Sjálfstæðismanna í sýsl-
unni, að láta vitja um þá kjós-
endur listans, sem kynnu að
verða fjarverandi heimilum
sínum á kjördag.
Skrifstofan verður í húsi S.
Ó. Ólafssonar & Co., Selfossi.