Alþýðublaðið - 01.07.1929, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ALÞÝBUBLABÍði
xemur út á hverjum virkum degi. I
Aífjíeiðsla i Alpfðuhúsinu við ;
Hverfisgötn 8 opin írA ki. 9 étrd. :
ttl kl. 7 síöd.
Skrifstofa á sama síað opin ki.
QVj-IOVí árd. og kl. 8-9 síðd.
Sirnar: 988 (afgreiðsian) og 2394 í
(skrlfstoian).
Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,50 á I
mánuði. Auglýsingarverðkr.0,15 ;
hver mm. eindálka.
PrentsmiOJa: Alpýðuprentsmiöjan ;
(í sama húsi, simi 1294). !
Endalok vinnndómsins
norska.
í grein miani um vinnudöms-
frumvarpið íslenzká, sem birtist
. (bér í biaðinu 28. f. m„ gat ég 'um
hina ömurlegu reynslu, er fengisr
hefir af vinnudómnum norska,
sem var ' fyrirmynd íslenzka
vinnudómsfrumvarpsins. En nú er
lokaþáttur hinna illræmdu norsku
vinnudómslaga um garð gengimn..
Vinnuflömtslögm eni úr gijdi fsld
i Noregi. Sá merkilegi atburður
skeði í óðalsþinginu nor.ska 8.
jiúnd s. 1. Þá var samiþykt með 59
atkv. gegni 37 að framlengja ekki
vinnudómslögin.
I norska þinginu urðu fjörug-
ar umræður yfir mioldum þess-
ara þrælalaga. Meiri hluti nefnd-
ar þeirrar (socialfcomiteen.), sem
hafði málið til meðferðar, lagði
til, að lögin yrðu eklci framlengd.
Norski alþýðuforinginm og þing-
maðurinn Sösk.d hafði orð fyrir
meiri hluta niefndarin/nar. I þeinrj
ræðu sinni komst hann meðal
annars svo að orði:
„Það er sagt af mörgum að
reynisia sú, sem fékst af vininu-
dóm.slögunum árið 1928, hafi leitt
til þess, að vinmudóinshugmyndin
sé úr sögunni. Ég er eindregið
þeirtar skoðunar. Eftir úrskuirð-
um ‘ vinnúdómsins, sem féllu í
fyxra, og afleiðingunum, er aif
þeim leiddu, er óhætt að full-
yrða, að Iögbundinn dómur í
vinnudeilum er til ills eins. Þetta
hafa margir orðið að játa, sem i •
upphafi voru vinnudómíiuro
fylgjandi. . . . Það dugir ekkert,
þó að lagðar séu hinar hörðustu
refsingar við brotum á þessum
lögum. Ef úrskurðir vinnu-
dómisins etu' þannig, að meiri
hluti verkamanna er óánægður og
finst úrskurðurinn óréttlátur, þá
brjóta þeir úrskurðina á bak aft-
ur. Það er ekkert það afl til, er
hindrað geti verkamennina frá
þeirri ákvörðun. Og sama verður
uppi á teningttum, þegar að at-
vinnurekendum íinst þeir bera
skarðan hlut frá borði. Það er
ekkert það afl til, er hindrað geti
atvinnurekendur frá því að hætta
rekstri sínum, ef þekr álita launin
of háttj sett af vinnudómmum.
Samféiagið stendur því varnar-'
laust uppi, ef það ekki treyst-
ist til þess að' segja við atvinnu-
rekendur: Vér tökum þeiman at-
vinuurekstur í vorar henduir og
rekum hann fyrir þjóðfélagsheild-
ina. En niig uggir að, meiri hluti
þessa þings sé ekki fús til þeirra
stórræða."
Úr hópi Lhaldsmánna talaði
norski þingmaðurinn Norem á-
kveðið gegn framlengingú vinnu-
dómslaganna, og sagði meðal
annars:
„Ef menn hafa óskað eftir
vinnufriði, var það mjög ólryggi-
legt að kveikja það hatursbál,
sem leiddi af vinnudómslögumuan.
Ef lögin væru nú framlengd.
niyndi það að eins skapa nýjar
deilur og magna ófriðinn.“
Sama dag sem norska óðals-
þingið feldi vinnudómslögin úr
gildi, samþykta það lög um náð-
un margra þeirra manna, er
dæmdir voru sekir fyrir brot á
vinnudómslögumum. Hafa Norð-
menn þaninig gert tvent í senn:
iosað síg við hin illræmdu vinnu-
dómslög og þvegið nokkuð af
þeim smánarbletti, er lög þessi
settu á þjóðina.
En íslenzka íhaldiðrærnú ölluro
sínum „sjálfstæðis“-árum að því-
að bletta íslenzku þjóðina með
nýjum þrælalögum.
St. J. St.
Landsmálafimdur
á Seyðisfirðí.
Á laugardagskvöldið fékk Al-
þýðublaðið eftirfarandi skeyti:
Norðfirði, 29. júní.
Landsmálafundinn á Seyðisfirði
í gærkveldi sótti á þriðja fmnid-
rað manns. Fundurimn stóð yfir
frá kl. 8 til kl. 2% [um nótt-
inaj. Ræðumenn voru: Af hálfu
jafnaðarmanna Jón Baldvinsson.
Af hálfu íhaldsmanna Jón Þor-
láksson og Árni frá Múla. Af
bæjarbúum töluðu Karl Finnboga-
son, Sigurður Baldvinssóin o. fl.
Jafnaðarmenn voru í gremilegum
meirihluta á fundinum. Fundurkai
hér á Norðfirði verðuir á morg-
un [þ. e. í gær].
Jafmöarnuföurínn.
Kaupdeila
stendur yfir norðanlands út af
síldveiðikjörunum. Eitt skip er
farið til veiða frá Akureyri og
ráðið á það samkvæmt taxta Sjó-
mannafélags Norðurlands. Um
hln skipin heldur deilan áfram.
Fljót ferð yffr Affieríhn.
Khöfn, FB., 29. júní.
Frá Los Angelos er símað:
Hawks kapteinn hefir flogiðhing-
að frá New York á rúmlega 19
klufckustundum og 5 mínútum.
Hefjr enginn annar flogið þessa
leið á jafnskömnium tíma.
Landsmálafundirnir
í Snæfelísnessýsin.
Á Jandsmálafundi, sem hald-
inn var á Staðastað í s. I. viku,
mætti héðan úr Reykjavík af
hálfu Aiþýðuflokksins Sigurjón
Á. Ölafsson. Á fundinum kbm
fram megn andúð gegn Ihalds-
flokknum og skemdarstefnu
þeirri, sem hann fylgir. Er slík
andúð efcki að ástæðulausu, þar
sem íhaldsmenn, meðan þeir fóru
með æðstu völd í landinu, sýntlu
fullkomið hirðuleysi um alt, sem
snerti velferð þjóðarinnar, en
hlúðu hins vegar vandlega að fá-
mennri brask-„klíku“, 1 sem önd-
vegi skipar í hinu pólitíska búri
Iha 1 d sf lokks ins. Ihaldsflokkurinn
kemur nú fram fyrir kjósendur í
nýju gerfi. Undir fölsku merki
hygst hann að vinna sér fylgi að
nýju. En slíkt tekst ekki. Lands-
menn eru það glöggskygnir, að
iþeir sjá hinn flekkaða skjöld í-
haldsins undir falsgrímu „sjálf-
stæðisins“.
Fundurinn í Stykkishólmi bófst
kl. 6 e. h. á laugardaginn. Fund-
úr í Grundarfirði var í gær. Nán-
ari fréttir af fundunum eru ó-
komnar enn.
AðvHrnn
tll s|ómaima
Samningurinn um síldveiði-
kjör, sem Sjómannafélag Reykja-
víkur og Sjómannafélag Hafnar-
fjarðar gerðu við útgerða'rmenn
fyrir 15 línugufubáta, sem taldir
voru upp hér í blaðinu á föstu-
daginn, gildir að eins um þau
skip, sem þar. eru talin. Hins
vegar eru sjómenn aðvaraðir um,
að þeir ráði sig ekki á norðlenzk
skip nema samkvæmt norðlenzka
taxtanum.
Pólltískur ofstopi.
Ihalds-útgerðarmenn á Norður-
landi, 9 talsins, hafa háfið ofsókn
á hendur Einari Olgeirssyni vegna
pólitískra skoðana hans og af-
skifta af verkiýðsmálum. Á föstur
daginn var semdu þessir „herr-
ar“ stjórn s í 1 d areinkas öl un nar
kröfu um, að Einar yrði rekinin
frá framkvæmdastjórastarfinu
vegna afskifta hians af deilum
sjómanna og útgerðarmanna um
kjör á norðlenzkum síldveiðiskip-
um í sumar. Þótt þessi krafa
þeirra verði að sjálfsögðu ekki
tekin til greina, er gerð þeinra
söm fyrir því. Er þetta eitt dæmii
þess, hverra vopna þeim er hætt
við að grípa til, sem illan mál-
stað hafa að verja, en eiga
gnægtir offors og ágengni.
Á síldveiðar.
Tpgarinn „Skallagrímur“ fór á
laugardagskvöldið til Hesteyrar
og „Þórólfur“ í gær.
Kýja varðskipiö, „Ægir“, fer
repsluferð innan skamms.
(Frá sendiherra Dana hér.)
Nýja íslenzka varðskipið, „Æg-
ir“, mun fara í reynsluför eftir
nokkra daga. Skipið er smíðað
samkvæmt reglum uim skip í
fyrsta flokki hjá Lloyds og er
brynjað gegn árekstrum við ís
samkvæmt því, sem þýzka Lloyds
hefir mælt fyrir. Skipið er 170
fet á lengd, 29 'ý fet á breidd og
dýptin 173/2 fet. Vélin hefir 1300
hestöfl og er af nýjustu Diesel-
vélategund frá „Burmeister &
Wain“. Gert er ráð fyrir, að
skipið muni fara 16 mílur á vöku.
Það hefir tvær varahreyfivélar og
er hitað upp með rafmagni. Hefir
efckert skip verið smiðað í Dan-
mörku áður, sem þannig er hitað.
Loftskeytastöð og miöunarstöð
skipsins, sem er mjög nákvæm,
eru frá verksmiðju P. M.
Pedersens og eru af sömu
gerð og í dönsku herskipunum
og íslenzku varðskipunum
hinum. Skipið hefir tvær 77 mm.
fallbyssur. Er önnur í framstasfni*
en hin í skut. Þá hefir það tvio
sterka ijóskastara, nýtisku drátt-
aráhöld og dælur.
Eftirlit með smíði skipsins hefir
firmað „Brorson og Overgaaird“
haft, en Aage Larsen, yfir-véla-
fræðingur skipa í siglingaráðu-
neytinu danska, hefir teiknaið
skipið og gert allar áætlanir
um það. . Að lokinni
reynsluför á skipið að fara til
Islands, og er það leggur af stað
verða þeir Sveinn Björnsson
sendiherra og Jón Krabbe skrif-
stofustjóri viðstaddir fyrri hönd
islenzku stjórnarinnar.
Frá flnpoioimiiimni sæosfeu.
Þeir fá nýjan mótor í flugvéí
sína og kemur hann hingað á
sunnudaginn kemur með „íslandi'V
Nýtt Atlantshafsflug
um ísiand í samar,
Khöfn, FB., 30. júní.
Kaupmannahafinarblaðið „Natf-
onaltidende“ skýrir frá fm, að
Cramer, sem tók þátt í flugi Has-
sels í fyrra sumar, ætli ásamt
Gast flugmanni að fljúga í næstu
viku frá Chiicago, um Hobbs
camp í Grænlandi, Reykjavík og
Björgvin, til Berlínar og hafa
viðdvöl á áðurnefndum stöðum.
Kaupmannahafnarblaðið „Poli-
tiken“ skýrir frá því, að Cra-
mer ætli að fljúga frá Chicago
13. júlí, en þó fyrr, ef veðurhorf-
ur verða góðar. Tilgangurinn er
að rannsafca mögule'ikana fyrir
reglubundnum Atlantshafsflug-
ferðum á þessari leið. •— Blöðin
„Chicago Tribune" og „New York
Times“ bera kostnaðinn af flug-
ferðinni. — Fulltrúi „Chicago
Tribune“ samdi í gær við Dani
um lendingu í Grænlandi.