Morgunblaðið - 21.02.1950, Síða 1
16 ssður
87, Argangur
43. tbi. — Þriðjudagur 21. febrúar-1950.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Konungur var á fuglaveiðum.
FAItOUK konungur Egvpta þykir í vestrænum löndum all
diarftækur til kvenna. Hann mun gifta sig nú á næstunni 16
ara fegurðardís, sem eigi er konungborin. — Hjer sjest hinn
ástfangni konungur vera að koma heim af fuglaveiðum. Allt
bendir til að hann sje skotmaður góður.
Þegsiar komsnúnisia-
rikjanna mega ekki
giiiast útlendingum
Ný lög í Ungverjalandi og Tjekkó-
slóvakíu efiir rússneskri fyrirmynd.
VÍN. — Frá því um áramót hafa verið sett lög í Ungverjalandi
og Tjekkóslóvakíu, sem banna þeirra þjóða þegnum að giftast
útlendingum nema sjerstakt leyfi komi til. Tvö eru meginskil-
yrði þess, að þessi giftingarleyfi sjeu veitt. Útlendingurinn má
ekjri vera Vesturlandamaður og hann verður að vera „rjett-
trúaður", trúa á Marx og Stalin, að öðrum kosti er enginn
vegur til að leyfið fáist.
Þessi tvö ríki hafa orðið fyrst^
,alþýðulýðveldanna“ til að
setja í lög bann við að giftast
útlendingum og er þar farið
að rússneskri fyrirmynd. En
þa^ sem hugmyndin er rúás-
nesjk, þá er enginn vafi á, að
samskonar bann verður leitt í
r
löi í hinum leppríkjunum fyrr
en seinna.
Eftir tjekknesku lögunum
geta hjeraðsnefndirnar einar
veitt leyfin til að þegnarnir
megi giftast útlendingum, en
þær samsvara „sovjetunum" í
Rússlandi.
Stúlkunum neitað um
vegabrjefsáritun
Til seinustu áramóta gátu
tjekkneskar stúlkur gifst út-
lendingum hjá erlendum ræðis
manni og jafnframt fengu þær
vegabrjefsáritun og fengu að
fara úr landi óáreittur. En nú
er öldin önnur, sem fyrr grein-
ir —
í Ungverjalandi hefur ekki
aðeins verið bannað að giftast
útlendingum, en ungverskum
stúlkum, sem' giftust þeim áður
en þessi nýju lög gengu í gildi,
hefur líka verið neitað um
vegabrjefsáritun, svo að þeim
er ekki unnt að komast úr
landi.
ílalir komnir
til Somalilands
RÓM, 20 febrúar. — Til höf-
uðborgar Somalilands komu í
dag 1000 ítalskra hermanna,
ásamt nokkrum embættismönn
um, þar sem ítalir eru nú að
taka við verndargæslu lands-
ins.
Somaliland var áður nýlenda
Itala, en eftir uppgjöf þeirra,
tóku Bretar við umboðsstjórn
þar, en láta nú af henni. Hefir
gæsluverndarnefnd S. Þ. falið
ítölum að fara með umboðs-
stjórn landsins næstu 10 ár, en
að þeim tíma liðnum er ætlað,
að íbúarnir sjeu hæfir til að
taka ‘ við æö'stu stjórn mála
sinna, svo að þeir munu hljóta
fullt sjálfstæði þá að öllu for-
fallalausu. — Router.
Churchill telur horfurnur í ul
þjóðumúlum ekki gel
Kínverskir bændur
gera uppreisi gegn
FORMOSA, 20. febrúar Land-
varnamálaráðuneyti kínversku
þjóðernissinnastjórnarinnar á
Formósu skýrði írá því í kvöld,
að 100,000 Kinverja hefði gert
uppreist gegn stjórn kommún-
ista í norð-austur hluta Hunan
fylkis. Ráðuneytið telur, að
margir þeirra kommúnista, er
safna saman vörum hjá bænd-
unum, hafi verið drepnir.
NTB.
Kirkjulelólogar
reeða um velnis-
LONDON, 20. febr.
Nítján
fiíosningabaráttan hefir
náð hámarki í Bretlandi
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LONDON, 20. febrúar. — Mikil bjartsýni ríkir nú í breska
íhaldsflokknum um úrslitin í kosningunum, sem fram fara 23.
þ. m. — Er flokksforystan ekki í vafa um, að kosningarnar færi
íhaldsmönnum fullan sigur. Telja þeir, að prófkosningar, sem
fram hafa farið að undanförnu færi heim sannin um vaxandi
straum kjósenda til hægri.
Snndrung komm-
únista í loregi
OSLÓ, 20. febrúar — Á auka-
þingi norska kommúnista-
flokksins í dag gaf formaður
flokksirisl Emil Lövlien skýrslu
um deilu þá, sem staðið hefur
kirkjuleiðtogar frá ýmsum þjóð innan hans.
um heims munu gera vetnis- I Fullyrti Lövlien. að deild sú,
sprengjuna að umtalsefni á
fuhdi framkvæmdanefndar al-
þjóðakirkjuráðsins, sem kemur
saman í London á þriðjudag.
Fundinn munu sitja kunnir
kirkjuhöfðingjar og leikmenn
frá Bretlandi, Kanada, Frakk-
landi, Noregi, Sviss og Banda-
ríkjunum. Verður hann fyrir
lokuðum dyrum. NTB
Rafmagn í Bandaríkjunum
Washington. — Talið er, að raf
magn hafi nú verið leitt í 94%
allra mannabústaða í Bandaríkj-
unum.
er fylkt hafði sjer um Furubotn,
hafi beðið algeran ósigur. Hann
sagði, að þessi reikningsskil
milli flokkshlutanna hefði ver-
ið óhjákvæmileg til að flokk-
urinn gæti gegnt hlutverki sínu
í þágu fólksins. NTB.
Nauðsyn Kyrrahafsbandalags
Sidney, 20. febr. — Spender,
utanríkisráðhera Ástralíu, sagði
í dag, að brýna nauðsyn bæri til
að stofnað yrði Kyrrahafsbanda-
lag til heftingar kommúnisman-
um. —
Umræður vegna vi
áæUunarimiar hefjasl í dag
<»9n
Truman gerir ráð fyrir 3250 milj.
dala framíagi á næsla ári.
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB.
WASHINGTON, 20. febr_ — Bandaríkjaþing hefur á morgun
(þriðjudag) umræður um áframhald Marshallaðstoðarinnar. ■—:
Súnast umræðurnar einkum um, hve miklu fje skuli varið til
aðstoðarinnar á þriðja ári hennar.
‘Avarp Attlee.
Verkamannaflokkurinn lætur
ekki eins mikið yfir sigurvon-
um sínum og íhaldsmenn og
blöð þeirra, en Attlee forsætis-
ráðherra lýsir því yfir í kosn-
ingaávarpi sínu, að hann sje ör-
uggur um sigur verkamanna-
flokksins. Hvetur hann samt
fylgismenn flokksins til að
greiða atkvæði, svo að ekkert
af fylgi hans fari til spillis.
Gefa frjálslyndum ekki
gaum.
Hlutlausir telja, að hvorki
íhaldsfiokkurinn nje verka-
mannaflokkurinn geri sjer fulla
grein fyrir þeim háska, sem
þeim kann að stafa frá frjáls-
lynda flokknúm. Það eitt, að
frjálslyndir hafa 475 í kjöri get-
ur leitt til þess, að þeir hafi
mikið vald í þinginu, er þar
að kemur.
Mikil veðmál fara nú fram í
sambandi við kosningarnar.
RæSa Churchills.
Churchill hjelt ræðu í Manc-
hester í kvöld. Hann vjek að til-
lögu sinni um ráðstefnu milli
stórveldanna um kjarnorkuógn
ina. Sagði hann, að sósíalistarn-
ir teldu fráleitt að draga al-
þjóðleg stórmál, þar sem um líf
og dauða er teflt, inn í kosn-
ingabaráttuna. Hinsvegar er svo
ræða mín um þessi mál og til-
lögur þær, sem jeg kom með á
dögunum. Hafa þær vakið at-
hygli um víða veröld. Og ekki
er loku fyrir það skotið, að nýtt
viðhorf skapist í alþjóðamálum.
Að minnsta kosti getur ástand-
ið ekki versnað frá því, sem
það nú er.
Álits leitað
Koma utanríkismálanefndir
beggja deilda saman til við-
ræðu. Meðal annarra. sem
kvaddir verða til að láta skoð-
un sína í ljósi um þetta mál,
eru Acheson, utanríkismálaráð
herra og Paul Hoffman, fram-
kvæmdastjóri viðreisnaraðstoð
arinnar. Annars mun þingið
leita álits margra manna um
framkvæmd áætlunarinnar á
næsta ári hennar frá 1. júlí þ.
á. til 30. júní 1951.
Framlag næsta ár
í fjárlagafrumvarpi því, sem
Truman lagði fram í seinasta
mánuði gerði hann ráð fyrir
3,250 millj. dala framlagi á
næsta fjárhagsári. Á þessu ári
mun framlag vegna áætlunar-
innar hins vegar nema 4062
millj. dala
Leikfangagjöf
yfir A!!an!shsifiS
OSLO, 20. febrúar. — Til Oslo
komu í dag 18,000 lc-ikfanga frá
Bandaríkjunum, sem á að skifta
með norskum bornum. — Er
þarna um að ræða gjafir frá
Bandaríkjabörnum og var
safnað til þeirra fyrir jólin. Á
gjöf þessi að vera merki friðar
og góðvildar milli næstu kyn-
slóðar beggja megin Atlants-
hafsins. NTB.
/