Morgunblaðið - 10.12.1950, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.12.1950, Blaðsíða 16
Veðurúflitið í dag; Norðan stormur. Lííiís-* háttar snjókoma. JfHírtfgmtlJlaMí* 238. tbl. — Sunnudagur 10. desember 1950. dagar til j óla fjármál og framkvæmdir Keykjavíkur fii umræðu á Varðarfundi annað kvöld Gunnar Ihoroddsen tborgarstjóri málshefjandi f'JÁKMÁL Keykjavíkur verða til umræðu á fundi Landsmáia- f jelagsins Varðar, sem haidinn verður í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 8.30. — Gunnar Thoroddsen, horgarstjóri, verður •nálshefjandi á fundinum, en að ræðu hans lokinni verða frjáls- ar umræður. — Öllu Sjálfstæðisfólki er heimill aðgangur að fundinum meðan húsrúm leyfir. Frumvarp að fjárhagsáætlun var lagt fyrir bæjarstjómar- fund til fyrstu umræðu 7. des., en síðari umræða verður á bæj- arstjórnarfundi þann 21. des- ember — og fjárhagsáætlunin afgreidd þá. Með því að taka f járhagsáætl unina til meðferðar á Varðar- /undi milli umræðnanna í bæj- arstjórn, gefst fjelagsmönnum ajerstakt, tækifæri til þess fið láta að sjer kveða um fjármál höfuðstaðarins, því að ræðu Lorgarstjóra lokinni verða frjálsar umræður, og geta rnenn þá bæði borið frarn til- lögur og fvrirspurnir. Það er nú orðin föst vænja í atarfsemi Varðar, að fundur er haidinn um fjárhagsáætlun Reykjavíkur, þegar hún er til meðferðar í bæjarstjórn. Sjálf- ntæðismenn hafa sýnt með for- «sjá sinni í fjármálum Reykja- víkur, þar sem stefna þeirra fær að njóta sín í meirihluta- aðstöðu, að þeim er best treyst- andi til þess að byggja upp ör- tiggan og traustan fjárhag. Mikil síld en treður er óhagstæft SJÓMENN fundu mjög mikla síld í tveggja tíma siglingu frá Sandgerði í fyrrakvöld, er þeir komu þar á miðin. En þeir gátu ekki látið reka nema skamma stund, bar sem veður spilltigt mjög, Samt fengu nokkrir bát- ar góðan afla. Til Sandgerðis komu í gær 12 bátar með 800 tunnur. Mun- inn II. var aflahæstur með 120 tri., en Hrönn var næst með 100 tunnur. 13 bátar komu til Akraness með 750 tunnur. Farsæll var aflahæstur með 110 tunnur. Til Hafnarfjarðar komu tíu bátar með 660 tunnur. Dóra var þar af með 120 tunnur. Tíl Keflavíkur komu 7 bátar með um 610 tunnur. Var afli ■þeirsa yfirleitt mjög jafn. Enginn bátur reri í gærkv. vegna veðurs. 9,Vatna|ökuir4 strandar í Fblindþoku við Eyrarsund i Ná álti skipinu aflur úl í gær VJELSKIPIÐ ,,Vatnajökull“ strandaði síðastliðinn föstudag í Éyrarsundi, er það par á leið þar í gegn með vörur frá Póllanöi, pcrr, það á að flytja hingað til lands. Blindhríð var er skipið tók hiðri, en veður að öðru leyti gott. Botn er góður þar sem tekipið strandaði og allar líkur tii að takast muni að að ná því *it óskemmdu með öllu. Skip, sem sent var til að- ntoðar, „Vatnajökli“, og átti nð draga hann út, fann hann fekki í þokunni á föstudaginn. ten í gær var unnið að björgun- Isvni. Var í ráði að dæla olíu úr i,Vatnjökli“ og Ijetta þannig á fekipinu. Ekki hafði blaðinu borist um það, frjettir í gærkveldi, hvort tekist hefir að ná skipinu út í gær, en líkur voru til þess tald- ör. Fleiri skip munu hafa s4ranu- *ð í Eyrasundi á föstudaginn. 9—12 vindsfig í Rvík rgærkveldi VEÐUROFSI var mikill um vestur hluta landsins í gær- kveldi. Hjer í Reykjavík var veðurhæðin 9 vindstig og komst Upp I 12 vindstig I hviðuxacun. Leikfangahapp- drælti Vals lýkur ídag LEIKF AN G AHAPPDRÆTTI Vals hefur gengið mjög vel, þannig að nú eru nær állir miðar uppseldir. Þar sem svo fáir miðar eru óseldir, hefur verið horfíð að því ráði að hafa síðasta söludag happdrættisins í dag. Miðar eru seldir i Leikfanga- versluninni „Straumar“, Lauga vegi 47, og verður sala þeirra í dag kl. 4—7 e. h. — Hefur happdrætti þetta hlotið miklar vinsældir meðal barnanna, sem freistað hafa viljað gæfunnar Á fimmtudaginn í næstu viku geta svo þeir, sem gæfan hefur verið hliðholl, vitjað vinninga sinna. Verður þá bú- ið að draga um það hjá borgar- fógeta, hvaða vinningur fer á hvern miða. Stjórn Norsk-islenska fjelagsins í Ósló sendir Reykjavíkurbæ jólatrje að þessu sinni eins og í fyrra. Er mynd þessi tekin, er verið varð að setja grenitrje þetta í flutningasldp við hafnar- | bakka í Ósló. ^ INIýtt gufugos i Krýsuvík Það er þé miklu minna en hið fyrra Jóiatrje til Reykjavíkurbæjar UM HÁDEGI síðastliðinn föstudag varð gufugos í riýrri bor- holu í Krýsuvík. Er hjer um hreint gufugos að ræða, en það er miklum mun minna en gosið, sem varð þar suður frá í haust. i Valgarð Thoroddsen, raf-*" magnsstjóri í Hafnarfirði; ský-rði blaðinu fiá þessu í gær kveldi. 3000 KG Á KLUKKUSTUND Hola sú, sem þetta nýja gos kom úr, er 95 metra djúp. Hún er fóðruð niður í 75 m dýpi með 6 tommu járnröri. Við mæl ingu reyndist koma úr holunni 3 þús. kg af gufu á klst. Er það tíu sinnum minna en úr stóru borholunni (þar er magn ið 30 þús. kg). Jchann t>. Jósefsson alþm. kominn heim frá Strassbourg JÓHANN Þ. JÓSEFSSON, al- þingismaður, kom s.l. miðviku- dag heim frá þingi Evrópuráði - • ins í Strassbourg. Var hann^ á- | samt alþingism. Bjarna As- geirssyni og Stefáni Jóh. Stef- ánssyni, fulltrúi íslands á v: ” g- ir.u. ■ Hinir tveir fyrrneíndu komu heim nokkru fyrr. AKNAR VOMR UM VIRKJUN Þessi nýja hola er í nær km. fjarlægð frá hinni holunni og minnkaði magnið ekkert þar. — Gefur þetta gos aukriar vonir um nægilegt gufumagn til virkjunar sje þarna suður frá sagði Valgarð Thoroddsen. Ákveðið hefir verið að.bora á fleiri stöðum í Krýsuvík. — Verður nú reynt nær Kleifar- vatni en áður. Þung færð á Heliis- heiði í gær FÆRÐ var þung á Hellisheiði er líða tók á daginn í gær vegna snjóa. Gert er ráð fyrir að heiðin muni ef til vill teppast alveg í dag. ef snjóað hefir nokkuð að ráði í nótt. M.b. Þór frá Vestmanna- eyjum lendir í hrakningi VESTMANNAEYJUM, 9. des. — Á tólfta tímanum í fyrri- nótt barst loftskeytastöðinni í Vestmannaeyjum skeyti. frá m.b. Þór frá Eyjum. Var skipið statt suður af Stokkseyri með ógangfæra vjel, því reknet hafði flækst í skrúfuna. Versta veður var á og bað báturinn um skjóta aðstoð. BJÖRGUNARSTARFIÐ Vestmannaeyingar brugðu skjótt við og lagði m.b. Vonin af stað um kl. 1 hinum nauð- stadda bát til aðstoðar. Kl. 8 í gærmorgun fann Von- in m b. Þór suður af Eyrar- bakka. Gekk mjög erfiðlega að koma dráttartaug milli skip- anna vegna veðurs og marg slitnaðj taugin. Var síðan.hald- ið til Vestmannaevja en ferðin sóttist mjög hægt vegr-.a veður- ofsa og sjógangs. Á LEIÐ TIL STOKKSEYRAR Á m.b. Þór er 5 manna á- höfn. Líður þeim öllum vel og var búist við bátnum til Eyja seint í nótt eða ssnemma í morgun. Þór lagði af stað frá Kefla- vík á föstudag og var ferðinni heitið til Stokkseyrar, þar sem báturinn átti að taka bygging- arefni, sem fara átíi til Vest- mannaeyja. * Togara rak á land vi$ Shululsfjörð, en komst affur á flot UPP úr hádeginu í gær gerði aftakaveður af norð-austri a Vestfjörðum. Breski togarims „Northern Spray“, sem lá í svc> nefndri Prestabugt. rjett utan við ísafjarðarkaupstað, slitnaði upp um þrjú leytið og rak upp á Norðurtangarif. Þrátt fj'rir vondar aðstæður tókst skipverjum af eigin raram ’eik að rtá togaranum aftur á. flot og koma honum inn á Presta bugt um .kl. 6 í gærkveldi. — Laskaðist stýri hans og einnig er talin hætta á að skrúfam hafi eitthvað skemmst. Skvpstórinn á breska togar- anum, er af íslenskum ættum, Sverrir Ebenesarson að nafni. „Snæieir frá Kefla- vík tók niðri, en ekki Akureyrarskipið í BLAÐÍNU í gær var skýrD frá því að vjelskipið „SnæfelTs frá Akureyri hafi tekið niðrj undan Hafnarbergi, en síðan losnað af skerinu og komist áj flot. Síðan kom í ljós, að hjer va? ekki um „Snæfell“ frá Akur- eyri að ræða, heldur rekneta- bát frá Keflavík, sem ber sama nafn. Er bátur þessi um 18 smfe lestir. Hann flaut fljótt af sker- inu aftur og ekki hægt að sjái að hann hafi sakað nokkuð. Eftirlíking af Kon- ' Tiki-flekanum lil \ sýnis hjer FRÁSÖGN af leiðangri norska’ vísindamannsins Thor Heyer- dahl og fjelga hans á bjálka- fleka yfir Kyrrahaf er komim út á íslensku í þýðingu Jóns Eyþórssoriar og nefnist „Á Koij Tiki yfir Kyrrahaf". Eftirlíking af fleka þeim, sem notaður var í þessari glæfra- för, gerð úr sama viði og bundl in saman á sama hátt og flek- inn var, er nú til sýnis 2 glugga Bbkaverslunar Lárusac Blöndal óg verður þar næstu daga. ' , j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.