Alþýðublaðið - 22.06.1920, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.06.1920, Blaðsíða 1
(W 1920 Þriðjudaginn 22. júní 139. tölubl. VerðfaUið i Bandaríkjuruim. Þrf fleiri fregnir, sem vér fáum af hinu eftirtektarverða verðfalli í Bandaríltjunum, þess fleira bendir til þess, að það sé ekki nema að mjög litlu leyti að þakka aðgerð- um neytendanna. Orsökin mun að- allega vera sú, að varasjóðsnefnd sambandsríkjanna (Federal Reserve Board) hefir sagt upp Iánum svo hundruðum miljóna dollara skiftir. Lán þessi höfðu vet ið veitt til við- skifta og verzlunar og þegar þeim var sagt upp, urðu bæði smásaiar og heildsalar að seija birgðir sínar alt hvað at tók, og féllu þær því skyndilega f verði. Þar að auki liggja aðrar mikilvægar orsakir til verðfallsins. í lok styrjaldarinnar hafði auðlegð Bandaríkjanna náð hámarki sínu. Vinnuaflið hækkaði þá í verði, sökum þess, að inn- flutningur fólks hætti svo að segja og hergagna- og hráefnaframleiðsla Bandaríkjanna hafði fært þeim ógrynni auðs annarsstaðar frá. Nú hefir samkepnin og fólksinnflutn- ingur byrjað aftur, svo viðskiftin virðast aftur vera að komast í venjulegt hotf. Allar þessar orsakir samanlagðar urðu þess valdandi, að kröfur manna til þæginda og lífsins gæða urðu minni og verð «11. Það er eigi óiíklegt, að næstu íréttir frá Ameríku verði af ægi- legri hræðslu við peningakreppu. (Irish Statesman, Dublin, 29. mai 1920). Slys. I gærkvöldi [er Suðurland var komið út fyrir Eyjar, voru kyndararnir að vinda upp ösku neðan úr vélarúmi. Vildi þá til það slys, að annar maðurinn varð fyrir vindusveifinni og meiddist allmikið í andliti, svo skipið suéri aftur, og var læknis vitjað til að búa um meiðslin. K1* assi 11. Verzlunarsendiherra Bolsivíka í London, Krassin, er sá maðurinn, sem mest er talað um í Evrópu nú sem stendur. Hér kemur mynd af honum, tekin í London, ásamt fulltrúum rússnesku samvinnufciaganna (Centro-sojus). Krassin er skeggjaði maðurinn fremst á myndinni til hægri. Að öðru leyti vísast til greinar um för hans hér í blaðinu í gær. Klæiavertaiðjai ,Gefjiin‘. Viötal tíö Jónas Pór Yerksmiöjnstjóra. Eg hitti Jónas Þór verksmiðju- stjóra klæðaverksmiðjunnar .Gefj- un“ á Akureyri að máíi, og gekk með honum inn að „Iðunni", sem „Gefjun" hefir nú keypt all- ar vélarnar úr. „Hvenær er „Gefjun* stofnuð?" „Eins og henni nú er fyrir kom- ið, má segja að hún hafi verið fullgerð 1912. Ea úpphaflega var hún sett á fót af sýslunni og bæn- um um 1898, og voru þá aðeins notaðar kembingarvélar og spuna- vél. Verksmiðjan var rekin með stöðugu tapi — fyrirkomulagið ekki heppilegt —, og itka var verksmiðjan alls ónóg. Menrt sáu að svo búið mátti ekki standa, og seldi þá bær og sýsla fyrirtæk- ið hlutafél. Verksm.fél. á Akureyri. Var þá hafist handa af nýju, feng- ið lán úr landssjóði og ábyrgðist b^erinn og sýslan lánið. Voru nú keyptar nýjar vélar til viðbótar, vefstólar og nauðsynlegar vélar þeim tilheyrandi. Þá var og byrj- að að reisa nýtt verksmiðjuhús úr steini hátt og lágt, stórt og vand- að og var gert ráð fyrir því, að fjölga mætti vélunum um heiming. En enn reyndist féð of lítið til að reka með verksmiöjuna, en sá örð- ugleiki varð þó yfirstiginn." „Borgaði verksmiðjan sig er far- ið var að reka hana eftir stækk- unina?" „Nei, ekki fyrst framan af, en síðustu þrjú árin hefir hún gert það fullkomlega og meir en það. Hún hefir gefið arð og greitt all- ar skuldir nema landssjóðslánið og Iagt fé í varasjóð.“ „Hvenær tókst þú við stjóm verksmiðjunnar?* „Árið 1916. Annars er verk- smiðjunni stjórnað rnjög á annan veg en eg veit til að sé um önn- ur fyrirtæki hér á landi. Þegar sýslan og bærinn gengu í ábyrgð fyrir landssjóðsláninu, gerðu þau það að skilyrði fyrir ábyrgðinni, að þau hefðu meiri hluta í stjórn verksmiðjunnar, Kjósa því sýslan

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.