Morgunblaðið - 16.11.1951, Page 16

Morgunblaðið - 16.11.1951, Page 16
VeSurúfliS í dag: Norðaustan gola, ljettskýjað. Per Lagerkvisf Nóbelsverðiaunaskáld. — Sjá grein á bls. 8. Frá bæjarcijómarfuntii í gær: Nýir sjúkrabílar. Umræður m gfvinnuastand ot| fjármá! Peykjivskurbæjar TVÆR TILLÖGUR komu fram á bæjarstjórnarfundi í gær varð-| andi atvinnuástandið í bænum, önnur frá Alþýðuflokknum og hin ; frá kommúnistum. Voru þær báðat- endurtekning á tillögu komm- j únista á síðasta bæjarstjórnarfundi Kommúnistar báru fram til- • lögu þess efnis að bæjarstjórnin beitti sjer fyrir því að 7 fyrr- j verandi vagnstjórar hjá Strætisvögnum Reykjavíkur yrðu ráðnir ! aftur. Vilja þeir að 7 vagnstjórum verði sagt upp til þess að þetta geti orðið. Þá gerðist Þórði Björnssyni æði skrafdrjúgt um brjef það er fjelagsmálaráðuneytið hefur sent öllum bæjarstjórnum kaupstaðanna, þar sem lagt er fyrir þær, að láta fara fram at- hugun á möguleikum til sparnaðar. Taldi hann að Reykjavikur- bær hefði ekki um 30 ára skeið fengið aðra eins hirtingu frá ríkis- stjórninni og væri nú nánast ko.minn undir eftirlit þess. ATVINNUÁSTANDIÐ «-------------------- Fyrir nokkru komu til landsins tveir nýir sjúkrabílár, enda ekki vanþörf á, þar sem þeir gömlu eru nú orðnir mjög úr sjer gengnir. Þessir nýju sjúkrabílar verða bráðlega teknir í notkun. Þeir eru aí International-gerð. — (Ljósm. Mbl. Ól. K. Magnússon). Báðar atvinnubótatillögurnar gengu í þá átt að bæjarráð og útgerðarráð beittu sjer fyrir því að togararnir legðu fiskafla sinn á land til vinnslu hjer í bænum eða til herðingar eins og sagði í tillögu Alþýðuflokksins. Borgarsjóri benti flutnings- mönnum á, að í þessum tillögum væri alls enga úrlausn að finna þar sem hjer væri aðeins um upptöku afgreidds máls að ræða frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Sagði hann að unnið væri að mál inu á grunvelli þeirrar samþykkt ar, sem gerð var á síðasta fundí og um þær aðgerðir virtust allir vera sammála. Taldi hann, að ekki bæri að leggja þær auknu byrðar, sem landanir togaranna hefðu í för með sjer, á bæjar- sjóð, án þess að reyndar yrðu aðr ar leiðir, þar sem upplýst væri, að landanir í frystihúsin mundu hafa taprekstur í för með sjer á togurunum. Sagði borgarstjóri, að u.nnið væri af alefli að lausn málsins og vísaði algerlega á bug aðdrótunum kommúnista um að ekert hefði verið gert í málinu. Báðum tillögunum var vísað til útgerðarráðs. STÆTISVAGNAMÁLIÐ Þá benti borgarstjóri á, að einnig væri búið að afgreiða þetta mál í bæjarsjórn, þegar tillaga Guðmundar Vigfússonar var felld hinn 4. október síðastliðinn, en kommúnistar hefðu haldið uppi áróðri og blekkingum í mál- inu eftir það og hefðu nú komið því til leiðar að 2 starfsmenn strætjsvagnna hefðu verið relcn- ir úr Hreyfli og hefðu við það misst vinpu hjá Strætisvögnun- um. Kvað borgarstjóri það frá- leitt að bæjarsjórn ætti að ieggja mat á hæfileika einsakra starfs- manna hjá þessu fyrirtæki. Til þess væru engir hæfari en þeir, sem þekktu til af eigin raun, þ. e. eftirlitsmenn þeir sem fram- kværndu hæfileikaflokkunina á sinum tíma, en báðir þeir menn hefðu unnið hjá fyrirækinu meira en 20 ár. Guðmundur Vigfússon fulltrúi kommúnista taldi, að hjcr væri um að ræða pólitískar njósnir og atvinnuofsóknir og sagði að Sjálf stæðisflokkurinn hefði sent tvo njósriara til að hafa hönd í bagga með aðgerðum eftirlitsmannanna. Hafði hann í hótunum og gaf í skyn" að gripið mundi til ein- hverra róttækra aðgerða. Þeir borgarstjóri og Jóhann Hafstein bæjarfulltrúi, bentu Guðmundi á að þeir einir menn hefðu verið endurráðnir til Strætisvagnanna, sem verið hefðu í úrvals og fyrsta flokki. Allt annað væru blekk- ingar og uppspuni frá róíum. Dómur þeirra, sem gerþekktu starfsmennina þ. e. eftirlitsmann anna, hefði ráðið úrslitum í öll- um tilfellum. Þá benti borgar- stjóri á, að undarlegt væri hversu viðkvæmur Guðmundur Vigfús- son væri fyrir atvinnuofsóknum. Þeim væri ekki til að dreifa af bæjarins hálfu enda hefði aðeins einn maður verið látinn fara úr' þjónustu Strætisvagnanna síðan bærinn tók við rekstri þeirra en hins væri skemmst að minnast, að fulltrúaráð verkaiýðsfjelag- anna hefði rekið starfsmann úr þjónustu sinni til þess eins að sjálfur Guðmundur Vigfússon gæti fengið það starf. Jóhann Jlafstein undraðist þá hvatvísi Guðmundar að hafa í hótunum við bæjarstjórn, þannig að ef hún breytti ekki að vilja kommúnista, kynni hún að hafa verra af. Taldi hann slíkar hót- anir kommúnista í bæjarstjórn- inni með öllu óviðeigandi, þó að þær væru að vísu táknrænar fyr- ir háttalag kommúnista. En það yrðu fulltrúar kommúnista að muna, að Reykvíkingar væru ekki enn seldir undir þá raun að þurfa að lúta vilja kommúnista. Hjer lifðu menn í lýðfrjálsu þjóð- fjelagi, en ekki í eilífum ótta og kúgun, eins og þar, sem kommún- istar rjeðu ríkjum. Þegar tillaga kommúnista kom til atkvæða var hún felld með 8 atkvæðum gegn 4. ÞÓRÐARÞÁTTUR BJÖRNSSONAR Á miðjum fundi stóð upp Þórð- ur Björnsson bæjarfulltrúi og gerði nokkrar fyrirspurnir til borgarstjóra, m. a. um rekstur Faxaverksmiðjunnar, framsöl tog ara bæjarins, og síðan brjef fje- lagsmálaráðuneytisins, sem sent var öllum bæjarstjórnum í kaup- stöðunum. Dylgjaði hann uffl það að Reykjavíkurbær væri nú kom- ínn undir ríkiseftirlit vegna slæmrar fjármálostjórnar og væri hjer um að ræða hina alvar- legustu hirtingu af hendi fjelags- málaráðuneytisins. Brigslaði hann borgarstjpra um að Jhafa stungið brjefinu undir stól. Borgarstjóri vítti Þórð fyrir slíka fölsun og rangtúlkun á brjefi fjelagsmálaráðuneýtisips, og sagði að fjelagsmálaráðherra mundi sennilega telja sjer lítínn greiða gerðan með slíkri túlkun á brjefi ráðuneytisins. Þórður Björnsson reyndi alveg sjerstaklega að gera sjer mat úr því sem vikið er að í brjefi ráðu- neytisins, að eftirlit yrði haft með því að úgjöld bæjarfjelaganna færu ekki iratm úr því sem áæl- að væri. Þessu taldi hann beint að Reykjavík og væri aumt fyrir borgarstjóra að þurfa að þola þá ákúru sem í þessu fælist. Út af þessu kvaddi Jóhann Haf stein sjer hljóðs. Sýndi hann fram á hversu fráleitar ásakanir Þórðar væru þar Sem núverandi borgarstjóri hefði einmitt hlotið verðsl^uldað lof fyrir sjerstaka röggsémi í því að halda útgjöld- um bæjarins innan ramma fjár- hagsáætlunarinnar. Sannaði hann mál sitt með eft- irfarandi íölum: Árið 1947 hefðu útgjöldin verið hálfri milljón lægri en fjárhags- áætlun, árið 1948 nokkrum þús- undum lægri og árið 1949 um einni milljón innan við áætlun. Frh. neðst á næsta dálki Var gestkomandi er hann stal bankabókinni SVO virðist sem maðurinn er stal bankabókinni á Akureyri, en tekinn var höndum hjer í bæn- um, hafi stolið bókinni er hann kom í heimsókn til piltsins er bankabókina átti. Um rannsókn málsins á Akur- eyri, sendi frjettaritari Mbl. þar blaðinu eftirfarandi í gær: Pilturinn, eigandi bókarinnar, fjekk þær upplýsingar hjá hús- móður sinni, að maður, sem hún ekki þekkti, hefði komið þar heim og spurt eftir honum, og er honum var sagt að hann væri ekki heima, bað hann um leyfi til að fá að fara upp í herbergi hans og sækja þangað hlut, er hann kvaðst eiga þar geymdan. Þar dvaldi maðurinn örlitla stund og hvarf síðan á braut. Skólapilturinn fór tafarlaust í Útvegsbankann, þar sem inn- stæða hans var og fjekk að sjá úttektarbeiðnina fyrir þessum 1000 krónum. Sá hann þá strax, að nafn hans undir beiðninni var falsað. Fjekk hann þegar í stað grun á utanbæjarmanni, sem var gestkomandi í bænum og hafði komið heim til hans. Við eftir- grennslan kom í ljós, að maður þessi hafði farið til Reykjavíkur með flugvjel laust fyrir hádegi þann dag. Sama nefnd fyrir ailt Þýskaland KASSEL, 15. nóv. •— Nefnd frá Ólympíunefnd Austur-Þýska- lands kom til Kassel í dag. Þar situr hún fundi með Ólympíu- nefnd Vestur-Þýskalands um skip- un ólympíunefndar fyrir allt landið. Reúter-NTB Frh. af fyrra dálki. Útgjöldin hefðu fyrst farið fram úr áætlun á síðastliðnu ári vegna gengislækkunarinnar, en forsæt- isráðherra þeirrar ríkisstjórnar, sem hefði beitt sjer fyrir gengis- lækkuninni mundi sjálfsagt verða síðastur til að beina ásök- unum til bæjarstjórnar vegna þessa. Við þessar áminningar fór Þórð ur undan í flæmingi og endaði með því að kyngja öllum stóryrð- unum. Þótti framkoma bæjar- fullrúans með alaumasta móti — og verður þó ekki sagt um þenn- an bæjarfullrúa, að hann hafi úr háum söðli að detta. Einig tóku til máls Guðmundur Ásbjörnsson forseti bæjarstjórn- ar og Guðmundur H. Guðmunds- son bæjarfuiltrúi og ræddu báð- ir um fjármál bæjarins. Fjelagið Germanía verður endurvakið FYRIR um 30 árum var stofn- að í Reykjavík fjelagið „German- ia“ til eflingar menningar- tengsla milli íslands og Þýska- lands. Allt frá því árið 1940 hefar starfsemi fjelagsins þó legið niðri. Með vaxandi menningarlegum og viðskiftalegum tengslum við Þýska land, hefur vaknað á því áhugi á nýjan leik a ðefla starfsemi fje- lagsins. Á s’.h vori var haldinn aðal- fundur í fjelaginu og voru þá eftirtaldir kjömir í stjórn þess: Dr. Jón Vestdal, formaður, Davíð Ólafsson, ritari Teitur Finnbogason, gjaldkeri og meðstjómendur frú Þóra Timm ermann og Ámi Friðriksson. Hefur nú verið ákveðið, að halda skemmtikvöld fyrir fjelags- menn og gesti þeirra, og verður það í Tjarnarcafé, uppi, í kvöld kl. 8,30. Til skemmtunar verður m.a. fyr- irlestur, upplestur, tónleikar, kvik myndasýning og dans. Þeir, sem kynnu að vilja gerast meðlimir fjelagsins, geta snúið sjer til einlivers af stjórnendum þess* Tískusýnlng í bíó VERSLUNIN Tískan og Hattabúð Reykjavíkur, hafa tekið upp þann hátt, að efna til tískusýn- ingar í hljei á kvöldsýningu í Austurbæjarbíói og var fyrsta sýningin í gærkvöldi og mun hún endurtekin í kvöld. Tískan sýnir þar 18 kápur, haust- og vetrartísku, en Hatta- búð Reykjavíkur nýjustu hatta- tískuna, og einnig hatta sem vel þykja fara með þeim kápum er sýndar verða, en þær eru bæði ullar- og gabardine. Jélamerki Thorvald- sensfjelagsins komin JÓLAMERKI Barnauppeldis- •sjóðs Thorvaldsensfjelagsins eru komin á.markaðinn hin smekk- legustu að vanda. Voru merkin að þessu sinni gerð í Englandi. Jólamerkin eru seld í Pósthús- inu, Thorvaldsens-basarnum í Austurstræti og einnig í flestum bókabúðum. Skal athygli fólks vakin á þeim í sambandi við póstsendingar núna fyrir jólin. Til landvarna. BRÚSSEL. — Belgíumenn ætla að verja 488 dölum til landvarna að ári. Eiga 26,6% teknanna að renna til landvarna. 2 Dauðaslys á Suð- urlandsbraul í FYRRADAG varð dauðaslys I úthverfi bsejarins. — Ingimar Jónsson, verkamaður, 86 ára, til heimilis að Ferjuvogi 19, varð fyrir fólkflutningabílnum R- 1763 og beið Ingimar samstundis bana. Slysið varð á Suðurlandsbraut um klukkan 5. — Ingimar var að koma úr vínnu. Hann var á leið yfir götuna. cn fólksflutninga- bílinn bar jjar að í sömu svifuin. Skipti það engum togum að Ingi- mar lenta iraman á bílnurn, kast aðist frá bonum nokkurn spöL Hann mun hafa látist samstundis. Að Ferjuvogi 19 bjó Ingimar hjá dóttur sinni og tengdasyni. Mesl fliilf út af freSfiski : í OKTÓBERMÁNUÐI nam htild- . arverðmæti útfluttrar vöru 87,2 millj. kr. Var freðfiskur verð- mætastur hinnar útfluttu vöru. Nam verðmaeti hans 13,2 millj. í mánuðinran varð Holland aðal- viðskiptaland okkar, með rúm- lega 19,4 millj. kr. viðskípti. í október nam sala síldarlýsis 12.7 njillj- kr„ ísfisksalan narrt 10.7 milij. og sala saltsíldar nam 10,2 millj. kx. Næst kemur svo freðkjöiið, fyrir 6,5 millj. kr„ hvallýsi 6,6 miUj. og saltaðar gær ur voru seldar ú tfyrir 6 millj. kr. Saltfisksalan nam tæplega 8 rnillj. kr. Bandaríkin keyptu mest af ísl. afurðum i október. Nam salan þangað 17,9 millj. kr„ þriðja í ræðlnni er Bretland 16,2 millj. Af Norðurlandaþjóðunum varð mest sala íil Finnlands 5,1 millj. kr. -------------------- ,J Loffor konmglegur Ijósmyndarl j Svíakonungs SVO sem kunnugt er, sæmdi Gustav V. Svíkonungur, Loft Guðmundsson Ijósmyndara, titl- inum konunglegur Ijósmyndari. Með fráfalli hins aldna þjóðhöfð- ingja fjell þessi heiðurstitill úr sögunni, nema þá og ef, hinn ný- kjörni kommgur, Gustav VI., endí urnýjaði hann. Fyrir sammu barst Lofti Guðmundssyni veg- legt heiðursskjal, þar sem honum er tilkynni að hann sje gerður að konunglegum ljósmyndara Gustavs VI. Sviakonungs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.