Morgunblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 16
Veðurúliif í dag: Stinningkaldi austan, snjó- koma fyrsi, síöar rigning. MMSEML næstu viku á biaðsiðu 5. r • A landinu eru rúmlega 10.600 bílar í umSerð ' Þeim fækkaði á árinu 1951 í ÁRSLOK 1951 voru á öllu landinu 10.634 bílar og 294 bifhjól. — flefur bílum nokkuð fækkað, eða alls um 82. Einnig fækkaði bif- hjólum á árinu úr 427 í 294. — Vörubílar voru við áramótin 4214, en fólksbílar 6420. — Frá því á ,um 500. Frá þessu er skýrt í hinu ár- Jega yfirliti skrifstofu vegamála- stjóra, er skrifstofan lætur taka saman. Er þar að venju að finna piikinn fróðleik um bíla þá, sem p. umferð eru. ^JÖLGAÐ — FÆKKAB Á árinu 1951 fjölgaði fólksbíl- um úr 6327 í 6420. Vörubílum fækkaði úr 4389 á árinu 1950 í 4214 og bifhjólunum fækkaði nið- ur í 294 úr 427. BÍLAFLESTU BYGGÐALÖGIN Svo sem kunnugt er, þá eru flestir bílar í Reykjavík. Þar eru fólksbílarnir 3641 og vörubílarnir 1739 og loks eru 93 bifhjól. Eru því alls 5473 ökutæki í bænum, eða röskur helmingur allra bíla og bifhjóla á landinu. í Gull- bringu- og Kjósarsýslu eru 570 fólksbílar og 408 vörubílar. — í Eyjafjarðarsýslu, og er Akureyt'i þar með talin, eru 470 fólksbílar og 286 vörubílar, 46 bifhjól. í Neskaupstað og Ólafsfirði eru bílarnir fæstir. Eru fólksbílar 23 og vörubílar 21 í Neskaupstað og þar eru þrjú bifhjól. í Ólafsfirði eru 30 farartæki alls, þar af 12 fólksbílar, 13 vörubílar og fimm eru bifhjólin. — í Vestmanna- eyjum 112 bílar alls og 7 bif- hjól. FLESTIR ERU JEPPARNIR - Langsamlega flestir fólksbíl- anna eru jeppar, eða 1712, þá koma Fordbílar 863, þriðju eru Austin 515, þá Chevrolet 456 og fimmtu koma Dodge 380. — I yfirlitsskýrslunni er þess getið að alls eru fóiksbílategundirnar 77. Vörubílarnir eru samtals 4214 og eru Chevrolet bílar þar af 1112, Ford 926, þriðju eru Austin 327, Dodge 265 og af G. M. C. 254. Alls eru tegundir vörubíl- anna 77. Alls eru þeir bílar er sæti hafa fyrir fleiri en sex, 285 að tölu, og eru langsamlega flestir þeirra Ford, eða 109. ELZTI BÍLINN FRÁ 1923 Á árinu 1951 voru alls skráðir, við fyrstu skráningu, það vill segja, að um nýja bíla er að ræða, og er tala þeirra 172, þar af 152 fólksbílar. — Á árinu 1950 voru 136 nýir bílar skráðir. — Bílainnflutningur hefur orðið árinu 1947 hefur bílum fjölgað mestur á árinu 1940 og voru þá skráðir 2129 nýir bílar. EÍzti bíllinn, sem nú er í um- ferð, er 29 ára og er það vöru- bíll. — Elz-tu fólksbílarnir tveir, sem enn eru í umferð, eru síðan á árinu 1926. — Elzti almennings- vagninn er 22 ára. Elzta bifhjólið er frá því á árinu 1927. ' Utanríkis- og fjár- máiaráðherra komnirheim BJARNI Benediktsson utanríkis- ráðherra og Eysteinn Jónsson f jármálaráðherra, komu flugleiðis til Keflavílcur í gærmorgun. Ráð- herrarnir sátu eins og kunnugt er ráðsfund Atlantshafsbandalagsins, sem lauk s. 1. mánudag í Lissabon. Líiil telpa slasast í strætisvagni RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur fengið til meðferðar rann- sókn á slysi er varð í strætis- vagni. Lítil telpa, Steinunn Ingi- björg Bjartmarsdóttir, Njálsgötu 85, varð á milli, er sjálfvirka hurðin opnaðist, með þeim af- leiðingum að báðar pípur í fram- handlegg brákuðust. — Verður telpan að vera með handlegginn í gipsi um nokkra vikna skeið. Rannsóknarlögreglan hefur beðið blaðið að koma þeim boð- um til farþega, er voru í vagn- inum í umrætt skipti, að koma sem fyrst til viðtals. Þetta gerðist á öskudagskvöld um kl. 6, í vagni þeim er ók vest- ur um Sólvelli. Á viðkomustaðn- um næst fyrir vestan Hofsvalla- götu, varð telpan á milli með handlegginn. Maður er var far- þegi, kom telpunni strax til hjálp ar. —- Bílstjórinn var ekki kall- aður til að tala við telpuna, að- eins beðinn að loka hurðinni aft- ur. — Maðurinn, sem kom Stein- unni litlu til hjálpar, sagði henni að stinga hendinni inn á barm sér, þar eð handleggurinn væri sennilega brákaður. — Við þenn- an mann vill rannsóknarlögregl- an tala sem fyrst, svo og aðra af samferðafólki litlu telpunnar, eins og fyrr segir. Sfefáns-'kirkjan í Vínarhorg Þetta er mynd af hinni frægu Stcfáns-kirkju í Vínarborg. Hún varð f.vrir loftárás í hcims- styrjöldinni síðari og skemmd- ist mjög mikið. Unnið er nú að því af miklum krafti að gcra við skemmdirnar. „Reykvíkingur”, nýtt vikublað hefur göngu sína NÝTT vikublað hefur ,göngu sína hér í bænum í dag. Nefnist það „Reykvíkingur". Ritstjóri blaðsins er Gísli J. Ástþórsson. Blaðinu er ætlað að vera til fróð- , leiks og skemmtunar. Þar eru þætt ir úr bæjarlífinu, ritað um kvik- myndir, samtalsþáttur er nefnist „Vangasvipur", kvennasíða, Ame- ríkubréf til kvenfólksins, kross- gáta, um bridge og skák, útvarpsdálkur, þýddar gr'ein- ar, gamansaga o. fl. — Blaðið verður 16 síður að stærð. Af- greiðsla þess er í Listmunaverzl- uninni í Herkastalanum. jSjörn Jónsson form. Félags Hugvallar- 'starfsmanna AÐALFUNDUR Félags flugvall- arstarfsmanna ríkisins var hald- inn í gærkveldi í skriftofum Flug- vallastjóra á Reykjavíkurflug- veili. F ormaður félagsins, Arnór Hjálmarsson, setti fundinn en fundarstjóri var kjörinn Björn Jónsson og ritari Bpgi Þorsteins- son. ÍSFiSKSALAN í ViiiLNMI l\IAM 3,9 IMILLJ. KR. í SÍÐUSTU viku nam ísfisksala togaranna í Bretlandi alls um 3,9 milljónum kr. brúttó. Þá seldu 10 togarar. — Fiskverð var mjög misjafnlega hátt frá degi til dags í vikunni. Sölurnar eru allt frá 7611 pund upp í 12.544 sterlings- pund. ÓVÍST UM MARKAÐSIIORFUR I næstu viku munu 15 skip selja í Bretlandi. — Það er ekki gott að spá um markaðshorfur. Brezkir togarar hafa verið með góðan afla siðustu daga á mið- unum við Noreg. — Hér hefur afli verið misjafn, suma daga góður en aðra minni. SIÐUSTU SÖLURNAR Þessir togarar hafa selt í vik- unni: Bjarni riddari 3677 kit fyrir 8315 sterlingspund, Goðanes 3396 kit fyrir 8309 pund, Fylkir 3733 kit fyrir 9350 pund, Bjarnarey 3233 kit fyrir 7611 pund, Elliðaey 3205 kit fyrir 8484 pund, Aust- firðingur 3922 kit fyrir 12.544 pund, Helgafell 3584 kit fyrir 11307 pund, Jón forseti 4181 kit fyrir 11.350 pund, Geir 3951 kit fyrir 11.431 pund og Svalbakur 3607 kit fyrir 9436 sterlingspund. Vegna togaraverkfallsins hafa tveir togarar stöðvazt, Röðull frá ! Hafnarfirði og Jón Þorláksson, I Reykjavik. i Fundur þessi er fjölmennasti aðalfundur, sem til þessa hefir verið haldinn í félaginu. Teknir voru inn í félagið 17 starfsmenn Keflavíkurflugvallar, og voru þeir flestir mættir á fundinum. Ríkti hinn mesti áhugi á fund- inum fyrir félagsstarfseminni og eflingu hennar. Urðu nokkrar um ræður um skýrslu formanns og lagabreytingar voru gerðar, aðal- lega í samræmi við það að þorri félagsmanna er ekki lengur bund- inn við Reykjavíkurflugvöll, svo sem verið hefir, þar sem Islend- ingar hafa tekið við yfirstjórn allrar flugþjónustu á Keflavíkui'- flugvelli annarri en hervéla. í stjórn félagsins fyrir næsta ár voru kosnir: Björn Jónsson, formaður, Bogi Þorsteinsson, va ra formaður, Friðrik Diego, ritaii, Margrét Jóhannsdóttir, bréfritari, og Gústav Sigvaldason, gjaldkeii. í varastjórn voru kosnir Sigurður 1 Jónsson og Stefán Guðjohnsen. I Trésmiður híffur bana við að falla nðður um sfigaop í GÆRDAG lézt í Landsspítalanum Guðjón Jónsson trésmiður, Miðtúni 57 hér í bæ. —Hann varð fyrir því slysi í fyrradag, að falla niður um stigaop. Kom hann á höfuðið og afleiðingar þess drógu hann til dauða. Engar sállsjiiilei!- anir í togaradeilunni ENGIR fundir voru í gær msð sáttanefnd og aðiljum í togara- deilunni. Að öllum líkindum fara engar viðræður fram milli þeirra um helgina. Búið að slökkva er slökkviliðið kom í GÆRMORGUN um klukkan 10,50 var slökkviliðið kvatt að Mávahlíð 33. Hafði þar kviknað í út frá olíukyndingu, en heima- fólk hafði ráðið niðurlögum elds- ins er slökkviliðið kom á vettvang. 1 gærdag klukkan rúmlega 4 var slökkviliðið kvatt inn á Barón- stíg. Var þar um narr að ræða. Ekki hefur hafzt upp á þeim er þarna var að varki. 15 frjálsíþróttamót verða haldin á sumri komanda SAMKVÆMT upplýsingum frá Frjálsíþróttaráði Rvíkur verða haldin 15 íþróttamót í frjálsíþrótt um hér í bænum næsta sumar. Mótin verða sem hér segir: 11. maí: Víðavangshlaup M.í. og vormót Í.R., 18. maí: Síðari hluti vormóts Í.R., 24. maí: Tjarn- arboðhlaup K.R., 31. maí og 1. júni: E.Ó.P.-mótið, 7. og 8. júní: Drengjamót Ármanns, 16. og 17. júní: 17,-júní-mótið, 24,, 25. og 26. júní: Meistaramót Reykjavík- ur (úrtökumót), 9. o? 10. júlí: Drengjameistaramót íslands, 6. og 7. ágúst: Meistaramót Rvíkur (tugþr., 10 km), 16. og 17. ágúst: Meistaramót íslands (kvennam. mót), 23., 24. og 25. ágúst: Meist- aramót íslands (aðalhluti), 1. og 2. september: B-júníora-mótið, 4. og 5. september: September-mót- ið, 6. og 7. september: M.í. (tug- þraut og 10 km hlaup), 15. og 16. september-mótið: B-mótið. Herki fyrir 58 þús. krónur MERKJASALA Rauða íuossins hér í Reykjavík á p-kndaginn varð mjög árangursrík. — Nam merkjasala og gjafir, sem ýmsir gáfu alls um 58.000 krónum. Er þessi fjárhæð nokkrum þúsund- um króna hærri en merkjasalan varð í fyrra. Stjórn Rauða krossins hefur beðið Mbl. að færa bæjarbúum og öðrum úti á landi, er styrktu starfsemina þennan dag, þakkir sínar. Mikil ásf GRAZ. — Hann var 34 ára Þjóð- verjinn, sem var svo ástfanginn í 17 ára stúlku, að hann skaut hana, af því að hún vildi ekki þýðast hann. Sjálfum sér bjó hann bálköst og gekk þar á. ^ Guðjón Jónsson var við smíðar í húsinu Dyngjuvegur 4. Er það hús ein hæð á kjallara með risi.'' Var Guðjón á stigapalli í rishæð- inni að vinnu, er slysið varð. Þar uppi var annar smiður að vinna í herbergi, sem gengið er inn íi af stigapallinum. Höfðu þeir tal- 1 azt við rétt í sama mund og slys^ ið varð. i VAR HORFINN AF PAIAINUM Maðurinn, sem var að vinna 3 herberginu þurfti fram á stiga- pallinn. Hann sá Guðjón þar hvergi, leit þá niður í forstofa hússins, en úr henni liggur stig- inn upp. Lá Guðjón þar hreyf- ingarlaus á gólfinu. Hann vai’ þegar fluttur í Landsspítalann, Hann hafði höfuðkúpubrotnað og; komst aldrei til meðvitundar, en í gær ,skömmu eftir hádegi, lézS Guðj ón. Óvíst er með hverjum hætt3 Guðjón féll niður stigaopið, en ekkert handrið var komið á stig- ann og ekki heldur á pallinn^ sem hann stóð á. v 5 LÆTUR EFTIR SIG KONU OG 7 BÖRN Guðjón Jónsson, sem var ‘ 57 ára að aldri, lætur eftir sig konia og sjö börn á aldrinum 10—21 árs. — Eru þau öll á heimilil móður sinnar, Jóhönnu V. Qlafs- dóttur. — Guðjón heitinn var frá Stærri-Bæ í Grímsnesi. ------------------ j Lyf við berklaveiki senl hingað til reynslu LYF það við berklaveiki, sem minnzt hefur verið á í bandarisk- um blöðum og sem ríkisútvarpiði gat um 28. febr., er framleitS meðal annars hjá ítölsku lyfja- verksmiðjunni Lepetit S.A.,' Mil- ano. Umboðsmenn verksmiðj unnaí* hér, Stefán Thorarensen h.f. fengu í gær tilkynningu frá henns þess efnis, að hún muni senda 1 ákveðið magn hingað sem gjöf til lækna og sjúkrahúsa, svo að hæg'á sé að reyna lyfið hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.