Morgunblaðið - 27.07.1952, Qupperneq 12
Veffurúflii í dag:
I'ykkriar npp moð sunnan
átt. Ringir með kvöldinu.
168. tbl. — Sunnudagur 27. júlí 1952
, Tillögur m úfrýmingu hins
ársfíiahuiidna afviiigtulefsis
Þriggja manna nefnd fjallar um málið
UM >AÐ hefir orðið samkomulag milli ríkisstjórnarinnar, Alþýðu-
sambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands, að skipuð
skuli nefnd manna, sem hafi það hlutverk að rannsaka og gera til-
lögur um á hvern hátt megi með mestum árangri vinna gegn eða
útrýma því árstíðabundna atvinnuleysi, sem orsakast af því hve
aðal atvinnuvegir landsmanna eru háðir árstíðum.
Flsmíi; f.á beimilxi sÍBæi
Síldln sögð nálgasf
Frá þessu er skýrt í fréttatil-*
kynningu frá félagsmálaráðuneyt
inu er Mbl. barst í gær, og í til-
kynningunni segir ennfremur;
MIÐA VID KAUPSTAÐI
OG KAUPTÚN
Nefndinni er einkum ætlað að
miða rannsóknir sínar og tillög-
ur við kauptún og kaupstaði og
byrja á þeim kaupstöðum eða
kauptúnum, sem nú í ár og að
undanföftiu hafa búið við mesta
atvinnuörðugleika.
ÁÐUR EN MNG KEMUR
SAMAN
Nefndinni ber að • skila- áliti
sinu og tillögum til ríkisstjórnar-
innar svo fljótt sem kostur er,
og þess er vænst að hún geti,
áður en næsta Alþingi kemur
saman, skilað áliti og tillögum
varðandi þau byggðarlög, sem
verst eru á vegi stödd, að henn-
ar dómi.
NEFNDIN
f nefndinni eiga sæti: Jens
Hólmgeirsson, forfn., Hannibal
Valdemareson, samkv. tilnefningu
Alþýðusambahds íslantís og
Björgvin Sigurðsson, samkvæmt
tilnefningu Vinnuveitendasam-
bands íslands.
Varamenn í nefndinni eru:
Kagnar Lárusson, varaformaður,
Jón Sigurðsson, samkvæmt til-
nefningu Alþýðusambands ís-
lands og Barði Friðriksson, sam-
kvæmt tilnefningu Vinnuveit-
endasambands íslands.
Fimm guðfræðiiigar
vígðir fil prests í dag
KLUKKAN 10.30 árdegis í dag
mun biskup landsins vígja við
guðsþjónustu í Dómkirkjunni,
fimm nýja presta.
Prestarnir sem vígðir verða
eru Björn Jónsson, sem verður
prestur í Keflavíkursókn, Egg-
ert Ólafsson að Kvennabrekku,
Fj-alar Sigurjónsson að Hríseyjar-
kirkju, Rögnvald Finnbögason
til Skútustaða og Sváfni Svein-
bjarnarson aðstoðarprest til pró-
fastsins að Breiðabólsstað.
Séra Sigurjón Jónsson í Kirkju
bæ lýsir vígslunni, en einn hinna
nývígðu presta, Fjalar Sigurjóns-
son prédikar.
RAUFARHÖFN, 26. júlí: —
Fregnir herma að síldin sem ver-
ið hafi um 100 sjóm. austur a£
landinu í fyrri viku, sé á leið upp
að landinu og sé nú um 50 sjórru
norðáustur af Dalatanga.
J Á þessunt slóðum hafa erlend
. veiðiskip stundum aflað all
sæmilega í reknet.
;* t
I
Danmerkur
ð
ER millilandaflugvélin Gullfaxi
kemur hingað í kvöld frá Kaup-
mannahöfn, verður meðal far-
þega Qwistgaard, yfirmaður land
varna Danmerkur.
Óvíst er hve langa viðdvöl
hann mun hafa hér á landi, en
hann er á leið til Grænlands
ásamt fjórum háttsettum herfor-
ingjum úr her Dana.
i ElfifiiimlSsS í Hveraieri
j ték tll starfa í gærdag
í GÆR var ár liðið frá því að undirbúningur var hafinn við stofn-
setningu eili- og dvalarheimilis fyrir Árnessýslu, í Hveragerði. —
Þessi' stofnun tók til starfa í gær, er fyrstu vistmennirnir fluttu
þangað.
Fyrir nokkru fengu íbúar þriggja húsa, sem töldust til brezka her- :
námssvæðisins í Þýzkalandi, en lágu þó spölkorn innan þess rúss-1
ncska, fyrirskipun um að yfirgefa heimili sín. Voru rússnesk yfir-'
völd þar að verki. Fengu íbúarnir skamman frest til þess að taka '
með sér búslóð sína, en samt hafði veginum yfir á brezka hernáms-
svæðið verið lokað með stórum trjábol, er Þjóðverjarnir komu aö.
Þeir létu það þó ekki aftra sér frá því að flytja vestur yfir, eins og
myndirnar hér að ofan sýrsa.
.4 Imennar krabbameins-
rannsöknir í sumar
NÝLEGA barst Krabbameinsfélagi íslands rausnarleg gjöf til starf
semi sinnar. Gefandinn er frú Sigríður Ólafsdóttir á Þorvaldseyri
og afhenti hún félaginu J0.000 kr. til minningar um mann sinn,
Ólaf Pálsson, óðalsbónda á Þorvaldseyri, sem lézt 29. des. s.l.
24.656
sildar ssaltaðar
SIGLUFIRÐI, 26. júlí: — Sama
aflaleysið er hér þrátt fyrir gotfc
veður. Aðeins einn bátur kom
bingað í gærdag með síld og ár-
degis í dag komu tveir bátar.
I morgun var alls búið að sglta
á landinu 24.656 tunnur síidar,
og hafa um 14.400 tunnur verið
saltaðar hér á Siglufirði. Hæst
einstakra söltunarstöðva er Pól-
stjarnan. / |
Fiitua Bæjarútgerð-
i
á Gran-
raif HpH
HINN 23. júlí landaði b.v. Hall-
veig Fróðadóttir afla sínum í
Reykjarvík. Voru það 22 tonn a£
ísuðum þorski, 205 tonn af ísuð-
um karfa og um 5 tonn af öðr-
um ísfiski. Samtals 232 tonn.
Fiskur þessi fór til vinnslu í frysti
húsin hér í bænum. Skipið fer
aftur á veiðar um miðja næstu
viku.
Dagana 17.—20. júlí s. 1. land-
aði b.v. Þorsteinn Ingólfsson í
Esbjerg 304 tonnum af saltfiski.
Lýsi, er losað var hér í Reykja-
vík, var 7.645 kg. Þessi afli var
veiddur á Grænlandsmiðum.
Á Grænlandsmiðum eru nú 5
skip frá Bæjarútgerð Reykja-
víkur, og mun b.v. Jón Baldvins-
son, leggja af stað heimleiðis á
rnorgun, með fullfermi.
Elli og dvalarheimilið í Hvera-
gerði, er rekið á kostnað og
ábyrgð elli- og hjúkrunarheimil-
isins Grundar hér í Reykjavík.
I stjórn elliheimilisins í Hvera-
gerði, en hún hefur haft nána *
samvinnu við sýslumanninn, Pál j
Hallgrímsson, eru Guðjón bóndi
Nefnd sú er undirbjó málið leit- j í Gufudal, Dagur Brynjúlfsson á
Selfossi og Vigfús Jónsson, Eyr-
arbakka.
aði til forstjóra Grundar, Gísla
Sigurbjörnssonar, um að taka að
sér framkvæmdir. Mun hann því
jafnframt veita forstöðu þessu
nýja elliheimili Árnesinga.
15 VISTMENN
I TVEIMUR HÚSUM
Elli- og dvalarheimilið í Hvera-
gerði hefpr tvö hús til umráða og
hefur innréttingu þeirra verið
nokkuð breytt. I öðru þeirra -eru
aðeins vistménn, en í hinu eru
nú íbúðir starfsfólks, en ef þörf
krefur er svo ráð fyrir gert að
þar geti líka verið nokkrir vist-
menn, en alls getur elliheimilið
búið 15 rnanns dvöl. Tvö þeirra
fjögurra' vistmenna sem fluttu
þangað í-gær, voru Eyjólíur Guð-
mundsson frá Grímslæk og Guð-
rún Snorradóttir, er var Ijósmóð-
ir í rúmlega 30 ár í Árnessýslu.
Helga Guðmundsdóttir er yfir-
hjúkrunarkona heimilisins, en
hún hefur verið að Grund, og
ráðskona í eldhúsi er frú Laufey
Kristinsdóttir.
LækitÍRgamáliur
athBgaður
ÞAÐ mun vera í ráði, að hing-
að korni þýzkur Jæknir, sem
er sérfræðingur í baðlækning-
um. Hann mun ætla að kynna
sér lækningarmátt hveraleirs.
Þessi þýzki sérfræðingur
mun fara austur í Hveragerði
til að rannsaka leirinn þar,
en sem kunnugt er hefur þar
verið starfrækt leirboðsatofa
og margir telja sig hafa feng-
ið bata við ýmiskonar gigt.
Þessi þýzkl sérfræðingur hef
ur fengið leyfi yfirvaldanna j
til að stunda þessar rannsókn-
ir sínar. 1
RANNSOKNIR Á ALMENNINGI
Krabbameinsfélaginu kemur
sérstaklega vel að fá þessa gjöf
nú, þegar það er að undirbúa
viðtækar almenningsrannsóknir
til þess að hafa uppi á krabba-
meinssjúklingum í tæka tíð og
er stjórn félagsins frú Sigríði
mjög þakklát fyrir rausn hennar
og skilning á starfsemi félagsins.
Fjölmargir einstaklingar og fé-
lög hafa styrkt þetta mál með
gjöfum og framlögum, sem ber
þess Ijósan vott að almenningur í
landinu er að öðlast æ gleggri
skilning á hinu þýðingarmikla
hlutverki félagsins í heilsuvernd
armálum.
RIKISSTARFSMENN
RÍDA Á VAÐIÐ
í tilefni af þessari gjöf hefur
blaðið átt tal við próf. Níels
Dungal, formann Krabbameinsf §-
lagsins, og spurt hann frétta um
þær rannsóknir meðal almenn-
ings í krabbameinsleit, er nú
stæðu fyrir-dyrum. Prófessorinn
kvað það höfuðnauðsyn að ná til
þeirra, er af krabbameini þjáðust
í tæka tíð áður en meinið væri
mjög vaxið. í surttar munu fara
fram rannsóknir á ýmsum starfs-
hópum og verður þá séð hvort
grundvöllur er fyrir öllu víð-
tækari rannsóknum á öllum al-
menningi í landinu. Byrjað verð-
ui á rannsóknunum í Starfs-
mannafélagi ríkis og bæja og
einnig meðal simamanna, og þeir
rannsakaðir er gefa sig fram.
DANARTALA
KRABBAMEINSSJÚKLINGA
Skrifstofa landlæknis hefur
veitt blaðinu þær.upplýsingar, að
á árinu 1950 hafi 204 látizt úr
krabbameini, en nýrri tölur eru
ekki til um dauðsföll á landinu.
Það eru 181.8 pro ml. af þeiri
1.122 er létust alls á árinu og 1.4
pro-ml. af íbúatölu landsins. Er
þetta svipuð tala og árin þar áð-
ur t. d. létust 1.3 pro.ml. úr
krabbameini árið 1940.
Konungur apanna
er nú dáinn
HOLLYWOOD — Fyrsti Tarzan
kvikmytMjanna, leikarinn Elmo
Lincoln, er dáinn í Hollywood
63 ára að aldri.
j Á dögum hinna þöglu kvik-
mynda var hann mjög þekktur,
en undir lokin fékk hann engin
hlutverk önnur en vera til upp-
fyllingar i kvikmyndunum. Sýndi
hann sig þannig m. a. með Ingrid
Bergmann í Meynni frá Orleans.
Á traktor norður fyrir
BÓNDI norður í Finnmörk, Sig-
urður Breimoen að nafni, sótti
í s. 1. mánuði nýjan Ferguson
traktor suður til Stavangurs og
ók hann honum heim, en leiðin
er um 1500 mílur.
Bærinn, sem Sigurður er bú-
stjóri á, er skammt frá bænum
Porsanger í Finnmörk og þykir
þetta ferðalag bóndsns tíðindum
sæta og blöð skýrðu frá því.
Hann kvaðst ætla að aka trakíorn
um heim, því þá gæfist honum
einstakt tækifæri til að heim-
sækja vini og kunningja á hinni
löngu leið sinni, en Porsanger er
160 mílum fyrir norðan heim-
skautsbaug, en jafnframt mun ég
sjá mikið af landi mínu á leið-
inni, sagði hann.