Morgunblaðið - 26.03.1953, Blaðsíða 2
2
MO RGVN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. marz 1953
Barnavemdarfélatjið hyggsf
auka kynningarsfarfsenii
AÐALFUNDUR Barnaverndar-
félags Reykjavíkur var haldinn
jrnánudaginn þ. 23. þ. m. kl. 8,30
síðdegis í I. kennslustofu háskól-
ans.
Formaður félagsins, Dr. Matt-
hias Jónasson, gaf skýrslu um
starf félagsins á árinu. Hefur
það látið ýmis mál, sem varða
uppeldi til sín taka. Það' hefur
gengist fyrir söfnun skýrslna um
fávita um allt land. Félagiö hefur
veitt ungum kennara, Birni
Gestssyni, 8 þús. kr. styrk í tvö
ár til þess að leggja stund á
fávitakennslu. Er hann i Zúrich
í Sviss og lýkur námi á næsta
ári.
Stjórn félagsins auglýsti s.l.
sumar, að það myndi styrkja efni-
legan kennara til þess að sér-
rnennta sig i kennslu tornæmra
barna erlendis, en engar umsókn-
ir hafa enn borizt um styrkinn,
Sakir þess að félagið er ungí og
fjárvana, hefur því ekki verið
unnt að ráðast í miklar fram-
kvæmdir aðrar en kynningar-
starfsemi um uppeldísmal.
Fólagið gefur út 1. vetrardag
fitið „Sólhvörf", og eru þá einnig
seld á götum úti merki félagsins:
Fyrsti vetrardagur er fjársöfnun-
ardagur allra barnaverndarfélaga
í landinu, en þau eru nú níu að
tölu og starfa í öllum fjölmenn-
ustu kaupstöðum landsins.
Á þessu ári hyggst félagið að
auka kynningarstarfsemi sína.
Er í ráði að gefa út bókarkorn
eftir Pearl Buck: „Barnið, sem
verður aldrei fullþroska“. Fjall-
ar þessi bók um vandamál þeirra
foreldra, sem eiga fávita börn.
Þá hefur félagið fengið nokkrar
kvikmyndir um barnauppeldi frá
Sameinuðu þjóðunum og munu
þær verða sýndar á vegum fé-
lagsins bráðlega. Er þess að
Skemmtilepr og
fróðiegar kyikmynd-
ir sýndar á Jökla-
rannséknarfél. ftindi
FUNDUR sá í Jöklarannsóknar-
félaginu, sem haldinn var í fyrra-
kvöld í Tjarnarkaffi, var fjölsótt-
uf mjög og afar skemmtilegur.
Pálmi Hannesson, rektor, sýndi
tvær kvikmyndir, sem teknar
voru á síðastliðnu sumri. — Var
önnur frá Þórsmörk, sem dregur
nú til sín fleiri og fleiri ferða-
menn á sumrin. Myndin var tekin
er stjórn Ferðafélagsins fór inn á
mörkina til að velja væntanlegu
saeluhúsi Ferðafélagsins stað. —
Mun það hús verða reist í minn-
ingu Skagfjörðs, framkvæmda-
stjóra félagsins. Hin myndin, sem
Pálmi rektor sýndi, var frá Gríms
ey. Sýnir myndin fuglalíf og
landslag eyjarinnár. Vakti hún
mikla athygli, þó ekki væri hún
Iöhg. Tók Pálmi hana þar í fyrra-
íumar. Nokkrar byggingar sjást
á myndínni og mátti t.d. sjá torf-
bæi í gömlum stíl, sem enn er
búið í.
Dr. Sigurður Þórarinsson sýndi
kvikmyndir frá hinum miklu eld-
fjölium Mona Loa og Kilaua á
Havaíeyjum. Fjöll þessi eru 4000
ro há fvrir ofan sjávarmál og
undir því eru þau 5000 m. Mynd-
irnar, sem Sigurður sýndi eru
nýjar af eldgosum í fjöllunum og
bi aunrennsli. Gat hann þess, að
hraunrennslið frá fjöllunum
væri miklu hraðara en hraunið
frá Heklu. Sagði Sigurður að
Skaftáreldahraun myndi hafa
runnið fram með svipuðum hraða
og þetta Havaíeyjahraun, sem
stundum hefur farið 25 km leið á
fjórum klukkustundum.
Gerður var góður rómur að
ználi þeirra Pálma og Sigurðar.
vænta, að þessi kynningarháttur
geí'i góða raun hér sem annars
staðar, því að sjón eru sögu
ríkari.
Félagið á nú rúmar 60 þús.
kr. í sjóði.
Stjórn félagsins var endurkosin
einróma, en hana skipa nú: Dr.
Matthías .Jónasson formaður,
Símon Jóh. Ágústsson' ritári, frú
Lára Sigurbjörnsdóttir gjaldkeri,
Síra Jón Auðuns og Kristján Þor-
varðsson læknir.
Að aðalfundarstörfum loknum
voru sýndar þrjár kvikmyndir
um meðferð og uppeldi barna,
og vöktu þæí óskipta athygli
fundarmanna.
Ténskáldafélagið
mólmælir úthiutun
listamannalauna
Á FUNDI félagsins í gær var
samþykkt svohljóðandi ályktun:
Fundur Tónskáldafélags ís-
lands, haldinn 24. marz 1953. mót-
mælir eindregið þeirri raðstöfun
úthlutunarnefndar listamanna
launa, að skipa tónlistinni í þriðja
sæti við úthlutun þessa árs eins
og reyndar cinnig áðui'.
Fundurinn vítir ennfremur það
kæruleysi nefndarinnar að þver-
skallast við tilmælum félagsins
um að veita fulltrúum þess við-
tal og leita álits tónlistarmanna
áður en úthlutun færi fram.
Þar sem þekking manna hér á
þessari list hefur til skamms tíma
verið svo lítil, sýndist lengi von-
laust að gera tilraunir til að auka
skilning á opinberri meðferð mál-
eína hennar. Nú er þó svo komið,
að til gagns mætti verða að minna
á eftirfarandi staðreyndir:
1) Sköpun æðri tónverka út-
heimtir hlutfallslega meiri tíma
en önnur liststörf. Ómögulegt er
að veigamikil tónverk geti orðið
til sem íhlaupavinna. — Marga
vinnudaga þarf stundum ein-
göngu til að skrifa niður tón-
kafla þann, sem hljómar á örfá-
um sekúndum aðeins.
2) Tónskáld hafa ekki færi á
að kynna verk sín með svo auð-
veldum hætti sem rithöfundar og
myndlistafmenn og öðlast varla
tekjur af verkum sínum fyrr en
þau eru flutt opinberlega og
flutningsgjöld greiðast.
3) Mikinn kostnað þarf að
leggja fram til að fá tónverkin
flutt; fjölritun tónverka og radd-
hefta þeirra kostar venjulega
st.órfé, svo og flutningurinn sjálf-
ur, en verkin verðá oft, jáfnvel
af kunnáttumönnum, ekki metin
ifyrr en eftir margendurtekna á-
iheyrn.
Fundurinn leyfii' sér að mót-
‘mæla þvi skeytingarleysi þings
iog stjórnar að fela meðferð list-
mála mönnum, sem hvorki hafa
þekkingu né áhuga á tónlist og
leyfir sér að benda á þá þjóðem-
islegu hættu, er stafar af kæru-
ieysi gagnvart þessari list, sem
getur náð svo miktu dýpri tökum
en aðrar listgreinir.
(Orðrétt frétt frá
Tónskáldafélaginu).
ísólfur kom með 218
lonn ai karfa
HAFNARFIRÐI — Togarinn ís-
ólfur, sem lagt hefir afla sinn á
land hér í vetúr, kom af veiðum
í gær með 218 tonn af karfa eftir
5 daga útivist. Hann fór aftur á
veiðar í gærkvöldi.
Togarinn Fylkir kemur í dag
með rúm 200 tonn af fiski (á-
gizkun). Röðull er væntanlegur
á morgun. —G.
Úr síðasta þætti Dómu
ætar
viðtökur á Akurevri
EINS OG áður hefur verið getíð'
hér í blaðinu, frumsýndi Leik-
félag Akureyrar Dóma eftir
Andrés G. Þormar 12. þ. m.
Norðanblöðin fara öll mjög
lofsamlegum orðum um leiksýn-
ingu þessa, og hæla meðferð leik-
endanna á hlutverkum þeirra. —
og leikstjóranum Jóni Norðfjörð.
í vandaðri leikskrá, sem Leik-
íélag Akureyrar gaf út, segir
leikstjórinn, að hann telji leikrit
þetta „stórkostlega leiksviðshæft
Ieikrit.“
Þorst. M. Jónsson segir í grein
um leikritið í leikskránni:
„í Dómum felst seiðmagn, sem
heldur athygli áhorfendanna
fastri við allt það sem gerist og
sagt er á leiksviðinu.. .. “
Dagur segir: „Leikfélagið hefur
á ýmsan hátt gert stór vel með
uppfærsiu þessa eítirtektarverða
sjónleiks, og væri vel, að það
væri metið að verðleikum.
Aðalatriðið er þó, að höf. hefur
tekizt að gera persónur sínar lif-
andi og leggja þeim í brjóst til-
finningar og á tungu orð, sem
tala til allra heilbrigðra manna.
Þessi sjónleikur er vel og hag-
lega gerð smíð. Samtölin eru víða
þróttmikil og þrungin skáldlegum
hugsunum.“
Alþýðumaðurinn segir: „Gamla
Jón leikur Jón Norðfjörð um-
búðalaust með þeim ágætum, að
hér hefur áreiðanlega ekki oft
sézt slíkur leikur á „fjölunum".
Því ber vissulega að fagna, að
Leikfélag Akureyrar hefur valiðj
leik þennan til sýningar. í fyrsta
lagi er hann eftir íslenzkan höf-
und, og er þannig ýtt undir leik-I
ritaskáldskap vorn. í öðru lagi
er hér að vissu marki um sögu-
legt leikrit að ræða> og á þann
hátt gefið tækifæri til að skyggn-
ast inn í fortíð þjóðarinnar. í
þriðja lagi gerir leikritið talsverð
ar kröfur til hugkvæmni og
smekkvísi í útbúnaði ieiksviðs,
leiktjalda og búninga, en allt
slíkt gleður augað, ef vel er gert,
og er snarari þáttur leiklistar-
innar en oft er haft á orði. Og
í síðasta lagi og ekki sízta gerir
leikritið kröfur til all-fjölbreyttra
persónugerða og gerir miklar
kröfur til leiks.“
Verkamaðurinn segir: „Leikur
þeirra Brynhildar Steingríms-
dóttur (Erla) og Margrétar
Kondrups (Reginu) er með ágæt-
um. . .. “
Enn fremur segir blaðið: „Til
þess að skilja nútímann verður
að þekkja aðdraganda og orsakir,
söguna, og leikritið Dómar hefur
boðskap að flytja okkur.“
fslendingur telur að þeir tveir
leikendurnir, sem fara með gesta-
hlutverk. Steingrímur Þorsteins-
son (Þórólfur) og Sigurður Hall-
marsson (sýslumannssoninn), séu
ungir skapgerðarleikarar, sem
mikils megi af vænta. „Er vissu-
lega þakkarvert,“ segir blaðið,
„að félagið skyldi ráðast í sýn-
ingu Dóma að þessu sinni.“
Blaðið segir einnig, að heildar-
meðferð leiksins hafi verið góð
og viða með ágætum.
Höfundurinn Andrés G. Þor-
mar var viðstaddur frumsýningu
og lét hann þau orð falla að með-
férð leikendanna hefði að sínum
dómi verið hin bezta.
★
Leikfélag Akureyrar hefur und
anfarin ár starfað með miklum
blóma og mun óhætt að segja að
leiklistarlíf utan Reykjavíkur
rísi þar í bæ hæst. Félagið hefur
á að skipa miklum og góðum
starfski'öftum, sem iiafa sýnt það
á liðnum árum hvers þeir eru
megnugir og yfir hverjum list-
rænum heifileikum þeir búa.
Leikstjórar félagsins hafa og leyst
störf sín hið prýðilegasta af
hendi.
Leikfélhgið réðst í það þakk-
arverða verk að taka til sýninga
nú fyrir nokkru ágætan sjónleik
eftir íslenzkan höfund góðkunn-
an, Dóma eítir Andrés G. Þorm-
ar. Það er ávallt mikill viðburð-
ur þegar leikrit eftir íslenzkan
höfund er tekið til meðíerðar.
Bæði eru þau tiltölidega fá að
tölu og misjafnlega hæf til sýn-
inga. Með sýningum sínum á
Dómum hefur Leikfélag Akur-
eyrar stigið stórt spor tii kynn-
ingar innlendum Jeikritahöfund-
um og á fyrir það þakkir skild-
ar.
Alilangt er síðan Andrés G.
Þormar skrifaði leikritið, en það
kom út 1923. Gerist leikritið á
hinni myrku galdraöld og er hin
prýðilegasta og listrænasta þjóð-
lífslýsing. Er þar brugðið upp
fyrir áhorfandanum lifandi svip-
myndum úr þeirrar tíðar dögum.
Leikritið er prýðilega sviðshæft,
ritað af mikilli þekkingu á sviðs-
vinnubrögðum og ber þess vott
að þar hefur mikill leikhúsmað-
ur verið að verki.
Leikstjórinn Jón Norðfjörð
hefur sett leikritið á svið og tek-
izt það afburða vel. Er þar í alla
staði farið hinum kunnáttumestu
höndum um, enda hefur Jpn
mikla æfingu í leikstjórn og ný-
lega siglt utan til þess að afla
sér nýrrar þekkingar á leikhús-
málum.
Dómai' Akureyrarblaðanna eru
allir á einn veg. Hrósa þeir mjög
höfundinum, leikstjórninni og
meðferð leikendanna á hlutverk-
um sínum, telja Dóma hinn mesta
listviðburð og kveða langt síðan
Leikfélaginu hafi tekizt jafn vel
um leikritaval og flutning.
Er vissulega ánægjulegt er ís-
lenzkt leikrit hlýtur þær viðtök-
ur, sem Dómar hafa hlotið und-
anfarið á Akureyri.
Síðustu fregnir sem blaðinu
hafa borizt, herma, að aðsókn að
leikritinu sé ávallt jafngóð og
viðtökur hinar beztu.
Cambridge sigraði
LUNDÚNUM — í hinni árlegu
bridgekeppni milli háskólanna
Cambridge og Oxford, sigraði lið
Cambridge með 51 stigi.
STAKSTEjyAR
Þar sem útsvörin
tvöfölduðust
í Yestmannaeyjum er „vinstri
stjórn", þ. e. a. s. þar mynda
kommúnistar, kratar og Fram-*
sóknarmenn meirihluta i bæjar«
stjórn.
„Fylkir“, blað Sjálfstæðis«
manna í Yestmannaeyjum, skýr-
ir nýlega fra bví, hvcrnig þessuns
flokkum hefur farizt fjármála-
stjórn Vestmannae.yjakanpstaðar.
Þar kemur það í Ijós. 'ið á yfir-
stanáandi kjörtimabili hafa út«
svörin á Vestmannaeyingum ívö«
íaidast. Þau voru árið 1950, fyrsta^
ár k.iörtímabilsins, 3 millj. og 28$
þús. kr. Eu á árinu 1953, síðasta
ári kjörtimaiiilsins vcrða útsvör-
in á Vestmannaeyingum rúmlega
6. millj. og 406 þús. kr.
Á Alþingi og í bæjarstjóm
Reykjavíkur segjast kratar og
kommúnistar vera á móti háuitt
sköttum og eðrmn álögum á at«
menning. En bar scni þeir stjóma
sjáifir er útkoman þcssi.
Á bað má ennfremur rninna, a®
á s. .1 ári hækkuðu kratar og
kommúnistar á ísafirði úlsvöriis
á ísfirðingum um tæplega 40%.
Kjarni málsins er sá, að út«
svör og álögur eru hvergi hærrt
á öllum almenningi en einmitt
þar sem kralar og kommúnistat
fara með völdin.
íf
39 þúsundir
atvinnuleysingjar
Blað norska Alþýðuflokksinsi,
Arbejderbladet, scgir nýlega fri
því, að í vetur hafi 39 þús. mannt
verið atvinnulausir í Norcgi.
í Noregi fer stjórn sósíaldemo-
krata með völd. Þar, eins og
annars staðar, hafa kralarni*
byggt stefnu sína á strangri hafta-
pólitík. T. d. um hana má nefna.
að alit frá síðustu heimsstyrjöld
hafa verið strangar hömlur á
byggingarframkvæmdum í land-
inu. Þannig hefur timbur veriS
þar ákaflega naumt skammtað,
Hefur það jafnvel hent, að bænd-
ur, sem höggvið hafa trjávið I
sínum eigin skógi, hafa verið
dæmdir í þungar fésektir fyrií
að nota smá trjábút þaðan, áo
þess að sækja um leyfi til þessi
hjá opinberum nefndum og ráð-
um!!
Þannig er sósíalisminn í frani-
kvæmd. Höft og hömlur eru alts
staðar hans ær og kýr.
Fréttaþjónusta í lagií
Þjóðviljinn, segir frá þvi í gæf
að hann sé „eina íslenzka dag-
blaðið, sem býður upp á erlend#
frcttaþjónustu“.
Ekki er nú lítillætinu fyrir að
fara hjá kommúnistablaðinu. Eis
í þessu sambandi mætti minna %
það, að jafnvel þegar hinn „mikll"
Stalin lézt, flutti Þjóðviljinn ekkS
þá frétt fyrr en á öðrum degf
eftir lát marskálksins. í gær va#
kommúnistablaðimi heldur ekki
kunnugt um það að Mary ekkju-
drottning Bretlands hei’ði látisl'
í fyrrakvöld.
Það er svo sem ekki að furða
þótt kommúnistablaðið segisS
vera „eina íslenzka daghlaðið"*
sem líafi „erlenda fréttaþjón-
ustu“!! j
I
Yeifingasalir H.
opnaðlr á ný
VEITINGASALIR Hótel Borgaí
munu verða opnaðir á ný á morg-
un, föstudag. Þeir hafa sem kurrn-
ugt er verið lokaðir frá því urct
áramót. — Ekki verður leyfilegS
að veita vín í veitingasölunum,
Þó veitingasaliriiir væru lokaðir,
stöðvaðist rekstur gistihússina
aldrei alveg, þó um mikinn sam«
drátt væri að ræða, ,