Morgunblaðið - 17.07.1953, Qupperneq 9
Föstudagur 17. júlí 1953
MO RGVNBLAÐIÐ
9
af tíðindamönnum blaðsins sér
suður á Suðurnes til þess að
ræða við nokkra kunna at-
hafnamenn og sjósóknara þar hið
syðra. Hélt hann í þetta skipti
suður í Garð og hítti þar að máli
þá feðgana, Guðmund Jónsson
útgerðarmann frá Rafnkellsstöð-
um og son hans, hinn kunna afla-
kóng, Garðar, og ennfremur átti
hann viðtal við annan aflakóng
á staðnum, Eggert Gíslason frá
Krókvelli.
tJTGERÐARMAÐUR
í ÞRJÁTÍU ÁR
Guðmundur Jónsson, útgerðar-
maður frá Rafnkellsstöðum í
Garði, gerði út í vetur tvo afla-
hæstu bátana í Sandgerði, m.b.
Mumma og m.b. Víði frá Garði.
Er hann kunnur athafnamaður
hið syðra og hefir hann fengizt
við og gert út í um þrjátíu ár.
Byrjaði hann í Sandgerði með
einn lítinn bát, aðeins níu tonna,
ásamt öðrum manni. En fleyið
reyndist brátt of lítið og keypti
hann sér tuttugu tonna bát eftir
nokkur ár og seldi hinn minni.
Gerði hann bát þann út í um þrjú
ár, en að þeim tíma liðnum eyði-
lagðist hann í fárviðri í Sand-
gerðishöfn. En þrátt fyrir óhapp
ið var áfram haldið og eignaðist
Guðmundur brátt nýjan bát, sem
hann gerði einn út og leið eigi
á löngu þar til hann keypti ann-
an. Fyrir átta árum lét hann
smíða mótorbátinn Mumma í
dráttarbrautinni í Keflavík og
hefir sá bátur reynzt ákaflega
vel og verið happaskip hið mesta.
Fyrir nokkrum árum seldi hann
minni bátana tvo og keypti Hug-
in frá ísafirði, sem nú heitir
Víðir.
MIKIL AFLASKIP
Báðir bátarnir, m.b. Mummi
og m.b. Víðir, hafa verið
með aflahæstu bátum undanfarn-
ar vertíðir og síðustu árin hef-
ur Guðmundur hagnýtt og unn-
ið úr aflanum sjálfur, en með
því hefur hann skapað mikla og
góða vinnu í Garði. Síðastliðna
vertíð unnu að staðaldri um 30—
40 manns á vegum Guðmundar,
ýmist á bátunum eða við vinnslu
aflans í landi, er það eigi lítið
í útgerðarstað eins og Garði. Afl-
inn var annað hvort saltaður eða
hertur, en hann var samtals 1352
smálestir hjá báðum bátunum og
er ekki fjarri lagi að áætla að
verðmæti hans sé um kr. 1,8 millj
upp úr sjó. Greiddi Guðmundur
um 1 millj. og 125 þús. kr. í
vinnulaun á s. 1. vetrarvertíð.
AUKNAF
FRAMK V ÆMDIR
Um þessar mundir er Guð-
mundur að ljúka við byggingu á
um 350 fermetra harðfiskskemmu
og hugsar hann gott tii fram-
tíðarinnar. Var það greinilegt,
þegar tíðindamanninn bar að
garði, og hitti Guðmund, sem
var að ljúka við að koma m.b.
Mumma af stað á síldveiðarnar
fyrir norðan, að Guðmundur hef-
ur ýmsar framkvæmdir á prjón-
unum og að stöðnun og kyrrstaða
á illa heima í kringum hann.
MINNKANDI ÁHUGI
UNGA FÓLKSINS
Við truflum Guðmund augna-
blik frá störfum og eigum stutt
viðtal við hann.
— Hvernig finnst þér áhugi
unga fólksins fyrir sjónum vera
nú í dag?
— Því miður verð ég að segja,
að mér finnst hann ekki nægi-
lega mikill og til marks um það,
vil ég geta þess, að á síðastlið-
inni vertíð, byrjaði aðeins einn
ungur maður sjósókn í Sand-
gerði. Hér áður fyrr í mínu ung-
dæmi, þóttist enginn maður með
mönnum, nema hann gerðist sjó-
maður, vélstj., eða fengizt við ein
hver störf í sambandi við sjávar-
útveg. En ég er vongóður um, að
Hætt við nokkrat afftafna'
meriri á S'R&uíítEsf&LMm
Aflaskipin „Víðir“ og „Mummi“ frá Garði.
þetta muni breytast í náinni
framtíð, þar sem aflahorfur hafa
stórum aukizt við útvíkkun land-
helginnar, en .af því hlýtur aftur
að leiða betri afkoma þeirra, sem
fást við framleiðslustörf sjávar-
útvegsins.
BATNANDI VEIÐIHORFUR
Veíðihorfur fyrir smábátaút-
veginn hér í Garði hafa stórum
33 ÞÚS. SJÓMAANNSHLUTUR
•— Hvernig varð hlutur bát-
anna í Sandgerði í vetur?
— Hann var ákaflega mismun-
mdi. Aflahæsti báturinn í ver-
stöðinni var m.b. Mummi frá
Garði með 715 lestir, lifur 53325
htrar. Var sjómannshlutur á hon-
um 33 þús. kr. í fjóra og hálfan
mánuð. Næst hæsti báturinn var
m.b. Víðir frá Garði. Aflaði hann
637 lestir, lifrarmagn 46515 lítr-
ar og var sjómannshlutur á hon-
um 26—27 þús. kr. í fjóra og
hálfan mánuð. Þriðii hæsti bát-
urinn var m.b. Hrönn frá Sand-
gerði og næstur m.b. Munin II.
frá Sandgerði, bá aflaði m.b. Pét-
ur Jónsson frá Húsavík vel og
voru þessir þrír s:ðastnefndu bát-
ar mjög svipaðir. Lifrarmagn
þeirra var um 45000 lítrar.
AFKOMA SJÁVARÚTVEGSINS
-— Hvað segir þú um fjárhags-
afkomu bátaútvegsins og hvernig
lízt þér .4 :'ramtíðina?
■— Ég tel, að yfirleitt sé hagur
bátaútvegsins mjög lélegur og
Gai'ður Guðinundsson skipsíjóri
batnað vegna friðunar Faxaflóa
og nýju landhelgislínunnar og
hefur merkum áfanga verið náð
með henni, og mun þjóðin búa
að því heillaverki um ókomna
framtíð. Við Suðurnesjamenn
þökkum okkar dugmikla þing-
manni, Ólafi Thors, það, hversu
vel var á þessu rnáli haldið fyrir
okkur íslendinga sem og öðrum
góðum mönnum, sem hafa lagt
hönd á plóginn".
V ETR AR VERTÍÐIN 1953
Hvað hefur þú annars að segja
um síðastliðna vetrarvertíð?
—■ Hér fyrir sunnan var byrj-
að að gera út upp úr áramótun-
um og voru aflabrögð allgóð á
grunnmiðum í janúar og þakka
menn það aðallega friðuninni.
Þegar kom fram á vertíð í byrj-
un marzmánaðar var tíð mjög
slæm og stirðar gæftir. Rættist
þó úr því og veiddist allsæmilega
í lokin. Mun síðasta vetrarvertíð
vera mun betri hér við Faxaflóa
heldur en undanfarin ár. Yfir-
leitt var fiskurinn langt úti og
lítið um hann á grunnmiðum
sfðari hluta vertíðarinnar, en
vegna þess hve bátarnir eru nú
orðnir stórir og góðir var hægt j
að sækja sjóinn betur og lengra j
út. 1
verið einu skynsamlegu bjargrað-
in til þess að nokkur bátur væri
gerður út bæði hér á Suðurnesj-
um og annars staðar á landiau.
SÍLDVEIÐARNAR.
— Hvað heldur þú um sild-
veiðarnar i sumar?
— Ég er bjartsýnn um að vel
gangi, þótt illa hafi árað und-
anfarið. Annars er nauðsynlegt
að atvinnutækin, í þessu sam
bandi bátamir, séu hagnýttir til
hins ýtrasta og færi aflann é
land. Með því verður atvinnan
tryggari bjá sjómönnunum sem
og þeim, sem vinna úr aflanum,
en með þvi er hagur þjóðarinn
ar bezt efldur. Ef vel skyldi tak-
ast í sumar hjá bátunum mín-
um, hefi ég mikinn hug á því að
láta smíða nýjan bát fyrir mig,
en maður verður að sjá hvað
setur.
UNGUR AFLAMAÐUR
Lýkur hér samtali okkar við
þennan duglega athafnamann, en
skammt undan er annar dugmað-
ur, Eggert Gíslason frá Krókvelli
í Garði, en hann var skipstjóri
á m.b. Víði á s. 1. vertíð.
Eggert hefur verið skipstjóri á
mótorbátnum Víði síðastliðin tvö
ár. Á vetrarvertiðinni árið 1952
. var hann aflahæztur í Sandgerði
I með um 650 lestir, en í ár var
hann hæztur með 637 lestir. —
Eggert er ungur maður aðeins 26
ára gamall, ættaður úr Garði.
— Hvenær byrjaðir þú að
stunda sjómennsku, Eggert?
— Um fermingaraldur á vél-
bátum héðan af Suðurnesjum.
Síðan hefi ég ætíð stundað sjó-
inn, að undanteknum þeim tíma,
sem ég var á Stýrimannaskólan-
um, en þaðan lauk ég prófi vorið
1948.
— Hvenær byrjaðir þú for-
mennsku?
— Á vetrarvertíðinni 1950 og
hefi ég síðan verið formaður
bæði á vetrarvertíðum og síld-
veiðum.
— Hvað hefur þú að segja mér
um vertíðina i vetur?
— Hún var gæftasöm framan
af, en þegar kom fram í febrúar
kom ógæftakafli, sem stóð yfir
í um mánaðartíma, var þá mjög
erfitt um sjósókn".
— Hvað fórst þú marga róðra
í vetur?
— Við fórum 80 róðra, misstum
um 10—12 róðra vegna vélbiiun-
ar. Við rérum oftast á djúpmið,
aðallega djúpt út á Eldeyjar-
banka. Þar var oft mjög erfitt
að veiða vegna ágengni togara,
þar sem við vorum fyrir utan
friðunarlínuna.
— Vel á minnst, hvað hefur
þú að segja mér um viðhorf ykk-
ar bátasjópianna til nýju frið-
unarlínunnar?
— Við teljum hana mikið fram-
faraspor, því þegar fiskur gekk
inn fyrir hana, gátum við athafn-
að okkur í friði. Hefi ég mikla
trú á, að í framtíðinni eigi þessi
Guðmundur Jónsson útgcrðarm.
kenni ég því einkum síldarleys-
inu síðastliðin átta ár. Ég hef'
t. d. ætíð gert út á síld og tapað
á hverju ári mjög mikið eins
og útgerðarmenn almennt, en það
hefir leitt til þess að menn hafa
safnað upp miklum skuldum,
sem hafa haft lamandi áhrií á
allar framkvæmdir. í þessu sam-
bandi langar mig til að minnar-t
á það, að mér er óskiljanlegt að
forráðamenn vinstri flokkanna
skuli halda því að þjóðinni að
gengislækkunin og bátagjaldeyx-
irinn hafi verið óþörf ráðstöfun.
Við, sem fáumst við útgerð, vit-.
um af eigin reynd, að þetta hafaj
Eggert Gíslason skipstjóri
nýja friðunarlína eftir að reynast
þjóðinni heilladrjúg.
Við kveðjum Eggert, sem er
önnum kafinn þessa dagana við
að undirbúa bát sinn á síldveið-
ar fyrir Norðurlandi í sumar Og
óskum honum og skipshöfn hans
heilla í starfi þeirra við veiðarn-
ar í sumar.
AFLAKÓNGUF.
VETRARVERTÍÐARINNAR
1953
Sama dag og tíðindamaður
blaðsins var á ferð hið syðra, var
aflakóngur síðustu vetrarvertíð
ar, Garðar Guðmundsson frá
Rafnkellsstöðum í Garði, áð ljúka
við að búa sig undir að halda
norður á síldveiðarnar og bjóst
við að fara um kvöldið. Garðar
er skipstjóri á m.b. Mumma og
var hann aflakóngur Suðurnesja
og alls landsins síðastliðna vetr-
arvertíð. Hann hefur stundað sjó-
inn frá unga aldri og er því sjó-
mennskan í blóð borin. Haustið
194(^ lauk Garðar orófi, sem gaf
honum réttindi til skipstjórnar
á bátum allt upp í 75 tonna stærð,
en að því loknu tók hann þegar
við bát. Fyrir þremur árum lauk
hann fiskiskipstjóraprófi frá
Stýrimannaskóla íslands. Garðar,
sem er búinn að vera formaður
í um 13 ár, hefur ætíð verið
með fengsælli skipstjórum á Suð-
urnesjum og fer mikið orð af
fiskni hans og afburða sjó-
mennsku.
Við eigum stutt viðtal við
Garðar og fer það hér á eftir.
— Ég sé, að þú ert að verða
ferðbúinn á síldveiðar?
— Já.
— Hvernig hefur þér gengið
að fá mannskap á skipið?
— Ágætlega. Við erum það,
það verið svo undanfarin ár“.
heppnir að yfirleitt eru lítil
mannaskipti hjá okkur og hefur
— Ert þú vongóður um að síld-
veiðarnar heppnist vel í sumar’
— Það er ákaflega erfitt að
segja nokkuð um það, en 'maður
I hlýtur að vona hið bezta, þrátt
\ fyrir undanfarandi aflaleysisár,
715 LESTIR í 9 IRÓÐRI
— En svo við snúum okkur að
öðru. Hvað hefur þú að seg.ia
mér um síðast.liðna vetrarvertið
| 0g fyrri vertiðir, sem þú het’ur
stundað hér fyrir sunnan?
— í vetur öfluðum við 715 lest-
ir i 91 róðri og er það betra heid-
ur en undanfarnar vertíði.r
Sjómannshlutur varð 33 þús. kr.
og vorum við að í um fjóra og’
hálfan mánuð.
— Er þetta bezta útkoman hjá
þér á vetrarvertíð?
— Nei. Á vetrarvertíðinni árið
1944 fengum við 865 lestir og vor-
um þá hæstir.
53 SKIPP. í EÍNUM RÓÐRI
I — Hvað hefur þú fengið mest-
an afla í einum róðri?
— 53 skippund á vertíðinni
árið 1949, en það mun víst vera
: mesta aflamagn, sem hefur feng-
izt í einum róðri á línu.
-— Ég heyri, að þér hefur geng-
ið vel að fást við þann gula. En
hvernig hefur þér aftur á móti
tekizt við síldveiðar?
— Það hefur gengið frekar
stirðlega fyrir norðan, en aftur
á móti heidur vel á reknetum
hérna fyrir sunnan. Síðastliðið
haust fengum við tæpar þrjú
þúsund tunnur hérna í Flóanum,
eftir að við komum að norðan
HAFNARSKILYRÉIN
í SANDGERÐI
Áður en við ljúkum samtaJi
okkar berst talið að aðbúnaði
báta við hinar ýmsu verstöðvar
á Suðurnesjum og komst Garð-
ar svo að orði í sambandi við
aðbúnað þeirra í Sandgerði:
— Hafnarskilyrðin í Sandgerði,
eru slæm og tel ég, eins og aðr-
ir sjómenn á staðnum, að brýnn-
ar aðgerðar sé þörf til lagfæring*
Framh. á bls. 12