Morgunblaðið - 02.10.1953, Page 1
40. árgangur
223. tbl. — Föstudagur 2. október 1953
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Virðuleg setning Alþingis í gær
Olíudeilan
að le>sast \
*
X TEHERAN, 1. okt.: — Pers-
W neska stjórnin hefur tilkynnt
að nauðsynlegt sé að fá erlenda
sérfræðinga til Persíu til þess að
unnt verði að hefja aftur olíu-
vinnslu í Abadan.
Það hefur komið í ljós við at-
huganir, að Persar verða að hafa
handa í milli um 40 milljónir
dali, þegar olíudeilan hefir ver-
ið leyst, til þess að geta náð sömu
framleiðslu og áður en deilan
hófst. — Einnig verða þeir að fá
um 600 tæknisérfræðinga frá
ýmsum löndum.
Pei’sar hafa einungis selt olíu
fyrir tæpar 2 milljónir dala eftir
að olíudeilan hófst.
* Kosningar í Sameinuðu
þingi og deildum í dag
forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, Ólafur Thors, forsætisráðherra
og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup ræðast við í anddyri Alþingis-
hússins áður en setning Alþingis hófst í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Kínverskar herdeildir fíópasl
að landamærum Sndé Kína
Hyggjasl kínverskir komniánistar
<rcra ofbeldisárás á Indó-Kína?
c
HANOI, 1. okt. — Víet Mín herirnir í Indó-Kína hafa nú safnað
saman um 80 þús. manns fyrir utan Hanoi og liggur víglínan í
háífboga umhverfis borgina. Búast Frakkar við, að kommúnistarn-
ir hefji árásir á þessa mikilvægu virkisborg í einu auðugasta hrís-
grjónaræktarhéraði landsins áður en langt um líður.
Gengur á fund
Eisenhowers
WASHINGTON, 1. okt. — Leið-
togi stjórnarandstöðunnar í
Bandaríkjunum, Adlai Stevensen,
gekk í dag á fund Eisenhowers
forseta til að s"kýra honum frá
ferðalagi sínu um heiminn á s.l.
sumri. — Eru stjórnmálafrétta-
I ritarar þeirrar skoðunar, að hann
sé með einhver skilaboð til for-
[ setans frá áhrifamiklum stjórn-
málamanni, sennilegast Sir Win-
ston eða Nehrú.
NTB-Reuter.
HIÐ NÝKJÖRNA Alþingi var sett í gær. — Söfnuðust þing-
menn og ríkisstjórn saman í fordyri Alþingishússins og
gengu þaðan fylktu liði til Dómkirkjunnar, en þar hófst
guðsþjónusta kl. 1,30. — Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup
predikaði og lagði út af þessum orðum Lúkasarguðspjalls:
Lögvitringur nokkur stóð upp, freistaði Jesú og mælti:
„Meistari, hvað á ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“
En hann sagði við hann: „Hvað er skrifað í lögmálinu?“
— „Hvernig les þú?“ En hann svaraði og sagði: „Elska skalt
þú Drottinn guð þinn af öllu hjarta og af allri sálu þinni, og
af öllum mætti þínum, og af öllum huga þínum, og náunga
þinn eins og sjálfan þig.“ — En hann sagði við hann: „Þú
svaraðir rétt, gjör þú þetta, og þá muntu lifa.“
80 þúsund
sendir heim
★ KAIRÓ, 1. okt. — Nú mun
ákveðið, að brezki herinn á Súez-
eiði, 80 þúsund manns, hverfi
þaðan á næstu 18 mánuðum, eins
og skýrt hefur verið frá í frétt-
um. Hins vegar verða um 4000
brezkir sérfræðingar áfram í her-
stöðvum Breta við eiðið til þess
að halda herstöðvunum við, ef til
styrjaldar dragi.
Álitið er, að verðmæti stöðv-
anna á eiðinu sé um 250 millj.
punda.
HERGOGN FRA
KOMMÚNISTUM
Kommúistaherir Víet-Míns
styðjast nú við stórskotalið í
fyrsta sinn síðan styrjöldin í
Indó-Kína hófst í nóvember 1946.
— Hefur franski herinn tilkynnt,
að þeir hafi fengið vopn og ann-
an útbúnað handají öflugum stór
skotaliðsherfylkjum frá kín-
versku kommúnistastjórninni.
LIÐSSAFNAÐUR
Enn fremur berast fregnir þess
efnis, að mikill og öflugur kín-
verskur her sé nú á leið suður á
bóginn; hefur hann farið um
Kanton, að því er ferðamaður
nokkur hefur skýrt frá, sem ný-
kominn er þaðan til portúgölsku
nýlendunnar Macao. — Hafa a.
m. k. 3 herfylki farið um borgina
á leið sinni til landamæra Kína
og frönsku Indó-Kína.
Fer heim.
ÓSLÓ — Ólafur krónprins Norð-
manna leggur af stað heim til
Noregs frá Bandaríkjunum 2.
okt. — Fer hann flugleiðis til
Kaupmannahafnar.
Sama verð
PARÍS, 1. okt. — Fulltrúar 21
útgerðarfélags bæði í Evrópu,
Asíu og Ameríku samþykktu á
fundi sínum í dag, að hafa áfram
sama verð á farseðlum á leiðinni
yfir Atlantshaf þrátt fyrir hækk-
andi útgerðarkostnað.
Það sem af er þessu ári, hafa
250 þúsund farþegar siglt með
skipum viðkomandi félaga frá
Ameriku til Evrópu. Er það 10%
fleiri farþegar en á s.l. ári.
NTB-Reuter.
Dæmdir
til dauða
KAÍRÓ, 1. okt. — Eyltingardóm-
stóll Egyptalands kvað í dag upp
fyrstu dauðadóma sína. Voru
þeir kveðnir upp yfir þeim Abdel
Mady fyrrum forsætisráðherra og
Múhameð Awad rafmagnsverk-
fræðing, sem báðir voru taldir
hafa gerzt sekir um föðurlands-
svik.
4 Var forsætisráðherrann
V einkum ákærður fyrir
að hafa látið undan vilja Farúks
kóngs, og farið með hernað gegn
Gagnkvæmur griðasátt-
máli Rússa og Banda-
ríkjamanna!
★ WASHINGTON, 1. okt. —
Eisenhower forseti Bandaríkj-
anna sagði í dag, að hann at-
hugaði nú gaumgæfilega samn-' NOKKRIR ÞINGMENN
ingsuppkast að gagnkvæmum ÓKOMNIR
griðasáttmála milli Bandaríkja-1 Nokkrir þingmenn voru í gær
manna og Rússa, sem Bandaríkja- ókomnir til þings. Voru það þeir
stjórn hyggðist e. t. v. bjóða rúss- Ásgeir Bjarnason, Emil Jónsson,
Fyrir predikun var sunginn
sálmurinn „Þú ríkir hátt yfir
kærleikans straum.“ Síðan var
lesinn ritningarkafli, og þar næst
sunginn sálmurinn „Sannleikans
andi.“
Á eftir predikun var sunginn
sálmurinn „Upp þúsund ára
þjóð“. Ennfremur flutti vígslu-
biskup fagra bæn. Að lokum var
þjóðsöngurinn sunginn.
ALÞINGI SETT
Þá var gengið til Alþingis-
hússins, og setti forseti íslands,
Ásgeir Ásgeirsson, Alþingi þar
með ræðu, sem birt er á öðrum
stað í blaðinu. Að henni lokinni
minntust þingmenn fósturjarð-
arinnar með ferföldu húrra
hrópi.
Þá tók aldursforseti, Jörund-
ur Brynjólfsson, við fundarstjórn.
Minntist hann fyrst þriggja fyrr-
verandi alþingismanna, sem lét-
ust á árinu. Voru það þeir Ólafur
Thorlacius, Jón Auðunn Jóns-
son og séra Kristinn Daníelsson.
Risu þingmenn úr sætum sínum
í virðingarskyni við hina látnu
þingmenn.
nesku stjórninni upp á.
Naufilus hleypt af
stokkunum i janúar
WASHINGTON, 1. okt. — Fyrsta
kjarnaknúða kafbát Bandaríkj-
ísraelsmönnum, áður en egypzki anna, Nautilus, verður hleypt af
herinn var undir það búinn. Enn stokkunum í janúar næst kom-
fremur voru báðir hinir dauða- ' andi, að því er tilkynnt var í dag.
dæmdu ákærir fyrir að hafa verið Kafbáturinn er sá stærsti, sem
í sambandi við stjórnir erlendra byggður er í Bandaríkjunum og þingi sér í kjördeildir til þess að
Hermann Jónasson, Jóhann Þ.
Jósefsson, Jóhann Hafstein,
Kjartan J. Jóhannsson og Lúð-
vík Jósefsson. En fyrir hann var
mættur sem varamaður Ásmund-
ur Sigurðsson og fyrir Jóhann
Hafstein var mætt frú Kristín
Sigurðardóttir. Ein kona átti
þannig sæti á hinum fyrsta þing-
fundi þess kjörtímabils, sem nú
er hafið.
FORSETAKJÖR
Á fundinum í gær skipti Al-
ríkja.
NTB-Reuter.
ikostaði 30 milljónir dala.
9 barna móðir
HINN nýi viðskiptamálaráðherra
Dana, frú Lis Groes, er fyrsta
konan sem fer með viðskiptamál
í danskri ríkisstjórn. Hún er 42
ára að aldri og er formaður í
neytendasamtökum húsmæðra.
Frú Groes hefur aldrei setið á
þingi. — Þess má geta að lokum,
að frúin er 9 barna móðir.
Svívirða konutr og
myrða menn þeirra
BONN, 1. okt. — Eftir upp-
reisnartilraunirnar í Austur-
Þýzkalandi hinn 17. júní s.l. hafa
rússnesku hermennirnir fengið
um það fyrirmæli að blanda geði
við íbúða landsins, en áður var
þeim það bannað.
Er nú reynt að láta líta svo
út, sem þeir séu „verndarar og
vinir“, þjóðarinnar. Hafa liðs-
foringjarnir nú leyfi til að göltr-
ast úti þangað til kl. 2 að nóttu,
en óbreyttir til kl. 10.
Reynsla Austur-Þjóðverja af
þessari nýbreytni er allt annað
en góð, og má segja, að hræðslu-
alda hafi gripið um sig meðal
þjóðarinnar síðan hún var upp
tekin. Sannleikurinn er nefni-
lega sá, að rússnesku hermenn-
irnir hafa bæði framið rán og
morð að næturlagi og eru menn
á engan hátt óhultir fyrir ágengni
þeirra. Er vitað um 50 Austur-
Þjóðverja, sem þeir hafa drepið
og fregnir berast því sem næst
daglega um kventolk, sem þeir
hafa svívirt.
rannsaka kjörbréf þingmanna.
Mun því starfi verða lokið ár-
degis í dag og fundur hefjast í
Sameinuðu þingi kl. 1,30 e. h.
Munu kjörbréf þá verða sam-
þykkt og forsetar kjörnir í Sam-
einuðu þingi og báðum þing-
deildum. Ekki er gert ráð fyrir,
að nefndarkosningar fari fram
fyrr en á mánudag.
RÆÐA VÍGSLUBISKUPS
Hér fer á eftir niðurlag hinn-
aT merku ræðu, sem séra Bjarni
Jónsson, vígslubiskup, flutti við
guðsþjónustuna í Dómkirkjunni
í gær:
„Látum þessa stund vera þakk-
arstund og heitstrengingarhátíð.
Um leið og vér þökkum veitta
blessun, þá strengjum þess heit,
að starfa að landsins heill, að
fela Guði allan þjóðarhag, um
1 Framh. á bls. 2.