Morgunblaðið - 02.10.1953, Side 16

Morgunblaðið - 02.10.1953, Side 16
Veðurúflif í dag: Léttir til með stinningskalda af NV. Efnaha^c&ugleikar Finna. Sjá grein á bls. 9 223. tbl. — Föstudagur 2. október 1953 Mauðsynlegt að byggjo 600 íbúð- ar ó óri í Reykjavík Tillaga Sjálfstæðismanna á bæjarsfjórnarfundi f gær Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær flutti Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri fyrir hönd bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins tillögu um umbætur í húsnæðismálum bæjarbúa, sem samþykkt var með 15 samhljóða atkvæðum allra bæj- arfulltrúa. Var þar í fyrsta lagi lýst yfir, að nauðsynlegt s® að byggja 600 íbúðir á ári í Reykjavík til þess að full- nægja eðlilegri fólksfjölgun og útrýma lélegu húsnæði. í*á íól bæjarstjórnin borgarstjóra að efna til ráðstefnu mcð þfcim aðiljum í bænum, sem mest hafa starfað að bygging- arframkvæmdum í því skyni að sameina alla krafta um stórt átak til umbóta í húsnæðismálum. TILLAGA SJÁLFSTÆÐISMANNA Tillagan er svohljóðandi: „Bæjarstjórnin telur að byggja þurfi a. m. k. 600 nýj- ar íbúðir á ári hverju í Reykja vík til þess að fullnægja eðli- legri fólksfjölgun og útrýma lélegum íbúðum. — Þar sem á undanförnum 6 árum hafa ekki fengizt leyfi til að byggja nema tæplega 400 íbúðir á ári að meðaltali, er ljóst, að auka þarf íbúðarhúsabyggingar í Reykjavík stórlega nú þegar og á næstu árum. Bæjarstjórn- in telur brýna nauðsyn til bera, að bær og ríki leggist á eitt. ásamt öllum öðrum byggingaraðiljum til þess að leysa húsnæðisvandræðin hið fyrsta. SAMEIGINLEGT ÁTAK Bæjarstjórn felur bæjar- ráði og borgarstjóra að hefja þegar samninga við ríkis- stjórnina um fyrirgreiðslu og framkvæmdir í þessum mál- um. Felur bæjarstjómin borg- arstjóra að efna til ráðstefnu um byggingar íbúðarhúsa með þeim aðiljum, sem mest hafa starfað að byggingar- framkvæmdum, í þvi skyni að fá sameiginlegt átak allra aðilja til stóraukinna íbúða- bygginga.“ MARSHALL-HATUR KOMMÚNISTA Einn af bæjarfulltrúum komm- únista, Guðm. Vigfússon, hélt því fram í umræðunum, sem urðu um húsnæðismálin á fund- inum, að það væri efnahagssam- vinnu hinna vestrænu lýðræðis- þjóða, Marshall-h j álpinni svo kölluðu að kenna að ekki hefði verið byggt nægilega mikið í Reykjavík á undanförnum árum. Ólafur Björnsson prófessor rak þessa marghröktu staðhæfingu ofan í kommúnista. Hann kvað það viðurkennda staðreynd, að efnahagssamvinnan hefði stór- aukið gjaldeyriseign þjóðarinnar. En til þess að geta byggt, þyrfti þjóðin fyrst og fremst erlendan gjaldeyri til kaupa á byggingar- efnum. Það lægi í augum uppi, að þau miklu framlög, sem Is- lendingar hefðu fengið frá Mars- hall-stofnuninni hefðu auðveldað byggingarframkvæmdir þeirra en ekki hindrað þær. Mál höfðað gegn skipsfjóra og stýri- manni ,Van Dyck' MORGUNBLAÐIÐ leitaði seint í gærkvöldi upplýsinga hjá dóms- málaráðuneytinu um mál belg- iska togarans Van Dyck, er kærð- ur var fyrir margföld landhelgis- brot, er hann kom inn til Vest- mannaeyja í fyrrakvöld. Var blaðinu skýrt frá því, að mál hefði verið höfðað bæði gegn , skipstjóra skipsins og 1. stýri- ! manni fyrir landhelgisbrot, en stýrimaðurinn hafði haft skip- stjórn á hendi i eitt skiptið er 1 skipsins varð vart að veiðum í landhelgi. Báðir hinir ákærðu fengu skip- aðan verjanda samkvæmt ósk sinni, en líklegt er talið, að dóm- ur falli í málum þeirra í dag. Skósmiður brennist til bana í vinnustofu sinni s i Sviplegur atburður hér í hæ í gærdag. j ÞAÐ SVIPLEGA slys vildi til í gærdag, að Stefán SteinþórssorS skósmiður, beið bana af völdum brunasára í skósmíðastofu sinni, í Brennu við Bergstaðastræti, árdegis í gær. REYKUR UT UM DYR Þetta gerðist um klukkan 11. — Börn er voru á götunni veittu ’ því eftirtekt, að reyk lagði út j um dyrnar á skósmíðastofu 1 Stefáns, sem var í suðurenda hússins Brenna, Bergstaðastræti 13. — Börnin gerðu frú Valgerði Árnadóttur, sem í húsinu býr, j viðvart. Brá hún þegar við. Úti , á götunni bað hún mann nokk- 1 urn að athuga hvernig á reykn- um úr skósmíðaverkstæðinu stæði. Er1 maður þessi opnaði hurð skósmíðastofunnar, lá Stefán þar fyrir fótum hans. Föt hans log- uðu og voru mjög brunnin. — Sjálfur var hann þá með lífs- Crípur til Taft- Hartley-laganna WASHINGTON, 1. okt. — Eisen- hower sagði í dag, að verkfall hafnarverkamanna í hafnarborg- um á austursönd Bandaríkjanna stofnaði bandarísku þjóðinni í hinn mesta voða, og mundi hann því grípa til Taft-Hartley lag- anna, þar sem svo er fyrir mælt, að verkfallið megi ekki standa yfir nema í 80 daga NTB-Reuter. r* I -f £ Miklar skipakomur lil ísafjarðar ÍSAFIRÐI, 1. okt.: — Miklar skipakomur hafa verið hér í þess ari viku og hafa mörg skipin orð- ið að bíða nokkuð eftir afgreiðslu vegna þess að ekki hefir verið hægt að fá vinnuafl eða bíla til afgreiðslunnar. Á mánudag kom kolaskip með 2000 tonn af kolum til Kaup- félágs ísfirðinga og Lagarfoss, sem lestaði hér um 7 þús. kassa af freðfiski. Einnig kom togarinn ísborg af veiðum frá Grænlands- miðum og sigldi með aflann áleið is til Esbjerg á þriðjudag. Þá kom og þýzka flutningaskipið Alstaerpark og tók hér saltfisk til Grikklands. I dag bíður Mophrid veðurs til að geta byrjað að lesta saltfisk til Ítalíu. Hér er nú norð-austan stormpr og snjóslydda, svo að ekki hpfir verið hægt að skipa út | saltfiski, .— J. . i marki. Var slökkviliðinu og lög- reglu þegar gert viðvart, en Stefán var látinn er sjúkraliðs* menn konm á vettvang um leiSB og slökkviliðsmenn. KVIKNAÐI FÖTUNUM Ekki hafði annað brunnið þa? í skósmíðaverkstæðinu og virð» ist sem kviknaði hafi í fötuní Stefáns, en með hvaða hætti ep ekki vitað, en benda má á, a<S Stefán heitinn reykti. Hann vaO bæklaður mjög, einfættur. Muii honum því hafa gengið erfiðlega að komast út úr vinnustofunni. Stefán var einhleypur maðuo og átti heima að Bergstaða» stræti 30B. Annar þeirra sem gerðu hús- rasl á Bessastöðum fundinn Yar ölvaður, kveðsl ekkð hafa þekkf hinn EINS OG SKÝRT hefir verið frá í blöðum komu tveir ölvaðir menn aðfaranótt sunnudagsins 6. september s. 1. í íbúðarhús starfs- fólks Bessastaðabúsins og gerðu þar nokkurs ónæði. Þegar þeir voru farnir þaðan út tóku þeir sendiferðabifreið forsetasetursins, G 578, í heimildarleysi og fóru burtu í henni, en daginn eftir; fannst bifreiðin óskemmd við Þóroddsstaði í Reykjavík. Á myndinni sjást greinilega skemmdirnar á herskipinu „Swiftsure“. — (Ljósm.: Óskar Gíslason). Kvikmynd tekin af skemmdum ,Swiftsure fyrir brezka sjónvarpið STRAX og fréttir bárust um það, að brezka herskipið „Swiftsure“, sem laskaðist í árekstrinum við tundurspillinn „Diamond", hafi leitað hafnar hér við land, sendi brezka sjónvarpið Slysavarna- félagi íslands fyrirspurn um það, hvort félagið gæti útvegað sjón- varpinu kvikmynd af skemmdum skipsins. Þótt slíkt sé að sjálfsögðu ekki í verkahring SVFÍ, brá félagið skjótt við sem jafnan, þegar til þess er leitað og fékk Óskar Gíslason ljósmyndara, til þess að fara upp í Hvalfjörð og taka ’kvikmynd af skemmdum skips- ins, og gerði hann það í gær. Verður myndin send utan með fyrstu ferð. | Sennilegt er að brezka sjón- varapið hafi snúið sér til SVFÍ í sambandi við myndatöku þessa vegna kvikmyndar félagsins um björgunina við Látrabjarg, sem kunn er orðin ytra. ANNAR MANNANNA FUNDINN Ljóst er nú orðið hver annar þessara manna var og hefir hann fyrir dómi skýrt frá atburðum þessum eftir því, sem hann man þá, en upplýst er að hann var mjög ölvaður þessa nótt og eigi man hann ýms atvik, sem vitni hafa lýst. Maður þessi er tvítug- ur að aldri og hefir einu sinni sætt áminningu fyrir brot á um- ferðarreglum, en að öðru leyti hvorki sætt ákæru né refsingu. Hann kveðst hafa verið hér á götum bæjarins umrædda nótt og þá hitt af tilviljun annan ölvað- an pilt og hafi þeim komið sam- an um að fara suður að Bessa- stöðum, en engan þekktu þeir þar og áttu ekkert erindi þangað. Þeir fóru síðan í leigubifreið að Bessastöðum og þar inn í starfs- fólksbústaðinn og er upplýst með vitnisburðum fólksins þar, sem sá þá og talaði við þá, að þeir voru nokkuð uppivöðslusamir. Einn starfsmanna búsins fékk þá til að fara aftur út í leigubifreið- ina og fylgdi þeim að henni, en fór síðan sjálfur inn. mm TÓKU BIFREIÐ Mennirnir vildu ekki aka burtu í leigubifreiðinni og létu hana fara. Síðan tóku þeir í heimild- arleysi jeppabifreið bústjórans og ætluðu burt í henni, en komu henni ekki í gang. Ýttu þeir henni nokkurn spöl, en skildu svo við hana. Þá tóku þeir G-578, slitu rafleiðslur hennar og tengdu þær síðan saman þannig að þeir gátu komið bifreiðinni í gang og ók síðan sá þeirra, sem uppvíst er orðið um, henni til Reykja- víkur, en hinn sat í bifreiðinni. Ekið var að bifreiðastöðinni Hreyfli við Kalkofnsveg og num- ið þar staðar um stund og þar fór sá, sem ekki ók, úr bifreiðinni og burt. Að því búnu ók hinn bifreiðinni suður að Þóroddsstöð- um og skildi þar við hana. ÞEKKIR EKKI HINN MANNINN Sá mannanna, sem uppvíst er orðið um, staðhæfir að hann viti ekki hver hinn sé, að hann hafi alls ekki þekkt mann þennan þegar þeir hittust um nóttina og að hvorugur þeirra hafi gefið hinum neinar upplsýingar um sig, svo sem um nafn, heimili eða starf. Fimrn mcim slasast 1 bílaárekstri Á HORNI Þvottalaugavegar og Suðurlandsbrautar varð í gær- j dag harður árekstur. Fimm menn en þeir voru í fjögurra manna bíl og jeppa, hlutu meiðsl, en 1 ekki alvarleg. Þeir voru þó allir fluttir í sjúkrahús. Fjögurra manna bíllinn, R- 3025, var á leið til bæjarins og sveigði inn á Þvottalaugaveg- inn, er jeppinn R-6233, sem var á leið austur eftir Suðurlands- j braut, kom á hægri hlið bílsins ! og velti honum. Þrír þeirra, sem 1 í 3025 voru meiddust, og þurfti að flytja þá í sjúkrahús, en það I voru Kristinn Eyjólfsson, Lind- argötu 22 A, sem fékk heilahrist. ing, Óskar Einarsson, Hverfis- götu 42, sem handleggsbrotnaði I og Þórður Einarsson, sem er bróðir Óskars. í jeppanum meiddust bílstjór- inn Stefán Jóhannsson Sjafnar- götu 8 og Birgir Ólafsson, Skipa- sundi 34. Voru þeir einnig fluttir í Landsspítalann vegna meiðsla. Minni billinn stórskemmdist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.