Morgunblaðið - 02.10.1953, Blaðsíða 16
Veðurúflif í dag:
Léttir til með stinningskalda
af NV.
Efnaha^c&ugleikar
Finna. Sjá grein á bls. 9
223. tbl. — Föstudagur 2. október 1953
Mauðsynlegt að byggjo 600 íbúð-
ar ó óri í Reykjavík
Tillaga Sjálfstæðismanna
á bæjarsfjórnarfundi f gær
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær flutti Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri fyrir hönd bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins tillögu um umbætur í húsnæðismálum bæjarbúa,
sem samþykkt var með 15 samhljóða atkvæðum allra bæj-
arfulltrúa. Var þar í fyrsta lagi lýst yfir, að nauðsynlegt
s® að byggja 600 íbúðir á ári í Reykjavík til þess að full-
nægja eðlilegri fólksfjölgun og útrýma lélegu húsnæði. í*á
íól bæjarstjórnin borgarstjóra að efna til ráðstefnu mcð
þfcim aðiljum í bænum, sem mest hafa starfað að bygging-
arframkvæmdum í því skyni að sameina alla krafta um
stórt átak til umbóta í húsnæðismálum.
TILLAGA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
Tillagan er svohljóðandi:
„Bæjarstjórnin telur að
byggja þurfi a. m. k. 600 nýj-
ar íbúðir á ári hverju í Reykja
vík til þess að fullnægja eðli-
legri fólksfjölgun og útrýma
lélegum íbúðum. — Þar sem
á undanförnum 6 árum hafa
ekki fengizt leyfi til að byggja
nema tæplega 400 íbúðir á ári
að meðaltali, er ljóst, að auka
þarf íbúðarhúsabyggingar í
Reykjavík stórlega nú þegar
og á næstu árum. Bæjarstjórn-
in telur brýna nauðsyn til
bera, að bær og ríki leggist
á eitt. ásamt öllum öðrum
byggingaraðiljum til þess að
leysa húsnæðisvandræðin hið
fyrsta.
SAMEIGINLEGT ÁTAK
Bæjarstjórn felur bæjar-
ráði og borgarstjóra að hefja
þegar samninga við ríkis-
stjórnina um fyrirgreiðslu og
framkvæmdir í þessum mál-
um. Felur bæjarstjómin borg-
arstjóra að efna til ráðstefnu
um byggingar íbúðarhúsa
með þeim aðiljum, sem mest
hafa starfað að byggingar-
framkvæmdum, í þvi skyni að
fá sameiginlegt átak allra
aðilja til stóraukinna íbúða-
bygginga.“
MARSHALL-HATUR
KOMMÚNISTA
Einn af bæjarfulltrúum komm-
únista, Guðm. Vigfússon, hélt
því fram í umræðunum, sem
urðu um húsnæðismálin á fund-
inum, að það væri efnahagssam-
vinnu hinna vestrænu lýðræðis-
þjóða, Marshall-h j álpinni svo
kölluðu að kenna að ekki hefði
verið byggt nægilega mikið í
Reykjavík á undanförnum árum.
Ólafur Björnsson prófessor rak
þessa marghröktu staðhæfingu
ofan í kommúnista. Hann kvað
það viðurkennda staðreynd, að
efnahagssamvinnan hefði stór-
aukið gjaldeyriseign þjóðarinnar.
En til þess að geta byggt, þyrfti
þjóðin fyrst og fremst erlendan
gjaldeyri til kaupa á byggingar-
efnum. Það lægi í augum uppi,
að þau miklu framlög, sem Is-
lendingar hefðu fengið frá Mars-
hall-stofnuninni hefðu auðveldað
byggingarframkvæmdir þeirra en
ekki hindrað þær.
Mál höfðað gegn
skipsfjóra og stýri-
manni ,Van Dyck'
MORGUNBLAÐIÐ leitaði seint í
gærkvöldi upplýsinga hjá dóms-
málaráðuneytinu um mál belg-
iska togarans Van Dyck, er kærð-
ur var fyrir margföld landhelgis-
brot, er hann kom inn til Vest-
mannaeyja í fyrrakvöld.
Var blaðinu skýrt frá því, að
mál hefði verið höfðað bæði gegn
, skipstjóra skipsins og 1. stýri-
! manni fyrir landhelgisbrot, en
stýrimaðurinn hafði haft skip-
stjórn á hendi i eitt skiptið er
1 skipsins varð vart að veiðum í
landhelgi.
Báðir hinir ákærðu fengu skip-
aðan verjanda samkvæmt ósk
sinni, en líklegt er talið, að dóm-
ur falli í málum þeirra í dag.
Skósmiður brennist til bana
í vinnustofu sinni s
i
Sviplegur atburður hér í hæ í gærdag. j
ÞAÐ SVIPLEGA slys vildi til í gærdag, að Stefán SteinþórssorS
skósmiður, beið bana af völdum brunasára í skósmíðastofu sinni,
í Brennu við Bergstaðastræti, árdegis í gær.
REYKUR UT UM DYR
Þetta gerðist um klukkan 11.
— Börn er voru á götunni veittu
’ því eftirtekt, að reyk lagði út
j um dyrnar á skósmíðastofu
1 Stefáns, sem var í suðurenda
hússins Brenna, Bergstaðastræti
13. — Börnin gerðu frú Valgerði
Árnadóttur, sem í húsinu býr,
j viðvart. Brá hún þegar við. Úti
, á götunni bað hún mann nokk-
1 urn að athuga hvernig á reykn-
um úr skósmíðaverkstæðinu
stæði.
Er1 maður þessi opnaði hurð
skósmíðastofunnar, lá Stefán þar
fyrir fótum hans. Föt hans log-
uðu og voru mjög brunnin. —
Sjálfur var hann þá með lífs-
Crípur til Taft-
Hartley-laganna
WASHINGTON, 1. okt. — Eisen-
hower sagði í dag, að verkfall
hafnarverkamanna í hafnarborg-
um á austursönd Bandaríkjanna
stofnaði bandarísku þjóðinni í
hinn mesta voða, og mundi hann
því grípa til Taft-Hartley lag-
anna, þar sem svo er fyrir mælt,
að verkfallið megi ekki standa
yfir nema í 80 daga
NTB-Reuter.
r* I -f
£
Miklar skipakomur
lil ísafjarðar
ÍSAFIRÐI, 1. okt.: — Miklar
skipakomur hafa verið hér í þess
ari viku og hafa mörg skipin orð-
ið að bíða nokkuð eftir afgreiðslu
vegna þess að ekki hefir verið
hægt að fá vinnuafl eða bíla til
afgreiðslunnar.
Á mánudag kom kolaskip með
2000 tonn af kolum til Kaup-
félágs ísfirðinga og Lagarfoss,
sem lestaði hér um 7 þús. kassa
af freðfiski. Einnig kom togarinn
ísborg af veiðum frá Grænlands-
miðum og sigldi með aflann áleið
is til Esbjerg á þriðjudag. Þá
kom og þýzka flutningaskipið
Alstaerpark og tók hér saltfisk til
Grikklands.
I dag bíður Mophrid veðurs til
að geta byrjað að lesta saltfisk
til Ítalíu. Hér er nú norð-austan
stormpr og snjóslydda, svo að
ekki hpfir verið hægt að skipa út |
saltfiski, .— J. . i
marki. Var slökkviliðinu og lög-
reglu þegar gert viðvart, en
Stefán var látinn er sjúkraliðs*
menn konm á vettvang um leiSB
og slökkviliðsmenn.
KVIKNAÐI FÖTUNUM
Ekki hafði annað brunnið þa?
í skósmíðaverkstæðinu og virð»
ist sem kviknaði hafi í fötuní
Stefáns, en með hvaða hætti ep
ekki vitað, en benda má á, a<S
Stefán heitinn reykti. Hann vaO
bæklaður mjög, einfættur. Muii
honum því hafa gengið erfiðlega
að komast út úr vinnustofunni.
Stefán var einhleypur maðuo
og átti heima að Bergstaða»
stræti 30B.
Annar þeirra sem gerðu hús-
rasl á Bessastöðum fundinn
Yar ölvaður, kveðsl ekkð hafa þekkf hinn
EINS OG SKÝRT hefir verið frá í blöðum komu tveir ölvaðir
menn aðfaranótt sunnudagsins 6. september s. 1. í íbúðarhús starfs-
fólks Bessastaðabúsins og gerðu þar nokkurs ónæði. Þegar þeir
voru farnir þaðan út tóku þeir sendiferðabifreið forsetasetursins,
G 578, í heimildarleysi og fóru burtu í henni, en daginn eftir;
fannst bifreiðin óskemmd við Þóroddsstaði í Reykjavík.
Á myndinni sjást greinilega skemmdirnar á herskipinu „Swiftsure“.
— (Ljósm.: Óskar Gíslason).
Kvikmynd tekin af skemmdum
,Swiftsure fyrir brezka sjónvarpið
STRAX og fréttir bárust um það, að brezka herskipið „Swiftsure“,
sem laskaðist í árekstrinum við tundurspillinn „Diamond", hafi
leitað hafnar hér við land, sendi brezka sjónvarpið Slysavarna-
félagi íslands fyrirspurn um það, hvort félagið gæti útvegað sjón-
varpinu kvikmynd af skemmdum skipsins.
Þótt slíkt sé að sjálfsögðu ekki
í verkahring SVFÍ, brá félagið
skjótt við sem jafnan, þegar til
þess er leitað og fékk Óskar
Gíslason ljósmyndara, til þess að
fara upp í Hvalfjörð og taka
’kvikmynd af skemmdum skips-
ins, og gerði hann það í gær.
Verður myndin send utan með
fyrstu ferð.
| Sennilegt er að brezka sjón-
varapið hafi snúið sér til SVFÍ
í sambandi við myndatöku þessa
vegna kvikmyndar félagsins um
björgunina við Látrabjarg, sem
kunn er orðin ytra.
ANNAR MANNANNA
FUNDINN
Ljóst er nú orðið hver annar
þessara manna var og hefir hann
fyrir dómi skýrt frá atburðum
þessum eftir því, sem hann man
þá, en upplýst er að hann var
mjög ölvaður þessa nótt og eigi
man hann ýms atvik, sem vitni
hafa lýst. Maður þessi er tvítug-
ur að aldri og hefir einu sinni
sætt áminningu fyrir brot á um-
ferðarreglum, en að öðru leyti
hvorki sætt ákæru né refsingu.
Hann kveðst hafa verið hér á
götum bæjarins umrædda nótt og
þá hitt af tilviljun annan ölvað-
an pilt og hafi þeim komið sam-
an um að fara suður að Bessa-
stöðum, en engan þekktu þeir
þar og áttu ekkert erindi þangað.
Þeir fóru síðan í leigubifreið að
Bessastöðum og þar inn í starfs-
fólksbústaðinn og er upplýst með
vitnisburðum fólksins þar, sem
sá þá og talaði við þá, að þeir
voru nokkuð uppivöðslusamir.
Einn starfsmanna búsins fékk þá
til að fara aftur út í leigubifreið-
ina og fylgdi þeim að henni, en
fór síðan sjálfur inn.
mm
TÓKU BIFREIÐ
Mennirnir vildu ekki aka burtu
í leigubifreiðinni og létu hana
fara. Síðan tóku þeir í heimild-
arleysi jeppabifreið bústjórans
og ætluðu burt í henni, en komu
henni ekki í gang. Ýttu þeir
henni nokkurn spöl, en skildu svo
við hana. Þá tóku þeir G-578,
slitu rafleiðslur hennar og tengdu
þær síðan saman þannig að þeir
gátu komið bifreiðinni í gang og
ók síðan sá þeirra, sem uppvíst
er orðið um, henni til Reykja-
víkur, en hinn sat í bifreiðinni.
Ekið var að bifreiðastöðinni
Hreyfli við Kalkofnsveg og num-
ið þar staðar um stund og þar
fór sá, sem ekki ók, úr bifreiðinni
og burt. Að því búnu ók hinn
bifreiðinni suður að Þóroddsstöð-
um og skildi þar við hana.
ÞEKKIR EKKI HINN
MANNINN
Sá mannanna, sem uppvíst er
orðið um, staðhæfir að hann viti
ekki hver hinn sé, að hann hafi
alls ekki þekkt mann þennan
þegar þeir hittust um nóttina og
að hvorugur þeirra hafi gefið
hinum neinar upplsýingar um
sig, svo sem um nafn, heimili eða
starf.
Fimrn mcim slasast
1 bílaárekstri
Á HORNI Þvottalaugavegar og
Suðurlandsbrautar varð í gær-
j dag harður árekstur. Fimm menn
en þeir voru í fjögurra manna
bíl og jeppa, hlutu meiðsl, en
1 ekki alvarleg. Þeir voru þó allir
fluttir í sjúkrahús.
Fjögurra manna bíllinn, R-
3025, var á leið til bæjarins og
sveigði inn á Þvottalaugaveg-
inn, er jeppinn R-6233, sem var
á leið austur eftir Suðurlands-
j braut, kom á hægri hlið bílsins
! og velti honum. Þrír þeirra, sem
1 í 3025 voru meiddust, og þurfti
að flytja þá í sjúkrahús, en það
I voru Kristinn Eyjólfsson, Lind-
argötu 22 A, sem fékk heilahrist.
ing, Óskar Einarsson, Hverfis-
götu 42, sem handleggsbrotnaði
I og Þórður Einarsson, sem er
bróðir Óskars.
í jeppanum meiddust bílstjór-
inn Stefán Jóhannsson Sjafnar-
götu 8 og Birgir Ólafsson, Skipa-
sundi 34. Voru þeir einnig fluttir
í Landsspítalann vegna meiðsla.
Minni billinn stórskemmdist.