Morgunblaðið - 18.03.1954, Page 7
Fimmtudagur 18 marz 1054
MORCVNBLAÐIÐ
7
Droffniiifin og kéHi|sdæfBjriiar þrjár
íngiríður Danadrottning var á skautum ásamt dætrum sínum á Esromvatni hér á dögunum, þegar
frosthörkurnar voru ytra.
Innflufnings- og skaflamál
rædd á ársþingi iSnrekenda
Á ÁRSÞINGI iðnrekenda í gær
voru rædd innflutningsmál,
skattamál o. fl. Að loknum um-
ræðum voru samþykktar eftir-
farandi tillögur:
INNFLUTNINGSMÁL
a) Ársþingið skorar á innflutn-
ingsyfirvöldin að veita starfandi
iðnaðarfyrirtækjum í landinu
nauðsynleg leyfi á hverjum tíma
fyrir vélum til endurnýjunar,
fyrir hráefnum til iðnaðar, sem
enn eru háð leyfisveitingum og
fyrir umbúoum um iðnaðarvöru,
á meðan þær hafa ekki verið
settar á frílista.
Ennfremur telur þingið, að
bifreiðaskortur margra iðnaðar-
fyrirtækja sé orðið mjög aðkall-
andi vandamál, sem verði að
finna lausn á hið bráðasta, með
veitingu nauðsynlegra gjaldeyris
og innflutningsleyfa fyrir vöru-
og sendiferðabifreiðum til iðnað-
arfyrirtækja.
b) Þingið telur að setja þurfi
nú þegar iðnaðarvöru-umbúðir
sem ekki er hægt að framleiða í
landinu, á almennan frílista.
c) Ársþingið vítir harðlega að
enn skuli járnsmíða- og trésmíða
vélar og ýmsar aðrar vélar til
iðnaðar vera á bátalistanum.
Skorar þingið á ríkisstjórnina
að leiðrétta nú þegar ríkjandi mis
ræmi þannig, að nauðsynlegum
iðngreinum sé ekki íþyngt leng-
ur á þennan hátt.
d) Þingið telur nauðsynlegt,
að við allan innflutning, hvort
sem um er að ræða A- eða B frí-
listavörur, eða vörur háðar leyfis
veitingum, sé ávallt fylgt þeirri
reglu, að láta efnivörur til iðn-
aðar sitja fyrir fullunnum iðn-
aðarvörum
e) Þingið beinir þeim tiimæl-
um til bankanna að taka lága
eða enga fyrirframgreiðslu af iðn
fyrirtækjum vegna efnivöru-
kaupa erlendis frá, í samræmi
við tillögur Rannsóknarnefndar
ríkisins í iðnaðarmálum á s.l. ári.
SKATTAMÁL
Ársþing iðnrekenda áréttar
tillögur sinar frá fyrra ári um
skattamál atvinnufyrirtækja og
leggur áherzlu á eftirfarandi.
1. Ársþingið telur það grund-
vallaratriði, og vill leggja á það
ríka áherzlu, að skattalögin séu
þannig, að samanlagðir skattar
og útsvör fari aldrei fram úr
ákveðnum hluta af skattskyldum
tekjum fyrirtækjanna, hvort
heldur það eru einstakiingar eða
félög sem þau reka.
Ársþingið telur að samanlagðir
skattar og útsvör megi ekki fara
vfir 40% af skattskyldum tekj-
um.
2. Skattar og útsvö'r verði sam-
einuð í eir.a fjárheimtu og skipt-
ist þær tekjur síðan milli rikis,
bæjar- og sveitarfélagat Jafn-
framt verði allt innheimtufyrir-
komulag gert einfaldara en nú er.
3. Öll fyrirtæki, hvaða rekstr-
arformi sem þau lúta, s. s. fyrir-
tæki einstaklinga, hlutafélög,
sameignarfélög, samvinnufélög,
svo og fyrirtæki ríkis- og bæjar-
félaga, sem rekin eru í sam-
keppni við annan atvinnurekst-
ur, séu háð sömu reglum um
skatta og útsvarsálagningu. Skatt
ar og útsvör verði álögð eftir
hundraðshluta á ágóða, en ekki
stighækkandi eins og nú er. Veltu
útsvar verði gert frádráttarhæft
við framtöl á sama hátt og sölu-
skattur.
4. Hlutafélög, sameignarfélög
og samvinnufélög verði sköttuð
þannig, að aldrei verði um tví-
sköttun að ræða á sömu tekjur,
þ.e. að félögin þurfi ekki að
greiða skatta eða útsvör af út-
hlutuðum arði eða ágóðahluta,
heldur sé arðurinn eða ágóðinn
aðeins skattaður hjá einstakling-
unum.
5. Núverandi fyrirkomulagi í
meðferð skattaframtala verði
breytt þannig, að það sé ekki á
valdi fárra eða einstakra opin-
berra starfsmanna, að áætla
skatta og útsvör, þó að þeim finn
ist eitthvað athugavert við skatta
framtöl, nema að þeir telji sig
íyrir dómstóli geta sannað, að
véfenging á skattaframtali sé á
rökum reist.
AUKNAR TEKJUR
IÐNLÁNASJÓÐS
Ársþingið telur að tryggja
þurfi Iðnlánasjóði auknar tekjur
til þess að hann verði fær um
að sinna hlutverki sínu.
Telur bingið eðlilegt að tekjur
sjóðsins væru á hverjum tima í
samræmi við verðmæti iðnaðar-
í'ramleiðslunnar í landinu.
Gerir ársþingið þá tillögu að
viss hluti áf áætluðum tekjum af
söluskatti á iðnaðarvörum renni
I Iðnlánasjóð. Bendir þingið í því
sambandi á tekjustofn fiskveiða-
sjóðs sem er hundraðshluti af
útfluttum sjávarafurðum.
Þá má og minna á það, að sölu-
skatturinn er hlutfallslega hærri
á innlenda iðnaðinum en á inn-
fluttri iðnaðarframleiðslu.
* ★
í dag (fimmtudag) kl. 4—6 e.h.
mun iðnaðarmálaráðherra hafa
boð inni fvrir fulltrúa á ársþing-
inu.
Síðasti fundur ársþingsins verð
ur á laugardag og hefst kl. 2 e.h.
í Tjarnarkaffi.
KITRARNASPA
í ÞESSARI viku fara fram
nokkrir leikir, sem féllu niður á
laugardag vegna bikarkeppninn-
ar, Chelsea gegn WBA og Manch.
City gegn Tottenham, einnig
leika að nýju liðin, sem gerðu
jafntefli í bikarkeppninni, Bolton
gegn Sheff. Wedn. og Preston
gegn Leicester og fara þeir leik-
ir fram á miðvikudag. Ensk
kenning segir, að hafi aðeins ann
ar aðilinn leikið í miðri viku, nái
hann ekki nema jöfnu á heima-
velli næsta laugardag, en tapi,
eigi hann leik að heiman. Kvað
hún gilda í 4 tilfellum af 5. Sé
þetta næstum algilt, ætti það að
koma sér vel fyrir Liverpool, sem
leikur gegn Chelsea. Liverpool
er nú 6 stigum neðar en næsta
félag,. og þarf að vinna upp 8
stiga mun á 8 leikjum til þess að
komast hjá falli niður í 2. deild.
Eins er með Everton, sem heim-
sækir versta keppinaut sinn um
efsta sætið í 2. deild, Leicester,
sem leikur erfiðan leik í Preston
á miðvikudag.
Leiverpool — Chelsea x
Manch. Utd. — Huddersfield Ix
Middlebro — Sheff. Utd. 1
Preston — Wolves x2
Sheff. Wedn. — Arsenal 2
Tottenham — Sunderland lx
WBA — Blacpool 1
Leeds — Blackburn x
Leicester — Everton 1x2
Luton — Bristol 1
Swansea — Notts Co x
WASHINGTON: — Cordell Hull,
fyrrum utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hefur iátið svo um mælt
að fyrir starf S.Þ. hafi dregið
mjög úr úlfúð og eymd í heimin-
um. I bréfi, sem lesið var á öðr-
um sameinuðum fundi amerísku
nefndarinnar hjá S.Þ., sagði Hull
m. a.: „Heimurinn er stöðugt að
dragast saman, þjóðirnar að nálg-
ast hver aðra og drápstæki mann-
kynsins verða sífellt uggvænlegri
— en á sama tíma vex vald og
virðing S.Þ., þessara alheimssam-
taka, sem vinna að friði, öryggi
og réttlæti í heimnum."
Sióirællarféfag Effirinp
iróðurseffi 51 þús. pl, i árinu
Gu^myudur Karl Péfurssen yflrlæknir
kosinn fcrmaður féíagsins
AKUREYRI, 17. marz: — Hinn
14. þ.m. var haldinn aðalfundur
Skógræktarfélags Eyfirðinga. í
stjórn voru kjörnir, Guðmundur
ICarl Pétursson formaður, Þor-
steinn Davíðsson ritari, Ármann
Dalmannsson gjaldkeri og er
hann jafnframt framkvæmdar-
stjóri, séra Sigurður Stefánsson
varaformaður og meðstjórnendur,
séra Benjamín Kristjánsson,
Helgi Einksson og Björn Þórðar-
son.
ÁRSSKÝRSLA FÉLAGSINS
í ársskýrslu félagsins um starf-
semi þess á liðnu ári segir svo:
I Vaðlaskógi voru gróðursettar
2200 pl. af skógarfuru og 500 pl.
af rauðgreni. I Leyningshólum
2800 plöntur af skógarfuru,
1000 pl. af rauðgreni og 1000 pl.
af siblerki og á Miðhálsstöðum
4300 pl. af skógarfuru og 200 pl.
af birki. Samtals var gróðursett
í reiti félagsins 11 þús. plöntum.
Onnur gróðursetning skógar-
plantna á félagssvæðinu hjá
deildum þess í minningarlundi og
hjá einstaklingum nam rúml. 40
þús. plöntum. Var því gróður-
settar samtals rúml. 51 þús.
plöntur, eða um 6000 minna en
árið áður.
Samkvæmt samþykkt á síðasta
aðalfundi var samvinna um gróð
ursetningu milli UMSE og skóg-
ræktarfél Eyfirðinga og voru
farnar fjórar samstarfsferðir. Sú
fyrsta var farin í Vaglaskóg, og
var þátttika 30 manns. Önnur
ferðin var farin að Hvammi í
Árneshreppi og var þá gróður-
sett í reit skógræktarfél Árnes-
hrepps. Voru þátttakendur um 70
manns.
Eftir vinnu bauð skógræktar-
félag Árneshrepps öllum þátttak
endum til kaffidrykkju að Reist-
ará.
Þriðja íerðin var farin að Mið-
hásstöðum í Öxnadal og var sam-
tímis gróðursetningarferð hjá
skógræktarfélagi Tjarnargerðis.
Þátttakendur í þeirri ferð voru
allt um eða yfir 150 manns. Hafði
skógræktarfélag Tjarnargerðis
kaffiveitingar að Tjarnargerði
íyrir alla sem til náðist. Samtals
unnu um 240 sjálfboðaliðar að
þessari gróðursetningu allt að 500
vinnustundir eða rúmlega 60 dags
verk og gróðursettu 13500 plönt-
ur.
Nokkrir tóku þátt í öllum ferð-
unum, auk þess báru einstakling-
ar og deildir félagsins allan kostn
að við flutning sjálfboðaliða að
og frá vinnustað.
UPPELDISSTÖDIN
Plöntumagn það sem látið var
til gróðursetningar úr uppeldis-
stöðinni í vor var nokkru minna
en árið áður, eða tæplega 13000
plöntur, mest birki og fura. Um-
plantað var meiru en nokkru
sinni áður eða alls um 44 þús.
plöntum, mest tveggja ára piönt-
ur. Voru bað eftirtaldar tegundir:
Birki 15000, blágreni 10300„
hvítgreni 8.400, siblerki 6700,
sitkagreni 2500 og skógarfura
2100.
Af garðplöntum voru afhentar
úr stöðinni í vor um 2000 birki-
plöntur, 80 reyniplöntur, 313 barr
plöntur og 420 plöntur af ýmsum
runnategundum.
Félagig tók að sér hirðingu á
gróðrarstöð Ræktunarfélags Norð
urlands og hefur þar uppeldis-
reiti að nókkru leiti. Sáð var trjá-
fræi í 273 ferm. samtals, þar af
var haustsáning í 116 ferm. Vor-
sáning var öll í gróðrarstöðinni
og einnig meiri hluti haustsán-
ingarinnar.
ONNUR STORF
Félagið hafði samvinnu við-
ræktunarfélag Norðurlands um
útgáfu á ársriti þess og komu út
þrjú hefti af því á árinu.
Ekki er enn að fullu séð hvort
útgáfukostnaðurinn veiður að ein.
hverju lenti baggi á félaginu. Að'
sjálfsögðu fer það að nokkru cftir
því hvort rramhald verður á þessi
ari samvinnu.
Ekki hefur gengið vel með
söfnun áskrifenda að ritinu, enda
hátt á annað hundrað áskrifend-
ur þess :em æfifélagar Ræktun-
arfélags Norðurlands og einnig"
fjöldi bænda úr héraðinu. En.
þessir æfifélagar fá ritið fyrir
hálfvirði.
Unnið var að grisjun í Vaðla-
skógi, Garðsárgili og Akureyrar-
brekku. Einnig var grisjað fyria-
Skógrækt ríkisins i Grundar-
skógi og sett upp ný girðing þar
til viðbóta:- og stækkunar á reitn-
um.
Jafnframt var annast um söl«
á furuiimi úr reitnum fyrir há-
tíðarnar. Ennfremur sá félagið'
um sölu a jólatrjám og jólakort-
um fyrir Landgræðslusjóð.
7 stjórnarfundir voru haldnir
á árinu og 5 fuiltrúár mættu á:
aðalfundi Skógræktarfélags ís-
lands fyrlr hönd félagsins.
Félagið starfar nú í 10 deild—
um, í flestum hreppum sýslunnar.
Félagið gerir ráð fyrir að taka
um 90 þús. plöntur til sáningar á
næsta ári og er það því nærfelli
helmingi rneira en s.l. ár. Félag-
inu hefur því aldrei verið eins rik
þörf ötulla sjálfboðaliða eins og
á komandi sumri og heitir það á
almenning til stuðnings þessa
þjóðheillamáls. — Vignir.
Einkennileg!
sjúkdéimliifelli
I VIN fundu læknar mjög ein-
kennilegt sjúkdómstilfelli nú fyr-
ir skemmstu. Kona nokkur hafði
í fimm ár liðið af verkjum í lík-
amanum, hárlosi og að siðustu.
magasjúkdómi, svo að hún létt-
ist stöðugt. Læknarnir gátu ekbi
með nokkru móti læknað hana
Þeir tóku úr henni hálskirtlana,
gallblöðruna og botnlangann, en.
allt kom fyrir ekki.
Sérfræðingar hafa nú fundið
út, að kona þessi hafi þjáðst öli
þessi ár af blýeitrun, sem stafaði
af því að íbúð hennar hafði verit?
máluð með blýmálningu. Ekki
fannst samt neitt blý í blóði kon-
unnar, en við nánari rannsókn
kom það upp úr kafinu, að blýið
hafði safnast saman í liðamótum
hennar. Er þetta eftir því sem.
vitað er einstakt tilfelli.
Víl! sljómlaga-
breylínp
ATLANTA í Georgiu 4 marz: —
John Bricker öldungadeildarþing
maður sagði í dag í ræðu fytir
lögfræðingasambandi Bandaríkj-
anna, að hann væri ekki enn tíú-
inn að gefast upp við að fá stjórn.
arskrá Bandaríkjanna breytt ávo
að vald forseta til samninga við
önnur ríki yrði takmarkað.
í síðastliðinni viku voru tillög-
ur Brickers felldar, en hann segir
ag það'hafi aðeins verið fyrsta
lota. Hann muni bera tillögurpar
fram síðar. — Reuter-NTB
A BEZT 4Ð 4UGLÝSA ±
T í MORGUISBLAÐINU ▼