Morgunblaðið - 18.03.1954, Side 16
Veðurúfiif í dag:
SA kaldi. Skýjaff.
Mennfaskélinn
Sjá grein á bls. 9.
64. tbl. — Fimmtudagur 18. marz 1954
þingsálykfunartillaga um að
Hljþingishúslóðin verði
sBækkuð til mnno í úr
Og að þingmannabústaður verSi
byggður þar um næstu áramót.
fr GÆR VAR lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um
•P- stækkun þinghússlóðarinnar. Flutningsmaður tillögunnar er
Björn Ólafsson en tillaga hans hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera á þessu ári ráð-
: tafanir til, að lóð þinghússins verði stækkuð með því, að Alþingi
verði látnar í té lóðirnar Kirkjustræti 12 og Templarasund 2. —
Jafnframt séu fluttar á brott, ekki síðar en í lok þessa árs, þær
byggingar, sem nú standa á lóðum þessum. Heimilar Alþingi
jafnframt ríkisstjórninni að verja úr ríkissjóði fé, sem þarf til að
.lireinsa og rækta lóðir þessar og tengja þær þinghúsgarðinum.
ikil aðsókn að málverkasýningu
Magnúsar nrófessors.
OFULLNÆGJANDI
HÚSAKYNNI ÞINGSINS
í greinargerð er tillögunni
íylgir kemst flutningsmaður svo
• að orði:
Lóð sú, er nú fylgir alþingis-
búsinu er of lítil til frambúðar,
• *f gert er ráð fyrir, að Alþingi
íái einhvern tíma húsnæði, er
fullnægi þörfum þess. Alþingis-
: liúsið hefur verið í mörg ár of
Jítið fyrir starfsemi þingsins, og
verður ekki hjá því komizt á
jiæstu árum að bæta úr hús-
jiæðisþörf Alþingis.
Ríkissjóður á nú lóðirnar
Ifirkjustræti 12 og Templara-
aund 2, og voru þær á sínum
tíma keyptar í því skyni að bæta
;þeim við þinghúslóðina. Á þess-
um lóðum standa nú byggingar,
•£2m hægt er að flytja á brott
ineð litlum fyrirvara. í fjárlög-
tim 1953, 22. gr., var heimild fyr-
ír ríkisstjórnina til þess að flytja
á brott þær byggingar, sem
«.standa á lóðinni Kirkjustræti 12,
-vg láta Alþingi lóðina í té til
ittækkunar á þinghúsgarðinum
'* ða til annarra nota. Þessi heim-
-ild' var ekki notuð á árinu 1953,
<n hefur verið fraihlengd í fjár-
lögum yfirstandandi árs.
ÞINGMANNABÚSTAÐUR
REISTUR
í lögum nr. 84/1953, um þing-
iararkaup alþingismanna, lífeyr-
i?sjóð o. f 1., er ákveðið í 2. gr.,
-s.ð reisa skuli þingmannabústað,
svo fljótt sem því verður við
.komið, undirbúningi byggingar-
-innar skal lokið á þessu ári, þar
ó meðal ákvörðun um staðarval.
Að öllu þessu athuguðu virð-
i.3t tímabært, að ráðstafanir séu
iiú gerðar til að tryggja það, að
Alþingi geti í framtíðinni verið
ó sama stað og það er nú, með
því að þinghúslóðin verði stækk-
nð svo, að þar geti rúmazt þær
byggingar, sem þingið kann að
þarfnast næstu mannsaldra.
Verði tillaga þessi samþykkt,
cr til þess ætlazt, að umræddar
lóðir verði hreinsaðar, ræktaðar
-«'g sameinaðar þinghúsgarðinum,
•tem að sjálfsögðu yrði skipulagð-
tir að nýju með tilliti til vænt-
-íi nlegra bygginga, sem reistar
yrðu á lóðinni.
Með ráðstöfunum þessum
:mundi fullnægt þörfum Alþing-
is fyrir byggingarlóðir um langa
framtíð, en æskilegt væri þó, að
við þinghúslóðina væri einnig
bætt lóðinni Vonarstræti 8. —
Væri því rétt, að ríkisstjórnin
léti athuga, hvort hægt sé að fá
þá eign keypta við hæfilegu
verði. v
Barn fellur út
um glugga á 2, hæð
SÍÐDEGIS í gærdag féll barn á
öðru ári út um glugga hússins
Óðinsgata 9. Fallhæðin var nær
5 m. Hreinasta undrun er hve
barnið slapp lítið meitt.
Barn þetta, Þórarinn Jónsson,
Sveinssonar rafvirkjameistara,
komst upp á stól og upp á borð
við gluggann, en Jón býr á ann-
arri hæð hússins. — Glugginn
var opinn. Gangstéttin sem litla
barnið kom niður og er þarna
sandborin, en ekki helluiögð.
I skyndi var farið með barnið
í Landsspítalann og leiddi lækn-
isskoðunin í Ijós að barnið hafði
fótbrotnað á öðrum fæti fyrir
neðan hné.
Mjög mikil aðsókn hefir verið að málverkasýningu Magnúsar
Jónssonar prófessors í Listvinasalnum, scm opnuð var s. 1. laugar-
dag. Hafa þegar 14 myndir selzt og er það óvenjulega mikil sala
á svo skömmum tíma. Sýningin verður opin til n.k. sunnudags-
kvölds. — Myndin að ofan er frá Þingvölium — „Drekkingarhylur.“
tsvor a isaiiroi næKKa
um rúma hálfa milli- kr.
J
Fleslar urabótati!lcgur SjálíslæBisntasina Selldar
Kvenfélac Selfoss
SELFOSSI, 17. marz. — Á fundi,
sem haldinn var hjá kvenféiagi
Selfoss um áfengislagafrumvarp
það, sem nú liggur fyrir Alþingi,
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt:
„Fundur haldinn í kvenfélagi
Selfoss 16. marz 1954, skorar á
alþingismenn vora að beita sér
gegn áfengislagafrumvarpi því,
er nú liggur til umræðu á al-
þingi“.
Atkvæðagreiðslan var leynileg
og voru 65 konur mættar á fund-
inum. Af þeim samþykktu of-
angreinda tillögu 31 en 20 sögðu
nei. 12 seðlar voru auðir og 2
ógildir. —Kik.
Drengir leknir fyrir þjófnaS
rjANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur tekið fasta nokkra litla
drengi, sem gerzt hafa sekir um innbrotsþjófnaði hér í bæn-
iim. — Elztur drengjanna er 11 ára og yngstur 8 ára.
Drengir þessir hafa áður lent
í kasti við lögregluna. Nú hafa
^»eir viðurkennt að hafa framið
*ex þjófnaði. —- Enginn þeirra
*^r að vísu stórvægilegur. í tveim
jijófnuðum höfðu þeir upp milli
200—300 krónur. — Þeir stálu
íiuk peninganna, vindlingum og
ýmiskonar spiávöru. — í einu
tilfelli seldu þeir þýfið.
I Við þjófnaði þessa voru þeir
ýmist tveir eða þrír saman, *en
einn þeirra tók þátt í þeim öll-
um sex.
I Rannsóknarlögreglan hefur af-
hent Barnaverndarnefndir Rvík-
ur mál þessara ógæfusömu'
drengja til meðferðar. *
ÍSAFIRÐI, 17. marz.
FUNRI bæjarstjórnar ísa-
fjarðar s. 1. miðvikudag, var
samþykkt fjárhagsáætlun fsa-
fjarðarkaupstaðar fyrir árið
1954.
Niðurstöðutölur áætlunarinn-
ar eru 5,307,700 kr. Helztu gjalda
liðir eru menntamáí, 1107 þús.
kr., lýðtryggingar og lýðhjálp
971,5 þús., atvinnumál 858 þús.,
stjórn bæjarmála 355 þús. kr.,
framfærslumál 354 þús. kr.,
vatnsveitan 288 þús. kr., lög-
gæzla 205 þús. kr., heilbrigðis-
mál 202.2 þús. kr.
ÚTSVÖR HÆKKA UM
RÚMA ÍIÁLFA MILLJÓN
Helztu tekjulindir eru msnnta-
rr.ál, 547,4 þús. kr., atvinnumál
330 þús. kr., lýðtryggingar og
lýðhjálp 300 þús. kr., vatnsveit-
an 192 þús. kr. og tekjur af fast-
eignum 150 þús. kr.
Útsvör eru áætluð 3,391.909
kr. í fyrra voru útsvör áætluð
2.860.000 kr. og hafa því áætl-
uð útsvör hækkað um 531.900
kr. og er það mesta útsvars-
hækkun, sem orðið hefur á
einu ári að undanskildu ár-
ínu 1952.
UMBÓTATILLÖGUR
FELLDAP.
Sjálfstæðismenn fluttu fjöl-
margar breytingartillögur við
fjárhagsáætlunina og hefðu þær
verið samþykktar hefði áætluð
útsvarsupphæð orðið 3,111,900
kr. En meirihlutanum þóknaðist
að fella þær flestar. Ein tillaga
Sjálfstæðismanna var samþykkt.
Var hún unq 30 þús. kr. framlag
til aukningar á garðleigulöndum
og nokkrar hækkunartillögUr á
tekjum, samtais að upphæð 31
þús. kr. Sjálfstæðismenn fluttu
einnig margar ályktunartillögur
í sambandi við fjárhagsáætlun-
ina um sparnað í rekstri bæjar-
ins og ýmsar umbótatillögur og
voru þær flestar felldar cða vís-
að til bæjarráðs.
DEILDU Á MEIRIHLUTANN
FYRIE RÁÐLEYSI
Sjálfstæðismenn deildu rökfast
á meirihlutann fyrir ráðleysi og
eyðslu og fordæmdu fjandskap
þeirra og áhugaleysi við þau
mál, sem til mestra framfara
horfa fyrir bæjarfélagið.
— J.
iÚ
öfiii^íi ve! í oær
STYKKISHÓLMI, 17. marz: —
Bátar héðan beittu allir loðnu
í gær og komu að landi í dag með
ágætan afla. Lægsti báturinn var
með tæpar 8 lestir, en hinir 12—
15. Er meginhluti aflans feitur
og fallegur þorskur.
Allir bátarnir reru aftur í dag.
—Á.
li hjá
Keflavíkurbátuvn
KEFLAVÍK, 17. marz: — Mok
afli var hjá Keflavíkurbátum
í dag, og var þaff bezti dagur
vertíðarinnar til þessa. Voru
bátarnir með þctta frá 12 upp
í 23 lestir. Hæstur var Björg-
vin meö 23 tonn. Þorsteinn var
með 22 lestir, Trausti 20 lestir
og Ólafur Magnússon 20 lestir.
Útlit er fyrir að bátar kom-
ist ekki á sjó í kvöld vegna
veðurs, en róið er mjög langt,
um 30 milur út. — Ingvar.
Gífurleg sílaganga
á öllum bátaniiðum
GÍFURLEG sílaganga er nú á
öllum miðunum allt frá Vest-
mannaeyjum og inn á Faxaflóa.
Hefur afli bátanna verið með
tregara móti, þó einstaka bátur
hafi stundum komizt í mikinn
afla.
Fréttaritari Mbl. í Sandgerði
símaði í gær, að í fyrradag hefði
afli bátanna almennt verið 4—6
tonn. Einn bátur, Pétur Jónsson,
var með 17,5 tonn og Pálmar með
10 tonn, Hilmar með 8.
Fréttaritarinn sagði það vera
álit skipstjóra' að búast mætti
við áframhaldandi tregum afla
meðan loðnugangan væri á mið-
unum.
Frá því vertíð hófst í Sand-
gerði hafa bátarnir þaðan alls
farið 464 róðra og landað alls
3.772 tonnum,_________
Nýr bæjarsljóri
koslnn á Akranes!
AKRANEST, 17. marz: — Bæjar
stjórn Akraness sat á fundi f
dag. Var það þriðji fundur nýju
bæjarstjórnarinnar. Þar var
kosinn nýr bæjarstjóri, Daníel
Ágústínusson, kennari í Reykja
vík. Hlaut hann fimm atkvæði,
en 4 seðlar voru auðir. Bæjar-
stjóri Akraness s.l. kjörtímabil
var Sveinn Finnsson, lögfræð-
ingur.
Á sama fundi var m. a. rætt
um nauðsyn þess, að bæta að-
stöðu trillubátaútgerðarinnar
hér, en það er aðkallandi vanda
mál. Var því vísað til hafnar-
nefndar —O.
Skógræktarkvikmynd
sýnid á Aknreyri
AKUREYRI, 17. marz. — I gær-
kvöldi sýndi Skógræktarfélag
Eyfirðinga kvikmyndina „Fagur
er dalur“, sem Skógrækt ríkisins
hefir látið gera af skógum og
skógræktarstarfi hér á landi. Er
mynd þessi einkar vel tekin, fög-
ur og fróðleg. Var myndin í gær
sýnd í skólum bæjarins en í
gærkvöldi fyrir almenning í
Varðborg.
Kvikmynd þessa hefir Gunn-
ar Rúnar Ólafsson tekið fyrir
skógræktina.
STÖRF SKÓGRÆKTAR-
FÉLAGS EYFIRÐINGA
RAKIN
Áður en sýning myndarinnar
hófst talaði Ármann Dalmanns-
son, framkvæmdarstjóri Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga og rakti
störf þess á s. 1. ári og gat fyrir-
ætlana þess á næsta ári. Að
Iokinni sýningu myndarinnar
talaði Guðmundur Karl Péturs-
son yfirlæknir, formaður félags-
ins.
Eggjaði hann menn og hvatti
til starfa í þágu skógræktarinn-
ar. Var gerður góður rómur að
máli hans.
Kvöldstundin var hin ánægju-
legasta og Skógræktarfélagi Ey-
firðinga til hins mesta sóma.
— Vignir.
Landsflokkaglíman
háð 2. apríl
LANDSFLOKKAGLÍMAN fer
fram að Hálogalandi 2. apríl n.k.
og verður að venju keppt í fjór-
um flokkum. Skiptingu milli
ræður þyngd keppenda. í 1. fl.
keppa þeir sem eru yfir 80 kg, í
2. fl. menn frá 72—80 kg að
þyngd, í þriðja flokki rnenn und-
ir 72 kg. Þá er og keppt í ungl-
ingaflokki (Þátttökutilkynning-
ar, aldur og þyngd sé tilgreint,
og eiga að-sendast UMFR fyrir 25.
marz).