Morgunblaðið - 29.04.1954, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Reykvískir kartöfíiiframSeið-
andur ræða leiðir fi! að koma
miklum karföflubirgðum: verð
Óftast samdráll í framleiSslunni.
NOKKRIR kartöfluframleiðendur hér í Reykjavík hafa komið
að máli við Morgunblaðið og skýrt því svo frá, að þeir gangist
fyrir almennum fundi kartöfluframleiðenda í Reykjavík, til að
iæða ískyggilegar horfur um sölumöguleika á framleiðslunni.
EKKI JÖFN AÐSTAÐA
Kartöfluframleiðendur hér í
Keykjavík hafa ekki átt jafn
greiðan aðgang með sölu á kar-
töflum til Grænmetiseinkasöl •
unnar og kartöfluframleiðendur
til sveita. Reykvískir kartöflu-
iramleiðendur telja sig eiga
hundruð tunna af kartöflum, sem
|»eir eru í hreinustu vandræðum
*neð að losna við.
ÁSTANDIÐ ALVARLEGT
Þetta vandræðaástand hefur
haft í för með sér, að margir
jnunu vera hikandi við kartöflu-
ræktina nú í vor, að óbreyttum
•ástæðum. Telja aðkallandi að^
allra ráða verði leitað tit að fyr-
irbyggja samdrátt í kartöflufram-'
lciðslu bæjarbúa. Meðal þeirra
ráða er leita skal er að fundin
verði leið til að hægt sé með
skjótum hætti að selja alla fram»
leiðslu matarkartafla, sem nú
gengur svo treglega að selja, tit
þess að koma í veg fyrir að
kartöfluframleiðsla Reykvíking j
sjálfra eyðileggist í stórum stíl.
FUNDURINN
Fyrir atbeina nokkurra kar-
töfluframleiðenda hér í bænum
verður fundur haldinn í Baðstofu
iðnaðarmanna annað kvöld kt.
8.30, þar sem þetta mjög svo að-
kallandi vandamál verður rætt.
— Þangað eru boðnir allir kar-
jöfluframleiðendur í bænum.
Má búast við því að menn fjöl-
menni á fundinn. Nú fer sá tími
í hönd að menn huga að garð-
löndum sínum og áhugi bæjar-
búa fyrir garðrækt er mikill.
Hðalfundur Geðvernd-
urfélugs Islunds
AÐALFUNDUR Geðverndarfé-
lags íslands var haldinn í
íyrrakvöld í 10. kennslustofu Há-
skólans. Félag þetta hefur verið
starfrækt hér undanfarin ár og
•cr starfsemi þess sniðin í megin-
atriðum eftir samskonar félög-
urn erlendis. Er félagið hér í sam
bandi við þau.
Formaðurinn, dr. Helgi Tómas-
sin, las skýrslu um störf félags-
ins á síðastliðnu ári og starfsáætl
anir fyrir næsta ár. Gjaldkerinn,
•Ólöf Sigurðardóttir, gerði grein
fyrir reikningum félagsins.
Fulltúaráð, sem skipað er 24
jnönnum úr ýmsum stéttum, aðal
lega læknar og uppeldisfræðing-
ar, var allt endurkosið með sam-
hljóða atkvæðum fundarmanna.
Að lokum hélt dr. Helgi Tómas-
son fróðlegt erindi um rannsókn-
- ij' sínar á taugaveiklun og til-
-íinningatruflunum barna fram til
15 ára aldurs. Sýndi hann skugga
myndir af línuritum máli sínu
til skýringar. Er dr. Helgi fylgj-
andi þeirri stefnu, sem nú ber
mjög á meðal sálfræðinga, að
sálarheill ungra barna sé mjög
undir því komin að þau fái að
njóta hlýju og umönnunar móð-
urinnar. Áður var það kennt að
ungbörn hefðu gott af að gráta.
Ekki ætti að sinna þeim nema á
vissum tímum sólarhringsins.
Nú telja sálfræðingar mjög
mikilsvert að þeim sé sinnt ef
þau eru óánægð. Með því fái þau
eðlilegastan þroska. Þekkist það
nú jafnvel erlendis, að ef leggja
þarf barn yngra en 5 ára inn á
sjúkrahús, þá sé bezt að móðirin
flytji á sjúkrahúsið með því, eftir
því sem við verður komið.
Meðlimir Geðverndarfélags ís-
lands eru 74 auk nokkurra ævi-
félaga. Ársgjaldið er 25 krónur.
j Kona Georg Dawsons
i hleypur frá honum
Hjónaskilnaður og misferli meS fé
KONA Georg Dawsons, fyrrum fiskkaupmanns, hljóp frá honum
í marz s. 1. Varð þetta uppvíst í réttarrannsókn í máli Jasper
Addis, einkaritara Dawsons, sem sá síðarnefndi hefur kært fyrir
fjárdrátt og annað misferli með fé.
•OFSÆKIR ADDIS
í réttarrannsókninni var Daw-
son kvaddur sem vitni og virðist
scm Addis þessi hafi átt vingott
•við frú Dawson. Að minnsta kosti
gerðist það samtímis að frúin
hljóp á brott og Dawson tók að
ofsækja Addis, sagði honum upp
etarfi og sakaði hann um fjár-
drátt, fölsun á tékkum o. fl.
EIN BANKAINNSTÆÐA
Það vekur nokkra athygli að
•verjandi Addis lagði nokkrar
spurningar fyrir Dawson um út-
gáfu tékka. Skýrði Dawson þá
íi á því að hann ætti bankainn-
stæðu aðeins hjá einum banka og
Jiefði opnað þann bankareikning
aðeins fyrir fimm vikum.
MÁLI FRESTAÐ
Málinu var frestað um sinn, en
þegar því heldur áfram, er lík-
legt að ýmislegt upplýsist frek-
ar um fjárhag Dawsons.
ísienika
kvikmyndin
ÍSLENZKA kvikmyndin: Nýtt
hlutverk, sem Óskar Gíslason ljós
myndari gerði, hefur verið sýnd
látlaust frá því á páskum í
Stjörnubíói. Hefur aðsókn að
myndinni verið ágæt alla jafna.
í kvöld verður myndin sýnd í síð
asta sinn.
Forsefi og kjamorkufræðingur.
Eisenhower forseti er til vinstri, en Lewis L. Strauss, formaður
kjarnorkumálanefndar Bandaríkjanna til hægri. Er Staruss að
flytja forseta skýrslu um árangur af vetnisprengjutilraunum í
Kyrrahafi. Myndin er tekin í Hvíta húsinu.
Enginn samdráftur austurs
og veslurs í Kóreumálinu
Vinsamlegar viðræður um Indó-Kína
í Genf í gær.
GENF, 28. apríl. — Reuter-NTB
HELDUR virtist draga saman í Indó-Kína málinu í dag, en aftur
á móti voru deilur heiftarlegar um Kóreumál. Þeir ræddu
Indó-Kína málið einslega Molotov og Bidault, en á fundi ráð-
stefnunnar töluðu þeir Dulles og Sjú en Lai um Kóreumálið. I
samtali sínu við Molotov sagði Bidault, að ná yrði_samkomulagi
um brottflutning 1000 særðra hermanna frá Dien Bien Phu áður
en gengið yrði frá, hvaða þjóðum skyldi heimiluð aðild að um-
ræðum um málefni Indó-Kína. Formælandi Rússa segir, að Molotov
hafi ekki tekið málinu óvinsamlega, og væri eðlilegast, að full-
trúar beggja aðila ræddu málið
Bidault ræddi og við þá Dulles
og Eden áður en fundur hófst í
dag.
SAMÞYKKT S. Þ. FRÁ 1950
Dulles tók fyrstur til máis á
fundinum í dag. Hann vísaði á
bug tillögu Norður-Kóreu-
manna um sameining lands-
ins, sem Nam II bar fram í
gær. Kvað hann tillöguna miða
að því að kollvarpa yfirráðum
Suður-Kóreustjórnar og fá
kommunistum stjórn alls
landsins í hendur. Sameining
landsins hlyti að fara fram í
samræmi við samþykkt S.Þ.
um málið frá 7. okt. 1950. Þar
er kveðið svo á, að sett skuli
á iaggirnar hlutlaus nefnd, er
hafi umsjá með frjálsum kosn
ÍQ>gum í Norður-Kóreu.
TVENNS KONAR FRELSI
Dulles benti á, að orðin frelsi
og lýðræði hefðu alls ólíka merk-
ingu í lýðræðis- og einræðisríkj-
unum, og hélt því fram, að þjóð-
skipulag kommúnista krefjist sí
og æ nýrra landvinninga. „Þeir
láta ekki undan síga nema and-
spyrnan sé óbilug, og það er hlut-
verk vort að efla svo viðnámið,
að kommúnistum þyki hall-
kvæmt að fallast á frelsi og sam-
eining Kóreu“, sagði Dulles.
LÍKT MEÐ SKYLDUM
Hann benti enn fremur á, að
tillögur Nams Ils um sameining
landsins væru í auðsærri frænd-
semi við tillögur Molotovs um
sameining Þýzkalands á Berlín-
arfundinum.
SJÚ EN LAI REIÐUR
Sjú en Lai tók næstur til máls.
Hann réðst hastarlega á Banda-
ríkin. Sagði hann, að áhrifamenn
vestra reyndu að tálma baráttu
Asíuríkja fyrir frelsi „Asíuþjóð-
irnar hafa verið undirokaðar og
þrælkaðar svo lengi, að barátta
þeirra fyrir friði og frelsi er sann
arlega orðin tímabær.“
í Genf.
ÖFLUGT RÍKI f KÍNA
„Ekkert afl getur hindrað, að
komið verði á fót öflugu og
frjálsu ríki í Kína. í Bandaríkj-
unum eru þó uppi öfl, sem róa
öllum árum að því að slæva þessa
baráttu“, sagði Sjú en Lai í ræðu
sinni.
Málfi ekki veiða
með hollenzkum
OSLÓ, 28. apríl: — Mál norsku
hvalskyttunnar Beckmanns er
komið fyrir hæstarétt. í héraði
var hann dæmdur fyrir að hafa
tekið þátt í hvalveiðum með
Hollendingum, en í norskum lög-
um frá 1946 segir, að hvalskyttu
skuli óheimilt að starfa hjá er-
lendum hvalveiðifélögum, sem
stofnug voru meðan á styrjöld-
inni stóð.
Verjandi Beckmanns heldur
því fram, að þessi lög brjóti í
bága viö þjóðréttarreglur. Hljóti
það að vera grundvallarréttindi
að mega fara tilannarra landa og
vinna þar. — NTB
- Fonetiim
Framh. af bls. 1
íslandsmála. Hann var gerður
heiðursfélagi þess félags, sem og
fleiri menningarsamtaka í borg-
inni.
SKOÐUÐ ÍSLENZK
HANDRIT
í dag skoðuðu forsetahjónin
íslenzk handrit í Uppsölum, þar
á meðal merkasta íslenzka hand-
ritið í borginni, sem er ellilegt og
all-ormsmogið handrit af Snorra-
Eddu frá því um 1300.
Var forseta afhent að gjöf bók
með myndum af 5 íslenzkum
handritum, m. a. af Ólafs sögu
Tryggvasonar.
Forsetahjónin fara til Kaup-
mannahafnar í nótt.
Fimmtudagur 29. apríl 1954
Flotti Petrovs
hefir áhrif
á ulerverð
KANBERRA, 28. apríl. — í þann
mund er rússnesku embættis-
mennirnir við sendjiráðið í Kan-
berra höfðu lokið við að ganga
frá föggum sínum áður en þeir
hverfa heim, tóku þeir aftur pönt
un þá á ull, sem Rússar eru van-
ir að kaupa í Ástralíu.
Er Rússar hættu um stundar-
sakir ullarkaupum í Ástralíu
fyrir nokkrum mánuðum féll ull-
arverð um 15 af hundraði. -
Þannig er ekki ólíklegt, að flótti
Petrovs sendiráðsritara hafi áhrif
á ullarverð í heiminum.
Rússnesku leyniþjón
ustunni var það
áður kimnugt
BONN, 28. apríl: — Koklov ]ög-
regluforingi, flugumaðurinn, sem
Rússar sendu til Vestur-Þýzka-
lands, átti tal við fréttamenn í
dag. Sagði hann þeim hvers
vegna hann hefði skýrt frá því,
að kona sín hefði ráðið sér frá
að drepa rússneska flóttamann-
inn, eins og honum hafði verið
fyrirskipað.
• Kvaðst hann þess fullviss, að
rússnesku ieynilögreglunni hefði
áður verið kunnugt um, að þau
hjón hefðu haft samráð um þetta.
„Á fundi mínum með frétta-
mönnum í s.l. viku, ljóstraði ég
engu upp, sem rússnesku leyni-
þjónustunni var ekki kunnugt
um fyrirfram", sagði hann.
— Reuter-NTB
Systir Farúks
kvikmyndadís
KAIRÓ, 28. apríl. — Systiv
Farúks, fyrrum konungs, Faiza
að nafni, kvað nú ætla að gerast
kvikmyndaleikkona í Hollywood.
Hefir hún að sögn verið ráðin til
að leika austurlenzka þjónustu-
stúlku eftir boði Sam Goldwyns,
Faiza prinsessa býr í Tyrklandi
í svip, og einmitt þessa daga er
verið að selja listaverk hennar
og aðrar eigur suður í Kairó. Að
boði byltingarráðsins hefir ríkið
slegið eign sinni á höll Faizu, eií
í henni eru hér um bil eins dýr-
mætar eignir og í höll sjálfa
kóngsins.
HVER KEIM TÍL SÍN
KANBERRA, 28. apríl: — Eins
og kunnugt er hafa Rússar slitið
stjórnmálasambandi við Ástralíu
vegna Petrov-málsins.
í dag gaf rússneska ríkisstjórn-
in starfsliði ástralska sendiráðs-
ins í Moskvu 'orottfararleyfi, en á
því hefir staðið um sinn. Leggur
48 manna starfslið sendiráðsins
af stað á morgun, fimmtudag,
með járnbrautárlest. Samtímis
leggur skipið New Australia úr
höfn í Ástralíu, en það flytur
starfsmenn rússneska sendiráðs-
ins til Southampton.
— Reuter-NTB.
Hrin^s-
O £ i
happdrætti
BARNASPÍTALASJÓÐUR,
Hringsins hefur nú efnt til happ-
drættis, sem dregið verður í hinn
10. maí næstkomandi. í þessu
j skyndihappdrætti sjóðsins er
margt góðra muna og má sér-
staklega minnast á málverk eftir
vorn ágæta listmálara Jóhannes
Kjarval. Alls eru 10 vinningar í
happdrættinu.
Sala miðanna hefst í dag og
ei u sölubörn og fullorðnir beðnir
að taka miða til sölu, en þeir
verða afhentir að Hótel Borg, í
suðurdyrum, kl. 2—6.