Morgunblaðið - 27.05.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.05.1954, Blaðsíða 1
41. árgangm 119. tbl. — Fimmtudagur 27. maí 1954 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Somningum nm endnrskoðun Bandaríkin hafa á orði að hætta aðstoð við Frakkland og Italiu WASHINGTON, 26. júlí. RÍKISSTJÓRN Eisenhowers mun ekki andvíg því, að gerð verði breyting á lögunum um aðstoð við erlend ríki. Þannig yrði hægt að hætta aðstoð við þau Atlantshafsríki, sem ekki staðfesta sáttmála um Evrópuher. Hefir formælandi ríkisstjórnai Bandaríkj- anna gert grein fyrir þessu. Á VALDI EISENHOWEKS Formælandinn bætti því við, að það væri Eisenhower forseti, sem réði yfir þeim framlögum, sem hér um ræðir. FRAKKLAND OG ÍTALÍA EFTIR Áætlað er, að sex ríki gerist aðilar að Evrópuhernum, Frakk- land, Ítalía Vestur-Þýzkaland, Holland, Belgía og Luxemborg. Frakklad og Ítalía hafa enn ekki staðfest aðild að varnasamtökun- um. Það eru því þessi ríki ein, sem missa af aðstoðinni, ef til kemur. <S>------------------------- Bariit é Pauðársléttu HANOI, 26. maí. — Barizt hefir verið á ýmsum stöðum á Rauðár- sléttu í dag. Franskar sveitir hafa orðið á burt úr tvennum varnastöðvum um 80 km suð- austan Hanoi. Franskar vélflugur hafa hald- ið uppi loftárásum á herflokka kommúnista við suðurjaðar Rauðársléttu í dag. I F II íslonds og Kristinn GuOmundsson, utanríkisráðherra. Attiee cg Bevan Dýr gesfur LUNDÚNUM, 26. maí. — Frá því var skýrt í neðri málstofu brezka þingsins í dag, að heimsókn Elísa- betar drottningar til Gíbraltar hefði kostað stjórnina 2850 sterlingspund. — Reuter. LUNDÚNUM, 26. maí. — Á mánu daginn var tilkynnti Westminst- er Abbey með klukknahringingu og annarra við höfn, að því marki væri náð að safna einni milljón punda til að setja kirkjuna í stand vegna 9 alda afmælis henn- ar. Fjársöfnun þessi hófst í fyrra rétt fyrir krýningu drottningar. fara tll Kína LUNDÚNUM, 26. maí. — í ágúst og september fara 8 menn úr brezka Verkamannaflokknum í heimsókn til Kína í boði utan- ríkisráðuneytis kommúnist.a- stjórnarinnar. í fararbroddi verð- ur Attíee, fyrrum forsætisráð- herra. Með í förinni verða líka Aneur- in Bevan og Morgan Philipps, að- alframkvæmdastjóri flokksins. Þetta er fyrsta sinni sem fé- lagar úr brezka Verkamanna- flokknum heimsækja Kína eftir að kommúnistar komust til valda. Aftur á móti fór nefnd á vegum flokksins til Rússlands 1946. Embætlismsnn fiýja vesfur r A annði hundrai Eéfust eg 225 særiust, er eldur kom upp í Marísku ftugþiljuskipi WASHINGTON, 26. maí. — Reuter-NTB IDAG varð sprenging í bandaríska flugþiljuskipinu Bennington undan austurströnd Bandaríkjanna. Á eftir gaus upp eldur í því og fórust þar á annað hundrað manns, en að minnsta kosti 225 særðust. 1ÆKNAR í FYRILFLUGUM Bennington, sem er 38 þús. smálest að stærð, var við æfing- ar, er slysið vildi til. Sendi skipið út neyðarskeyti og bað um lækna og hjúkrunar- lið. Læknar fóru á vettvang í þyrilflugum, en þeir sem verst særðust, voru fluttir í sjúkrahús sjóhersins í Newport á Rhode Is- land, en slysið varð 120 km sunn- ar. — Þyrilflugurnar lentu á flug- þiljum Benningtons. ELDUR SLÖKKTUR Tekizt hafði að ráða niðurlög- um eldsins áður en skipið kom að landi, þar sem biðu þess læknar og hjúkrunarlið. SAMÚÐARSKEYTI FORSETA Eisenhower forseti hefir sent ættingjum látinna og særðra samúðarskeyti. Thomas flota- málaráðherra lagði þegar af stað til Rhode Island til að rannsaka sjálfur þetta mikla slys. 2000 MANNA ÁHÖFN Áhöfn Benningston er yfir 2000 manns, og flytur það 100 vél- flugur. Skipinu var hleypt af stokkum 1944. í apríl í fyrra varð sprenging í því, þar sem 11 manns létu lífið, en 4 særðust. Þetta er annað mesta slys á friðartímum í sögu bandaríska sjóhersins. í apríl í hitteðfyrra varð árekst ur milli tundurspillis og flug- þiljuskips úti á Atlantshafi. Þur létu lífið 178 manns. Þjóðernissiimar tekiiir höndum LUNDÚNUM, 26. maí. — Teknir hafa verið höndum 11 félagar þjóðernissinnaflokks Púertó Ríkós fyrir þátttöku í sam- særi til að steypa ríkisstjórn Bandaríkjanna af stóli. Voru 6 handteknir í Sikagó, 4 í New York og einn í höfuðborg Púertó Ríkós, San Juan. Þá hefir og verið tilkynnt, að 6 öðrum þjóðernissinnum verði haldið í gæzlu áfram. 4 þeirra skutu á bandaríkska þingmenn í Bandaríkjaþingi 1. marz s. 1. BERLÍNARBORG, 26. maí. — Undanfarna daga hafa 5 háttsett- ir embættismenn úr ráðuneyti Austur-Þýzkalands flúið til Vest- ur-Berlínar. Þeirra á meðal er Jóakim Röpke skrifstofustjóri landbúnaðarráðuneytisins og Her mann Dikkmann skrifstofustjóri innanríkisráðuneytisins. Seinustu viku hafa að auki fjölmargir borgarar flúið vestur á bóginn. Vinsomlegar við- ræður um pers- nesku olísma LUNDÚNUM, 26. maí — Spurzt var fyrir um þag í neðri mál- stofu brezka þingsins í dag, hvort rétt væri, að samningar um pers- nesku olíuna gengju að óskum. Aðstoðarutanríkisráðherra varð fyrir svörum og sagði, að hann gæti ekki að svo stöddu gert grein fyrir samningum. Svo mik- ið væri þó víst, að viðræður hefðu verið afar vinsamlegar. — Reuter. hervnmarsamnings Bandaríkjanna lokið Samkomulagið stað- fest s.l. þriðjudag Útvarpsræða dr. Krisiins Guðmunds- sonar, uianríkisráðherra í gærkvöidi. SAMNINGUM þeim, sem yfir hafa staðið undanfarna mánuði um endurskoðun herverndasamningsins við Bandaríkin er nú lokið og samkomulag undirskrifað um tiltekin atriði í framkvæmd samningsins. Var þetta sam- komulag staðfest með erindaskiptum milli utanríkisráðherra Islands og sendiherra Bandaríkjanna hér á landi í fyrradag. Dr. Kristinn Guðmundsson utanríkisráðherra skýrði frá þessu samkomulagi í útvarpsræðu í gærkvöldi. Fer frásögn hans hér á eftir: Enginn fundur í Genf í gær GENF, 26. maí. — Engir fundir voru haldnir í Genf í dag, á morgun hefjast þar aftur fundir fyrir luktum dyrum um Indó- Kína. í dag átti Eden viðræður við aðalfulltrúa Frakka og Banda- rikjamanna. Utanríkisráðherra Ástraliu komst svo að orði í dag, að stefna Edens á Genfarráðstefnunni nyti fulls stuðnings áströlsku stjórn- arinnar. Sfyttu prédlkaran- um aidur LAGOS, Nígeríu, 26. mai. — í dag voru hengdir 6 Afríkumenn í Lagos í Nígeríu fyrir morð á prédikara Múhameðstrúarmanna. Lík prédikarans fannst aldrei, en sexmenningarnir styttu honum aldur að aflokinni prédikun á götuhorni. — Reuter. Sjáífstæðisflokk- iirinn 2S ára SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN á í dag 25 ára afmæli. Af því tilefni er minnizt ýmissa atriffa og þátta úr starfi hans og baráttu í blaðinu í dag, sem er 32 blað- síður. * í blaði nr. I er forystugreinin helguð flokksafmælinu. Og í síðara blaðinu eru þessar grein- ar um það: Sjálfstæðisflokkurinn hlýddi kalli hins nýja tíma, heitir grein, sem hefst á bls. 1. Þá er grein um hina tvo for- menn flokksins, þá Jón Þorláks- son og Ólaf Thors, og næst grein um þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins í 25 ár. Æskan og Sjálfstæðis- flokkurinn er næsta grein, en síð- an er greinin Sjálfstæiðsflokkur- inn og frjáls samtök fólksins. Síðasta greinin er um Sjálf- stæðisflokkinn og höfuðborgina. Allar eru þessar greinar prýddar fjölda mynda. ’SAGA SAMNINGANNA Hinn 13. apríl síðastliðinn lýsti ég yfir því á Alþingi, að ég myndi gefa opinbera skýrslu um samn- ingagerð þá, er staðið hefur yfir í langan tíma milli ríkisstjórna íslands og Bandaríkjanna. Samn- ingsgerð þessari er nú lokið og get ég því gert grein fyrir niður- stöðum hennar. Ég mun fyrst með fáum orð- um rifja upp sögu þessarar samn- ingsgerðar. Með orðsendingu, sem ég af- henti sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík 4. desember 1953, var farið fram á það af hálfu íslands, að teknar yrðu upp viðræður milli ríkisstjórnar íslands og rík- isstjórnar Bandaríkjanna um nokkur tiltekin atriði varðandi herverndarsáttmálann frá 5. maí 1951 og framkvæmd hans. Var þessi upptaka málsins í samræmi við yfirlýsingu, er ég hafði flutt á Alþingi 19. október s.l. Á orð- sendingunni var sérstaklega ósk- að viðræðna um notkun innlends og erlends vinnuafls við fram- kvæmdir varnarliðsins, fyrir- komulag verktöku fyrir varnar- liðið, aðgreiningu dvalarsvæða varnarliðsins og dvalarstaða ís- lendinga, sem vinna á samnings- svæðunum, takmörkun á sam- skiptum varnarliðsmanna og ís- lendinga, aðstöðu íslenzkra ríkis- stofnana til starfsemi á Kefla- víkurflugvelli og ný vandamál í sambandi við hinar fyrirhuguðu radarstöðvar. — Orðsendingunni fylgdi ýtarleg skrifleg greinar- gerð um framkvæmd sáttmálans árin 1951—1953 og íslenzk sjón- armið í því máli. Framh. á bls. 2 AIGLVSING4R sem birtast eiga í Sunnudagsblaðinu þurfa að hafa borizt fyrir kl. 6 á föstudag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.