Morgunblaðið - 18.07.1954, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.07.1954, Blaðsíða 16
VeHurúllff í dag: NA kaldi, léttskýjað. 161. tbl. — Sunnudagur 18. júlí 1954 8eykja?sitir&ré! fer á bls. 9. Ö Islendinsa í Newcastle D Fiskmatsöiur í Breflandi una illa einokuninni YMIS brezk blöð hafa að undanförnu minnzt á þann möguleika að íslendingar geri enn frekari tilraunir til að landa ísfiski í Englandi. Er nú einkum um það rætt að íslendingar muni hafa í byggju að landa fiski í borginni Newcastle on Tyne. Bæjaryfir- völdin þar hafa mikinn áhuga á að efla viðskipti gegnum borgina og þar eru togaraeigendur áhrifalausir og geta ekki hindrað land- anir. KYNNISFOR MR. WOODCOCKS Orðrómur um að fslendingar hefðu slíkar landanir í hyggju hefur sérstaklega vaxið eftir að Mr. Huntley Woodcock fiskveiði- ráðunautur íslenzka sendiráðsins í Lundúnum gerði sér ferð norð- ur til Newcastle til að kynna sér allar aðstæður þar. IÖRF FYKIK GÓÐAN FISK Tímaritið Frying Times, sem er málgagn matsölueigenda í Mið-Englandi gerir þetta mál 9ð umtalsefni. Blaðið minnist t. d. á þá staðreynd, að ef mögulegt væri að landa íslenzka fiskinum og koma honum heilum og í góðu ásigkomulagi inn í landið, þá xnyndi ekki standa á fisksölum í stóru borgunum að kaupa ís- le-nzka fiskinn. Þeir væru vissu- lega fegnir að fá góðan fisk og heilbrigð-sarnkeppni myndi kom- ast á milli brezkra togareigenda og innflytjenda. NEWCASTLE-MENN YINSAMLEGIR Blaðið getur þess að íbú- amir við Tynefljót séu með ráðagerðir á prjónunum að bæta hafnarskilyrði og vilji koma upp fiskihöfn þar. Hef- ur 100 þúsund sterlingspunda upphæð verið veitt til fiski- hafnar. Er talið að bæjar- yfirvöldin séu mjög vinsam- leg fslendingum, ef þeir hyggðu á fiskinnflutning gegnum höfnina. Sjá menn fram á að slíkt myndi auka að mun verzlun og viðskipti í borginni. YÖNTUN A ÍSIIÚSI Nokkrir vankantar eru á þess- um framkvæmdum. M. a. það að ekki er til nægilega gott né stórt áshús til að framleiða allan þann ís, sem fiskinnflutningur myndi krefjast. En væntanlega sjá hafnaryfirvöldin að fyrsta skil- yrðið til þess að fiskinnflutning- "jx verði að ráði til borgarinnar er að koma upp íshúsi. UNA ILLA EINOKUN TOGARAMANNA Tímaritið álítur að ef takast ínætti að flytja íslenzkan fisk inn gegnum Newcastle, þá myndi það bæta hag matsölumanna, vegna þess að þeir þyrftu þá ekki leng Er enn í vexti ÞAR eð algjörlega er nú síma- sambandslaust austur yfir Skeið- ará, höfðu blaðinu ekki borizt þaðan neinar nánari fregnir af hlaupinu í Skeiðará, er það fór í prentun. — Svo fór, sem Oræf- ingar höfðu spág á föstudaginn, er hlaupið virtist vera að nálgast hámark, að símalínan austur yfir Skeiðarársand myndi slitna að- faranótt laugardagsins. Fréttaritari Mbl. í Vík í Mýrdal Icvaðst hafa það nýjast frétta, að austan frá Fagurhólsmýri, að Skeiðará myndi enn vera í vexti. Ardegis í gær var dr. Sigurður Þórarinsson að búa sig af stað í íerg austur. Hann ætlaði með lítilli flugvél. ur að hlíta einokun brezku tog- aramannanna. Þeir myndu þá ekki halda lengpr kverkatakinu á öllum fiskiðnaði Breta. í stað þess kæmi eðlilegur fiskmark- aður með eðlilegu framboði og eftirspurn. r a a miounum i gær SIGLUFJÖRÐUR, 17. júlí — Fréttlaust er í morgun með öllu af síldarmiðunum, eftir nóttina. Á miðunum var austan bræla og þoka. Var flotinn því aðgerðar- laus, bíður þess að veður fari batnandi. Á öðrum tímanum í gærdag átti Mbl. tal við síldarleitina á Rauíarhöfn og fékk þar þær fregnir af miðunum, að veður hafi farið mjög batnándi á mið- unum í gærmorgun og væri kom- ið gott veiðiveður. Frétzt hafði að við Rauðanúpa hefði eitt skip j kastað á síld, en ekki var vitað um árangurinn, né heldur hvaða skip það var. Mynd þessi er tekin úr lofti af hinum nýja flugvelli við Akureyri, sem verið er að gera á leir- , unni við ósa Eyjaf jarðarár. Nú cr að mestu lokið við að ^æla sandi á hina fyrirhuguðu flugbraut, X-in sýna suður og norðurenda brautarinnar — en eins og sést á mvndinni sker Eyjafjarðará flug- brautina ennþá í tvennt. Sanddælupramminn (merktur með hring) hefur unnið að því að búa ánnj nýjan farveg jafnframt því sem hann hefur dælt sandi upp á flugbrautina. Aðeins eru eftir smáhöft syðst og nyrzt. Þegar áin rennur þar fram, verður núverandi farvegur fylltur upp. Ljósm.: Ól. K. M. □- -□ 19,300 tumiur SIGLUFIRÐI 17. júlí — Eftir því sem næst verður komizt um síldveiðiaflann, mun bræðslu- síldin nú vera tæplega 56,000 mál, og hefur þar af farið til bræðslu hér um 38400 mál. Söltunin er alls um 10,300 tunnur. •—Stefán. AHir sjófaretHÍur fái greiðan aðgang að læknishjálp HEILSUFAR sjófarenda og skjót og örugg læknishjálp sjómönnum til handa var aðalumræðuefni sérfræðinganefndar, sem kom saman fyrir skömmu í Genf á vegum tveggja sérstofnana Sam- einuðu þjóðanna, Alþjóða vinnu- málaslcrifstofunni og Heilbrigðis- stofnuninni. Nefndin samþykkti einróma það álit, að allir sjófarendur, hvort heldur þeir eru staddir á hafi úti eða í höfn eigi rétt á skjótri og öruggri læknishjálp. Meðal samþykkta nefndarinnar eru eftirfarandi: 1) Læknisráð með loftskeytum ætti að vera til reiðu fyrir öll skip, hvar sem þau eru stödd og það allan sólarhringinn. 2) í hverju einasta skipi skal vera meðalakista þar sem geymd eru lyf, sem nefndin tilgreinir nánar og sem eru í samræmi við Alþjóða lyfja- skrá WHO (International Pharmacopoeia). 3) Hver einasti nýliði, sem skráður er á kaupskipaflota skal gangast undir berklá- skoðun. mni í skáp í DAGSKRÁRLOK í gærdag, laúst fyrir kl. 2, var lesin til- kynning um hvarf 4 ára telpu, Mörtu Hildar Ricther, er hafði horfið frá húsinu Suðurgötu 26B. — Heimilisfólkið taldi sig hafa séð á eftir telpunni út úr húsinu. Hafði fólkið leitað barns- ins í kirkjugarðinum, kringum alla Tjörnina og næsta nágrenni, er lögreglunni barst tilkynning um að telpan væri horfin. Svo sem hálf tíma síðar, barst lögreglunni tilkynning heiman frá henni að Marta hildur væri komin fram heil á húfi. Hafði hún fundizt inni í húsinu, á ein- hvern hátt hafði hún lokazt þar inni í skáp. kvikmynd í sjónvarpi í Ameríku □- -□ ER BANDARISKI kvikmynda- j tökumaðurinn Hal Linker | var hér á ferð fyrir skömmu tók hann m. a. glímukvikmynd fyrir | CBS-sjónvarpsstöðina í Banda- ríkjunum. Einnig tók hann frétta- mynd fyrir sama sjónvarp af 17. júní hátíðahöldunum. Hefur nú sú mynd verið sýnd um gjölvöll Bandaríkin. Linker, sem um þessar mund- ir er staddur í Belgíu hefur fregnað að glímukvikmyndin hafi tekizt mjög vel og verði nú innan fárra daga frumsýnd í sjónvarpi í Hollywood, og síðan sýnd um gjörvöll Bandaríkin. Aðal-„leikarinn“ í þeirri mynd er íslandsmeistarinn í glímu, Hallgrímskirkja í Saoriiæ Um daginn var frá því skýrt hér í blaðinu, að nú yrði á ný hafizt handa um byggingu Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Er gert ráð fyrir því að hægt verði að gera kirkjubyggingunai fok- helda á hausti komanda. — Þetta er teilcning þeirra Sigurðar Guð- mundssonar og Eiríks Einarssonar af kirkjunni. Ármann J. Lárusson. Sýnir mynd in, er Ármann fer að heiman og heldur til vinnu sinnar, hittii’ föður sinn Lárus Salómonsson og aðra glímukappa og þeir glíma við fótstall styttu Ingólfs Arnar- sonar. — Ármann útskýrir með nokkrum orðum glímuna fyrir „áhorfendum“, en þeir munu verða eitthvað um 20 milljónir manna, að því er Linker telur. GÓÐAR UNDIRTEKTIR í OSLÓ í bréfi, sem blaðinu hefur bor- izt frá Linker, segir m. a. að hann hafi sýnt Islandskvikmynd. sína, Sunny Iceland er hann var á ferð í Osló og var aðsókn mikil að sýningunni og gerðu áhorfend- ur goðan róm fö myndinni. I.inker, sem er kvæntur Höllu Guðmundsdóttur úr Hafnarfirði, eins og kunnugt er, hefur unnið ötullega að því að kynna ísland og hefur sýnt Sunny Iceland víða um heim. Niðurjöfmin útsvara að verSa lokiS NIÐURJÖFNUN útsvara hér í bæ á þessu ári er ekki lokið. En 1 bréfi frá skrifstofu borgarstjóra til fyrirtækja sem áhyrgjast útsvarsgreiðslur af kaupi starfs- manna sinna, segir að um næstm mánaðamót verði niðurjöfnun væntanlega loklð. —Sem kunnugf er, mun engin útsvarsskrá koma út í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.