Morgunblaðið - 02.10.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 2. október 1954
MORGVXBLA&Í8
7
Petrea Sveinsdóttir — minmitg
IDAG fer fram á Akranesi jarð-
arför gagnmerkrar og gáfaðr-
ar sæmdarkonu, Petreu Sveins-
dóttur frá Mörk, en það heiti bar
heimili foreldra liennar, Mettu
Hansdóttur og Sveins kaupmanns
og hreppstjóra Guömundssonar.
Var heimiiisfólkið í Mörk, þau
hjónin og dætur þeirra, i daglegu
tali um langt skeið tengt við
þetta bæjarnafn, eins og þá var
algengur siður.
Er það enn allríkt í huga eldra
fólks á Akranesi að kenna konur
og karla við hin gömlu bæja- og
húsanöfn staðarins, En nú hafa
raðtölur, er tengdar eru við heiti
á götum og stræturn, með öllu
afmáð og útrýmt þessum nöfnum
úr skjölum og skrám kaupstaðar-
ins.
Petrea var fædd 23. júlí 1885.
Ólst hún upp hjá foreldrum sín-
um og var hún elzt þriggja dætra
þeirra hjóna. Var Merkur-heim-
ilið frábært að myndarskap og
rausn í hvívetna. Var það góður
uppeldisskóli, því allt bar þar
svipmót reglusemi og sérstakrar
snyrtimennsku. Var Petrea ung
sett til mennta. Tók hún próf frá
Kvennaskólanum í Reykjavík
við bezta orðstír, enda var hún
góðum gáfum gædd samfara
námshneigð og ríkulegum áhuga
og ástundun við námið. — Síðar
tók hún þátt í kennaranámskeið-
um í Reykjavík, en. um þær
mundir færðist nýtt líf í fræðslu-
málin og urðu þáttaskil í barna-
fræðslu hér á landi. Var brátt
eftir að stjórnin fluttist aftur inn
í landið sett ný löggjöf um barna
fræðsluna, en að undirbúningi
hennar hafði unnið hinn mæti og
hugkvæmi lærdómsmaður Guð-
mundur Finnbogasön.
Að loknum þessum námsferli
hóf Petrea kennslu við barna-
skólann á Akranesi. Varð það
hennar hlutskipti í kennarastarf-
inu að eiga í því ríkulegan hlut,
að ýmiskonar nýbreytni í
kennslustarfinu yrði þar færð út
á svið raunveruleikans. — Var
Petrea listaskrifari og drátthög
Vel. Lét hún mjög skrifstar-
kennslu í skólanum til sín taka
og mótaði mjög rithönd skóla-
barna þar á þessum árum. Lét
henni kennslustarfið einkar vel
pg var elskuð og virt af nemend-
um sínum.
Petrea hafði aflað sér stað-
góðrar menntunar í tónfræði.
Lék hún á orgel ágæta v.el og
haiði góða söngrödd. Efldi hún á
þessum árum af miklum áhuga
og dugnaði söngmennt á Akra-
nesi innan skólans ög utan. —
Lagði hún mikla rækt við kirkju-
sönginn og hafði á hendi organ-
leik við messugerðir og söng-
Stjórn kirkjukórsins um langt
skeið.
Athafnasemin var mjög ríkur
þáttur í lífi og starfi þessarar
fjölhæfu og um margt sérstæðu
konu. — Faðir hennar hafði um
langt árabil rekið, með öðrum
Störfum, bókaverzlun. Er hann
lét af því starfi, tók Petrea við
verzluninni af föður sínum og
hætti þá kennslunni, sem hún
hafði stundað nokkuð á arinan
áratug. Byggði hún íveruhús í
næsta nágrenni við æskuheimili
sitt og rak þar bókaverzlunina,
sem dafnaði vel. Síðar setti hún
á fót álnavöruverzlun, er hún rak
samhliða bókasölunni. Fórust
henni verzlunarstörfin, sem a!lt
annað, vel úr hendi, enda var hún
um allt reglusöm og hreinskiptin
við kaupanda og seljanda. Allir
vissu, að orðheldni hennar gat
aldrei úr skorðum gengið.
Samhliða verzluninni hafði
hún á hendi um langt skeið alla
innheimtu á vöruvíxlum á Akra-
nesi fyrir bankana í Reykjavík.
Rómuðu þeir mjög dugnað henn-
ar og reglusemi í þessu starfi.
Þótt það, sem hér hefur verið
nefnt, væri vissulega ærið starf
fyrir konu, þó rösk væri og verk-
hyggin, þá er þó engan veginn
nema hálfsótt haf í frásögninni
um það, sem eftir hana liggur í
starfsferli hennar.
Petreu var í blóð borin rík
hneigð til félagsmálastarfsemi.
Þar biðu hennar viðfangsefni*er
vörðuðu almenningsheill og hug-
ur hennar beindist mjög að. A
unga aldri gekk Petrea undir
merki Góðtemplarareglunnar.
Reyndist hún þar brátt liðtæk til
starfa því hún var bráðþroska,
jafnt til sálar og likama. Til síð-
ustu stundar vann hun verk sitt
í Góðtemplarareglunni af brenn-
andi áhuga og fórnfýsi. Voru
henni falin þar fjölmörg trúnað-
arstörf. Þrásinnis mætti liún sem
fulltrúi stúku sinnar á stórstúku-
þingi. Voru tillögur hennar til
úrlausnar hverju vandamáli jafn
an gjörhugsaðar og mótaðar af
þeim hyggindum, sem í hag
koma.
Petrea var ágætlega ritfær og
óvenju vel máli farin. Framsetn-
ing hennar í ræðu og riti skipu-
leg, skýr og ljós. Fylgdi hún með
festu og djörfung þeim málstað,
er hún vildi leggja lið. Þótt hún
héldi fast á máli sinu og hvikaði
ógjarnan frá því, er hún vildi láta
fram ganga, var hún samvinnu-
þýð og kunni vel að gera grein-
armun á því, sem var aðalatriði
í hverju máli, og hinu, er minna
máli skipti. -— Skemmtanalifið í
þessum félagsskap átti jafnan
hauk í horni þar sem hún var.
Kom söngmennt hennar og hljóð-
færaJeikur þar í góðar þarfir og
var glaðværð hennar og græsku-
laust gaman vel til þess fallið að
koma mönnum í gott skap.
Á uppvaxtarárum Petreu var
Góðtemplarareglan eini félags-
skanurinn á Akranesi, sem nokk-
uð kvað að. Af þessu leiddi, að
þeir, sem bundizt höfðu þessum
félagssamtökum. ræddu einnig
jafnframt á fundum sínum ýmis
önnur dægurmál, er þeim lá á
hjarta. Meðal þeirra mála var
nauðsynin á því, að komið yrði
upp sjúkrahúsi á Akranesi. Mun
það hafa verið Metta, móðir
Petreu, en hún var kona greind
og gjörhugul, sem átti frum-
kvæðið að því, að farið var að
ræða á félagsfundum um þetta
mál og að sú hugsun fæddist, að
farið var að vinna að því að
safna í sjóð, er varið yrði síðar
til framgangs málsins. — Hin
unga stúlka varð svo snortin af
þessari hugsjón móður sinnar. að
það varð s.'ðar hluti af lífsstarfi
hennar að vinna fyrir þetta mál.
Óþarft er að skilgreina í ein-
stökum atriðum það þrotlausa
starf, sem Petrea hefur af hendi
innt fyrir þetta máleíni. Ekkert
tækifæri lét hún ónotað til þess
að ’orýna fyrir mönnum nauðsyn
þessa verks, og vissulega voru
þeir aurar í guðskistu lagðir, sem
menn létu af hendi rakna í sjúkra
húsið. Gott dæmi er það um
framsýni og hyggindi Petreu, að
hún taldi jafnnauðsynlegt að
safna fé í sjóð, er hefði það hlut-
verk að standa undir rekstri
hússins í framtiðinni, eins og
fjársöfnun til sjálfrar byggingar-
innar. Sá hún hér það, sem
reynsla siðari ára hefur staðfest,
að þó erfitt reynist löngum að
afla fjár til að klífa byggingar-
kostnaðinn, þá hefur hitt þó í
mörgum tilfellum orðið enn erf-
iðara, að standa undir rekstrin-
um, ef ekki var á neitt að treysta
annað en sjúkragjöldin.
Margar stoðir hafa hnigið und-
ir þetta sjúkrahúsmál á Akra-
nesi, sem beint og óbeint má
vafalaust rekja til þess þrótt-
mikla áróðurs, sem Petrea hélt
uppi í málinu. — Kvenfélagið á
Akranesi hefur af miklum dugn-
aði unnið fyrir þetta mál og lagt
fram stórfé í bygginguna. — Þá
má og þess geta hér, að síðast
en ekki sízt hefur mágur og
svstir Petreu, þau Haraldur
Böðvarsson og Ingunn kona hans,
lagt þessu máli lið svo um mun-
aði með hinni höfðinglegu gjöf
þeirra, Bióhöllinni, en hluti af
árlegum ágóða af rekstri hennar
gengur til að greiða stofnskuldir
sjúkrahússins og til þess að
standa undir rekstri þess. Það
má með sanni segja, að hér hafi
á sannast máltækið, að mjór er
mikils vísir“, því af fyrstu til-
drögum þessa máls í Góðtempl-
arareglunni hér fyrir mörgum
áratugum er nú risið upp á
Akranesi eitt af veglegustu
'sjúkrahúsum landsins, sem rekið
er með mikilli heppni.
Petreu auðnaðist að siá vonir
■sína rætast um framgang þessa
hugðarefnis sins. En ekki gerði
hún endasleppt við þetta mál,
sem hún hefur unnið að heils-
hugar um langt árabil, því heyrt
hef ég, sem þetta rita, að í þeim
gjcrningi um ráðstöfun eigna
sinna að henni látinni. sem hún
hefur skráð, hafi hún munað
eftir þessu óskabarni sínu.
Petrea átti við að stríða heilsu-
þrest hin síðustu ár. Varð hún
því fvrr en ella að láta af störf-
um, öðrum en þeim, sem hún
-vann á félagsmálasviðinu í al-
menningsþágu. Að þeim málum
vann hún til þess síðasta af lifi
og sál, eftir því sem veikirkraftur
hennar frekast leyfðu. Þau hugð-
arefni ýmis, sem hún vann þar
að, voru henni svo hjartfólgin,
að ekkert nema dauðinn gat
höggvið á þá taug.
Petrea var kona mjög trúræk-
in og sótti hún í þær lindir jafn-
an styrk og kraft í öllum störf-
um sínum.
Petrea lézt að morgni þess 28.
þ. m. Andlát hennar bar brátt
að. Olli því hjartabilun. —
Fé!l þessari grandvöru og dug-
miklu heiðurskonu í skaut það
lánsama hlutskipti að geta stigið
Iéttum fótum yfir landamæri lífs
og dauða.
Pétur Ottesen.
Lífið um afvinnu
ÞINGEYRI, 29. sept.: — Atvinnu-
líf hefur verið mjög af skornum
skammti í sumar á Þingevri.
Frj'stihúsið hefur ekki starfað í
allt sumar og aðeins 2 trillubát-
ar róið af og til. Hafa þeir aflað
sæmilega, og fiskurinn verið salt
aður.
SJátrun stendur nú yfir og eru
dilkar í góðu meðallagi. Er dag-
lega sláírað um 300 fjár í slátur-
húsi Kaupfélags Dýrfirðinga.
Slátruninni á að vera lokið næst-
komandi þriðjudag.
Síðastliðna helgi setti niður
mikinn snjó í byggð, og tepptist
þá vegurinn til Hrafnseyrar,
Hrafnseyrarheiði. Búið er að
opna veginn aftur. — Magnús.
Sambandsþing
VESTERÁS, 28. seþt.: — Á laug-
ardaginn verður sett ssimbands-
þing verkamannafélaganna í Sví-
þjóð, í Vesterás, og munu mæta
þar 500 fulltrúar, til þess að ræða
launakjör verkamanna og vinnu-
tima. — Reuter.
j~i nj~n.f ii J1«»—inO,i<riit'*iii - n* 1 ■* — ^ ‘ "
★ Stærsti dansleikur ársins!
Álmennur
í stærsta samkomusal landsins,
KR-húsinu við Kaplaskjólsveg,
í KVÖLD KL. 9
Skemmtikraífar úr hinum
vinsæla kabaretf í KR-hús-
inu koma Iram
★
Sex manna hljómsveit OLAFS
GAUKS leikur
ASgöngumiSasala írá kl. 5 síðd.
í ICR-húsinu * „
Miðupantafiir í síma S-1177
Breiðfirðingabúð
Breiðfirðingabúð
DansSeikur
í Breiðfirðingabúð í k.völd kl. 9.
Hljómsveit hússins leikur.
Aðgöngumiðasala eftir kl 8.
S.Í.B.S v S.Í.B.S.
Skemmtiklúbbur
F. S. H.
Dansleikur í Skátaheimilinu í kvöld klukkan 9.
Aðgöngumiðar afgreiddir eftir kl. 4 í dag.
og við innganginn.
Hljómsveit Jcnna Jóns.
Götnlu og nýju dansarnir.
F. S. H.
>*
SELFOSSBIO
Dansleikur í kvöld kl. 9,
H. B. kvartettinn leikur.
Selfossbíó
HLÉGARÐUR HLEGARÐUR
Dansleikur
að Hlégarði í Mosfellssveit í kvöld klukkan 9.
Fjögurra manna hljómsveit leikur.
S.I.B.S.
S.I.B.S.
Sjálfstœðis-
kvesmafélagið
//
Edda
4 4
í Kópavogi heldur fund í Sjálstæðishúsinu miðviku-
daginn 6. október 1954, klukkan 9 e. h.
Áríðandi að allir meðlimir mæti
STJÓRNIN