Morgunblaðið - 05.01.1955, Side 16
Yeðurútiif í dag:
Hægviðri
Iðnaðarmálin 1954
Sjá grein á bls. 9.
Fœr sand og möl frá sandnámi í Alfsnesi
HAFINN er undirbúningur að
byggingu nýrrar steypustöðv-
ar hér í bæ og mun hún rísa
inn við Elliðaár. Það er Sveinn
Sveinsson verkamaður o. fl.
sem að fyrirtæki þessu standa.
Sveinn og félagar hans hafa
fengið leyfi til sands- og malar-
rtáms í landi Álfsness á Kjalar-
nesi. Hafa þeir þar komið fyrir
fullkomnum sand- og malar-
hörpunartækjum og er ýmislegt
með nýstárlegum brag þar efra
hjá þeim, m. a. fer flutningur
efnisins að hörpunartækjum nær
eingöngu fram á færiböndum.
‘Voru tækin að fullu uppsett í
desember og munu þeir félagar
þegar hefja sölu á sandi og möl
og annast um flutning efnisins ef
svo er að skipta. Sagði Sveinn í
viðtali við Mbl. í gær að þar
efra hefðu þeir leyfi til sand- og
malarnáms næstu 30 árin og sagði
Sveinn svo frá að samkvæmt
í*annsókn Atvinnudeildar háskól-
ans væri þarna mjög gott efni og
þar er mikið magn.
Sveinn kvað uppsetningu hörp
unartækjanna í Álfsnesslandi
íyrsta áfangann í byggingu
steypustöðvar. Nú væri lóð feng-
in rétt austan við Elliðaárnar og
yrði nú hafinn undirbúningur að
byggingu stöðvarinnar. Jafn-
framt munu til koma 10 tonna
bílar er efnið ofan að verður flutt
á til bæjarins.
við ingólfshöfSa
í GÆRMORGUN kom eitt af
varðskipum íslenzku íundhelgis-
gæzlunnar að frönskum togara,
Cat Iliaug frá Boutegne, að veið-
um í landhelgi v*5 tngólfshöfða.
Varðskipið var w»sitan!egt til
Reykjavíkur meSS teigarann í nótt.
Um 100 Húsvíkingar á
vertíð á Suðurlandi
U
Húsavík, 4. jan.
M áramótin fór fjöldi fólks frá Húsavík á vertíS tfi! Suðurlands.
í allt mun um 100 manns hafa farið til verstöáhra, vsð Faxaflóa.
í fyrradag fóru tveir bátar héð-
an, Pétur Jónsson, sem gerður
verður út frá Sandgerði, og
Smári, sem gerður verður út frá
Keflavík. Áður var farinn Hag-
barður og verður hann gerður út
frá Reykjavík.
Eru allir bátarnir mannaðir
skipshöfnum héðan frá Húsavík,
og munu vera á bátunum um 50
menn. Auk þess hafa farið milli
50—60 manns til þess að vinna
við aðra bátai teffis á landi og
sjó.
Skömmlunanæðfar
IÚTHLUTUN skömmtunarseðla
! hefur nú staðið yfir í tvo daga i
Góðtemplarahúsirsu Hafa verið
afhentir þar 27 þúsund skömmt-
unarseðlar þessa daga. í dag er
síðasti úthlutunardagurinn og er
j opið frá kl. 10—5.
nýrrar steypu-
stöðvar undirbúin
Franskur togari
tekinn í lanrihelgi
Að veiðum á Keflavikurhöfn
Kommúnistar taka við
framkvæmdastiórn ASI
Fyrirvaralaus uppsögn ffyrri sffarfsmanna
KOMMÚNISTAR í stjórn A.S.Í. og skósveinn þeirra, Hannibal
Valdemarsson, hafa nú algerlega skipt um starfsmenn á skrif-
stofu Alþýðusambandsins. Þeir Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri,
Sigurjón Jónsson, járnsmiður, Jón Hjálmarsson, erindreki og Ást-
bjartur Sæmundsson, skrifstofumaður hafa verið látnir hætta störf-
um, en í stað þeirra hafa verið ráðnir þeir: Hannibal Valdemarsson,
Snorri Jónsson, kommúnisti og Jón nokkur Þorsteinsson frá Akur-
eyri.
Sigurjón Jónsson.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
f HÖNDUM KOMMÚNISTA
Þjóðviljinn, málgagn núverandi
sambandsstjórnar, tilkynnir þess-
ar ráðningar í gær og segir, að
Hannibal eigi að verða fram-
kvæmdastjóri, þó með þeim
hætti að Snorri kommúnisti eigi
að sjá um „starfsemi félaganna
í Reykjavík". — Er því séð að
kommúnistum er tryggð sérstök
aðstaða á skrifstofu A.S.Í. Og
þegar einnig er tekið tillit til
þess, að Hannibal mun verða.
langdvölum frá störfum í A.S.Í. J
vegna þingsetu o. fl. er greinilegt
að framkvæmdastjórn verður í|
hendi kommúnista, enda verður
Hannibal allt að sækja til þeirra
og Þjóðviljinn er málgagn hans.
Er ekki ólíklegt, að ýmsir
stuðningsmenn Hannibals í Al-
þýðuflokknum, er studdu núver-
andi sambandsstjórn, telji að
heldur lítið hafi lagzt fyrir kapp-
ann Hannibal, að gerast svo fljótt
alger fótþurrka kommúnista og
leggja þannig Alþýðusambandið í
hendur þeirra.
Það skal tekið fram að Sig-
urjóni Jónssyni var tilkynnt
fyrirvaralaust að hann ætti að
hætta störfum nú þegar, en
eins og kunnugt er hefur Sig-
urjón verið fastur starfsmað-
ur A.S.Í. undanfarin ár, og
kvað Sigurjón hafa mótmælt
þessari fyrirvaralausu upp-
sögn. Koma þessar starfs-
aðferðir stjórnar A.S.Í. vissu-
lega úr hörðustu átt, þar sem
það hefur jafnan verið krafa
verkalýðssamtakanna, að at-
vinnurekendur segðu upp
starfsmönnum sínum með lög-
legum fyrirvara.
Isaac Slern leikur í kvöfd.
Ameríski fiðluleikarinn Isaac Stern kom hingað í gær frá Banda-
ríkjunum ásamt undirleikara sínum Alexander Zakin. Þeir halda
fyrri tónleika sína í kvöld í Austurbæjarbíó fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélagsins. Á efnisskránni eru þessi verk: Adagio eftir
Haydn, d-moll sónata eftir Brahms, Chaconne eftir Bach, sónata
í-f-moll eftir Prokofieff, Rondó eftir Mozart-Kreisler, Gosbrunn-
urinn eftir Szymanowski og La Campanelia eftir Paganini. —
Tónleikarnir verða endurteknir annað kvöld.
Ljósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnússon, tók þessar myndir í
j Keflavík, þar sem keflvískir sjómenn hafa undanfarna daga „aus-
ið“ hundruð þúsunda króna verðmæti upp úr höfninni. Það cr
; geysimikil ufsaganga, sem reyndist þeim þessi fjársjóður. Sumir
j bátanna fóru vart frá bryggjunni eins og t. d. m.b. Ver, sem sést
I á efri myndinni. Hefur hann lagt nót sína fyrir bryggjuendann,
en undir og við bryggjuna sást þá ufsatorfa, „sem var eins og
veggur". — Á neðri myndinni sést örlítill hluti veiðinnar. Er sú
mynd tekin í Fiskiðjunni, en þar var ufsinn bræddur.
Engin uísaveiHi
í Keflavík í gser kl. 1 e. h.álaugard.
KEFLAVÍK, 4. janúar: — í dag
tók alveg fyrir ufsaveiði hér í
höfninni. Kenna sjómenn því um
að það lyngdi, og segja að ufsans
sé vart von aftur fyrr en gerir
vestan brælu, þannig að hann
leiti sér skjóls.
í dag hötðu alls borizt hér á
land 885 Iesíir af ufsa, en and-
virði hverrar lestar eru 350 kr.
Þegar mest hefir verið hafa níu
bátar stundað ufsaveiðarnar, en
að staðaldri hafa beir verið sjö
Ægir er aflahæstur með 309 lest -
ir, Ver er með 250 og Gullþór
122.
enn m
Kalsaveður víða erlendis
SAMKVÆMT upplvsingum frá
Veffurstofunni í ’
Viizt viff, að hævviðrið og veður-
bl'ffan, sem veriff hefir það sem
af er þes^u á-i. mw<ti ew hiP
ast í einn sólarhring. Nokkuð
heRr hó kólnaff í veðM.
f hlvindunum undanfarna daga
hefir hiti orðið mestur 12 stis G
’í’agradal í Vonnafirði), en víða
var yfir 10 stiga hiti.
Á hinum Norðurlöndunum hef-
ir verið norð-austlæg átt að und-
rnförnu og frost. Sunnar í álfunni
hefir einnig verið leiðindaveður,
rigningarkalsi éða slydda.
SAMKVÆMT samningi, sem var
undirritaður 31. okt. s.l. milli
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur og atvinnurekenda, verður
verzlunum framvegis lokað kl. 7
á föstudögum og kl. 1 á laugar-
dögum li! 30. aprí! n.k. Aðra daga
eru verzlanir opnar til kl. 6 e.h.
Á sama tíma er skrifstofum
lokað kl. 5 e.h. sem áður, en ekki
er heimilt að hafa þær opnar
nema til kl. 1 e.h. á laugardögum.
Þær hafa áður verið opnar til kl.
4 e.h. þá daga.
Tveir sækja um
SkálhoRsgreslakall
TVEIR guðfræðingar sækja um
Skálholtsprestakall, en umsókn-
arfrestur er þar útrunninn.
Eru það Þór Guðmundur Oli
Guðmundsson og Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson.
AKURKYRI
ABCDEFGH
REYKJAVÍK .
44. leikur Reykvíkinga:
Kd4—c5 J