Morgunblaðið - 08.01.1955, Page 16

Morgunblaðið - 08.01.1955, Page 16
! Veðurúlli! í dag: NA kaldi, léttskýjað. 5. tbl. — Laugardagur 8. janúar 1955 Enginn mafur j er mjélkinni betri. Sjá grein á bls. 9. I Útsvörin o Aknreyrí áætluð 10,6 millj. kr. Sjálfsfæðisfélögin þar ræða fjárhags- áæflun bæjarins n.k. mánudag. AKUREYRI, 7. janúar. SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akureyri munu efna til fundar um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1955 n. k. mánudag 10. jan. í Varðborg. Fundurinn hefst kl. 8,30 síðdegis og verða frum- mælendur bæjarfulltrúarnir Helgi Pálsson og Jón G. Sólnes. — Fundur félaganna um fjárhagsáætlunina hefir ávallt verið fjöl- sóttur á undanförnum árum. ÓlafsfjarðarkaupstGður tiu ára Fjárhagsáætlunin liggur nú fyrir til annarrar umræðu, er haldin verður í byrjun næsta mánaðar. Niðurstöðutölurnar eru 13,6 millj. kr. Hæstu tekjuliðir eru útsvör 10,6 millj., en voru 8,7 millj. kr. í fyrra. Þess ber að gæta að núna hefir bæjarbú- ■um raunverulega fjölgað við sameiningu Glerárþorps við bæ- inn. Aðrir tekjuliðir eru sem hér segir: Skattar af fasteignum 1527 þús., tekjur af fasteignum 550 þús., endurgreiddir fátækra- styrkir 222 þús. og ýmsar tekjur 687 þús. Gjaldaliðir eru .sem hér segir: Vextir og afborganir af föstum lánum 643,3 þús., stjórn kaup- Dreisgur slasaifall- staðarins 946 þús., lóggæzlg 455 þús., heilbrigðismál 468,5 þús., grjótmulningur 300 þús., fast- eignir 782 þús., eldvarnir 444 þús., lýðtryggingar og lýðhjálp 1810 þús., framfærsíumál 1140 þús., menntamál 1291 þús., íþróttamál 261.5 þús., til nýbygg- inga 610 þús., til hlutabréfakaupa 750 þús. (hraðfrystihús). — Vignir. géðan afla AKRANESI, 7. jan.: — A þrett- ándadagskvöld voru nokkrir drengir af Upp-Skaganum að leika sér við stjörnuljós og sprengjur á Skagabrautinni. Kemur þá einn þeirra, Jón Vign- ir Ólafsson, sem er 13 ára, til heimilis að Skagabraut 25, með sprengju, sem hann hafði sjálfur búið til. — Kveikti hann í henni, en enginn kom hvellurinn. Laut þá drengurinn niður að sprengj- unni og blés í hana. En í því sprakk hún, og þevttist eldur og ■eimyrja upp í andlit drengsins og í augu. Skemmdist annað augað allmikið og hitt töluvert. Var hann fluttur til læknisaðgerða til Reykjavíkur í morgun. Ætti þetta að vera rækileg að- vörun til barna um að gæta fyllstu varúðar, þegar börn eru að leika sér við eldfima hluti eða sprengjur. — Oddur. AKRANESI, 7. jan.: — 16 þátar voru á sjó héðan í dag. Reru þeir allir kl. 1 í gærkveldi. Afli þeirra var 2—4 lestir á bát. Tog arinn Keflvíkingur landaði hér í dag 216 lestum af fiski. Fór megnið af fiskinum í herzlu en afgangurinn í frystingu. — Oddur. Ólafsfjörður á tíu m kanpsfaðaraSmæll 60 ára afmæli skólahalds þar Isaac Sfem leikisr í Háikélamim HINN heimsfrægi fiðlusnillingur Isaac Stern, sem hér hefir leikið á vegum Tónlistarfélagins, leikur í dag í hátíðasal Háskólans fyrir háskólakennara, stúdenta og gesti þeirra. Tónleikarnir hefjast kl. 3 e.h. og er aðgangur ókeypis. Kom með 270 lesfir fisks fi! Siglufjarðar SIGLUFIRÐI, 7. janúár: — Tog- arinn Elliði kom inn í gærmorgun með 270 lestir af ísíiski, sem fer til herzlu og frystingar. Togarinn Hafliði, sem strand- aði í vetur, hefir verið til við- gerðar úti í Þýzkalandi að undar. förnu. — St. F. OLAFSFIRÐI, 7. jan.: — A morg un, laugardag verður minnzt hér í Ólafsfirði tíu ára afmælis kaup- staðarins ásamt 60 ára afmæli skólahalds í Ólafsfirði. Lög um bæjarstjórn í Ólafsfirði öðluðust gildi 1. janúar 1945. Aðalástæðan fyrir þvi að ósk- að var bæjarréttinda var sú, að á árunum frá 1940 hafði verið hafizt handa um mikilvægar framkvæmdir, þar á meðal hafn- argerð, er erfitt reyndist að vinna að nema byggðariagið fengi meira sjálfsforræði í máium sín- Banaslys í Sllfurtúni HAFNARFIRÐI — Um sjöleytið síðd. á fimmtudag varð banaslys í Silfurtúni við Ilafnarfjarðar- veg. Lítil telpa, 6 ára gömul, varð þar fyrir vörubíl og beið bana. Var hún dóttir hjónanna Ingi- bjargar Eyjólfsdóttur og Krist- jáns Hanssonar, sem eiga heima að Sveinatungu í Silfurtúni. Slysið varð skammt frá tré- smiðjunni á Siifurtúnsvegi. Ekki er enn fyllilega kunnugt með hvaða hætti slysið varð. Málið er í rannsókn. — G.E. um. Helztu framkvæmdir kaup- staðarins á þessum tiu árum hafa i verið hafnargerð og bygging barnaskóla. I Fyrsti bæjarstjóri var Þórður , Jónsson, frá 1945—46. Síðan hefir I Ásgrímur Hartmannsson verið | bæjarstjóri. — Fyrsti forseti bæj ! arstjórnar var Þorsteinn Þor- steinsson, næst Árni Valdimars- son, þá Sigurður Guðjónsson og nú Þorvaldur Þorsteinsson. — J. Ág. (Á bls. 7 er grein um 60 ára starf barnaskólans í Ólafsfirði). Nýr báfur fil Flafeyrar Hlaut 74 þús. kr. sekt. DÓMUR í máli franska skipstjór- ans á togaranum Cabillaud B 2398, sem tekinn var í landhelgi s.l. þriðjudag, féll í gær. Var hann dæmdur í 74 þúsund króna sekt og afli og veiðarfæri gert upp- tækt. — Skipstjóri áfrýjaði dómn um. NÝJU OSTATEGUNDIRNAR tvær frá Sauðárkróki, smurostbox til vinstri og „kryddostsstykki" til hægri. Tvær tegusadir osta mgöff eStirsóttar Hinn svokalloði smurostur selzf jafnóðum og hann kemur í verzlanir NÚ FYRIR skömmu kom á markað í Reykjavík tvær nýjar teg- undir mjólkurosta. Er það svonefndur „smurostur“ og líkar hann svo vel, að hann stendur vart við í verzlununum. Alls eru þá framleiddir hérlendis 10 tegundir osta, að því er Skúli Ólafsson, forstöðumaður útflutningsdeildar SÍS, skýrði blaðinu frá í gær. í gær var hleypt af stokkunum nýjum bát í skipasmíðastöð Lands- siniðjunnar. Bátur þessi er 40 smálestir að stærð og er smíðaður fyrir Barða h.f. á Flateyri. Var skipinu gefið nafnið Barði. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) 4-12 sklpd. á bát KEFLAVÍK, 7. jan.: — 14 bátar reru héðan í gær sinn fyrsta róður á vertíðinni. Var afli þeirra sæmilegur eða frá 4 og upp í 12 skipd., sem Guðm. Þórðarson hafði. — Að öllum líkindum verða gerðir út héðan í vetur um 40 bátar. — Ingvar. Treg veiði HAFNARFIRÐI — Fimm bátar voru á sjó héðan í gær, og öfluðu þeir frá 5 og upp í 8 skipp. Þeir róa allir aftur í kvöld og fleiri bætast í hópinn. Enn eru ekki allir bátar tilbúnir að hefja róðra hér, en þeir munu verða 25—30 talsins. Ágúst kom af veiðum í gær með um 180 lestir; — G. E. 1 SMÁUM STÍL ENNÞÁ Skúli kvað framleiðsluna á smurostinum enn litla eða 4—500 kg á viku hverri. Hann er fram- leiddur hjá Mjólkursamlagi Skagfirðinga en mjólkurbússtjóri þar er Sólberg Þorsteinsson. Smurosturinn er þannig fram- leiddur að blandað er saman mjög nýjum og Vel lageruðum osti. Er þetta malað og hakkað saman og hrært og bætt í það ýmsum bragðbætandi efnum. Má þannig fá ost með margvíslegu bragði. Á þessum tveim tegund um er nú þegar eru á boðstólum er osturinn í 500 gramma pökk- unum með kryddbragði. Innan skamms mun KEA hefja fram- leiðslu á smurosti og þá mun verða meiri fjölbreytni í „osta- bragðinu“. FALLEG INNPÖKKUN Pökkunin á smurostinum er til fyrirmyndar. „Mjólkur-smurost- urinn“ er í 100 gramma alumín- umdósum. Kosta þær 3,60 í verzl- unum. Er það nokkuð hærra verð en sama magn af venjulegum 45% mjólkurosti en þess ber að gæta að enginn afgangur verður af smurostinum. Á hann kemur engin skorpa og hann harðnar ekki eins og hinir. Nýtist hann því til fulls. Aðspurður kvað Skúli að auk- in sala á smurosti drægi ekki frá sölu á öðrum ostategundum. —• Kvað hann það reynslu annara þjóða, að sala á smurosti drægi heldur frá sölu á ýmiskonar kjötáleggi. ★ Ilér er um nýung í mjólkur- afurðasölu að ræða, sem vert er að fagna. Hafa Skagfirðingar sýnt að auka má mjög fjölbreytni i tegundum og umbúðum, enda er full þörf á að kynna íslend- ingum fleiri tegundir osta — þessum gómsæta og eftirsóttá mat meðal allra þeirra þjóða er fremstar standa á sviði matvæla- framleiðslu. AKUKEYRI ABCDEFGH REYKJAVÍK Akureyri gefur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.