Morgunblaðið - 21.01.1955, Síða 1

Morgunblaðið - 21.01.1955, Síða 1
16 síður Þjó&skáldið Davíð Stefánsson sextugur [isenhotver vill draga úr viðskiptahöftum ★ WASHINGTON, 20. jan.: — Eisenhower flutti í dag í samein- uðu þingi Bandaríkjanna sína árlegu ræðu um efnahagsmál þjóðarinnar. Lagði hann áherzlu á, að Bandaríkin tækju upp hafta minni viðskipti við aðrar bjóðir. tAt Hann bað þingið um heimild til að lækka tolla, svo að aðrar þjóðir ættu auðveldara með að eignast inneign í dollurum, til að auka tæknilega og fjárhagslega aðstoð til þeirra þjóða, er skammt eru á veg komnar, einkum Asíu- þjóða. ★ Eisenhower hvatti til þess, að framkvæmd yrði tillaga hans um að lækka tolla um 15% á þrem árum og gera ýmsar aðrar ráðstafanir til að auka viðskipti þjóða í milli. ■fc Iðnaður V.-Evrópu-landanna hefir aukizt að miklum mun, þar sem meira jafnvægi hefði komizt á í stjórnmálum þjóðanna, sagði Eisenhower. Kvað hann V.-Ev- rópu-þjóðirnar hafa staðið vel í skilum við Bandaríkin undanfar- ið ár, einkum Vestur-Þýzkaland, sem er með hagstæðan vöru- skiptajöfnuð á þessu ári. -S> Davíð Stefánsson Bekstursntgjöld Rvíkurbæjnr 1954 stóðust núkvæmlegu dætlun Bekstursalgangur nær 17 millj. sem vor varið til verklegra Sram- kvæmda svo sem heilsaverndar- stöðva, bæjarspítala, skólobygg- inga, íbnðarbygginga og íleira Yfirlil Gunnars Thoroddsem, borgarsljóra um afkomu bæjarsjóðs síðasla ár. AFUNDI bæjarstjórnar í gær lagði Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri fram áætlun um rekstursreikning Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1954. Af yfirliti borgarstjóra, sem byggt er á þeim tölum er þegar Dggja fyrir um bæjarreikningana, kemur i ljós að fjárhagsáætlunin fyrir 1954 hefur verið mjög vel undirbúin og framkvæmd með mestu hófsemd og festu. Borgarstjóri sagði, að tekjur hefðu orðið 5 miljónum króna umfram það sem áætlað var. Urðu þær 114 milljónir í stað 109 milljóna í áætluninni. Heita má hins vegar, hélt borgarstjóri áfram, að gjöld hafi nákvæmlega staðizt áætl- un. Þau urðu um 97,5 millj., eða 176 þúsund kr. hærri en áætlað var. Hafa þau því far- ið 0,18% eða tæplega tvo af þúsundi fram úr áætlun. Rekstursafgangur nemur tæp- um 17 milljónum, eða 4,9 mill- jónum meiri en fjárhagsáætl- unin gerði ráð fyrir. Þessum rekstursafgangi hefur verið varið til ýmissa framkvæmda nú sem fyrr. Má þar nefna: Millj. Til heilbrigðisstofnana, heilsuverndarstöð og •sjúkrahús 7,5 Til félagsmála og skóla- bygginga 2,1 Til íbúðabygginga 2,5 Til áhaldakaupa 2,9 Ennfr. til afborgunar af lánum 1,5 NET tímans er stórriðið. Þúsundirnir, sem nú heyja stríð sitt og dreymir drauma sína, renna brátt eins og sandur milli moskvanna — og gleymast. En eru samt ekki hugsjónir hinna nafnlausu þúsunda, barátta þeirra og draumar þáttur í sinfóníu framvindunnar; steinn í hinu ófullgerða musteri, sem rís á strönd sögunnar? — Þeir sem fyrir hönd þessara nafnlausu þúsunda leggja stein í musterið og innsigla þar nafn sitt; þeir sem ekki falla gegnum möskvana og gleymast, eru fáir, og aðeins þeir, sem öldin og vaxtarbroddar hennar birtist í. Fremstur þeirra er þjóðskáldið. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi er sá af núlifandi skáld- um, sem flestir telja að þessi þjóð standi í mestri menningar- skuld við. Hann er sá sem íslendingar, sem þó „einskis meta alla, — sem þeir geta“, eru á einu máli um að kalla þjóðskáld sitt. í skáldskap hans endurfæðist andi og saga lands vors í nýjum búningi, og þess vegna lifir hann öðrum betur á vörum þjóðarinnar í söng hennar og óði. Og hann er um leið sá sem með „eldvilja brautryðjandans“ gat „brætt ís af heilli þjóð“ og beint menningu hennar inn á nýjar brautir. Framh. á bls. 2 Mri deitd belgiska þingsins samþykkir Parísar-samningana Briissel, 20. jan. — Reuter-NTB. NEÐRI DEILD belgiska þingsins greiddi í dag atkvæði með lög- gildingu Parísar-samningana um aðild V.-Þýzkalands að vörn- um V.-Evrópu. Féllu atkvæðin 181 gegn 9. 64 menn bíða bana í Japan ► TÓKÍÓ, 20. jan. — Tvö óhugn- anleg slys vildu til í Japan í dag, og urðu a. m. k. 64 mönn- um að bana. í morgun keyrði tveggja vagna farþegalest út af brú nokkurri yfir Tenryu- fljótið um 150 km fyrir aust- an Tókíó. Báðir vagnarnir steyptust úr 40 metra hæð nið- ur í fljótið, og búizt er við, að fáir farþeganna hafi komizt lífs af. k Til þessa hafa fundizt 50 lík r og nokkrir, er komizt hafa lífs af, en eru mjög illa særðir. Orsök slyssins var steinn, er lá á járnbrautarteinunum. Járn- brautarverkamenn höfðu ný- lega gert við teinana á þessum slóðum. ► Fjórtán japanskir fiskimenn fórust, er tveir fiskibátar lentu í skýstrokki fyrir nyrzta tanga Kyushueyjarinnar. Paul Henri Spaak, utanríkis- ráðherra Belgíu, fór í dag flug- leiðis til Oslóar. Utanríkisráð- herra Noregs, Halvard Lange, tók á móti Spaak á flugvellinum ásamt belgiska sendiherranum í Noregi, Charles Vierset. ■ ★ BJÓST VIÐ SAMÞYKKTINNI Er norskir blaðamenn skýrðu Spaak frá úrslitum atkvæða- greiðslunnar í neðri deild belg- iska þingsins, kvaðst hann alltaf hafa búizt við, að samningarnir yrðu samþykktir, en að sér hefði komið á óvart, að fjórir jafnað- armenn greiddu atkvæði gegn samningunum. í blaðaviðtali sagði Spaak, að hann áliti æskilegt, að Noregur og Danmörk gerðust aðilar að fyrirhuguðu V.-Evrópubandalagi. Benti hann á, að Noregur og Dan- mörk eru nú þegar aðilar að NATO og því í nánum tengslum vildi Bretland ekki vera aðili að V.-Evrópu bandalaginu. ★ YFIRSTJÓRNIN — HÆNGUR? Spaak kvaðst vera samþykkur Framh. á bls. 10 Gunnar Thoroddsen ÚTS V ARSINNHEIMTAN Síðan vék borgarstjóri að út- svörunum. Kvað hann þau hafa innheimzt hlutfallslega ver en næsta ár á undan. Um þessi ára- mót er innheimt af áætluðum út- svörum 66,8 milljónir króna eða 73,9%. Um áramót ’53—’54 hafði verið innheimt 68,6 millj. eða 79,3% af áætluðum útsvarstekj- um þá. Árið 1952 hafði í árslok verið innheimt 62,2 millj. kr. eða 74,9% af áætluðum útsvarstekj- um þá. Innheimta útsvaranna nú er Framh. á bls. 9 Mendes lætur aí emhætti utanríkisráðherra Vill helga sig innartlandsmálum París, 20. jan. — Reuter-NTB. BREYTINGAR urðu í dag í frönsku stjórninni. Mendes-France lét af embætti utanríkisráðherra, sem hann hefur gegnt síðan hann ' tók við stjórnarforustu fyrir sjö-mánuðum síðan. Skipaði hann flokksbróður sinn og fyrrverandi fjármálaráðherra, Edgar Faure í embætti utanríkisráðherra. | Þjóðveldissinninn Robert Buron tekur við embætti fjármála- ráðherra af Edgar Faure. Emmanuel Temple var gerður dómsmála- ráðherra, en var áður varnarmálaráðherra. — Maurice Bourger- Maumoury, úr flokki Róttækra, var skipaður hermálaráðherra. j + Mendes-France lét af störfum utanríkisráðherra til að geta helgað sig fjárhagslegum ug þjóðfélagslegum vandamálum Frakk- jlands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.