Morgunblaðið - 21.01.1955, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.01.1955, Blaðsíða 9
Föstudagur 21. jan. 1955 MORGUNBLAÐIÐ 9 i>eir sem í ófullkomnu húsnæði húa verði aðstoðaðir vegna vetrar- kuldanna þar sem þörf krefur Tillaga borgarsljóra á bæjarsljórnarfundi. AFUNDI bæjarstjórnar í gær var samþykkt tillaga borgarstjóra um það að bæjarstjórn fæli bæjarráði og framfærslunefnd að halda áfram að veita þá aðstoð sem nauðsynleg er til að koma í veg fyrir neyðarástand af völdum vetrarkulda meðal þeirra er búa í herskálum eða öðru ófullnægjandi húsnæði. Var þessi tillaga borgarstjóra samþykkt með 9 atkvæðum gegn 3, en 3 fulltrúar minnihlutaflokkanna sátu bjá. Þeir sem á móti voru, voru Alfreð Gislason, Bárður Danielsson og Petrína Jakobsson. Rekstursreikningur bæjarsjóðs Reykjavíkur árið 1954 TEKJUR: G J Ö L D : Reikningur Reikningur Áætlun 1954 Áætlun 1954 þús. kr. þús. kr. þús. kr. þús. kr. Tekjuskattar: • 1. A. Útsvör 90.400 94.400. Stjórn kaupstaðarins 7.730 7.650 B. Gjaldársútsvör 650 750 Löggæzla 5.620 5.600 C. Útsv. frá öðrum sveitum 100 80 Brunamál 2.775 2.570 Fræðslumál 10.555 10.625 91.150 95.230 Listir, íþróttir og útivera .. 4.515 5.555 D. Útsvör til annarra sveita 200 150 Heilbrigðismál 9.965 10.500 Félagsmál 32.677 32.930 90.950 95.080 Gatnagerð og umferð 19.540 18.000 2. Útsvör skv. sérst. lögum .. 4.200 4.820 Fasteignir 2.477 2.800 3. Stríðsgróðaskattur 1.000 1.000 Vextir 800 400 Fasteignaskattur 7.000 7.000 Óviss útgjöld 700 900 610 750 Arður af eignum 2.773 2.700 97.354 97.530 Arður af fyrirtækjum 2.260 2.260 Mismunur (rekstursafgangur) Ýmsar tekjur 385 600 færður á eignabr 11.824 16.680 Þús. kr. 109.178 114.210 Þús. kr. 109.178 114.210 — Rekstursútgjöld Reykjavíkurbæjar ★ EINN AF OÐRUM í fundarbyrjun bar einn af fulltrúum kommúnista fram ,til- lögu um það að bæjarráði væri íalið að rannsaka leiðir til að koma í veg fyrir vetrarkulda í bröggum og gerði tillagan ráð fyr ir að bæjarsjóður greiddi kynd- ingu fyrir það fólk er í bröggum byggi- Er þessu viðkvæma máli var hreyft, þá var eins og minnihluta- „sjöstirnið" hefði himininn hönd- um tekið. Auk frummælanda tóku til máls Petína Jakobsson, Alfreð Gíslason, Guðmundur Vigfússon o. fl. og var aðalefnið í ræðum þeirra órökstuddar get- sakir í garð meirihluta bæjar- stjórnar. ★ HVERNIG FARIÐ ER AÐ Borgarstjóri, Jóhann Hafstein og Björgvin Frederiksen tóku til máls af hálfu meirihlutans varð- andi þetta mál. Borgarstjóri gerði grein fyrir því, hvernig viðgerðum á her- skálaíbúðum hefði verið hagað. Er slíkar beiðnir um viðgerð bær- ust væru þær athugaðar af fram- íærslufulltrúum og forstöðu- manni Áhaldahússins, sem hefði viðgerðirnar með höndum. Ef viffkomandi fjölskylda nýtur styrks frá bænum kost- ar bæjarsjóffur viffgerffina sé hún nauðsynleg talin. Ef fólk nýtur ekki aðstoffar bæjarins, þá er það metið hvort, effa að hve miklu leyti bærinn greiffir viðgerffarkostnaffinn, en þaff er gert í mörgum tilfellum, ef það er heimilisfólkinu um megn. Sé hagur þeirra er í herskálanum búa góður, þá fer viðgerðin yfirleitt fram á hans kostnað. Borgarstjóri kvað þetta mál viðkvæmt mjög. Augljóst væri að braggarnir væru kaldir og erfið- ir til íbúðar ekki sízt í vetrar- kuldum. Sums staðar væri það ógerningur, annars staðar mundi það kosta bæinn.milljóna fúlg- ur að gera herskálana hlýja í frostum slíkum og hér hafa stað- íð að undanfömu. Kvaff hann þaff að sjálf- sögðu matsatriffi hvaff kosta ætti miklu í viffgerffir á her- skálunum, á sama tíma sem reynt væri eftir megni aff ráff- ast í byggingar svo aff útrýma mætti þeim og öðru heilsu- spiliandi húsnæffi, sem væri meira heldur en aðeins her- skálar, þó sumum fulltrúum minnihlutans gleymdist þaff æriff oft. Hér verffur því aff fara milli veginn, sagffi borgarstjóri. Þaff verffur aff reyna aff bæta úr, en verja þó ekki milljónafúlgu til, svo ekki verffi dregið úr þeim möguleikum, sem opnast hafa fyrir útrýmmgu heilsu- spillandi húsnæffis. ★ AÐ LOSNA VIÐ BRAGGANA í sama streng og borgarstjóri tóku Jóhann Hafsteinog Björgvin Frederiksen. Sagði Jóhann, að það hlyti að vera mikilverðast að losna við braggana. Hins vegar yrði að aðstoða til bráðabirgða þegar neyðarástand nkti eins og nú af völdum kuldanna. Með tillögu borgarstjóra væri stefnt að því. Þar yæri bæjarráði og framfærslunefnd falið að halda áfram að veita aðstoð þeim er erfitt eiga. Ef nauðsyn þykir á auknum útgjöldum í þessu skyni, væri það í verkahring bæjarráðs að meta það og mundi það þá gera tillögur til bæjarstjórnar um það. Um þetta hlytu allir bæjar- fulltrúar að vera sammála. Og tillaga borgarstjóra var sam þykkt með 9 atkvæðum gegn 3, en Petrína, Alfreð og Bárður Daníelsson greiddu atkvæði á móti tillögunni. „Bandarískur njósnari“ MOSKVA — Moskva-útvarpið skýrði frá því í s.l. viku, að landamæraverðir hefðu skotið „bandarískan njósnara", er veitti mótspyrnu og handtekið annan. Báðum mönnunum hafði verið varpað niður í fallhlif úr banda- rískri flugvél yfir Eistlandi, sagði útvarpið. ★ HÖRÐUSTU ÁRÁSIR UM LANGT SKEID Frá Taipeh á Formósu berast þær fregnir, að 1500 kinverskir kommúnistar hafi verið drepnir í bardögunum við eyjuna Yi Kiang Shan, er liggur 320 km. fyrir norðan Formósa og 60 km. frá meginlandi Kína. Talsmaður Formósa-stjórnarinnar skýrði svo frá, að undanfarin tvö dægur hefði flugvélar þeirra haldið uppi loftárásum á skip og strandvirki á meginlandinu og hafnarborg- ina Amoy. Kvað hann þessar árásir þær hörðustu, er Formósa- stjórnin hefði gert í marga mán- uði. Þjóðernissinnar kveðast hafa sökkt sem orustuskipum kommún ista við Tachen-eyjaklasann, sökkt einu stóru flutningaskipi og valdið tjóni á fjórum skipum í höfnum við meginlandið. Sökkt var brezku flutningaskipi, „Eden- dale“, 700 lesta. Allri áhöfninni var bjargað. ★ BARIZT UM YI KIANG SHAN Tveim orrustuskipum Formósa stjórnarinnar var sökkt og tvær flugvélar skotnar niður. Bardag- inn um Yi Kiang Shan heldur áfram. Þrátt fyrir það, að kín- SO flugvélar handa Japönum Tókíó, 20. jan. I DAG afhentu Bandaríkin Jap- önum 59 flugvélar til afnota í hinum nýstofnsetta japanska flug flota, þar á meðal 8 þrýstilofts- æfingaflugvélar. Eru þetta fyrstu flugvélarnar, er Bandaríkin láta Japönum í té samkvæmt gagn- kvæmum öryggissáttmála þess- ara tveggja þjóða. ★ Talsmaður brezka kjarn- orkuráðsins skýrði frá því í dag, að í undirbúningi sé heimsókn japánskra vísindamanna til að kynna sér fyrirkomulag brezkra kjarnorkumiðstöðva, rannsóknar- aðferðir Breta í kjarnorkumálum og notkun kjarnorkunnar til iðn- aðar og annarra afnota. versku kommúnistarnir eru miklu liðfleiri, hafa varnarsveit- irnar reynzt hinar hughraust- ustu og hafa enn á sínu valdi hernaðarlega mikilvægustu bæki stöðvarnar, sagði talsmaður For- mósast j órnar innar. Hinsvegar hefir fréttastofa Rauða Kína skýrt svo frá, að öll mótspyrna á eynni hafi verið brotin á bak aftur þegar s.l. mið- vikudag. Landgangan hófst á þriðjudag. Fréttastofan áætlar, að 1,000 hermenn þjóðernissinna hafi ver- ið drepnir og teknir til fanga í bardögunum um eyna. ★ ★ NÝJUSTU FRÉTTIR LONDON: — Bretland, Banda ríkin og Nýja Sjáland hafa ákveffiff, aff öryggisráð SÞ skuli ekki boðaff til fundar um bardaga þá, er nú geisa milli Formósa-stjórnarinnar og Kínverska alþýðulýffveldisins, en hinsvegar yrffi haldiff áfram aff leita úrlausnar þessa máls. Engin skýring var gef- in á, hversvegna horfiff var frá þessu ráði. Sennilegt þykir þó, að ástæðan sé, að gengið hafi veriff út frá því sem vísu, að hvorki þjóffernissinnar effa kommúnistar vildu hlita þessu ráði. Framh. af bls. 1 því aðeins lægri hlutfallslega en fyrir 2 árum, en rúml. 5% lakari en í fyrra. Ef sama hlutfalllstala væri inn- heimt af útsvörunum nú og á næsta ári á undan, væri 4,9 millj. krónum meira innkomið i bæjar- sjóð. Borgarstjóri kvað margar ástæður fyrir því að innheimtan væri lakari nú. T. d. sagði hann að svo virtist sem ýmis viðskipta- fyrirtæki ættu erfiðara um greiðslu nú en áður, en það staf- aði af því að þau hefðu auknar birgðir undir höndum. Þá hefðu húsbyggingar í bænum verið í stærri stíl en nokkru sinni áður, þar sem um 1000 íbúðir myndu nú í smíðum. í þær húsbygging- ar væri fest mikið fé og þeir, sem í slíkum stórræðum stæðu, ættu erfiðara með að greiða sín útsvör. Þá má geta þess að sumir af stærstu útsvarsgreiðendunum hafa minna greitt en áður og munar þar miklu er heildarupp- hæðin er tekin til athugunar. Loks er þess farið að gæta, að vegna þess að ríkið lokar fyrir- tækjum, sem ekki greiða sölu- skatt, þá láta menn útsvarsgreiðsl ur frekar sitja á hakanum til þess að geta haldið opnu sínu fyrir- tæki, en áður fyrr gætti þess nokkuð, að menn vildu greiða bæjargjöld sín á undan ríkis- gjöldum. Kvaðst borgarstjóri vilja nefna þessar ástæður fyrir hlutfallslega minni útsvarsgreiðslum nú en áð- ur. Ástæðurnar væru fleiri þó. Innheimtuaðgerðir bæjarins eru nú hinar sömu og fyrr. GREIÐSLUJÖFNUÐURINN Vék borgarstjóri síðan að greiðslujöfnuði bæjarsjóðs og kvað ekki hægt að fullyrða um hann að svo komnu máli. Nokkur atriði, sem miklu máli skipti væru enn óljós. Þar mætti til nefna hvað mikið innheimtist af útsvörum frá ára- mótum þar til reikningunum væri lokað. Þá væri alger óvissa um greiðslu ríkissjóðs á skuldum er hann stendur í við Reykjavík- urbæ. Mun ríkið eiga ógoldið til bæjarins að minnsta kosti um 10 milljónir króna. Eru það aðallega vangoldin framlög ríkisins til skólabygginga. Sagði borgarstjóri, að nú- verandi menntamálaráðherra ynni að lausn þessa máls og stæðu vonir til að hennar væri von er þing kemur saman aftur til fundar í febrúar. VEL HALDIÐ Á MÁLUM Björn Guðmundsson fulltrúi Framsóknarflokksins stóð upp að- ræðu borgarstjóra lokinni og lýsti því yfir, að vel hefði verið hald- ið á fjármálum bæjarins. En þessi málgefni fulltrúi Fram sóknar óð síðan úr einu í annað; Minntist á óþarfa hækkun stræt- isvagnagjalda og rafmagnstaxta. Sagði hann að þær hækkanir hefðu verið óþarfi, heldur hefði átt aðeins að taka lán og taka lán. Guðm. H. Guðmundsson og- borgarstjóri reyndu að skýra fyr- ir Birni jafn einfalt dæmi og það, að þegar rekstursútgjöld fyrir- tækja hækkuðu yrði eitthvað á móti að koma til að þau bæru sig. Strætisvagnstjórar fengju aukin laun og til að mæta því hefði verið ákveðið að hækka helgi- dagagjöldin, en einmitt þá þarf fólk sízt að nota vagnana. Raf- veitan þyrfti auknar tekjur til að standa straum af útgjöldum við árlegar nauðsynlegar fram- kvæmdir innanbæjar. Að taka lán til slíkra framkvæmda væri léleg fjármálaspeki, en hins veg- ar væru lán tekin þegar ráðizt væri í stórfelldar framkvæmdír svo sem byggingu nýrra orku- vera, enda hefðu þá alltaf verið tekin lán, sem eðlilegt er. Um það er lauk mun ljósglæta skilnings hafa verið að kvikna 1 hug þessa málgefna Framsóknar- manns. Skorað á pósísljórn- ina að fjölga pésf- afgreiðslum í Rvík Á FUNDI bæjarstjórnar í gær flutti einn af fulltrúum kommún- ista tillögu þar sem borgarstjóra var falið að sjá um að póst- og símamálastjórnin reisti útibú frá pósthúsinu í hverfum bæjarins og hraðaði byggingu símastöðv- ar við Suðurlandsbraut. . Borgarstjóri kyað nauðsynlegt dð afgreiðslum pósts yrði fjölgað og framkvæmdum í símamálum hraðað. Hinsvegar kvaðst hann hafa ærið nóg að starfa, þótt ekki væri því á hann bætt að sjá um byggingar þessara ríkisfyrir- tækja, pósts og síma. Lagði hann til að tillögunni yrði breytt í áskorun tíl póst- og símamálastjórnarinnar frá bæj- arstjórninni. Var það gert og til- 'lagan samþykkt með samhljóða atkvæðum. , Orrusfan um Yi Kiang Shan hœttuleg friðnum Bretar, Bandaríkin og Nýja Sjáland leitast við að finna úrlausn. London, 20. jan. — Reuter-NTB. BREZKA utanríkisráffuneytiff stafffesti í dag þá fregn, að Bret- land, Bandaríkin og Nýja-Sjáland hafi rætt þann möguleika, aff öryggisráff SÞ verffi kallaff saman til fundar um bardagana á Tachen-eyjaklasanum og í grennd við Formósu, þar sem þeir séu hættulegir heimsfriðnum. Enn hefur engin ákvörffun veriff tekin i þessa átt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.