Morgunblaðið - 21.01.1955, Side 10
■ •■■■■■■■■■ t» ■ ■ ■.■ ■■■ «jp ■■ aj| a ^
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. jan. 1955
Ibúðir til sölu
Höfum til sölu í húsi við Lynghaga hér í bænum:
1. Kjallaraíbúð, 4 herbergi, eldhús, bað, geymsla, for-
stofur og aðgangur að þvottahúsi. Kjallarinn er
ekkert niðurgrafinn. Búið er að einangra alla útveggi
með korki, hlaða öll skilrúm, leggja leiðslur fyrir vatn
og skolp og ganga frá hitunarkerfi. Geislahitun.
2. Risíbúð 3 herbergi, eldhús, bað, geymsla, forstofur,
og aðgangur að þvottahúsi. Stórar svalir móti suðri.
íbúðin er fokheld með miðstöðvarkerfi. Engin súð í
herbergjunum. Geislahitun.
Nánari upplýsingar gefur
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4 — Símar 3294 og 4314
■ ■■■■■•■■■■■••■■■■••■■■■■•■■•■■■■■■■■■•""■■*<**saH'l*a>**lk**ll"**a*1
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Síðasti dagur útsölunnar
Not!5 tækifærið:
Taft á kr. 15 00 m., áður kr. 29,50.
Everglaze á kr. 19,75, áður kr. 35.00.
Eldhúsgardínuefni kr. 14.50, áður kr. 23.80.
Köflótt ull og rayon, 150 cm. breidd kr. 69,00.
áður kr. 82.00. — Barnagallar á kr. 100.00, áður
kr. 168,90. — Peysur á börn og unglinga með 25—
50% afslætti. Silkisokkar á kr. 10.00 parið.
Gerið svo vel og lítið inn.
Hríslan
Bergstaðastræti 33.
SnjókeÖjur
fyrir litla bíla fyrirliggjandi.
Stærðir:
550 x 16
600 x 16
Verð kr. 160.00 settið.
SL oda-uerLó tce &L&
við Kringlumýrarveg (fyrir ofan Shell).
Bílaviðgerðir
Tveir menn vanir bifreiðaréttingum geta fengið
vinnu strax.
dslwcla-verkó tce Xví
við Kringlumýrarveg — sími 82881.
IMauðunyaruppboð,
sem auglýst yar í 80., 82. og 84. tbl. Lögbirtingablaðsins
1954 á húseign við Reykjanesbraut og Laufásveg, talin
eign Elíasar B. Þórarinssonar, fer fram eftir kröfu
bæjargjaldkerans í Reykjavík á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 26. janúar 1955, kl. 2 síödegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Gottsveinn Oddsson iir-
smíðameistari
'i*
a
f DAG verður til moldar borinn
Gottsveinn Oddsson úrsmíða-
tneistari. Hann andaðist íimmtu-
daginn 13. þ. m. eftir stutta legu
í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn.
Banamein hans var heilablóðfall.
Gottsveinn Oddsson var Skaft-
fellingur að ætt, fæddur 8. apríl
1904 að Þykkvabæjarklaustri í
Álftaveri. Foreldrar hans voru
bóndahjónin Hallfríður Odds-
dóttir og Oddur Brynjólfsson.
Gottsveinn dvaldi 1 föðurhús-
um til 18 ára aldurs, en haustið
1922 fluttist hann hingað til
Reykjavikur til að nema úr-
smíðaiðn hjá Jóhanni Ármann
Jónassyni úrsmíðameistara. Náms
tími var ákveðinn fjögur ár, en
hann dvaldi ekki aðeins þessi
fjögur ár við hlið meistara sins,
—þau urðu tuttugu. Þetta tveggja
áratuga samstarf er fögur saga,
er þarfnast ekki frekari skýringa.
Þar ríkti gagnkvæm og fullkom-
in virðing, eining og traust. Það
þurfti ekki kunnugan til að sjá,
að þar foru saman vinir.
Eftir að Gottsveinn fór frá
Jóhanni Ármann vann hann um
eins árs skeið að iðn sinni hjá
firmanu Jón Sigmundsson, Lauga
veg 8, en síðan stofnsetti hann
sitt eigið fyrirtæki að Laugavegi
10B og rak það af dugnaði og
mikilli prýði til dauðadags.
Fundum okkar Gottsveins bar
fyrst saman árið 1922, því þá tók
hann sess minn á vinnustofu
Jóhanns. Vinátta okkar rofnaði
ei frá þeim tíma, en óx með ári
hverju. Við áttum margt sam-
eiginlegt og því er mér enn meiri
söknuður í hjarta við fráfall hins
góða drengs.
Gottsveinn var stór maður
vexti og myndarlegur að vallar-
sýn. Hann var drengur góður,
hvers manns hugljúfi, prúður og
Hann var félagslyndur, starfaði
mikið í félagsmálum úrsmiða, var
formaður Úrsmíðafélags íslands
s. 1. fimm ár. Við starfsbræður
hans flytjum honum alúðar þakk-
ir fyrir óeigingjarnt starf og
minnumst hans sem ötuls og fórn-
fúss félaga.
Árið 1941 giftist Gottsveinn
eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu
Guðmundsdóttur frá Skáholti í
Reykjavík, myndar konu. Áttu
þau eina dóttur, mannvænlegt
barn, sem nú er um fermingar-
aldur. Er nú sár harmur að þeim
kveðinn við fráfall elskulegs föð-
ur og einginmanns.
Gottsveinn, æviskeið þitt er til
enda runnið á voru jarðríki. Þú
ert horfinn sýn ástríkri konu
þinni og dóttur, vinum og kunn-
ingjum. En ég veit, að þú ert
handan við fljótið, fljótið mikla,
sem leið okkar allra liggur yfir.
Ég get því ekki þrý^t hönd þína
til að færa þér þakkir fyrir okkar
góðu kynni, en ég mun geyma
minningu þína
Vertu sæll, Gottsveinn Odds-
son. Góður guð gefi þér eilífðar
sælu.
Guðl. Gíslason.
OSlil
kastræii
í mikíu óla^i
UMFERÐALJÓSIN við mót
Bankastrætis — Ingólfsstrætis og
Skólavörðustígs, hafa undanfarið
verið óvirk með öllu. Skýringin,
sem á þessu hefur verið gefin, er
að „skynjararnir" hætti að
skynja í frostunum, en undirrót
þessa alls er sú, að skynjararnir
og einhver stykki önnur í hinni
sjálfvirku ljósaskiptingu, eru orð-
in svo slitin. Litið mun hafa verið
um það hugsað að afla vara-
stykkja í tæka tíð, en þau munu
nú vera á leiðinni.
Lögreglan skýrði blaðinu svo
frá, að hún liti þessa bilun í Ijós-
unum, sem verið hafa alltíðar,
alvarlegum augum. — Því að
þegar bílstjórarnir sjá, að á því
eru nærri því dagaskipti, að ljós-
in séu í lagi eða ólagi, er hætt
við að þeir hætti að taka tillit
til Ijósanna, sem svo gæti auð-
veldlega orsakað slys. Það er
krafa lögreglunnar að viðhald
ljósanna sé öruggt.
Þarf að dytta að Colosseum
RÓM — ítölsku stjórninni hefur
verið bent á, að hið þrjú þúsund
ára gamla Colosseum og Kon-
stantínusarboginn séu í mikilli
þörf fyrir viðgerð.
MONTE CARLO kappaksfursnn:
361 ökumaður frá 17 löndum
Keppninni átti að Ijúka i gærkvöldi
frjálsmannlegur í framkomu,
gæddur jafnvægis skapgerð. Var
glaður og skemmtinn í vinahópi.
mtsímwm
steinlausar, fyrirliggjandi
J.&
rynjoi
^óóon
uaran
- Belgiska þingið
Framh. af bis. 1
því markmiði, er tillögur Mendes
Fance um sameiginlega hergagna
stofnun bandalagsins, beindust
að. Tillögur Mendes-France fjalla
um samræmingu endurhervæð-
ingu bandalagsþjóðanna með því
að samræma og deila niður á
aðilana vopnaíramleiðslunni. En
Spaak kvaðst álíta, að tillagan
um, hvernig yfirstjórn samræm-
ingarinnar skyldi fyrirkomið,
myndi eiga erfitt uppdráttar.
Fyrirkomulag yfirstjórnarinn-
ar er svipað og vera átti í Evrópu
hernum, gp einmitt vegna þess
vildi Bretland ekki vera aðili að
Evrópuhernum.
í dag hélt, Spaak þegar áleiðis
til Bergen. Á hann að haida fyr-
irlestur fyrir stúdenta í Bergen
á morgun um, hvernig horfir um
samvinnu Evrópuþjóða í byrjun
ársins 1955. Spaak heldur heim-
leiðism.k.' þriðjudag.
í GÆRKVÖLDI átti að ljúka suð-
ur á sólbakaðri strönd Monte
Carlo mesta kappakstri sem ár-
lega hefur verið haldinn: Monte
Carlo-kappakstrinum, sem eng-
inn kappakstursbíll tekur þátt í
heldur einvörðungu venjulegir
fólksbílar, smáir og stórir,
tveggja manna og stærri. Kapp-
aksturinn hófst samtímis í átta
borgum á mánudaginn var. Öku-
þórar, sem aka dag og nótt frá
17 löndum, keppa, en alls eru
361 ökumaður í bílunum sem
þátt taka í þessum mjög svo
spennandi kappakstri.
3350 km VEGALENGD
Leiðin sem ekin er, er 3350 km.
og er það enginn leikur að aka
úr vetrarríki Vestur-Evrópu suð-
ur mót vori og hækkandi sól viö
Miðjarðarhafið, þar sem nú er
yfir 20 stiga hiti. Það kemur ótal-
margt annað til greina en það
eitt að aka hratt. Og bílarnir eru
ekki sérstaklega útbúnir fyrir
kappaksturinn og eru vélahlutar
með innsigli á, til að tryggja að
leikreglur séu haldnar.
Þegar kappaksturinn hófst á
mánudagsmorguninn, lögðu bíl-
arnir af stað frá þessum átta
borgum: Osló, Stokkhólmi, Glas-
gow, Lissabon, Palermo, Múnch-
en, Aþenu og frá Monte Carlo-
borg sjálfri.
Keppni þessi hefur alla tíð ver-
ið afarhörð og hafa allmargir bíl-
stjórar farizt og eins hafa þeir
misst stjórn á bílunum og ekið á
áhorfendur sem hafa hlot.ð bana
af.
MIKILSVERD
AUGLÝSING
Bíiaverksmiðjur um heim all-
an leggja mikið upp úr úrslitum
Monte Carlo kappakstursins, svo
og olíufélögin, hjólbarðaframleið-
endurnir o. fl., þar eð tryggt þyk-
ir að kostir og gallar allir á fram-
leiðslunni komi fram í hinni
hörðu keppni og það er aðeins á
færi hinna beztu ökumanna að
sigra, en í hverjum bíl skiptast
menn á um að aka og hvíla sig.
ÍSLENDINGAR EKKI MEÐ
7)11 ár N o r ðúr l’árfd aþjóðirnar
nema íslendingar senda menn til
þátttöku í kappakstrinum og eir
hlutur Dana þar mestur í ár, en
þeir senda 17 menn, Finnar 11,
Norðmenn 8, Svíar þrjá. Eng-
lendingar eru langfjölmennastir
yfir 130, þá Frakkar 87, Þjóðverj-
ar 22, einn írlendingur, einn
Brazilíumaður, þrír ítalir o. s.
frv. Núverandi Monte Carlo kapp
aksturshetja er Monacomaður,
Louis Chiron, sem ók ,,Lancia“,
en Frakkar hafa löngum verið
sigursælir í keppninni. Meðal
bíla sem keppa eru t. d. Austin,
Martin, Lancia, Allard, Jaguar,
Talbot, Porsche, Mercedes, Fiat
1100 TV, Ford, Chevrolet, Stude-
baker, Fólksvagnar o. s. frv.
ASalfundur Sjállst.-
fél. Skjaldar
í Sfykkishólmi
STYKKISHÓLMI, 20. janúar: —
Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins
Skjaldar í Stykkishólmi var hald
inn 19. þ.m. Á fundinum mætti
Sigurður Ágústsson alþingismað-
ur. Ræddi hann um viðhorf bæj-
armála og stjórnmála eins og þau
Iig_gja nú fyrir.
í stjórn voru kosnir, Þórir
Ingvarsson verzlunarstj. form,,
meðstjórnendur Ólafur P. Jóns-
son, héraðsiæknir, Ágúst Bjarna-
son, trésmíðameistari, Árni Helga
scn sýsluskrifari, Hinrik Finsson,
verzlunarmaður, Björgvin Þor-
steinsson, verkamaður og Árni
Ketilbjarnarson, kaupmaður.
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur er
25 ára á þessu ári. Var á fundin-
um ákveðið að minnast afmælis-
ins bráðlega á veglegan hátt. Var
kosin nefnd til þess að annast
allan undirbúning hátíðahald-
anna. — Árni._____________
Margrét prinsessa í bílslysi
LONDON — Margrét prinsessa
lenti x bílslysi í s.l. viku, er hún
var á leið frá London til Sand-
ringham. Bifreið hennar skemmd
ist nokkuð, en prinsessan slapp
óméidd. ■ ■ ■■ ■ ’ ‘ ' 1