Morgunblaðið - 21.01.1955, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. jan. 1955
FjölséMu kvik-
myndir ,fyrr o gsíðar'
NEW YORK í jan.: — Þær tíu
kvikmyndir, sem bezt hafa verið
sóttar fyrr og síðar í Bandaríkj-
unum og Kanada eru þessar.
Tölurnar í sviga sýna hvað þær
hafa gefið af sér í millj. dollara:
1. Gone with the wind, gerð
árið 1939 (33.5)
2. The Robe, gerð 1953 (19)
3. The Greatest Show on Earth
gerð 1952 (12,8)
4. From Here to Eternity, gerð
1953 (12,5)
5. This is Cinerama, gerð 1952
12,5)
6. White Christmas, gerð 1954
(12)
7. Duel in the Sun, gerð 1951
(11,3)
8. The Best Years of Our Lives,
gerð 1947 (11,2)
9. Quo Vadis, gerð 1952 (10,5)
10. Samson and Delilah, gerð
1950 (9).
íslenzkir knatfspyrnumenn
í undankeppni Olympíuleikanna
Landsleikur við Dani í Reykjavíká þessu ári
KNATTSPYRNUSAMBAND íslands hefur tilkynnt þátttöku ís-
lands í undankeppni í knattspyrnu á næstu Olympíuleikum.
| Keppni þessi verður háð í Evrópu næsta haust, en sem kunnugt er,
fara Olympíuleikarnir fram í Melbourne í Ástralíu næsta ár.
Frjálsf framlak og
þjóðnýting í Engl.
LONDON í jan: — Stáliðnaður-
inn í Bretlandi, sem þjóðnýttur
hafði verið, en Churchill-stjórnin
tók úr þjóðnýtingu og fól aftur
hinu frálsa framtaki, blómgast nú
mjög. Stálframleiðslan nam á s.l.
ári 18,5 millj. lesta, og er það
43% meir heldur en framleiðslan
varð mest fyrir síðustu styrjöld.
Áætlað er að framleiðslan verði
komin upp í 19,5 millj. smál. í lok
þessa árs og í 21 millj. lesta árið
1958.
Kolaiðnaðinum farnast aftur á
móti ekki eins vel, en hann er
þjóðnýttur. Námamenn hlutu á
síðastliðnu ári nokkra launahækk
un og féllust þá á það ásamt
Kolaframleiðsluráðinu brezka, að
hæfilegt væri að gera ráð fyrir
„sanngjarnri lágmarksaukningu
á framleiðslu“ er næmi 2V2%
(um 5.000.000 smál.). En aukning-
in varð ekki nema 270 þús. smál.
Kolaráðið varð þessvegna til þess
að flytja inn 2.000.000 smál. af
kolum. Tapið á rekstrinum nam á
fyrstu níu mánuðum ársins tæp-
um 10 miilj. sterl. punda.
StúBka óskast
til afgreiðslustarfa.
STEINDÓR
Sími 1588.
REInið REI!
Rtl gerir allt hREInt!
Ódýrt! Drjúgt!
Notið heldur Rei!
Þá kom fram í skýrslu for-
manns KSÍ, Björgvins Schram,
á aukaþingi sambandsins nýlega,
að stjórnin standi nú í samning-
um við ýmis lönd í sambandi við
landsleiki á næstu árum, svo sem
Finnland, Austurríki, Sviss,
Bandaríkin o. fl. Ákveðið hefur
verið að 3. júlí n.k. verði lands-
leikur við Dani hér í Reykjavík.
Á auka-þinginu var og sam-
þykkt nýtt skipulag á keppnis-
fyrirkomulagi og skiptingu 1.
aldursflokks í knattspyrnu.
KEPPT í 2 DEILDUM
Næsta sumar verður keppt í
2 deildum. í 1. deild verða þeir
sex aðilar, er þátt tóku í íslands-
mótinu 1954, þ. e. félögin í Rvík
og íþróttabandalag Akraness. í 2.
deild verða þeir aðilar, er þátt
, tóku í 1. flokks landsmótinu 1954
og ekki áttu lið í meistaraflokki
það ár, svo og aðrir þeir aðilar,
er óska að taka þátt í mótinu og
ekki eiga lið fyrir í deildunum.
LANDINU SKIPT f
3 SVÆÐI
| Keppni í 2. deild verður hagað
svo, að landinu er skipt í þrjú
svæði og keppa félög fyrst á
hverju svæði fyrir sig, en sigur-
jvegarar á hverju hinna þriggja
svæða keppa síðan til úrslita um
rétt til þátttöku í 1. deild á
næsta leikári. Neðsta lið í 1. deild
fellur í staðinn niður í 2. deild.
RÁÐINN ÞJÁLFARI
KSÍ mun mjög bráðlega ráða
þjálfara fyrir landsliðið, svo og
til að annast kennslu víðsvegar
um landið næsta vor og sumar.
Kennslukvikmyndir fyrir
knattspyrnu mun KSÍ fá til
landsins á næstunni.
Forseti aukaþingsins var Frí-
mann Helgason, en ritari Sigur-
geir Guðmannsson.
Frétt um að Loft-
leiðir séu að kaupa
risaflugvélar
alröug
NORSKA stórblaðið Aften-
posten birti fyrir nokkru all-
langa frétt um það að íslenzka
flugfélagið Lofíleiðir hefði nú
ákveðið að festa kaup á risa-
flugvélum af tegundinni
Douglas DC—6. Birtir blaðið
viðtal, sem það segir að frétta-
maður NTB hafi átt við um-
boðsmann Loftleiða í New
York, Nicholas Craig. Mbl.
hefur fengið upplýsingar um
það að þessi frétt hins norska
blaðs sé með öliu röng.
Þá segir blaðið að Loftleið-
ir ætli að fjölga ferðum sín-
um milli Evrópu og New York
úr þremur ferðum á viku í
fjórar. Sú fregn styðst heldur
ekki við staðreyndir, þar sem
engin ákvörðun hefur verið
tekin um slíkt, þótt sá mögu-
leiki sé e. t. v. hugsanlegur að
f jölga flugferðum.
Ítalía fer fram á
fjárhagsaðstoð
★ PARÍS, 14. jan. — ítalir báðu
í dag efnahagssamvinnustofnun
Evrópu, Bandaríkin og Kanada,
um efnahagslega aðstað til að
hrinda í framkvæmd 10 ára áætl-
un þeirra til viðreisnar atvinnu-
vegum landsins.
■ár Áætlun þessi gerir ráð fyrir
auknum þjóðartekjum ítala og
eflingu iðnaðarins í svo rikum
mæli, að landið verði eins mikið
iðnaðarland og Frakkland og
Vestur-Þýzkaland. Með slíkri
eflingu þjóðarhagsmunanna
fengju 4 milljónir manna at-
vinnu.
-Á Fór ítalski fjármálaráðherr-
ann fram á þessa fjárhagsaðstoð
á fundi ráðherranefndar efna-
hagssamvinnustofnunar Evrópu í
París í dag. Var skipuð sérstök
nefnd til að rannsaka möguleika
á því að verða við beiðni Ítalíu.
—Reuter-NTB.
— Minningarorð
Framh. á bls. 12
Guðrún, þrjú, sem öll lifa og
sverja sig í ættina sem atgervis-
og mannkostamenn. Eru þau:
Sveinn, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, kvæntur Elínu Geiru
Óladóttur, ættaðri af Fljótsdals-
héraði. — Vilborg, gift Finnboga
Magnússyni, bónda að Lágafelli
í Austur-Landeyjum. — Margrét,
gift Árna Einarssyni, símstjóra
á Hvolsvelli.
Við öll, sem til þekkjum, mun-
um geyma minningu Sæmundar
frá Lágafelli með ríkasta þakk-
læti. Og við horfum um leið björt
um augum fram á veg hans.
„Því atorka og trú á æðri völd,
það endist til tveggja heima“.
Jón Skagan.
Tillaga rannsóknarnefndar Ameríku-
bandalagsins.
Friðhelyt svæði við iandamæri
Costa Rica oy licarayua
Costa Rica, 20. jan. — Reuter-NTB.
RANNSÓKNARNEFND Amerikubandalagsins, er undanfarið
hefur unnið að því að kryfja til mergjar innrásina í Costa
Rica, bar í dag fram þá tillögu, að bannaðar yrðu hernaðaraðgerðir
á svæði beggja vegna landamæra Nicaragua og Costa Rica. Hefur
tillaga þessi nú verið lögð fyrir utanríkisráðherra beggja ríkjanna.
• AMERlKUBANDALAGIÐ
ÁBYRGT
Somoza, forseti Nicaragua, lýsti
yfir því í gærkvöldi, að tvær
orrustuflugvélar frá Costa Rica
hefðu flogið yfir Nicaragua í gær-
dag og varpað sprengjum á smá
bæ nokkurn. Kvað hann flug-
vélar þessar sennilega vera þær,
er Bandarikin sendu Costa Rica
á dögunum.
Lýsti Somoza yfir því, að Amer-
íkubandalagið yrði að taka á sig
ábyrgðina af afskiptasemi cinni,
er orsakað hefði mjög hættulegt
ástand.
Ennþá logar allt í bardögum í
norður hluta Costa Rica.
V ETRAKG ARÐ UIÍINN
VETRARGARDUUINN
DANSLEIKUB
I Vetrargarðinum í kvöld klukkasj 9.
Hljómsveit BALDURS KRISTJÁNSSONAR leikur.
Miðapantanir í síma 6710 eftir kl. 8.
V. G.
DANSIEIKUB
að Þórscafé í kvöld klukkan 9
K. K. sextettinn Jeikoc.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7.
•oa
Hótel Borg
Allir salirnir opnir í kvöld — Dansað til kl, 1
Enginn aðgangseyrir
Aðgöngumiðar afhentir hjá dyraverði við aðaldyr frá
kl. 8,30. — Borð ekki tekin frá.
Rhumba-sveit Plasidos og
Hljómsveit Þorvaldar Steingrímssonar
IAAAAAAAA AAA 4»»AAAAAAi
IAAAAAAAAAAAAAAAAAI
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
I'VE WORBIED ABOUT JOHNNV
AND MABK A GREAT DEAL...
THEVVE BEEN GONE SO LONG,
DO YOU THINK. <CERTA/NLY
WfcLL, ANDVS ALL DRIED
OUT AND WABMED UP...LE". .
STAST FOR COPPERMINE/
WE'LL SOON BE
WOME, FRAN, AND
WA=, WCNDERING
WHAT VOU ASE
GOING TO DO?
[ OH, I'LL GO
HOME TO MY
FATHER ANDj
MOTHEP POP ,
A WHILE,æTHE-'I
GO BACK
MOVIESI J
1) — Ég hef áhyggjur vegna
Markúsar og Jonna.
2) — Já, hversvegna eru þeir
ekki enn komnir og margar vik-
ur liðnar. Ætli þeir komi nokk-
urntima aftur?
— Já, þeir koma ábyggilega.
Þeir bjarga sér.
3) Á meðan: — Jæja, Andi
minn, nú ert þú þornaður og þér
orðið hlýtt. Þá snúum við aftur
suður til Koparbergs.
4) — Jæja, nú gengur það glatt,
Freydís. Við förum heim, en hvað
ætlar þú að gera?
— O, ég fer heim til foreldra.
minna. Síðan byrja ég aftur við
kvikmyndirnar.