Morgunblaðið - 25.01.1955, Qupperneq 1
16 síður
42. árgangur
19. tbl. — Þriðjudagur 25. janúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jl kak*
þ áítXNSwá
WWMJ
' f gís .
MÁNÖðMOÆ0^"
Nmgp»
WcnchoW
€asc
Öhtna
^*V , <e
roochow
/’mfw j
Eisenhower dregur línuna
milli stríðandi Kínverja
á Formosu og Kínasfrönd
Um þessar mundir heyja Frakkar baráttu við geysileg vatnsflóð. Miklar rigningar hafa orsakað stór-
flóð í mörgum hinna stóru fljóta. Þannig er vatnsborð Signu 6,7 metrum yfir meðallagi. — Myndin
hér að ofan er frá Cannes-Ecluse héraðinu um 75 km suðaustur af París, þar sem Yvonne fljótið hef-
ur einangrað fjölda þorpa og bæja. Hefur herlið verið sett á vettvang til þess að forða búpeningi ‘frá
dauða.
Hlé ú íldðunum — Signu lækkur
um I cm d klstund
París 24. janúar. — Frá Reuter-NTB.
YFIRBORÐ flóðanna í París lækkar nú hægt og þær 6000 fjöl-
skyldur sem fluttar vor ufrá heimilum sínum í borginni búast
við að geta haldið heim eftir stuttan tíma. En hægt lækkar — eða
um 1 sentimetra á klukkustund og það er trú fólksins — eða að
minnsta kosti von þess, — að nú sé hættan liðin hjá.
En hcefta á nýjum flóðum
En sérfræðingar eru á öðru máli. Þeir segja að flóðið
muni aftur vaxa þegar vatnsflóðs í nokkrum þverám Signu
fer að gæta. Og borgaryfirvöldin tefla ekki á tvísýnu. Þau
hafa bætt 8000 mönnum við í hóp þeirra sem styrkja varn-
argarða þar sem hættan er mest við Signubakka. Einnig við
Marnefljótið var unnið af kappi í dag. En það fljót flæðir
nú yfir bakkana og hefur hrakið 4000 manns frá húsi og
heimili.
Washington 24. jan. — Frá Reuter-NTB.
T GÆR fór Eisenhower forseti þess á leit við Bandaríkjaþing, að
■*- það veitti honum vald til þess að geta fyrirvaralaust beitt
bandarískum herafla — ef nauðsyn krefur — til þess að tryggja
öryggi Formósa og Pescadoreseyja. „Til þess að tryggja f;iðinn,“
sagði Eisenhower, — verða Bandaríkin að vera reiðubúin til þess
að grípa til vopna ef nauðsyn krefur og verndun Formósaeyja er
þýðingarmikil til tryggingar heimsfriðnum.
Forsetinn segir i boðskap sinum til þingsins, að hann hafi
sem æðsti ráðamaður hersins vald til þess að fyrirskipa
nokkrar þær aðgerðir, sem kunna að verða nauðsynlegar.
Segist hann — þangað til þingið hafi tekið sína ákvörðun í
málinu — ekki hika við að taka hverja þá neyðarákvörðun,
sem honum er heimil samkvæmt stjórnarskrá landsins tii
þess að vernda líf og öryggi Bandaríkjamanna.
* MANNTJÓN?
Enn er ekki vitað hvort
flóðin í París hafa orðið mönn-
um að bana. Frétt barst um
það, að 20 manns hefðu
drukknað, en hún var borin
til baka og sagt um leið (óstað-
fest af yfirvöldum) að tala
látinna væri ekki hærri en 6.
UMFERÐARTEPPA
í dag varð umferð enn erfið-
ari er loka varð tveim brúm yfir
Signu til viðbótar þeim tveim er
áður hafði verið lokað.
<JT UM SVEITIR
Víða í nánd við París hafa
flóðin hrakið fólk að heiman og
Framh. á bls. 2
16 létn lílið
LONDON, 24. jan.: — í gærkvöldi
varð í Bretlandi mikið járnbraut-
arslys. Hafa um 100 kolanámu-
menn við Birmingham unnið að
því næturlangt að bjarga fólki úr
járn- og stálhrúgunni sem lestin
breyttist í. T*ala látinna er nú
komin upp í 16 en yfir 40 manns
hlutu sár — meiri eða minni.
Réttarhöld
— í laumill
í BELGRAD hafa hafizt réttar-
höld yfir tveim fyrrverandi for-
ingjum kommúnistaflokksins þar
— þeim Djilas og Dedijer. Þeir
eru sakaðir um landráð með því
að gagnrýna stjórn landsinss og
„flokkinn“ í erlendum blöðum.
Erlendum blaðamönnum var
ekki veittur aðgangur að réttar-
salnum. Ekkert var tilkynnt um
réttarhöldin fyrirfram og næst-
um allir landsmenn voru þess ó-
afvitandi, að mestu politísku rétt
arhöldin sem fram hafa farið í
Iandinu árum saman, voru hafin.
Fara nú réttarhöldin fram með
mikilli Ieynd.
Einsenhower segir, að hver sú
heimild, sem þingið myndi veita
honum myndi aðeins notuð, ef
,Við frelsum
Formosu'
... segir Chou-En-Lai
Forsætisráðherra Kína, Chou-
En-Lai, hefur staðfest fyrri
umæli sín að Formósa sé óað-
skiljanlegur hluti kínverska
alþýðulýðveldisins“. — Sagði
hann í útvarpsræðu, að stjórn
„alþýðulýðveldisins“ og íbúar
þess væru staðráðnir á að
„frelsa“ Formosa. Hið spennta
ástand þar eystra væri alger-
lega sök Bandaríkjanna sem
hefðu staðið fyrir „samsæri“
er miðaði að því að koma á
vopnahléi milli Formósa og
Kína með aðstoð Sameinuðu
þjóðanna. Hann kvað Banda-
ríkin engan rétt hafa til þess
að blanda sér í málefni Kina.
Stjórn sín, hélt Chou-En-Lai
áfram, gæti ekki virt viðlits
„svokallað vopnahlé“ við
„svikarann“ Shiang Kai Shek.
Ilættusvæðið í Austur-Asíu
Bcðskap Eisenhowers
er fasnað í Lundúnum
c
Hýjar kosnii
FORSÆTISRAÐHERRA Japans
hefur leyst upp neðri deild jap-
anska þingsins. Er búist við að
tilkynning um það hvenær efnt
verði til nýrra kosninga ’ verði
bráðlega gefin út.
^ cn illa tekið í Formosu
Lundúnum 24. jan. — Frá Reuter-NTB.
OÐSKAP Eisenhowers til Bandaríkjaþings um valdaheimild til
að beita her við Formosu hefur fengið góðar undirtektir í
Lundúnum. Er þar látin í ljósi skoðun um að Bretland og Nýja
Sjáland muni dyggilega styðja þessa afstöðu Bandaríkjamanna, sem
túlkuð er sem aðferð til að knýja fram vopnahlé milli þjóðernis-
sinna á Formosu og kínversku kommúnistastjórnarinnar.
Er því einnig fagnað að
„varnarskuldbinding“ Bandaríkj -
anna skuli bundin við Formosu
og Pescedoreseyjar aðeins, því
ella hefði mátt gefa upp vonir
um vopnahlé.
í Lundúnum hafa menn þó
litla trú á því að kommúnista- (
stjórnin hætti vígerjum á For-
mosasundi, einkum eftir að út
bárust ummæli Chou-En-Lai, þau
sem hér að ofan eru birt. )
Framh. á bls. 2 1
augljóst væri að árás á Formósa
eða Pescedoreseyjar væri í und-
irbúningi eða ef slík árás væri
hafin.
Hann sagði að ýmislegt það
gerðist nú á sundinu milli
Formósa og meginlands Kína,
sem ógnaði heimsfriðnum.
Talaði hann um árásarógnun
af hendi kemmúnistastjórnar-
innar á meginlandinu og sagði
að sú stjórn hefði lýst því yfir.
að takmark hennar væri að ná
formósu á sitt vald.
Forseíinn kvað það skoðun
sína, að Sámeinuðu þjóðirnar
ættu að reyna að beita áhrif-
um sinum til þess að vígerjum
yrði hætt við Formósa.
En á meðan svo væri ekki
gert, þá væri það hans skoðun,
að ástandið væri svo alvarlegt,
að hann teldi nauðsyn til þesa
bera að þiðja þingið um áður-
nefnda valdaheimild sér til
handa, cí þr.3 mætti verða til
þess að tryggja friðinn i heim-
7. flofinn
reiðubúinn
FYRR í dag hafði varaaðmíráll
Pride, yfirmaður 7. flotans banda
ríska rætt við blaðamenn á skipi
sínu, sem nú liggur í höfn á For-
mosu, cn hann hefur að undan-
förnu rætt við valdamenn á For-
mosu.
Á blaðamannafundinum sagði
Pride flotaforingi, að floti hans
gæti með mjög skömmum fyrir-
vara verndað flutninga fólks frá
Tacheneyjaklasanum, fengi hann
skipun'um það frá Washington.
Ef kínverska kommúnistastjórn-
in reyndi að hindra þá aðstoð,
yrði hún að horfast í augu við
þann vanda að með því yrði hún
til þess að hefja styrjöld.
Tachen-eyjar eru undan meg-
inlandsströndinni — um 320 km.
norðvestur af Formosa. Hafa þjóð
ernissinnar ráðið þeim eyjaklasa,
en þær hafa orðið fyrir hörðum
loftárásum Kínakomma og nú á
dögunum tóku þeir eina þeirra
með leifturinnrás.
Bafsdarikin slá sksidi yiir Formosu og
Pescedoreseyjar