Morgunblaðið - 08.02.1955, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8. febrúar 1955
MORGVWBLAÐIÐ
7
Þjódleikhúsið:
FÆDD
I GÆR
gamanleikur
Eftir Carson tiarin
FRUMSÝNING á gamanleikn-
um „Fædd í gær, eftir banda-
ríska rithöfundinn Garson Kanin,
fór fram í Þjóðleikhúsinu s.l.
laugardagskvöld.
Höfundur leiksins er enn á
bezta aldri, fæddur 1912. Gaf
hann sig um nokkurra ára skeið
að leiklist, en snéri sér síðar að
kvikmyndagerð og stjórn kvik-
mynda, en jafnframt tók hann, í
samvinnu við konu sína, að
semja leikrit. Kunnast allra leik-
rita hans mun vera gamanleikur-
inn „Fædd í gær“, en hann var
frumsýndur í New York á önd-
verðu ári 1946 og hlaut hinar
ágætustu viðtökur. Síðan hefur
leikurinn verið sýndur viða um
heim og hvarvetna hlotið mikla
hylli áhorfenda. Leikurinn hefur
verið kvikmyndaður og var
myndin sýnd hér fyrir skömmu.
„Fædd í . gær“ er fyrst og
fremst gamanleikur, en jafn-
framt vægðarlaus ádeila á fjár-
málalífið í Bandaríkj unum og
stjórnmálaspillinguna þar, eins
og hún kemur höfundinum fyrir
sjónir. — Þó lætur höfundurinn
orð að því liggja að í þessu efni
hafi mjög breytzt til batnaðar í
Bandaríkjunum á síðari tímum
og að fjárglæframenn eigi þar
ekki jafn hægt um vik sem áður
var. Dollarinn sé þar ekki lengur
allsráðandi, en áhrifa nýrra og
heilbrigðari sjónarmiða gæti þar
í æ ríkara mæli. — Og átökin í
leiknum standa á milli dollara-
valdsins og hins heilbrigða lífs-
viðhorfs, er hrósar fullum sigri
að lokum.
Leikstjórn Indriða Waage og
sviðsetning er með miklum
ágætum. Ber þar allt vitni ör-
uggrar smekkvísi hans og ná-
kvæmni, enda hefur honum,
ásamt Lárusi Ingólfssyni, er rá’ð-
ið hefur búningum og gert leik-
tjöldin, tekizt að búa leiknum
það umhverfi, er honum hæfir
og skapa honum hið rétta and-
rúmsloft. Þá er og bersýnilegt að
leikurinn hefur verið æfður af
kostgæfni því að allt gengur þar
fram með góðum og eðlilegum
hraða og staðsetningar eru hinar
prýðilgustu.
Valur Gíslason fer með aðal-
hlutverk leiksins, Harry Brock,
hinn ófyrirleitna og menningar-
snauða fjárplógsmann og brask-
ara, sem haldinn er blindri trú á
mátt dollarans og sitt eigið ágæti.
Hlutverkið er mikið og erfitt
og jafnframt bráðskemmti-
legt ef vel er með það farið. Og
það gerir Valur. Leikur hans er
afbragðs góður og gerfið gott.
Hefur hann af næmum skilningi
og ágætri kimni mótað þarna
minnisstæða persónu og með til-
burðum öllum og svipbrigðum
dregið upp skýra mynd og sann-
færandi af slíkri manngerð. Leik-
ur Vals í hlutverki þessu, sýnir
okkur enn einu sinni hversu frá-
bær og fjölhæfur leikari hann er.
Annað aðalhlutverkið, Billie
Dawn, hina ungu og fríðu lags-
konu Harry’s Brocks, leikur
Leiksfjóri: Indriði Waage
AthygUsverð frumraun
Þóru Friðriksdótfur
Biliie Dawn (Þóra Friðriksdóttir) og
(Benedikt Árnason)
Paul Verrall
Þéra Friðriksdóítir. — Þóra er að
heita má nýliði á leiksviðinu,
hefur aðeins farið með minni-
háttar hlutverk áður, enda ný-
lega lokið prófi við leikskóla
Þjóðleikhússins. Er þetta því
fyrsta veigamikla hlutverk henn-
ar og þar með frumraun (debut)
hennar á leiksviðinu. — Hlutverk
ið er hvort tveggja í senn, mikið
og vandasamt, ekki sízt fyrir það,
að Billie er frá hendi höfundar-
ins æði hæpin persóna, ósennileg
að mörgu leyti og ekki sjálfri
sér samkvæm. Virðist hún í upp-
hafi leiksins treggáfuð í frekara
lagi, enda „fædd í gær'“ þrátt
fyrir töluverða lífsreynslu, en
tekur ótrúlegum stakkaskiptum
i þessu efni, er á leikinn líður.
Vanþekking hennar í upphafi
leiksins nægir ekki ein til þess að
skýra þetta ósamræmi og Þóru
tókst ekki sem von er, að brúa
bilið þarna á milli á sannfærandi
og eðlilegan hátt, enda tókst
Judy Holiday ekki heldur að
leysa þá þraut í kvikmyndinni og
Harry Brock (Valur Gíslason), Eddie Brock (Klemenz Jónsson)
og Ed Devery (Rúrik Haraldsson)
hlaut hún þó Oscars-verðlaunin
fyrir leik sinn í þeirri mynd. 7n
hvað sem þessu liður, þá er leik-
ur Þóru hinn athyglisverðasti og
oft afbragðsgóður. Hún er glæsi-
ieg á ieiksviði, ber sig vel og hef-
ur góðar hreyfingar og framsögn
hennar er skýr og eðlileg. Hún |
skilur hlutverkið til hlítar, en er j
að mér finnst of ung og barnsleg ■
til þess að hún hæfi hlutverkinu i
fyllilega því að þess ber að gæta, I
að Billie er tuttugu og níu ára og !
hefur um mörg ár lifað því lífi, I
er hlýtur óhjákvæmilega að
marka sín spor í persónuleika |
hverrar konu. — Engu að siður
hefur Þóra leyst af hendi þessa !
frumraun sína á leiksviðinu með j
þeirri prýði, að engum getur dul-
izt, að hér er um mjög efnilega
leikkonu að ræða, er gefur hin ■
fegurstu fyrirheit.
Benedíkt Árnason fer með
hlutverk Paul Verrall’s, blaða-
mannsins, er verður leiðsögumað-
ur Billie um völundarhús þekk-
ingarinnar og síðar vinur hennar
og elskhugi. Hann er djarfur,
ungur hugsjónamaður, er berzt ó-
trauður gegn þeirri spillingu er
hvarvetna blasir við í þjóðlifinu,
og býður ölium hættum byrginn
er að honum steðja. — Ég verð
að játa, að ég varð fyrir miklum
vonbrigðum af Benedikt í hlut-
verki þessu, því að leikur hans
í hlutverki Morris Townsend í
Erfingjanum, er Leikfélagið
sýndi hér fyrir skömmu, bar þess
vitni að hann er gæddur góðri
leikgáíu. En í hlutverki Verrall’s
er Benedikt mjög utan gátta og
skortir þá innlífun er geri leik
hans einlægan og sannfærandi.
— Hin ytri tækni hans er í fuli-
komnu lagi, þó að rödd hans sé
nokkuð ábótavant, — en hjartað
var ekki með í lciknum. Vonandi
hrisstir þessi ungi og éfnilegi
Framh. á bls. 12
Happdrætti S.Í.B.S.
Kr. 50.000,00
541
Kr. 10.000,00
17610
Kr. 5.000,00
21612 24835 27205 40241
Kr. 1.000,00
467 1496 3643 18076 19506
21050 26003 28096 31078 31526
34348 35863 46503 47146
Kr. 500,00
549 5008 5976 11118 13280
13355 13789 14269 16092 16195
18061 26808 30331 36570 38837
Kr. 150,00
19 463 739 968 1013
1341 1355 1503 1628 1894
1951 2189 2258 2445 2457
2548 2577 2578 2594 2698
2883 2933 3053 3221 3267
3320 3448 3730 3806 3845
3954 3966 3970 4196 4500
4728 4826 4913 5011 5271
5318 5327 5372 5747 5774
5855 6262 6549 6667 7088
7328 7414 7429 7451 7585
7945 8029 8239 8435 8478
8505 8760 8903 9021 9035
9334 9468 9546 9858 9962
10223 10232 10302 10537 10722
10875 10896 10968 11081 11111
11336 11505 11522 11771 12074
12278 12792 13001 13112 13217
13370 13503 13536 13598 13622
13643 13756 14024 14200 14244
14595 14612 14850 16113 16153
16281 16372 16429 16493 16498
16704 16855 17039 17128 17282
17596 17845 18183 18237 18393
18498 18533 18552 18902 18935
19103 19107 19210 19227 19240
19395 19888 19504 19581 19783 19882
20050 20118 20466 20549 20673
21049 21362 21495 21558 21607
21652 21?82 21900 21985 22037
22098 22114 22149 22550 22775
22924 22996 23045 23060 23113
23295 23345 23594 23678 24249
24464 24745 24769 24794 24983
25167 25249 25404 25479 25666
25877 25997 26153 26159 26224
26232 26376 26411 26630 27099
27213 27249 27403 27521 27647
27908 27947 28400 28958 28964
29062 29066 29071 29304 29366
29553 29706 30391 30490 30526
30656 30680 30768 30818 30888
30999 31019 31112 31169 31199
31202 31308 31425 31695 31794
31826 32146 32151 32179 32302
32402 32491 32604 32672 32693
.32721 32847 32834 32972- 33055
33125 33236 33332 33341 33361
33551 33731 33810 34066 34068
34127 34180 34603 34649 34849
35024 35092 35170 35217 35485
35748 35792 35796 36425 36888
36956 37031 37532 37539 37606
37632 37746 38115 38478 38609
38629 38708 38993 39472 40428
40440 40447 40665 41112 41167
41297 41376 41540 41549 41569
41583 41711 41857 41999 42124
42279 42651 42720 42859 42954
43004 43079 43254 43431 43650
43770 43840 44051 44149 44153
44812 44847 44924 45071 45138
45162 45205 45516 45568 45697
45711 46315 46322 46327 46414
46546 46753 46811 46860 46866
47188 47202 47396 47442 47848
47933 48197 48324 48430 48618
48738 47771 48774 48780 48983
49040 49244 49404 49458 49534
49575 49732 49900 49958
(Birt án ábirgðar).
Hiís á Akranesi li! sö!u
Húsið Suðurgata 68, Akranesi, er til sölu, ásamt góðri
eignarlóð. — Tilboð óskast send fyrir 15. febrúar til
eigandans Friðriks Jónssonar, SuSurgötu 68, Akranesi,
sem gefur nánari upplýsingar.
Ungur vi5sk!ptafræðsngur
óskar eftir atvinnu nú þegar. — Tilboð merkt: „Áreiðan-
legur — 130“, sendist blaðinu fyrir II. þ. m.
Þessir vinsælu þýzku
heimiliskælLskápar
er nú komnir aftur.
Fást ineð afbrogunarskilmálum. Verð. kr. 4,950.00.
MJOSTRÆTI 3. — Símar 82187 og 82194