Morgunblaðið - 12.02.1955, Page 1
16 síður
42. árgangur
35. tbl. — Laugardagur 12. íebrúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flóðahcetta
á ný
PARÍS — íbúar Parísar horfast
nú aftur í augu við flóðahættu
og lítur all alvarlega út, því
Signa stígur jafnt og þétt. í Niort
hafa 800 manna verið fluttir frá
heimilum sínum og í Poitier hef-
ur vatnið náð til mörg hundruð
húsa.
Við Melun drukknaði 8 ára
gamall drengur í Yerres-fljót-
inu, en það hefur flætt yfir
bakka sína.
' I Sviss hafa skriðuföll eyði-
iag járnbrautarlínur milli Frakk
lands, Sviss og Ítalíu. Hafa mörg
þorp einangrast í Ölpunum.
LÍNU-MYNDIN
Heybar y!ir
Tacheaeyjam
TEIPEH, 11. febrúar — Brott-
flutningi herliðs frá Tachen-
eyjum er haldið áfram, en flutn-
ingarnir hafa torveldast vegna
þess að stormur og ósjór gerir
herflutningaprömmunum erfitt
um að lenda á ströndum eyj-
anna. Bandarískir og kínverskir
hermenn eyðileggja allar þær
byggingar og þau mannvirki sem
vera kynni að kæmu meginlands
kínverjum að notum.
Að degi til sjást háir reykjar
strókar stíga til himins frá
Tacheneyjum. Það er reykur af
brennandi húsum og öðrum
mannvirkjum.
Á brott frá Tacheneyjum hafa
allir borgarar verið fluttir og
mikill hluti alls herafla.
18 þús. borpra fluttir
TAIPEH, 10. febr. — Lokið er
brottflutningi allra borgara af
Tachen-eyjum, og búizt er við,
að lokið verði brottflutningi her-
liðs þjóðernissinna eftir tvo daga.
18 þús. borgarar hafa verið flutt-
ir burtu af eyjunum. Líklegt er
talið, að hermenn kínverska al-
þýðulýðveldisins hernemi eyja-
klasann, undir eins og þjóðernis-
sinnar hafa yfirgefið þær. —
Peking endurskipu-
leggur her sinn
PEKING, 10. febrúar — Stjórn
kínverska alþýðulýðveldisins
hefir ákveðið að endurskipu-
leggja her sinn. Er þetta þáttur
í viðleitni til að koma á fót her-
sem er meir í samræmi við kröf-
ur nútímans, svo að hann verði
sambærilegur við her Ráðstjórn-
arríkjanna og annarra landa. —
Verða gerðar auknar kröfur til
yfirmanna í hernum og komið
á laggirnar fleiri herskólum.
Frakkland:
Maðurinn með skrítna
nafnið....
— reynir stjórnarmyndun en fœr
daufar undirfekfir
París 11. febr. — Frá-Reuter-NTB.
STJÓRNARKREPPAN í Frakklandi virðist ætla að vera tor-
leystari en búizt var við í fyrstu. Eins og kunnugt er var Pinay
leiðtoga flokks óháðra hægrimanna falið að gera tilraun til stjórn-
armyndunar fyrstum manna, en hann fékk daufar undirtektir og
gafst upp. Fól þá forseti Frakklands Pflimin úr kaþólska flokkn-
um að reyna að mynda stjórn.
---------------------DREKKUR EKKI ÁFENGI
Pflimin er nú þegar þekktur í
fréttum undir nafninu „maður-
inn með skrítna nafnið“. Hann
var áður lítt kunnur út á við í
stjórnmálum, en til gamans má
geta þess, að ýmislegt er líkt
með honum og Mendes-France.
Pflimin er 4 vikum yngri en
Mendes-France og þeir eiga það
sameiginlegt, að hvorugur drekk-
ur áfengi. Myndir birtast nú í
frönskum blöðum af Pflimin með
vatnsglas í hönd — en allir muna
hina frægu mvnd af Mendes-
France með mjólkurglasið.
Amerísh flugvél
skotin niður
við Tnchen
Að vonum kom það mjög á óvart, þegar „æðsta ráð“ Sovétríkj-
anna setti forsætisráðherra sinn frá embætti á 4 mínútum — en
þann tíma tók að lesa upp ásökunarbréf Malenkovs á hendur sjálf-
um sér og að samþykkja „lausnarbeiðni" hans. Þetta kom svo á
óvart, að rússnesk blöð, hverra ritstjórar eru undir stöðugu eftirliti,
treystu sér ekki til að taka ákvörðun á eigin spýtur og báðu um
fyrirskipanir. Þær voru birtar í Moskvuútvarpinu og voru á þá
leið að eina myndin á forsíðunni ætti að vera af Molotof og sýna
hann í ræðustól, þar sem hann flytti „æðsta ráðinu“ yfirlit um
utanrikismál og boðaði stærri her! meiri vopn! meiri hörku! —
Hér að ofan birtist myndin sem í skyndi var gerð og birt í öilum
rússneskum blöðum.
TAIPEH, 9. febrúar — Fyrsti
áreksturinn í sambandi við brott-
flutning eyjaskeggja frá Tachen,
varð í dag. Amerísk flugvél varð
fyrir skoti úr loftvarnabyssu og
varð að lenda á sjó. Eftirlitsskip
þjóðernissinna bjargaði flugmönn
unum. Önnur flugvél varð fyrir
kúlnabrotum.
Opinberlega er upplýst í
Bandaríkjunum að flugvélin, sem
skotin var niður, hafi verið á
rangri leið og er siglingafræð-
ingnum í flugvélinni um kennt,
en að hin hafi komist innan skot-
máls loftvarnabyssa á einni af
smáeyjum kommúnista.
Búið er að flytja nær alla
óbreytta borgara frá Pachen, eða
þá sem þaðan vilja fara, og
fyrstu hermennirnir frá Tachen-
eyjum eru þegar komnir til
Formósu. —Reuter.
□-
-□
Nytt vald í Kreml
„ráð hinna eldri44
Upplýsingar er Krushthev gaf í rœðu sinni
Lundúnum (Reuter).
RJÚ orð er mælt voru af ritara rússneska kommúnistaflokksins,
Krushchev, gefa nokkra vísbendingu um að með falli Malen-
kovs verði framkvæmd víðtæk endurskipulagning stjórnarhátta
og fyrir dyrum standi tiltölulega „sársaukalausar“
Þ
j þar eystra
x.hreinsanir.
Sex dómarar æðsta
dómsins hreinsoðir
SEX mönnum er sæti áttu í æðsta dómstól Sovétríkjanna hefur
verið vikið úr dómnum. Var þeim tilkynnt bréflega, að „þeir
hefðu verið leystir frá störfum". Jafnframt var tilkynnt að 7 nýir
menn hefðu verið skipaðir til starfa í dómnum. Engin ástæða var
tilgreind fyrir hreinsun þessari.
f dómstólnum hafa verið yfir
70 menn. Þeir, sem nú sitja í
dómnum, voru „KOSNIR" 1951
og þá til fimm ára setu þar. Nú
er valdabaráttan blossar skyndi-
lega upp, eru dómararnir „hreins-
aðir“ og aðrir — vonandi trygg-
ari — settir í staðinn.
í þessum þremur orðum sín-
um gaf Krushchev til kynna að
í Kreml væri nú komið nýtt vald
og virtist svo sem að nafn þess
gefi til kynna að Molotof sé með
í ráðum um stofnun þess Krus-
hchev sagði í ræðu, er hann flutti
hinn sögulega dag er Malenkov
féll, að honum hefði verið falið
af „rússneska kommúnistaflokkn
um og RÁÐI HINNA ELDRI“,
að tilnefna Bulganin sem eftir-
mann Malenkovs.
* EKKI NÁNARI UMMÆLI
„Ráð hinna eldri“ — þrjú orð,
sem afhjúpa tilveru valds, sem
! erlendir sérfræðingar í Rúss-
Fi-amh. á bls. 12
300 millj.
eru ólœsar
LUNDÚNUM — Aðeins sjötti
hluti íbúa Indlands — sem sam-
tals teljast 360 milljónir — eru
læsir og skrifandi. Kemur þetta
fram af nýjum skýrslum sem út
komu á dögunum.
í skýrslunum segir og að lestr-
arkunnátta sé þrisvar sinnum al-
gfengari meðal indverskra karla
en meðal kvenna. Er þessi litla
lestrarkunnátta þjóðarinnar eitt
mesta vandamál ríkisstjórnar-
innar. Er nú undirbúin „herferð"
til þess að auka á lestrarkunn-
áttu og fá fólk til að lesa blöð
og hlusta á útvarp. Blöð þessa
fjölmenna tands koma út í rúml.
2 millj. eintaka samtals og í land-
inu eru ekki ein milljón útvarps-
tækja.
★ FEKK NEITUN
En Pflimin gengur ekki rósum
stráða braut að stjórnarmvndum.
Hann leitaði hófanna hjá sósíal-
istum, en leiðtogi þeirra, Pinot,
sagði að flokksbræður sínir
hörmuðu fall Mendes-France og
þeir mundu aldrei ganga í stjórn,
sem tæki upp aðra stefnu í N-
Afríkumálum. Og svo bætti Pinot
við: „Við sósíalistar förum held-
ur aldrei í stjórn undir forystu
Pflimins".
★ OG VONIRNAR ÞÁ
ORÐNAR LITLAR
Þar með eru vonir mannsins
með skrítna nafnið um að
mynda stjórn orðnar litlar — eða
kannski engar.
Zukov ti!
□-
-□
6,9 miilj.
hi síldar
BERGEN, 11. febrúar — Heild-
arsíldveiðiafli Norðmanna af
svokallaðri stórsíld var á mið-
nætti á fimmtudag orðinn 6,9
millj. hektolítra. Verðmæti þess
afla óunnins nemur rúml. 136
millj. n. kr.
j Aflinn á fimmtudaginn nam
tæpum 213 þús. hektólítrum.
k •—NTB.
• WASHINGTON, 10. febr. —
Heldur lítil líkindi eru talin til
þess, að hinn nýi landvarnamála-
ráðherra Ráðstjórnarríkjanna,
Zhukov, komi í heimsókn til
Bandaríkjanna á næstunni. — Á
blaðamannafundi á miðvikudag
sagði Eisenhower, að ef til vill
myndi hann bjóða Zhukov aftur
til Bandaríkjanna. Áður hafði
Eisenhower boðið Zhukov tii
Bandaríkjanna árið 1946.
0 Eisenhower og ráðgjafar
hans íhuga nú málið. Skömmu
áður en Zhukov var skipaður
landvarnamálaráðherra, tjáði
hann bandarískum blaðamanni,
að hann hefði alltaf langað til að
koma til Bandaríkjanna, en enn-
þá væri sú rétta stund ekki runn-
in upp. — Reuter-NTB.
Tíló komisin heim
ur
BELGRAD, 10. febrúar — Tító
marskálkur kom í morgun heim
til Júgóslavíu úr för sinni um
Austur-Asiu. Hefir Tító verið
þar í opinberri heimsókn
til ýmsra landa síðan í lok
nóvember.
—Reuter-NTB.