Morgunblaðið - 18.02.1955, Side 1
42. árgangur
40. tbl. — Föstudagur 18. febrúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Kaupskipin héldu úr höfn
- Vestmannaeying-
i gœr
■ ar
ófu róðra
Þýzkaland:
Shmir'mn í rúmensku sendiráSunum:
War konan noydd
i£i fflð mæla gegn
viija sínum
Danir óska cð rúmenski sendihe'rrann
Samkomlag náðist milli
deiiuaðila # fyrrinótt
KLUKKAN rúmlega 5 í fyrrinótt voru undirritaðir samn-
ingar milli útgerða kaupskipaflotans annarsvegar og
matreiðslu- og framreiðslumanna á skipunum hinsvegar.
Hafði Torfi Hjartarson sáttasemjari ríkisins forgöngu um
sáttaumleitanir í deilunni. Tveimur klst. áður hafði sam-
komulag náðst í deilu sjómannafélagsins Jötuns og Vél-
stjórafélags Vestmannaeyja annarsvegar og Útvegsbænda-
félags Vestmannaeyja hinsvegar. Rétt eftir hádegi í gær
samþykktu svo Útvegsbændafélagið í Eyjum og sjómanna-
félögin þar samkomulag það, sem fulltrúar félaganna höfðu
gert með sér um nóttina.
SKIP HALDA ÚR HÖFN —
BÁTAR HEFJA RÓÐRA
í gær lauk þannig um það bil mánaðar verkfalli á
kaupskipaflotanum og rúmlega hálfs annars mánaðar
róðrarstöðvun í Vestmannaeyjum. Hér í Reykjavík
hélt meginhluti kaupskipaflotans þegar úr höfn, enda
var vöruskortur tekinn að sverfa að ýmsum byggðar-
lögum út um land. í Vestmannaeyjum voru skips-
hafnir flestra vélbátanna byrjaðar að beita lóðir sínar
síðdegis í gær, enda útlit fyrir gott sjóveður.
SAMNINGAR MATREBDSLU-
OG FRAMREIÐSLUMANNA
Aðalatriðið í breytingum þeim,
sem gerðar eru með hinu nýja I
samkomulagi gagnvart mat-
reiðslumönnum eru þessi:
1. Viðurkenndur er 8 klst. vinnu-
tími í stað 9 klst. áður. En
um það atriði hafði ekki verið
mikill ágreiningur.
2. Grunnkaupshækkanir. Grunn-
kaup yfirmatreiðslumanna
hækkar úr kr. 2.325.00 á mán-
uði í kr. 2.475.00 á mánuði.
Aðrar matreiðslumenn fá
hækkun úr kr. 1.875.00 í kr.
2.075.00 á mánuði.
Búrmenn höfðu kr. 1.950.00
í grunnlaun á mánuði en fá
nú kr. 2.125.00.
Ein höíuokrafa þeirra í
deilunni var að fá tryggingu
fyrir greiðslu 30 stunda yfir-
vinnukaups á mánuði, án til-
lits til þoss hvort þeir ynnu
svo mikla yfirvinnu. Sú krafa
náði ekki fram að ganga.
3. Samningur þessi gildir til 1.
júní 1956.
4. Þá fá bæði matreiðslu- og
framreiðslumenn 4 frídaga í
mánuði.
Framh. á bls. 9
40 gráSu
irost
GLASGOW, 17. febrúar. Geisi
mikill snjóstormur gekk yfir
norður- og vcsturhluta Skot-
lands í dag og allar samgöngu
leiðir til suðurs eru lokaðar og
lestir og bílar standa fastar
í snjónum. Á stöku stað er
ástandið verra en það var
verst í snjóstormunum í jan-
úar, er stórir landshlutar ein-
angruðust og flytja varð vistir
með þyrilvængjum og flug-
vélum.
Er nú allt gert til þess að að-
stoða fólk er á við erfiðleika
að búa í köldum húsum og i
þorpum, þar sem matarbirgðir
cru litlai.
í Ivalo í Norður-Finnlandi
mældist aðfaranótt fimmtu-
dags 40 gráðu frost. Annars
staðar i Finnlandi norðan til
er frostið milli 30 og 40 gráð-
ur. Syðsi í landinu er frost
einnig yfir 20 stig.
Raunasaga brúðgumans
LUNDÚNUM, 17.
febr. — 25 ára -gam
all Englendingur
varð í daggegnvilja
sínum að fara með
norsku skipi frá
Middelsbrough til
Stavanger. — Kom
þetta sér því ver
fyrir manninn, þar
sem brúðkaup hans
átti að haldast 48
klst. síðar.
Þessi óheppni brúð
gumi starfar sem
hafnsögumaður í
Middelsbrough. —
Fékk hann í morg-
un skipun um að
sigla norsku skipi
frá Bergen úr höfn
en skipið átti að
halda til Stavanger.
Er úr höfn kom og
út á Norðursjóinn
leyfðu veðurguðirn-
ir ekki að hafsögu-
maðurinn færi frá
borði og var hafn-
sögumaðurinn því
neyddur til að fara
með skipinu til Nor
egs.
Heima í Middels-
brough situr nú
hans 21 ára gamla
heitmey. Allt er til-
búið til brúðkaups,
en brúðguminn fjar-
lægist staðinn stöð-
ugt, gegn vilja sín-
um. Vonandi kemur
hann aftur til Midd-
elsbrough með
fyrstu skipsferð. En
þó svo, verður um
ófyrirsjáanlegan
tíma að fresta hin-
um miklu hátíða-
höldum. — NTB.
Saar samnmgur
sariiþykktnr
verði kvaddur heim fyrir „mannrán
og móðganir"
BONN 17. febr. — Utanríkisnefnd
Vestur-þýzka þingsins í Bonn,
samþykkti i dag :neð 16 atkv.
gegn 13, samninginn :nilii Frakk
lands og Þýzkaiands um Saar.
Þar með hafa nefndir þingsins
lokið við afgreiðslu allra samn-
inganna, er heyra undir r.amheit-
ið Parísarsamningar. Koma þeir
nú fyrir bingdeildina.
NTB-Reuter.
KAUPMANNAHÖFN, 17. febr. — frá fréttaritara Mbl.
EXTRABLADET" danska segir í dag að danska utanríkismála-
ráðuneytið muni sendi rúmensku stjórninni skarporð mót-
mæli vegna ásakana rúmenska sendiherrans í Kaupmannahöfn á
hendur dönsku lögreglunni.
„GLÆPAMANNS-
AÐFERÐIR"
Viðhafði sendiherrann þau
ummæli opinberlega, að
danska lögreglan hafi haft í
Ófeigur III., undir íslenzkum fána að lokinni reynsluför í Hollandi.
— Á blaðsíðu 16 er frásögn af komu bátsins til Vestmannaeyja, en
þangað kom hann í gær.
frammi „glæpamannsaðferð-
ir“ í máli bílstjórahjónanna
við sendiráðið, en bílstjórinn
hefur beðið hælis sem pólitísk-
ur flóttamaður, sem kunnugt
er af fréttum. Vegna þessara
ummæla sendiherrans, segir
„Extrabladet" að danska
stjórnin muni æskja að hann
verði kallaður heim fyrir
ókurteislega og óviðeigandi
framkomu og grófar ásakanir
í garð lögreglunnar.
FORSAGAN
Eins og menn muna, hugðist
bílstjórinn rúmenski hitta konu
sína að máli er hann var flú-
inn. Mælti hann sér mót við hana
á ákveðnum stað og þangað kom
bíll rúmensku sendisveitarinnar
— en ekki í þvi skyni að aka
bílstjórafrúnni til fundar við
mann sinn, heldur til þess að
reyna að ná í bílstjórann aftur.
Segir danska lögreglan að þarna
hafi sendiherrann komið illa
fram og gert sig sekan um
„mannrán". Fór utanríkisráðu-
neytið danska fram á það við
sendiherrann að hann léti þau
hjónakornin hittast á hlutlausum
stað og þar fengi frúin að kjósa
um það hvort hún fylgdi manni
sínum á flóttanum, eða færi heim
til Rúmeníu.
Verður Pineau forsœtis
ráðherra nr. 21
Stjórn hans spáð engum! eða
m'jög stuttum stjórnarterli
PARÍS, 17. febr. — frá NTB-Reuter.
IKVÖLD lagði sósíalistinn Pineau ráðherralista sinn fyrir Coty
Frakklandsforseta, eftir að hann með mikilli fyrirhöfn hafði
yfirstígið alla erfiðleika við það að fylla alla ráðherrastólana og
mynda þannig 21. ríkisstjórnina frá stríðslokum.
Þó er ekki séð fyrir enda^
erfiðleikanna. Á morgun mæt-
ir Pineau í þinginu og biður
um traust. Stjórnmálafrétta-
ritarar eru á þeirri skoðun að
heldur séu likurnar litlar fyr-
ir því að Pineau fái traust.
Og allir eru þeir vissir um
það, að fái hann traust á morg
un — muni stjórn hans lifa
stutt — kannski aðeins að þar
næstu atkvæðagreiðslu.
SKIPTU UM SKOÐUN!
Pineau var tilbúinn með ráð-
herralista sinn í morgun, en þá
hringdu í hann tveir Gaullistar,
sem lofað höfðu að taka sæti í
stjórninni, og tilkynntu að þeir
hefðu skipt um skoðun!!
Það eru fjórir flokkar sem
standa að ríkisstjórn Pineaus en
þeir hafa samanlagt ekki helm-
ing þingsæta í þinginu.
Gott er að haía
góða trú
NÝJU DEHLI, 17. febr.: — Nehru
forsætisráðherra Indlands hefur
látið svo um mælt að Indland
muni, ef nauðsyn krefur, reyna
með öllum ráðum að koma á
sættum í Formósudeilunni Sagði
Nehru þetta er hann kom heim
til Dehli frá ráðstefnu samveldis-
landanna í Lundúnum.
Nehru kvað ástandið á For-
mósusvæðinu alvarlegt og bætti
því við, að það væri ekki trú sín
að átökin á milli meginlands Kín-
verja og þjóðernissinna mundu
breiðast út. — Reuter-NTB.
„JÁTNING
FRÚARINNAR"
Þess í stað lét ser.diherrann
frúna ræða við blaðamenn —
en hann sjálfur og menn hans
voru v'ðstaddir samtalið.
Segja blöðin dönsku, að konan
hafi bersýnilega verið neydd
til að segja: „Ég hefði getað
drepið manninn minn fyrir að
flýja. Ég vil fara heim.“
Dómsmálaráðherrann hefur til-
kynnt að allar líkur séu á því,
að bílstjórinn rúmenski fái hæli
sem flóttamaður í Danmörku.
— Páll.
★
Húsrœningj-
arnir kyrrir
BERN 17. 'ebr.— Svissnesk yfir-
völd hafa neitað að framselja
rúmensku flóttamennina fjóra,
sem hertóku sendiráðsbústað
Rúmena í Bern og héldu húsinu
í sólarhring. Hefur Rúmeníu-
stjórn heimtað menn þessa fram
selda. Svisslendingarnir neita á
þeim forsendum, að engar for-
sendur sé hægt að finna fyrir því,
að mennirnir yrðu afhentir.
NTB-Reuter.