Morgunblaðið - 20.02.1955, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók
42. árgangur
42. fbl. — Sunnudarur 20. febrúar 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsiiu
* HUNUCMA, Mexíkó4 — Fjórt-
án manns fórust og 165 meiddust
alvarlega, þegar nautaatshring-
leikahús hrundi s.l. mánudag hér
í borg. Mikil aðsókn var að nauta-
ati þessu, og er það álitin ein
ástæðan fyrir hruni leikhússins.
-Jc Flestir hinna meiddu og látnu
eru konur og börn, sem tróðust
undir í því ofboði, er greip fólk-
ið. Meðan fólkið þvrptist út úr
hrjngleikahúsinu hrundi stein-
veggur yfir útganginn. Nokkrir
fórust undir steinveggnum.
■jc Óttast er, að fleiri fórnardýr
sé að finna undir rústum hring-
leikahússins.
Cmesither og
Attlee um liervæð-
mgu
a
★ PARÍS 19. febr. Gruenth-
er yfirmaður herafla Atlants-
hafsbandalagsins sagðist í dag
vera vongóður um að samn-
ingurinn um þátttöku Þjóð-
verja í Evrópubandalaginu og
hervæðing þeirra myndi ná
fram að ganga þrátt fyrir
þann drátt og annað mótlæti,
sem orðið hefur á samþykkt
samniganna. —Reuter.
★ LONDON 19. febr. Attlee
foringi brezka verkamanna-
flokksins sagði í ræðu á flokks
þingi, sem haldið var í New-
castle on Tyne, að það væri
fráleitt að ímynda sér, að
Þýzkaland gæti verið alger-
lega hlutlaust og vopnlaust
svæði í mið Evrópu. Af slíku
fyrirkomulagi myndi leiða
stórkostlega hættu fyrir frið-
inn í heiminum. Hlutlaust og
vopniaust Þýzkaland á mörk-
um austurs og vesturs, yrði
ógnvænleg púðurtunna.
■Jc TAIPEH, Formósa, 19. febr.:
— Þjóðernissinnar tilkynntu í
dag, að flugvélar þeirra hefðu
sökkta 15 skipum kommúnista úti
fyrir strönd Rauða Kína og fimm
f nágrenni við Tachen-eyjar. Hafa
þeir þá sökkt alls 40 skipum
kommúnista s.l. tvo daga. Telja
þjóðernissinnar, að flest þessara
skipa séu herflutningaskip, og
hafi herlið verið um borð í flest-
um þeirra. Talið er, að flestir
hermannanna hafi drukknað.
Markmið Mnnila-sáttmálans — varnir og
viðreisn A.-Asíu ríkja
Faure falin tilraun
til
PARÍS, 19. febr. — Reuter-NTB
^ Edgar Faure lir flokki rót-
tækra hefir verið falið að reyna
að mynda stjórn í Frakklandi.
Rene Coty, forseti Frakklands,
kallaði Faure á sinn fund eftir
að hafa átt daglangar viðræður
við forustumenn flokkanna. —
Ræddust þeir við í samfleytt
tvær klukkustundir um stjórn-
málaviðhorfið í Frakklandi.
^ Faure er sá fjórði í röðinni,
sem falið er að reyna að mynda
stjórn, síðan stjórn Mendes-
France var steypt fyrir tveim
vikum síðan. Þrír menn úr hægri,
mið- og vinstri flokkum hafa
þegar gert tilraun til stjórnar-
myndunar, þeir Antoine Pinay
úr flokki íhaldsmanna, Pierre
Pflimlin úr kaþólska flokkn-
um og Christian Pineau úr
flokki jafnaðarmanna.
^ Engum þeirra hefir tekizt að
binda endi á 2C. stjórnarkrepp-
una í Frakklandi síðan styrjöld-
inni lauk. Pineau einum tókst að
komast svo langt að leita trausts
þingsins, en ráðherralisti hans
var felldur með 312 atkvæðum
gegn 268 í morgun.
^ Edgar Faure er 46 ára að
aldri og hefir haft ráðherraem-
bætti á hendi samfleytt síðan
1953, sem fjármálaráðherra í
Bandaríkin hjálpa Rnssum
Washingíon 19. febr. Einkaskeyti frá Reuter.
Eisenhower, forseti Bandaríkjanna, hefur
sent Bulganin forsætisráðherra Rússa bréf,
þar sem hann býður fram aðstoð Banda-
ríkjanna, vegna matvælaskortsins í Rúss-
landi, sem ráðamenn þar hafa mikið kvart-
að yfir.
Býðst Eisenhower til að senda Rússum
mikið magn af hveiti.
stjórn Jósefs Laniel. Síðan gegndi
hann sama embætti í stjórn
Mendes-France og varð utanrík-
isráðherra í stjórn hans 20. jan.
s. 1. —
r Faure hefir verið forsætis-
ráðherra áður. í janúar 1952,
eftxr fall stjórnar Rene Plev-
Eden: Tilgangur A.-Asiu bandalagsins
er að Jb/oð/V Austur-Asiu geti unnið
að auknum framförum i friði
E1
LONDON, 19. febr.
í dag flugleiðis til Bang-
D E N, utanríkisráðherra Breta, fór
kok til að sitja ráðstefnu aðildarikja A.-Asíu varnarbandalags-
ins. Er þetta fyrsta ráðstefna Manila-ríkjanna svokölluðu, og
ens, myndc'íV Faure sex flokka hefst hún n’ k’ mWvikudag.
samsteypustjórn. Stjórn hans ’ A viðtali við fréttamenn lagði Eden áherzlu á, að Manila-
sat við völd aðeins í fimm vik- sáttmálinn væri fyrst og fremst varnarbandalag, er engri þjóð
ur. Hann gegndi þá samtímis stafaði hætta af. Markmið bandalagsins væri að tryggja öryggi
embætti forsætisráðherra og A.-Asíu ríkjanna, svo að þjóðir þessar gætu unnið að aukinni
fjármálaráðherra. Stjórn hans velmegun landa sinna í friði og leyst vandamál þau, er þær eiga
var felld vegna frv. til fjárlaga við að stríða á þann hátt, sem þeim bezt lízt — með aðstoð vest-
rænna þjóða.
um aukna skatta.
T Faure tjáði fréttamönnum,
að hann myndi flýta cftir íöng-
um viðræðum sínum við forustu I
menn stjómmálaflokkanna til að
geta tjáð Frakklandsforseta sem
fyrst, hvort hann treysti sér til
★ SATTMALINN GEKK FORM-
LEGA í GILDI f DAG
Manila-sáttmálinn gekk form-
lega í gildi í dag í Manila, er átta
aðildarríki A.-Asíu bandalagsins
lögðu fram skilríki fyrir löggild-
að mynda stjórn. Mun hann strax ingu sáttmálans í utanríkisráðu-
í fyrramálið ræða við forustu- neytinu í Manila á Filippseyjum.
menn stjómmálafÍQkkanna og Öll drög að A.-Asíu-bandalag-
hefur þegar í kvöld rætt við þing inu voru gerð á ráðstefnu í Man-
forsetana þrjá. ila í sept. s.l. Aðildarríkin átta
Innlegg íslenzkra kommúnista
í borgarastyrjöldina:
Jndverska lýsið“ hafnaði í Kína!
E'
INS og mönnum er í fersku
minni, reis upp á sinum
tíma mikil deila meðal Háskóla-
stúdenta út af „indverska lýs-
inu“ svo nefnda. Málavextir voru
þeir, að einn af fyrrverandi með-
limum kommúnista í stúdentaráði
sendi lýsi þetta, sem stúdentaráð
hafði látið safna, til alþjóða-
stúdentasambands kommúnista
(IUS) í Prag, án þess áð hafa um
það samráð við aðra meðlimi
ráðsins og gerði sig þar með sek-
an um hið alvarlegasta brot.
SAMKVÆMT FRÉTT KÍN-
VERSKU FRÉTTASTOFUNNAR
Til skamms tíma fékkst ekki
úr því skorið, hvort lýsið hefði
komizt til indverskra stúdenta,
eins og ráð var fyrir gert, eða
hvar það væri niður komið. —
Sendandi varð margsaga, er hann
var að spurður og kom ekkert
fram í málinu. — Nú hafa aftur
á móti borizt um það fregnir,
hvar lýsi þetta hefur að lokum
hafnað, og er vart hægt að ve-
fengja heimildirnar þessu sinni.
NEIV CHINA NEWS AGENCY
Eru þær sjálf kínverska al-
þýðufréttastofan. Sendi hún ný-
lega út frétt þess efnis, að opnað
hafi verið berklahæli fyrir stúd-
enta í K'na og meðal gjafa, sem
hælinu bárust voru læknatæki
frá Rússlandi, Austur-Þýzka-
landi, Tékkóslóvakíu — OG
LÝSI FRÁ ÍSLENZKUM STÚD-
F.NTUM. Frétt þessi hefur svo
birzt nýlega í Student Mirror,
alþjóðlegu stúdentablaði, sem gef
ið er út á fjórum tungumálum.
Þess má og geta, að komið hefur
bréf frá menntamálaráðuneyti
Indlands þess efnis, að þangað
hafi ekkert lýsi borizt frá ís-
landi, svo að því sé kunnugt.
ÞEIR SEKU GERI HREINT
FYRIR SÍNUM DYRUM
Málið liggur loksins ljóst fyr-
ir, — því að upp koma svik um
síðir, eins og þar stendur. Hlýtur
það, að vera sanngjörn krafa, að
þeir, sem bera ábyrgð á slíkum
yfirsjónum og bruðla með ann-
arra eigur, verði látnir svara til
saka og gera hreint fyrir máli
sínu, enda er hér um að ræða
mikil verðmæti (þúsunda króna
virði). Hin spaugilega hlið á
þessu máli hefur því fengið á sig
nokkuð alvarlegan svip, en við
skulum þó vona, að Chou En Læ
hafi ekki orðið illt af lýsinu
þegar austur kom, enda má hann
varla við því um þessar mundir
mikilla tíðinda og stórátaka. —
En það fór þó aldrei svo, að ís-
lenzkir kommúnistar gætu setið
auðum höndum í kínversku borg-
arastyrjöldinni.
Jarðskjálfti
! O KARACHI, 19. febr.: — Nokkr
1 ir menn hafa beðið bana og fleiri
meiðzt í jarðskjálfta í Vestur-
Pakistan í dag. Harðasti jarð-
skjálftakippurinn varð í nágrenni
borgarinnar Quetta, og nokkrir
smærri fylgdu í kjölfar hans. Hús
hrundu og tjón á mannvirkjum
varð mikið. Talsverðra jarðhrær-
inga hefir orðið vart í nánd við
Quetta undanfarna viku.
eru: Bretland, Bandarikin, Frakk
land, Nýja-Sjáland, Pakistan,
Ástralía, Síam og Filippseyjar.
Coty, forseti Frakklands, hefir
falið Bonnet, fyrrverandi sendi-
herra Frakka í Bandaríkjunum,
að veita sendinefnd Frakka for-
ustu á Bangkok-ráðstefnunni, en
eins og kunnugt er hefir Frakk-
land nú engum utanríkisráðherra
á að skipa vegna stjórnarkrepp-
unnar.
Eden kvað ráðstefnuna ekki
mundu fjalla um Formósumálin
beinlínis, en gat þess, að engu
að síður yrði fulltrúunum ríkt í
huga hið hættulega ástand við
strendur Rauða Kína. Benti Eden
á, að brezka stjórnin ynni enn
að friðsamlegri lausn á deilumál-
um þjóðernissinna og kommún-
ista.
★ NEHRU OG EDEN MUNU
RÆDA FORMÓSl MÁI.IN
Eden mun í för sinni til Bang-
kok, einnig eiga viðræður við
ráðamenn í Pakistan, Indlandi,
Egvptalandi, írak og Malaya.
Á þessum fundum verða eink-
um ræddar varnir Mið- og Aust-
ur Asíu-landa. Þó verður fundur
Edens og Nehrus i Nýju Delhi
nokkur undantekning, en þeir
munu ræða ástandið í Formósu-
sundum, oe hversu miðla megi
málum með þjóðernissinnum og
kommúnistum. Áður mun Eden
ræða við Dulles, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, um For-
mósu-málin í Bangkok.
★ BARDAGARNIR Á
FORMÓSU-SUNDUM
ÓGNA FRIÐI
Bardagarnir um eyvirkin á
Formósu-sundúm eru það, sem nú
ógnar mest friðinum í heiminum.
Sir Anthony Eden hefir tjáð sig
hlynntan því, að þjóðernissinnar
láti eyjarnar við strendur Rauða
Kína af hendi við kommúnista.
Dulles hefir hinsvegar lýst sig
andvígan frekari undanlátssemi
við kommúnista.
Framh. á bls. 8
Pólitískar íþróttir
LONDON, 19. febr. — Olympíu-
nefnd Rauða-Kína sendi alþjóða-
olympíunefndinni í dag mótmæli
vegna þess að kínverskum þjóð-
ernissinnum á Formósu hefði ver-
ið boðin þátttaka í Olympíuleik-
unum, sem fram eiga að fara í
Ástralíu 1956. Krefjast kommún-
istar þess að boðið til þjóðernis-
sinna verði kallað aftur.