Morgunblaðið - 25.02.1955, Blaðsíða 1
16 síður
42. árgangur
46. tbl. — Föstudagur 25. febrúar 1955
PrentsmiSJa MorgunblaSsin*
Varnir Breta
verðbóðgu
Rótœkcr ráóstcfanir
RICHARD A. BUTLER fjár-
málaráðherra Breta gerði
í dag tvær róttækar ráðstaf-
anir tii þess að koma í veg
fyrir verðbólgu í Englandi og
til þess að rétta við gengi
sterlingspundsins gagnvart
erlendum gjaldeyri. Ráðstaf-
anir þessar eru:
1) Forvextir- Englandsbanka
voru hækkaðir úr 3x/2% í
4V2%.
2) Regiur voru settar, sem
torvelda sölu á ýmsum
vörum með afborgunar-
skilmálum.
Afborgunarsalan hefur haft
mjög örvandi áhrif á innflutning
á ýmsum vörum og með ráðstöf-
ununum, sem gerðar voru í dag,
verður framvegis krafist að greitt
verði við afhendingu á vörum,
sem seldar eru með afborgunar-
skilmálum, 15% af andvirði
þeirra og að þær séu að fullu
greiddar á 24 mánuðum, þar sem
um útvarpstæki, sjónvarpstæki,
húsgögn, þvottavélar, ryksugur,
ísskápa, bifreiðar, mótorhjól og
reiðhjól er að ræða, en á 48 mán-
uðum ef um aðrar mikilvægari
vörur er að ræða.
í ræðu, sem Butler hélt, er
hann tilkynnti þessar ráðstafanir
í brezka þinginu, benti hann á,
að atvinnulíf í Bretlandi væri nú
heilbrigðara heldur en nokkru
sinni áður frá stríðslokum og að
hann væri staðráðinn í því að
varðveita það sem áunnizt hefði
í þessu efni. Ráðstafanirnar, sem
nú hefðu verið gerðar, miðuðu að
því að draga úr innflutningnum
til þess að innflutningur og út-
flutningur gætu haldist í hendur.
Ársæld sú, sem Bretar hafa
átt við að búa undanfarið, hefur
haft þau áhrif, að vöruútflutning-
ur þeirra hefur aukizt, en inn-
flutningurinn hefur þó aukizt
stórum meira.
í lok síðastliðins mánaðar
hækkaði Englandsbanki forvexti
um Vz%, úr 3% í 3V2%, og kom
sú hækkun ekki á óvart. En sú
hækkun hefur ekki reynst nægi-
leg til -þess að draga úr verð-
þenslu innanlands. Hækkunin í
dag upp í 4V2% kom aftur á móti
mjög á óvart. Hafa forvextir hjá
Englandsbanka ekki verið jafn
háir frá því á kreppuárunum eft-
ir 1930.
Butler skýrði þingheimi frá því
í dag, að hann hefði til viðbótar
forvaxtahækkuninni, farið þess á
leit við banka í Englandi, að þeir
gættu hófs í allri útlánastarfsemi.
Einnig upplýsti hann að
brezka stjórnin myndi gera
ákveðnar ráðstafanir til þess
að vinna gegn sölu á sterlings-
pundum á frjálsum markaði
Framh á bls t?
ADENA
SOL —
BANItOK, 24. febr. — í steikj-
andi sólarhita sátu utanríkisráð-
herrar átta ríkja fjögurra tíma
fund hér í dag, til þess að gera
ráðstafanir til þess að reistur
verði varnarmúr gegn yfirgangi
kommúnista í Suðaustur-Asíu. Á
fundinum var samþykkt að stofn-
uð skuli miðstöð Manillaríkj-
anna (Bandaríkjanna, Breta,
Frakka, Ástralíumanna, Ný-Sjá-
lendinga, Thailendinga, Filipsey-
inga og Pakistana) í Bankok og
að sendiherrar hinna átta ríkja
skuli vera fulltrúar hver síns
ríkis í þessari miðstöð.
Bankok ráðstefnunni lýkur á
morgun, föstudag.
OG KULDA
LONDON, 24. febr. — Á morgun
koma saman í London, þar sem
hríðarveður hefir gengið undan-
farið, fulltrúar kjarnorkuveld-
anna fimm, Bandríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Kanada og
Rússlands, til þess að ræða af-
vopnun. Gromykov er fulltrúi
Rússa og er helst gert ráð fyrir
að hann hafi engar nýjar tillög-
ur fram að bera, aðrar en hinar
gömlu áróðurstillögur Rússa.
VIÐ MARKIÐ
Staðfesting Parísar-
samninga á laugardag
\
Bonn, 24. febr.
FI M M Á R A barátta dr. Konrads Adenauers, kanslara
Vestur-Þýzkalands fyrir því að koma á samstarfi milli
Vestur-Þýzkalands og vesturveldanna nær hámarki þessa
dagana. I morgun hóf der Bundestag, eða neðri málstofa
vestur-þýzka þingsins, umræður um fullgildingu á Parísar-
samningunum.
Umræðan stendur í þrjá daga og atkvæðagreiðslan um fullgild-
ingu samninganna fer fram á laugardag.
Samningur
undirriíaður
ANKARA, 24. febrúar — Varn-
arsamningur Tyrkja og Iraks var
undirritaSur í Bagdad í Irak í
kvöld. Menderes, forsætisráðherra
Tyrkja og Nuri el Said, forsætis-
ráSlierra Iraks undirrituðu santn-
.
mgana.
Attlee veitir
Bevan nýp
róðningn
LONDON, 24. febrúar — Enn
harSna átökin milli vinstri arms
og hægri armsins í brezka verka-
mannaflokknum. Og enn á ný
varS Aneurin Bevan leiðtogi hinna
vinstrisinnuSu, undir i átökum viS
Attlee, hinn kjörna leiðtoga
flokksins, i kvöld.
; f fyrri viku lagði Bevan fram
í neðri málstofu brezka þingsins
tillögu til vantrausts á brezku
stjórnina, fyrir að hafa ekki reynt
að stofna til fjórveldafundar með
Rússum áður en Parísarsamning-
arnir um endurhervæðingu Þjóð-
verja verða endanlega staðfestir.
Meðflutningsmenn Bevans að
(vantrauststillögunni voru 100
aðrir verkamannaþingmenn.
) Á fundi sem þingflokkur verka-
mannafiokksins hélt í parlament-
inu í kvöid var samþykkt að lýsa
yfir því, að flokknum þætti leitt
að tillaga þessi hefði komið fram.
I
SEX SNÚA HEIM
t Á sama fundi var samþykkt að
taka aftur í flokkinn þá 6 þing-
menn, sem greiddu atkvæði gegn
Parísarsamningunum í þinginu á
sínum tíma, en samþykkt lá þá
fyrir um það að flokkurinn skyldi
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Um leið og þessir sex þingmenn
voru teknir inn í þingflokkinn að
nýju, lýstu þeir yfir því að þeir
myndu framvegis fara að flokks-
vilja. Ekkert heyrðist í kvöld um
sjöunda þingmanninn, sem á sín-
um tíma greiddi atkvæði með full-
gildingu Parísarsamninganna.
! Ágreiningurinn milli vinstri og
hægri armsins mun sennilega
koma mjög skýrt í ljós við um-
ræðu um vantrauststillögu, sem
verkamannaflokkurinn hefir lagt
fram í sambandi við varnarmál
Breta.
BBENTANO
verðnr sennilega utanríkisráð-
lierra Þýzkalands þegar Parísar-
samningarnir hafa verið staðfestir.
Götiiæsingar
kommúnista
BONN í gærkvöldi — Nokk-
ur hundruð manns söfnuðust
saman á götum og járnbraut-
arstöðvuni hér í kvöld, til
þess að mólmæla Parísar-
samningunum. Lögrcglan og
slökkviliðíð dreifði mann-
f jöldanum með því að sprauta
á hann vatni. — Sex menn
voru teknir fastir.
Lögreglan segir að hér hafi
verið um að ræða konunún-
ista víðsvegar frá Vestur-
Þýzkalandi. Búist er við meiri
og alvarlegri götuæsingum á
föstudag og laugardag, en þá
fer frain atkvæðagreiðsla um
sainningana.
Allan undanfarinn mánuð hef-
ur verið háð linnulaus áróðurs-
barátta í Vestur-Þýzkalandi milli
fylgjenda Parísarsamninganna og
andstæðinga þeirra, en þar eru
sósíaldemokratar fremstir í
flokki. Um eitt skeið, í fyrri viku,
reyndi jafnvel ríkisforsetinn,
Theodor Heuss, að miðla málum,
með því að bjóða fulltrúum
beggja aðila til sameiginlegrar
veizlu. En ekkert hefur færzt
nær samkomulagi.
★ ★ ★
f morgun snjóaði hér í Bonn,
er þingfundur hófst. Áheyrenda-
bekkir í þingsalnum voru full-
skipaðir og í stúku erlendra sendi
herra mátti sjá sendiherra allra
stórveldanna, nema Rússa, en
þeir eiga engan fulltrúa í Vestur-
Þýzkalandi. Fjöldi blaðamanna
var kominn víðsvegar að úr
heiminum.
í byrjun fundarins bar fulltrúi
sósíaldemokrata, Carlo Schmidt,
fram tillögu um að afgreiðslu
dagskrármálsins yrði frestað. —
Tillagan var felld með handa-
uppréttingu.
★ ★ ★
í umræðunum í dag kom lítið
nýtt fram. Ræðumenn stjórnar-
innar lögðu á það höfuð áherzlu,
að með staðfestingu Parísarsamn-
inganna myndu Þjóðverjar hljóta
aftur fullveldi sitt, þeir myndu
j geta skipað sendiherra, hvar sem
þeir vildu (m. a. í Moskvu) og
; geta gert kröfu til þess að eiga
I fullgildan fulltrúa á öllum al-
j þjóðaráðstefnum, þar sem mál-
. efni Þjóðverja væru rædd. Með
i þessu vildu þeir benda á að að-
staða þýzku stjórnarinnar, til
þess að vinna að sameiningu alls
Þýzkalands, myndi stórum batna
með staðfestingu Parísarsamn-
inganna.
★ ★ ★
í nefndaráliti utanríkismála-
nefndar þingsins segir um Saar-
samninginn, að hann sé ekki eins
og Þjóðverjar hefðu helzt kosið
hann, en að hann muni greiða
götu betri sambúðar milli Þýzka-
lands og Frakklands.
★ ★ ★
Nokkur óvissa ríkir enn um
það, hvort Adenauer ætlar að
neyða fulltrúa frjálsra demokrata
til þess að víkja úr stjórninni,
ef þeir greiða atkvæði gegn Saar-
samningnum.
Bæði frjálsir demokratar og
flóttamannaflokkurinn, en þeir
eiga fulltrúa í stjórn Adenauers,
hafa gert formlega samþykkt um
að þeir ætli að greiða atkvæði
gegn Saarsamningnum. Samt sem
áður er talið víst að samningur-
inn verði samþykktur með nokk-
, urra atkv. meirihlúta.
Barátta Framsoknar gegn Brunabóta-
félaginu ekki ■ þágu almennings
heldur til að styrkja auðhring SÍS
Hertoginn fl\tur
setnin^arræðuna
n
LONDON, 24. febrúar — Tilkynnt
var frá Buckinghamhöll í dag að
hertoginn af Edinbovg myndi
setja Ólympíuleikana í Melbourne
í Astralíu í nóvember 1956.
Fær hæli sem
flóttamaðcr
KAUPMANNAHÖFN, 24. febr.
— Dómsmálaráðuneytið hér hefir
fallist á að veita rúmenska bíl-
stjóranum, Jon Cimbiu, hæli sem
flóttamanni í Danmörku.
Ráðuneytið skýrði um leið frá
því að Cimbiu myndi verða sóttur
til saka fyrir að hafa tekið 6000
krónur frá rúmenska sendiráðinu.
Cimbiu skilaði þessum peningum
til lögreglunnar um leið og hún
tók hann í vörslu sína.
Kona Cimbius fór flugleiðis til
Rúmeníu á sunnudaginn.
átþingi sýnir viijð sinn til að hafa brynafryggingar
frjálsar en veifa sveitarféiögunum samtímis tæki-
íæri tii að reka eigin gagnkvæmt tryggingarfélag
★ FRUMVARPIÐ um breytta stjórnarskip-
un Brunabótaféiags íslands, þar sem sveitarfélögin
sjálf ákveða starfsemi og stefnu félagsins, var sam-
þykkt í Neðri deild Alþingis í gær með 20 atkvæðum
gegn 7. I»að voru eintómir Framsóknarmenn, sem
greiddu atkvæði á móti frumvarpinu. Fer það nú til
Efri deildar. .... ^
-fc Umræður í gær voru mjög langar og harðar á
köflum. Svo virtist sem línurnar séu nú teknar að
skýrast allmikið. Það virtist sem sé augljóst af um-
ræðum í gær, að þingmenn Framsóknarflokksins börð-
ust svo ákaft gegn Brunabótafélaginu, ekki vegna þess
að þeir væru að gæta hagsmuna sveitanna, heldur af
því að þeir vildu reyna að skapa SÍS-tryggingarfélag-
inu sterka aðstöðu í sveitum landsins, svo að SÍS gæti
orðið eins konar forsjón*bænda á öllum sviðum, svo
dægileg, sem sú forsjón hefur reynzt í þeim hluta
landsins, sem nú er fátækastur orðinn eftir yfirráð
SÍS.
Það skýrðist einnig við umræðurnar, að þótt
þetta frumvarp um bætta stjórnarhætti Brunabóta-
félagsins, miðaði hvergi við neina einokun eða einka-
rétt félagsins, þá myndi raunin verða sú á með hinum
frjálsu tryggingum að sveitarfélögin flest eða öll
J22L________In&flftSgfiÍ Framh. á bls. 2