Morgunblaðið - 16.03.1955, Blaðsíða 1
16 síður
42. árgangur
62. tbl. — Miðvikudagur 16. marz 1955
PrentsmiSja Margunblaðsúu
Haíís fyrir Veslfjörðum.
Ljósm. Mbl., Ól. K. Magnússon, tók myndina sem birtist liér að ofan í gærdag, er hann flaug í
Katalínaflugbáí Flugfél. íslands skammt út af Súgandafirði. Á myndinni sést greinilega hin sam-
fellda ísbreiða, sem lá um það bil 1 sjóm. undan landi. Fyrir innan ísbreiðuna var talsverður rek
is og hrafl, sem var sumsstaðar landfast.
Óhugnanlegar og víðtæk-
ar njósnir í Svíþjóð
Upplýsingar um iiergagnaverksmiðjur
og varnarvirki send úr landi
STOKKHÓLMUR, 15. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
SÆNSKA lögreglan lyftir nú blæjunni af einhverjum Víðtæk-
ustu njósnum, sem framkvæmdar hafa verið á Norðurlönd-
um. Hermálafulltrúar við sendiráð tveggja járntjaldslanda hafa
leitað eftir upplýsingum um vopnaverksmiðjur og varnarvirki í
Svíþjóð. Þessum upplýsingum hefur verið komið áleiðis til njósn-
ara í öðrum löndum. Virðist hér komið upp um all víðtæk njósna-
samtök og sýna skjöl, sem sænska logreglan hefur komizt yfir,
að njósnahringur þessi spennir greipar sínar bæði til Noregs og
Dánmerkur.
ÓHUGNANLEGAR
AÐGERÐIR
Þessar upplýsingar hafa vakið
mikinn óhugnað í Svíþjóð, því
að augljóst er að stórveldi eitt
standi á bak við þessi myrkra-
verk og þykir slíkt ekki benda
til friðsamlegrar sambúðar, þeg-
ar slík afbrot eru framin hjá
frjálsum smáþjóðum.
11 IIANDTEKNIR
Sænska lögreglan hefur hand-
tekið ellefu manns. Eru fimm
þeirra sænskir en sex af öðru
þjóðerni, Þá hefur sænska
stjórnin krafizt þess, að tveir
sendiráðsfulltrúar Tékka og
einn rúmenskur fari þegar í
stað úr landi. Einn þeirra
Frantisek Nemec er þegar far-
inn, en hann var einn helzti
njósnafulltrúinn. Hefur upp-
lýstst að hann var mjög mikið
á ferli í kringum ýmsar þýð-
ingarmiklar verksmiðjur Svía
og einnig i nágrenni við varn-
arvirki. Var hann oft dulbúinn
á þessu flakki sínu, t. d. i
verkamannafötum.
Ilermanii Jónasson krefst opinberrar
rannsóknar vegria aðdróttana Jónasar
Úrslitastund í dag
JUlt bendir til að
FORMAÐUR Framsóknarflokksins, Hermann Jónasson, hefur
beðið dómsmálaráðuneytið að láta fara fram opinbera rann-
sókn vegna aðdróttana Jónasar Jónssonar, fyrrverandi ráðherra,
í sinn garð í bæklingi, sem kom út fyrir nokkru og nefndist „Átján
milljónir í Austurstræti“.
í bæklingi þessum er Hermann sakaður um fjárglæfra, og
einkum fyrir það að vera mjög flæktur í fjárþrot verzlunar
Ragnars Blöndals.
YFIRLÝSING HERMANNS
í tilefni þessa var birt yfir-
lýsing frá Hermanni Jónassyni
í Tímanum í gær. Yfirlýsing for-
manns Framsóknarflokksins var
á þessa leið:
— Jónas Jónsson, fyrrverandi
ráðherra, Hávallagötu 24, Reykja
vík, hefur síðari ár ævínnar gert
sér það til dundurs að semja
margskonar sögur um menn og
málefni, — og birta sumar á
prenti.
— Ég mun vera aðalpersónan
í þessari nýju tegund sagnagerð-
ar. Mest af því sem um mig er
ritað í sögum þessum mun vera
vægast sagt fremur niðrandi —
flest persónulegur óhróður, eða
þá ýmiskonar tilbúningur um
ímyndaða meðeign mína í ýmsum
fyrirtækjum o. s. frv.
— Þessa söguritun um mig
persónulega hefi ég auðvitað látið
afskiptalausa, enda fæst af þess-
um skrifum lesið. En í flugriti,
sem fyrrnefndur Jónas Jónsson
gaf út í síðustu viku, er — auk
hins venjulega óhróðurs um mig
persónulega — sagt, að ég hafi
misnotað aðstöðu mína, sem
stjórnskipaður formaður banka-
ráðs Búnaðarbanka íslands. Það
er mál, sem varðar almenning og
þessvegna hef ég í dag ritað dóms
málaráðuneytinu eftirfarandi
bréf:
HERMANN KREFST
OPINBERRAR RANNSÓKNAR
„í flugriti, sem Jónas Jónsson,
fyrrverandi ráðherra, Háválla-
götu 24, Reykjavík hefur gefið út
og ber fyrirsögnina „Átján millj-
ónir í Austurstræti", er því hald-
ið fram, — að ég hafi verið með-
eigandi í verzlunarfyrirtækinu
Ragnar Blöndal h. f., — að ég
hafi verið lögfræðingur þess fyr-
irtækis og tekið greiðslur fvrir,
— að ég hafi misnotað aðstöðu
mína sem stjórnskipaður formað-
ur bankaráðs Búnaðarbanka ís-
lands til þess að hafa áhrif í þá
átt að útvega fyrrnefndu verzl-
unarfyrirtæki lán úi bankanum.
Ég óska eftir, að dómsmáláráðu
neytið láti fara fram réttarrann-
sókn út af þessum aðdróttunum.
Sendi ég hérmeð eitt eintak af
framangreindu flugriti. Óska ég
þess, að ráðuneytið hlutist til um
opinbera málshöfðun gegn Jónasi
Jónssyni eins og lög standa til, að
lokinni rannsókninni. Vænti ég
að máli þessu verði hraðað.
Þannig hljóðar greinargerð Her
manns Jónassonar um þetta mál
i í Tímanum í gær.
„18 MILLJÓNIR f
AUSTURSTRÆTI"
Bæklingur Jónasar Jónssonar
Kramh. á bls. 2
Bevon veroi rekinn
LONDON, 15. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
ÞINGFLOKKUR brezka Verkamannaflokksins mun koma sam-
an á morgun (miðvikudag) til að ræða það hvort Aneurin
Bevan, uppreisnarseggur flokksins, skuli útilokaður frá flokks-
fundum í þinginu. En slíkt myndi þýða nær því hið sama og brott-
vikning Bevans úr Verkamannaflokknum.
Frazer Wighton, fréttaritari
Reuters ritar, að mikil ólga sé
í Verkamannaflokknum Vegna
þessa. Standi nú yfir stöðug
fundahöld milli hinna ólíkustu
hópa flokksins. Vinstri-sinnaðir
menn hafa beðið flokksforustuna
íáralítill meirihluti
um að sýna vægð, en getur verið
að ella hóti þeir sjálfir hörðu.
GILDIR LÍKT OG
BROTTREKSTUR
Það er aðeins miðstjórnarfund-
ur Verkamannaflokksins, sem
getur vísað Bevan úr flokknum,
en hinsvegar ræður einfaldur
meirihluti þingmanna flokksins
hvort honum skuli bannað að
sitja á fundum þingflokksins. En
slíkt er talið gilda likt og brott-
rekstur úr sjálfum flokknum.
imku stjómarÍEmar
Efnahagsfillögur hennar samþykktar í gær.
Kaupmannahöfn 15. marz. . þykkt andstöðu við tillögurnar.
Einskeyti frá Páli Jónssyni. j Þrátt fyrir það er ekki búizt við
DANSKA þjóðþingið samþykkti að flokkur hans efni til neinna
efnahagsmálatillögur dönsku refsiaðgerða né heldur að þetta
stjérnarinnar í dag með 89 atkv. tákni úrgöngu Kristensen úr
gegn 86. Með tillögum stjórnar- flokknum.
innar greiddu atkvæði þingmenn j -----------
Jafnaðarmannaflokksins og Radi- Vikulegir fundir um vandamál
kalaflokksins og auk þess Torkil Indó-Kína.
Kristensen úr Vinstra-flokknum, París. — Ákveðið hefur verið, að
en hann var áður fjármálaráð- , fulltrúar ríkisstjórna Frakka og
herra í samsteypustjórn íhalds- Bandaríkjanna hefji vikulegar
flokksins og Vinstri-flokksins. viðræður sín á milli um ýmiss
Það kom mönnum nokkuð á ó- ; vandamál Indó Kína. Væntan-
vart að Torkil Kristensen skyldi lega munu fulltrúar frá ríkis-
greiða atkvæði með stjórninni, stjórn Vietnam taka þátt í þess-
því; að flokkur hans hafði sam-I um fundum.
RAUF EININGU
FLOKKSINS
Forustumenn Verkamanna-
fiokksins, Attlee og fleiri,
munu tæpast víkja frá kröfu
sinni um brottrekstur eins og
nú er komið. Hafa þeir áður
sett honum skilyrði, en hann
óðar brotið þau. Hann hefur
snúizt gegn fjölda af flokks-
samþykktum og rofið einingu
fiokksins um hin mikilvæg-
ustu mál.
'140 : 70?
Það er talið að um 140 þing-
menn muni greiða atkvæði
með brottrekstri Bevans en 70
styðji Bevan. Trúlegt er því
að aðrir 70 þingmenn greiði
ekki atkvæði. Fylgismenn
Bevans láta þó í veðri vaka,
að ef Attlee knýi fram brott-
vikningu muni fleiri styðja
Bevan.