Morgunblaðið - 22.03.1955, Síða 2

Morgunblaðið - 22.03.1955, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. marz 1955 ] Samræming á fasieignamati táknar ekki almenna fiækkun gpida, heldur r éft Óffi Jörundar ialinn ásfæðufaus MIKLAR umræður urðu í Neðri deild Alþingis í gær vegna frumvarps fjármálaráðherra um samræmingu á fasteigna- matL Jörundur Brynjólfsson réðist harkalega á frumvarpið. Tald; hann bæði að hætt yrði við að landsnefnd í Reykjavík væri illa faér um að endurskoða fasteignamat um allt land vegna ókunnug- leika og svo hitt að hætta væri á, þegar fasteignamat væri hækkað að ýmis gjöld sem grundvallast á fasteignamatinu myndu hækka. Fjármálaráðherra og Jón Pálmason þingmaður Húnvetninga svör- vðu og töldu að ýmislegt sem Jörundur sagði væri á nokkrum misskilningi byggt. f ræðu sinni minntist Jörund- ur á það að skv. frumvarpinu væri að vísu ekki ætlazt til að allsherjarfasteignamat færi fram, héldur ætti viðfangsefnið að vera afj meta hinar nýrri umbætur og háeta matsverði þeirra við. Þegar slíkt ætti að meta taldi hann þó að alveg eins þyrfti við staðþekkingar og persónulegrar könnáttu. Landsnefndin hefði hana ekki. Að vísu væri í frum- varpinu ákvæði um að nefndin mætti leita upplýsinga hjá Bún- aðarfélaginu um ræktunarfrkv. o. fl., en jafnvel þetta taldi Jör- undur að væri ekki nóg, því að ekki þýddi að vita kostnaðar- v^rð, heldur hið raunverulega vérðgildi og gagn af jarðabótun- nm. Engri átt næði að taka með í matið ýmsar jarðræktarfram- kyæmdir eins og framræslu, sem gætu ekki farið að gefa arð fyrr en eftir þrjú ár. Enginsi póstur SKIPSPÓSTUR verður ekki af- greiddur meðan á vex'kfallinu stendur, og tvö skip liggja nú Hér í höfninni rrieð póst, sem ekki fæst afgreiddur til póststjómarinnar. Það er erlendur póstur með Gull- fossi um hálft áttunda tonn og svo innanlandspóstur með Herðu- breið. I dag mun pósthúsið geta af- greitt póst til Norðurlandsins, þar eð Noiðurleiðir mun senda vagn til Akurevrar. Póstur, sem bílar taka hefur verið hægt að afgreiða, því honum skila bílstjórarnir siálfir. — HÆKKUN ÝMISSA GJALDA Þá réðist Jörundur harkalega að þeim ákvæðum þar sem talað er um, hve mikið fasteignamats- vei'ð megi hækka, eða allt að 400%. Sagði hann að hætt væri við að fasteignamatið yrði al- mennt hækkað svo mikið, og ef svo yrði, þá mjmdi mörgum þykja þröngt fyrir sínum dyr- um. 'Því að fjöldi gjalda grund- vallást á fasteignamatinu, t. d. heimtaugagj ald, sýslu vegag j ald, sem er í sumum héruðum mörg hundruð þúsund krónur, sýslu- sjóðsgjald sem er t. d. í Arnes- sýslu hálf milljón, gjald til fjall- skila og einnig hefur fasteigna- niatið áhrif á útsvör. Ef þetta allt hækkaði í sambandi við hækkun fasteignamats, þá yrði erfitt að lifa, sagði Jörundur. SÝSLUNEFNDIR ÁKVEÐA GJÖLDIN Eysteinn Jónsson, fjármálaráð- herra taldi að ótti Jörundar værx ástæðulítill. Því að sjálfsögðu myndu þessi gjöld sem nefnd voru ekki hækka í sama hlutfalli •og hækkun fasteignamats. Að sjálfsögðu yrðu gerðar ráðstaf- anir til að þessi gjöld yrðu áfram sem líkust því sem þau hafa ver- ið. Sýslunefndirnar ákveða sum þessara gjalda, þær gætu hækk- að þau án þess að fasteignamat- ið sé hækkað, en væntanlega myndu þær taka til greina þá hreytingu sem verður við þetta millimat. SAMRÆMING — RÉTTLÁT SKIPTING Jón Pálmason sagði að með frumvarpi þessu væri aðeins ver- ið að samræma fasteignamatið. í lögum er ákveðið að millimat fari fram, en því hefur ekki ver- ið framfylgt alls staðar. Slíkt ósamræmi hefur valdið ranglátri skiptingu t. d. á greiðslu heim- taugargjalds, þar sem millimat hefur farið fram í sumum hrepp- um og sumum sýslum. Þótt þessi samræming fari fram á fasteigna mati um allt land, þá þýðir það ekki að heimtaugagjaldið hækki almennt um allt land sem því nemur. Eina breytingin er að skiptingin' verður réttlát, þegar fastéignama'tið alls staðar er hyggt á sömú forsendum. Sama gilti væntanlega um önnur gjöld sem grundvallast á fasteigna- matinu. — iKopavomir F’-ítmh. af Ws. I scm þessi fjöltli er yfirgnæf- andi meirihluti atkvæðisbærra íbúa hreppsins, og þar með fullnægt skilyrðum þeim, sem sett voru fram í samþykkt sýslunefndar Kjósarsýslu um þetta mál þann 7. þ. m., þá ályktar hreppsnefnd að vísa frá framkominni tillögu odd- vita o. f 1., um frekari at- kvæðagreiðslu, þar sem það yrði aðeins til þess að tefja máiið og gengi í berhögg við vilja meirihluía kjósenda, sem óska að breytingin sé gerð á yfirstandandi Alþingi. Mælir hreppsnefnd nú, með tilliti til vilja meirihluta at- kvæðisbærra íbúa í hreppn- um, með því að Kópavogur verði gerður að sérstöku lög- sagnarumdæmi með kaupstað- arréttindum". VÍRÐA AÐ VETTUGI VILJA ÍBÚANNA Eins og þessi tillaga minni- hluta hreppsnefndar ber með sér hefur meirihluti atkvæðisbærra íbúa hreppsins undirritað áskor- unina. 750 af 1400 kjósendum. En kommúnistar virtu það ekki við- lits, heldur samþykktu þeir frest- unartillögu sína. Þannig ganga þeir algerlega í berhögg við yfir- lýstan vilja íbúanna í hreppn- um. Ewfeinn skiraði S.L. SUNNUDAG fór fram við Skíðaskálann í Hveradölum Firmakeppni, sem Skíðaráð Reykjavikur stóð fyrir. Hófst keppnin kl. 2 e. h. og var keppt í svigi. Sólskin var en gekk á með mjög hvössum vindsveipum og gerði það keppendum og starfsmönnum erfitt fyrir. Frost' var 10 stig. Keppt var í brekkunni fyrir ofan hverina skammt frá Skíða- skálanum og var skíðafærið hart og grófst því bi-autin lítið. Var brautin um 300 m löng með 38 hliðum og 90 m fallhæð. Braut- arstjóri var Þórir Jónsson. 35 fvrirtæki tóku þátt í keppninni. Hátalari var notaður til þess að lýsa keppninni, sem fór vel fram og var spennandi. Úrslit í keppninni urðu þau að Eysteinn Þórðarson, Í.R. sigraði og fékk 74.0 stig, en hann keppti fyrir Klæðaverzl- un Braga Brynjólfssonar. — Annar var Stefán Kristjáns- son, Á., 76.5 stig, fyrir Skó- verzl. Stefáns Gunnarssonar og þriðji Ásgeir Eyjólfsson, Á. 76.7 stig fyrir ísafoldarprent- smiðju. Að lokinni keppni var kepp- endum, starfsmönnum og full- trúum þeirra fyrirtækja, sem þátt tóku í keppninni, boðið til sameiginlegrar kaffidrykkju í Skíðaskálanum. Þar flutti ræðu j formaður Skíðai'áðs Reykjavíkur Jóh. Óskar Guðmundsson. Af- henti har.n sigurvegurum 1., 2. og 3. verðlaun, sem voru þrír fagrir silfurbikarar (farandbik- arar) og að auki var þeim Ey- steini, Stefáni og Ásgeiri afhent- ir til eignar litlir silfurbikarar. Að lokum hélt Stefán Björnsson skrifst’ofustj. ræðu. Öll úrslitin verða birt síðar hér í blaðinu. ZONTAKLÚBBURINN Á AKURETRI HELDUR „N0NNASKEMMTUN“ Akureyri 21. marz. IGÆR efndi Zontaklúbburinn hér í bæ til skemmtunar í ágóða- skyni fyrri minjasafn er hann hyggst koma upp til minningar um pater Jón Sveinsson (Nonna). Samkoman hófst með því að'^ norski fiðluleikarinn Ivan Knut- sen lék einleik á íiðlu með að- stoð Jakobs Tryggvasonar skóla- stjóra. Þá flutti frú Svava Jóns- dóttir leikkona ávarp. Ræddi hún tilgang skemmtunaarinnar og gat þess að félagskonur Zontaklúbbs- ins vonuðust til þess að geta gert Nonnahúsið við Aðalstræti 54 B, hér í bæ, að safni til minningar um þennan víðfræga íslending. í húsi þessu er Nonni fæddur og uppalinn til 12 ára aldurs. Var það gefið klúbbnum af þeim hjónum frú Sigríði Davíðsdóttur og Zophoníasi Árnasyni yfirtoll- verði árið 1952. —Chiirthill Framh. af bls. 1 á möguleikana á að halda fjór- veldaráðstefnu áður en samning- arnir væru endanlega samþykkt- Frú Svava kvað þetta menn- ingarmál snerta alla Akureyringa og væri framgangur þess undir velvild og skilningi þeirra kom- ið. Klúbburinn þyrfti fjármagn til þess að endurbæta húsið og safna í það bókum Nonna, í sem flestum útgáfum og þeim tungu- málum sem þær hafa verið þýdd- ar á. Ennfremur myndum, er skýi'ðu sögu þessa merka manns. Auk þess er fyrirhugað að safna í húsið heimilismunum og hús- gögnum frá miðbiki 18. aldar, sem gætu gefið sem gleggsta hug- mynd um útlit heimilis Sveins Þórðarsonar föður Nonna. ★ Gísli Jónsson menntaskóla- kennari flutti fróðlegt og skemmtilegt erindi um Jón Sveinsson, en Árni Kristjánsson menntaskólakennari las upp úr dagbókarblöðum Sveins Þórar- inssonar hallærislýsingu frá ár- inu 1869, en þá var Nonni 11 ára. Ennfremur las hann upp úr bók- inni „Nonni“. Happdrætti var á skemmtun- inni og var þar margt góðra muna. Smárakvartettinn söng undir stjórn Jakobs Tryggvason ar. Félagskonur gera sér vonir um að geta verið búnar að koma Nonnasafni upp fyrir árið 1957, en þá er aldarafmæli hans. — Vignir. EKKI EINS OG A STENDUR Churchill svaraði m. a á þessa leið: — Ég hef um tíma verið þess fýsandi að binda beint og persónulegt samband við hina nýju valdhafa Sovétríkjanna, sem myndi leiða til fjórveldaráð- stefnu og ég er enn þeirrar skoð- unar, að ýmislegt myndi vinnast við slíka ráðstefnu. En eins og nú stendur get ég þó ekki séð að hún yrði til neins gagns. Ég og samráðherrar mínir er- um ákveðið þeirrar skoðunar að ekki sé rétt að halda fjórvelda- ráðstefnu fyrr en samningarnir um landvarnarsamtök Vestur- Evrópu hafa verið samþykktir af öllum aðildarríkjum. — Stjórn Bandaríkjanna er sammála okk- ur um þetta. Það er engin von til að við fáumst til að breyta afstöðu í þessu máli. T FP AKKAR UTAN GÁTTA? Ég er jafnvel hræddur um, sagði Churchill, að ef mál þetta verður tafið með enda- lausum þrætum og frestum, þá neyðumst við til að grípa til annarra ráðstafana, sem n'”nc',5 hvði hað að Frakklanð vrði ekki áfram samstarfsað- ili um landvarnir. Myndi þctta hafa í för með sér stórvægi- legar breytingar bæði stjórn málalegar og hernaðarlegar. Að lokum sagði ChurchiIU — Ég her ást og umhyggju fyrir frönsku þjóðinni. Það myndi þess vegna valda mér miklum harmi ef samstarf við hana ætíi að rofna og hún ætti að standa eioangruð og missa áhrif sín meðal frjálsra þjóða. Sigurvegarar í Firmakeppninni: Stefán, Eysteinn, Ásgeir. Skíðabrekkan í Hveradölum. (Ljósm. Har. Teits.) HÓTEL BORG Almennur dunsleibur í kvöld til klukkan 1. — Ókeypis aðgangur. — Rhumba-sveit Plasidos skemmtir. Hljómsveit Þorvaldar Steingrímssonar leikur. Boðsmiðar afhentir við aðaldyr kl. 8,30. Borð aðeins tekin frá fyrir matargesti. ■ i ■■■■*■■ ■■■■■■■■■ ■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■ Húnvetningafélagið heldur danskemnfiun í Tjarnarcafé, niðri, föstudaginn 25. þ. m. klukkan 9 e.h. Félagar, fjölmennið. Skemmtincfndin. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ BEZAR Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunar heldur bazar í Góð- templarahúsinu í dag, 22. marz, og hefst hann kl. 2 e. h. Á bazarnum verður fjöldi gagnlegra og góðra muna, bæði fyrir börn og fullorðna, auk ýmislegra annarra muna. Allt verður selt við mjög lágu verði. Nefndin. ua

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.