Morgunblaðið - 22.03.1955, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.03.1955, Qupperneq 11
Þriðjudagur 22. marz 1955 MORGUNBLAÐIÐ 11 / NATO vinna frjálsar þjóðir saman... öðlast styrkleika til að viðhalda friði í Evrópu HVAÐ EK NATO? Atlantshafs- bandalagið, NATO, er samtök 14 frjálsra þjóða, sem hafa tengt hernaðarlegan og efnahagslegan Styrkleika saman í einu átaki til að viðhalda friði. Þessar þjóðir hafa gert með sér það samkomu- lag að árás á eina þeirra skuli álitin árás á þær allar. Þó er NATO meira en varnarbandalag. Þjóðirnar í Atlantshafsbandalag jnu hafa skuldbundið sig til sam- Btarfs á sviði fjármála og menn- jngar og þær vinna saman að því að vernda jafnvægi í efnahag og velfarnað þjóðanna. Þær 14 NATO-þjóðir sem þannig hafa ákveðið að reisa varnarvegg gegn árás — og gegn árásarhættunni •— eru Bandarík- in, Belgía, Bretland, Danmörk, Frakkland, Grikkland, Holland, ísland, Ítalía, Kanada, Luxem- burg, Noregur, Portugal og Tyrk- land. Sérhver aðildarþjóð hefur jafnræði á við hinar um að ékveða stefnu NATO og starfslið NATO er skipað hermalasérfræð- íngum og óbreyttum borgurum allra 14 ríkjanna. J^IN merkasta hugmynd mannkynssögunnar er að koma á fót sameiginlegum herafla margra þjóða, ekki til að he yja styrjöld, held- ur til að hindra styrjöld. N i er ekKert afl til sterkara til viðhalds friði en samstarf hinna frjálsu þjóða í Atlantshafsbandalaginu. í þeim samtökum hafa þær heitið að verja „frelsi, saméiginlega arfleifð og menningu þjóðanna“. Það ber skýrt vitni um festu frjálsra þjóða í þeirri viðleitni að viðhalda friði í Evrópu með samstarfi sín á milli, að hraðskreið flota- deild flugvélamóðurskipa hefur varðgæzlu á Miðjaiðarhafi. Flotadeild þessi er undir yfir- stjórn NATO og eru í henni frönsk, brezk og bandarísk flugstöðvarskip, með ítölskum, brezkum, grískum, frönskum og tyrkneskum herskipum og flotabækistöðvum. Þarna er sýnd í reynd eining og samstarf frjálsra þjóða, e. t. v. meiri en þekkzt hefir nokkru sinni fyrr á friðartímum. Atlantshafsbandalagið mun halda áfram að styrkjast meJan NATO-þjóðirnar 14 haldá áfram að veita því sinn hlut í vinnuafli, skipum, bækistöðvum, birgðum eða flugvél- um. Það er óhætt að treysta því að 800.000 menn og konur í flugvélaiðnaði Bandaríkj- anna, — sem milljónir annarra í skyldum iðngreinum standa að baki, — munu halda áfram að teikna, framleiða og aflænda hlut sinnar þjóðar í fullkomnum flugvélum, sem þörf er á í þessym sameiginlega tilgangi. United Aircraft Corporation East Hartford, Connecticut, Bandaríkjunum Leiðandi teiknarar og framleiðendur í bandarískum flugvélaiðnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.