Morgunblaðið - 22.03.1955, Page 16
Veðurútli! í dag:
Allhvass NA. Skýjað og sums-
staðar lítilsháttar snjókoma.
67. tbl. -— Þriðjudagur 22. marz 1955
Béndi á Ströndum missir
1 4 ær aí lifraráli
10 ær komust; iiirina og eru 6 þeirra fárveikar siöan
Gjögri, 21. marz.
IGÆR og framan af deginum í dag, hefur verið mikil snjókoma
og 12—14 stiga frost. Er veðrið heldur að lægja eftir því sem á
<iaginn líður. Annars hefur verið fremur snjólétt hér í vetur, og
■veður sæmileg.
«>-----------------------—
frekar
GENGIÐ A HEY
Veturinn hefur verið
þ>ungur fyrir bændur, og gjafa-
frekur. Beitijörð hefur engin ver-
ið enn sem komið er vegna ísa-
laga á úthögum. Fjörubeit hefur
verið nokkur og hefur það létt
talsvert heygjöfina.
MISSTI 4 ÆR
Fyrir um það bil viku vildi
það óhapp til hjá Gunnari bónda
Lýðssyni að Víðinesi, að 10 ær
komust í þorskalifur, er skilin
hafði verið eftir í stampi fyrir
utan beitingaskúr, með þeim af-
leiðingum, að 4 ærnar drápust
strax, en hinar sex fárveiktust.
Létu þær lömbunum allar, og er
skaðinn þess meiri, að þær voru
flestar tvílembdar. Þær sem af
lifðu ofátið, hafa verið fárveik-
ar síðan og ekki snert gjöf, en
allar líkur eru þó til þess að þær
tóri.
LITLAR GÆFTIR
Undanfarið hafa gæftir verið
etirðar og fiskur fremur lítill.
Fyrir jólin var afli ágætur, en í
janúar gaf svo að segja aldrei á
«jó. í febrúar var afli aftur á
»aóti sæmilegur seinnipartinn. —
M.b. Örninn, 18 lesta, sem gerð-
ur er út frá Djúpuvík, hefur
þessa dagana verið með 2—2 Vá
lest í róðri.
RAUÐMAGAVEIÐI
Rauðmagaveiði er fyrir nokkru
hafin. Hefur rauðmaginn veiðzt
hér síðan í byrjaðan febrúar og
«r veiði ágæt nú orðið. Þá er
grásleppan einnig farin að veið-
ast dálítið, en annars er hennar
tími ekki kominn. í vor má búast
við'að margir muni stunda hrogn
kelsaveiðina, þar sem Kaupfélag-
ið muh nú í fyrsta skipti kaupa
grásleppuhrogn og rauðmaga til
reykingar. Annars hefur óhag-
stætt veður hamlað veiðunum
allverulega.
LÍTIÐ UM FÉLAGSLÍF
Hér á Ströndum hefur verið
mjög dauft yfir öllu félagslífi.
Stafar það þó aðallega af því,
að lítið er af yngra fólki í sveit-
unum, það fer óðara burt í at-
vinnuleit og það sér sér fært, en
eftir verður miðaldra gamalt
fólk, sem lætur sig tilbreytni
litlu skipta. — Regína.
Hafís
A SUNNUDAGINN bárust fregn
4r af ís út af Rauðu núpum, en í
gær bárust ekki neinar fregnir
þaðan, enda hríð og stórsjór, svo
skipaferðir munu ekki hafa verið
við Langanes í gær. En á sunnu-
daginn var ísinn að nálgast land-
ið. Ekki kvaðst Jón Eyþórsson
geta sagt neitt um þenna ís og
ekki væri ástæða til að óttast ís-
rek þetta að sinni, því oftlega
befði hafís lónað upp undir Langa
nes. Aftur á móti er spáð áfram-
haldandi norðaustan átt og því
ekki að undra þá Norðlendingar
óttist þennan forna fjanda.
í gærkveldi var svo lesin ís-
fregn frá Vestfjörðum. Var hún
frá m.s. Dísarfelli, sem sendi hana
kt. 16,30.
„ísbreiða, ekki m.jög þétt, 15
s.jómílur norður af Geirólfsgnúp,
virðist reka að landi“.
Dísarfellið hafði orðið að leita
í var vegna veðurs.
□-
-□
Benzinsala !il Iskna
sföðvuð
• í HÁDEGISÚTVARPINU í
gær auglýstu olíufélögin í Reykja
vík að þau myndu selja benzín
á bifreiðar lækna, ljósmæðra
sendiherra erlendra ríkja og ann-
arra sem umsamið var við verka-
lýðsfélögin fyrir verkfallið, að
skyldu fá benzín á meðan á því
stæði. Átti salan að fara fram við
benzínafgreiðslu Esso í Hafnar-
stræti til að byrja með. En er
hefja átti sölu benzínsins komu
verkfallsverðir á vettvang og
stöðvuðu söluna á þeim forsend-
um, að þar eð ekki fengist af-
greitt benzín til þeirra bifreiða,
er verkfallsnefndin æskti til
sinna manna, þá fengju engir
benzín. Var því ekkert benzín af-
greitt þar í gær.
9 S.l. laugardag auglýstu
olíufélögin afgreiðslu benzíns og
kom þá mikill fjöldi bifreiða
fyrsta hálftímann, en af öllum
þeim bifreiðum voru aðeins þrjár
bifreiðar, sem heyrðu undir áður-
gerða samninga um benzínsölu,
allir hinir voru á vegum verk-
fallsnefndarinnar. Neituðu olíufé
lögin að selja þeim benzín nema
þau fengju leyfi til þess að selja
jafnmörgum atvinnuveitendum
benzín. Á það var ekki fallist og
benzínsalan því stöðvuð.
Báhir á bát oían!
S.I. sunnudag var veður allhvasst í Reykjavík. Bar það þá til á höfninni hér að tveir litlir vélbátar
sukku þar sem þeir voru bundnir við Ægisgarð. Myndin hér að ofan var tekin í gærmorgun og sést
á henni hvar kafarabátur Hamars h.f. hefur lent ofan á stýrishúsinu á öðrum hinna sokknu báta,
Sá bátur er í eigu Olluverzlunar íslands og mun vera notaður í sambandi við losun olíuskipa í stöð-
ina í Laugarnesi. Skemmdist báturinn talsvert. — Ljósm. Andri Heiðberg.
□-
-□
Hæffa á olíuifiorti
OLÍUSKIPIN tvö Leningrad og
Smeralda, sem voru að losa olíu
hér í Reykjavík er verkföllin
hófust, liggja nú, annað í Hval-
firði en hitt í Kollafirði. Munu
vera um 3 þús. Jestir eftir af
farmi Leningrad en 8 þús. lestir
í Smeralda. Hefur ekki fengizt
leyfi til þess hjá verkalýðsfélög-
unum að losa skipin.
Þar eð það er gífurlegur kostn-
aður að láta skioin bíða hér,
kostnaður sem nemur hundruð-
um sterlingspunda á dag, munu
olíufélögin neyðast til þess að
selja olíuna til Evrópu og mun
nú verið að vinna að því að svo
verði. En ef svo verður gert mun
landið verða olíulaust eftir að
samningar hafa tekizt í yfirstand-
andi vinnudeilu.
Eitt olíuskip er nú á leiðinni
hingað til lands, en óráðið er enn
hvort því verður snúið við eða
ekki. Er þó sennilegra að svo
fari.
Lögin um tíkurnar
samþykkt frá Alþingi
Börn undir 15 ára aldri mega ekki aka þeim
IGÆR var samþykkt sem lög frá Alþingi frumvarp dómsmála-
ráðherra um viðauka við bifreiðalögin varðandi reiðhjól með
hjálparvél. Samkvæmt lögum þessum er sett 15 ára aldursskilyrði
til þess að mega aka reiðhjólum með hjálparvél.
færeyskur togari sem strandaði
í Herdísarvík leitar hafnar hér
UM klukkan 11 á laugardagskvöldið sendi færeyski togarinn Venus
frá Sandavogi í Færeyjum, út neyðarskeyti. Var togarinn þá
strandaður suður í Herdísarvík, í fjörunni þar.
Slysavarnafélagið brá að venju (____________________
skjótt og vel við og fóru björg-;
unarsveitir á staðinn úr Grinda-
vík, Hafnarfirði og Reykjavík.
Veður var sæmilega hagstætt
á strandstaðnum. Þá var að falla
að, og um háflóðið, um klukkan
3, komst togarinn á flot af eigin
rammleik.
BOTNINN SKEMMDUR
í ljós kom á eftir, að togarinn
hafði laskazt svo í botninn, að
skipstjórinn taldi sig ekki geta
haldið áfram veiðiförinni. í gær
kom togarinn hingað inn. Fékkst
leyfi til þess að taka hann upp
í slipp, en allir starfsmenn Slipps
ins eru í verkfallinu. í gær-
kvöldi var ekki vitað hvort hinn
færeyski togari myndi fá undan-
þágu til viðgerðar.
LÍTILL TOGARI
Togarinn Venus er álíka stór
og gömlu togararnir, sem héðan
voru seldir til Færeyja. Hann
var nýbyrjaður saltfiskveiðar hér
við land. Áhöfn hans er 30. —
Á Herdísarvík ætlaði togarinn að
liggja í vari um helgina.
B.v. Venus í Reykjavíkurhöfn í
gær. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Sigurður Óli Ólason, framsögu-
maður allsherjarnefndar Efri
deildar gerði grein fyrir frum-
varpinu. Lagði hann til að frum-
varpið væri samþykkt.
REIÐHJÓL MEÐ HJÁLPARVÉL
Efni frumvarpsins er að bæta
nýjum kafla við bifreiðalögin,
sagði Sigurður, og fjallar hann
eingöngu um reiðhjól með hjálp-
arvél, en svo nefnast þau reið-
hjól, sem hafa aflvél minni en 1
hestafl, og þó ekki yfir 50 rm-
sentimetra strokkstærð og ekki
yfir 50 kg þyngd.
NOTUH MIKIÐ AF
UNGLINGUM
Þessi faratæki hafa ekki fallið
undir ákvæði bifreiðalaganna og
taldi Sigurður ekki rétt að hafa
það svo lengur, einkum vegna
þess að farartækjum þessum hef-
ur fjölgað mjög undanfarin ár og
eru notuð mikið af unglingum svo
ekki sé sagt börnum, sem vitan-
lega má teljast vafasamt að hafi
æfingu í akstri eða meðferð hjól-
anna eða vitneskju um einföld-
ustu umferðarreglur.
Hefur því talizt nauðsvnlegt
að setja reglur um lágmarksald-
ur og að lögregluyfirvöld rann-
saki, að þeir sem óska eftir að
aka hjólunum hafi ákveðna kunn
áttu og þekkingu. Þá hefur og
talizt nauðsynlegt vegna haes-
muna almennings að farartækin
séu tryggð fyrir tjóni, sem þau
valda öðrum.
ÞÆGILEG OG IIENTUG
FARARTÆKI
Það er vafalaust, sagði Sig-
urður Óli Ólason, að reiðhjól
þessi eru þægileg og hentug
að ýmsu Ieyti, enda notuð
töluvert mikið af vinnandi
fólki t.d. að og frá vinnu og í
ýmsar smærri sendiferðir. —
Það væri því ekki rétt að setja
nein þau ákvæði í lög þessi,
sem drægju úr eðlilegri og
heilbrigðri notkun þeirra,
enda virðist það ekki gert með
þessari lagasetningu, heldur
stefnt að því að koma í veg
fyrir misnotkun þeirra og
auka umferðaröryggi.
Læknfsaðgerð í
Kaupmannahöfn
DOUGLASFLUGVÉLIN, sem
flaug til Kaupmannahafnar með
Einar Lúðvíksson, sem slasaðist
á höfði, er hann var að vinna með
naglabyssu austur á Stokksnesi f
Hornafirði fyrir skömmu, kom
til Reykjavíkur aftur um mið-
nættið í gær.
Flugvélin fór héðan síðari
hluta laugardags og kom til
Kaupmannahafnar kl. 4.30 um
morguninn. Var Einar þá strax
og lent hafði verið, ekið til sjúkra
húss ,og hafin aðgerð á höfði
hans. — Framkvæmdi aðgerðina
próf. Busch, en hann er kunnasti
heilaskurðlæknir Dana. Stóð að-
gerðin yfir allan fyrri hluta dags-
ins og mun hafa verið ein erfið-
asta skurðaðgerð, sem próf.
Busch hefur unnið. Tókst hún
vel.
Ferðin gekk í alla staði vel og
fór vélin á óvenjulega stuttum
tíma leiðina eða á röskum 8 klst.
frá Khöfn. til Reykjavíkur.
Borgarsljðri í boðl
Þjéðræknisfélags ’
GUNNAR Thoroddsen, borgar-
stjóri, flaug s.l. sunnudagskvöld
vestur um haf. Fer hann ferð
þessa i boði Þjóðræknisfélags ís-
lendinga i Vesturheimi og Mani-
tobaháskóla. Mun hann flytja
fyrirlestra á vegum háskólans og
þjóðræknisfélagsins og ferðast
um íslendingabyggðirnar.