Morgunblaðið - 13.04.1955, Qupperneq 1
16 síður
Bóluefni gegn lömunarveiki fundiÖ
Hinn nýi barnaskóli og kapelia í Hnifsdal
greininni sem er á bls. 9).
(Árni Matthíasson tók allar myndirnar, sem fylgja
Hefur verið reynt á
500 þúsund börnum og
gefið mjög góða raun
ANN ARBOR, Michigan, 12. apríl — frá Reuter-NTB
% ¥ DAG var kunngert um áfangaskil í sögu vísindanna,
er tilkynnt var um árangur af bölusetningu nær
500 þús. barna með nýju bólusetningarlyfi gegn lömunar-
veiki. Hefur reynslan leitt í ljós, að bóluefnið varnaði mænu-
veiki í 80—90 af hverjum 100 tilfellum.
0 Það er bandarískur læknir Jonas E. Salk sem starfar
við háskólann í Pittsburg er lyfið fann. Bólusetningar-
lyf hans gaf svo góðar vonir, að skipulögð var bólusetning
nær 500 þús. barna. Er árangur þeirrar bólusetningar kunn-
ur með áðurnefndum og gleðilegum niðurstöðum. Dagsins
— 12. apríl — verður ef til vill um alla framtíð minnst sem
sigurdagsins yfir þeim hræðilega sjúkdómi, sem barnalöm-
unarveikin var.
Verkfallið hefir staðið í fjórar vikur
Tilgangslausasta
verkfall, sem hér
hefir verið háð
VERKFALLIÐ hér í Reykjavík og Haínarfirði hefur á
morgun staðið í 4 vikur. Yfir páskana hefur ekkert
gerzt í því, sem skapar möguleika eða líkur fyrir skjótum
sáttum. Aðeins einn fundur hefur verið haldinn með hinni
stjórnskipuðu sáttanefnd og fulltrúum deiluaðila yfir páska-
belgina. Var hann haldinn kl. 4—7.30 eftir hádegi s. 1. laug-
ardag. Gerðist þar ekkert sem til tíðinda verður talið.
Á þessum tæpum 4 vikum, sem verkfallið hefur staðið
hafa verkamenn og aðrir þátttakendur þess tapað nálægt
8% af árslaunum sínum. Er af því auðsætt, hversu gífur-
legt tjón það hefur í för með sér.
Gert er ráð fyrir, að sáttanefndin boði til fundar með
fulltrúum deiluaðila í dag.
TILGANGSLAUST
VERKFALL
Ástæða er til þess, þegar þetta
verkfall hefur staðið í tæpan
mánuð, að athuga nokkur atriðj
í sambandi við það.
í fyrsta lagl er þannig til þess-
arar vinnudeilu stofnað hér i
Reykjavík, að í henni taka þátt
verkalýðsfélö^, sem í eru bæði
lægst launaða verkafólkið og
hæstlaunuðu iðnaðarstéttirnar.
Af því hlýtur það að leiða, að um
leið og þessi félög fengju sam-
eiginlega kauphækkun, þá hlytu
öll önnur verkalýðsfélög innan
Alþýðusambands íslands að
Churchill:
— Nei takkl
HEIMSBLÖÐIN skýra frá því, og
segjast hafa góðar heimildir fyr-
ir, að Elisabet Englandsdrottning
hafi boðið Churchill aðalstitil.
En gamli maðurinn, sem í 50 ár
hefur staðið í fremstu víglínu og
í 8 ár gg 7 mán. setið í stóli for-
sætikráðherra Englands, hafnaði
því góða boði drottningar. Hans
tiltill er því enn óbreyttur — eða
Sir Winston Churchill.
í dag hélt Sir Winston með
konu sinni til Sikileyjar, þar sem
hann mun hvílast um sinn. Við
brottförina frá flugvellinum barst
honum einkabréf frá drottningu
og kveðja frá Eden.
krefjast sömu kauphækkunar og
fá hana innan mjög skamms
tíma.
í öðru lagi hefur það verið
gefið í skyn af ríkisstjórninni, á
Alþingi og í blöðum, að opinberir
starfsmenn muni fá hliðstæðar
kauphækkanir og um semst við
verkalýðsfélögin.
í þriðja lagi, er það ákveðið
með lögum, að verðlag landbún-
aðarafurða skuli hækka nokkurn
veginn í samræmi við hækkun
kaupgjalds við sjávarsíðuna.
Gerist þetta sumpart strax og
kauphækkunin hefur farið fram
og sumpart á komandi hausti.
í fjórða lagi hlyti vöruverð al-
mennt að hækka með auknum
tilkostnaði verzlunarinnar, sem
leiddi af hækkuðu kaupgjaldi, a.
m. k. ef engar sérstakar ráðstaf-
anir yrðu gerðar til þess að koma
í veg fyrir verðlagshækkanir.
HÆKKUN BYGGINGAR-
KOSTNAÐAR
í fimmta lagi hlyti fyrsta af-
leiðing almennra kauphækkana
að verða hækkun byggingarkostn
aðar í landinu. Af því hlýtur aft-
ur að leiða hækkun húsaleigunn-
ar.
í sjötta lagi þarf svo enginn að
fara í grafgötur um það að ef
veruleg kauphækkun yrði hlyti
það að þýða verðfellingu ís-
lenzkrar krónu.
Þær ályktanir sem af fyrr-
greindum atriðum má draga,
eru fyrst og fremst þær, að
Framh. á bls. 2
Gerðordómnr
í vinnudeilu
KAUPM HÖFN 12 apríl. — Á
ráðherrafundi dönsku stjórn-
arinnar i dag var akveðið að
leggja i'ram á þinginu laga-1
frumvaip um gerðardóm með
úrskurðarvaldi tii að leysa
landbúuuðardeiluna og komast
hjá stöðvun á framleiðslu mik-1
ilvægustu útflutningsvara
landsins. Mun ákveðið, að
þingið hraði mjög meðferð
frumvaipsins. Sósíaldemó-
kratar og radikalir tryggja
samþyhkt frumvarpsins. Enn
er óvíst Iiverja afstöðu íhalds-
menn og vinstrimenn taka til
málsins. —Páll.
* BÓLUEFNINU LÝST
Fimm hundruð blaðamenn og
útvarpsmenn voru viðstaddir er
kunngert var um árangur bólu-
setningarinnar. Dr. Thomas
Francis jr., sá er hafði yfirum-
sjón með framkvæmd bólusetn-
Vill frið
við Formósu
WASHINGTON 12. april. — í út-
varpsræðu er Adlai Stevenson,
frambjóðandi demókrata við for-
setakosninzarnar í Bandaríkjun-
um 1952 1 élt í dag. — Sagði
hann, að nauðsyn bæri nú
til að höfð vrði um það alþjóðleg
samvinna að fordæmo og koma
í veg fyri" beitingu hervalds á
Formósusv æðinu. Þau mál yrði
að leysa eítir samkomulagsleið-
um.
— NTB-Reuter
Valdhöfum vikið frd
M'
Chou En Lai valtur í sessi
'ENNIRNIR í Peking“ virðast nú eiga í erfiðum innbyrðis
deilum svipuðum þeim, er „mennirnir í Kreml“ áttu í fyrir
fall Malenkovs. Það ber að sama brunni í Peking og gerði í
Moskvu, að talsmenn þungaiðnaðarins heyrast hæst og oftast, ná-
kvæmlega eins og í Moskvu, þar sem talsmenn aukinnar fram-
leiðslu neyzluvöru fengu háðulega útreið, meðal þeirra Malenkov.
★ SAMA SAGAN |versku stjórninni og Kao Kang,
í Moskvi’ leiddi va’dabaráttan sá er sá um framkvæmd 5 ára
til þess að Bulganin marskálkur,
æðsti maður hersins, var skipað-
ur æðsti n.aður landsms. — Naut
hann öflugs stuðnings Krushc-
hevs aðalritara kommúnista-
flokksins. Og af fréttum að aust-
an virðisf mega ráða að for-
sætis- og utanríkisráðherra „al-
þýðulýðveldisins“ muni eiga
hægt með að „fá sig lausan frá
störfum“ ef svo kurteislega
mætti að orði komast'
Fari svo þá er það ritari kín-
verska kommúnistaflokksins, Liu
Shao-Chih sem kemur til með
að fara með sigur af hólmi.
★ HREINSUNIN
Fyrstu opmberu kínversku til-
kynningarnir um hreinsunina
komu, er =kýrt var frá því, að
látið höfðu af störfum yfirmað-
ur Mansj úríudeildarinnar í kín-
áætlunarinnar En forsaga þess
Framh. á bls. 12
ingartilraunarinnar, skýrði við-
stöddum frá árangrinum. Sagði
hann að bóluefnið væri öruggt,
áhrifaríkt og máttugt. Víst væri
að héðan í frá yrðu börn víðs
vegar um heim bólusett með
mjög góðum árangri gegn löm-
unarveiki. Sagði hann efnið vera
sérlega árangursríkt gegn þeirri
tegund lömunarveikinnar, sem
hættulegust væri og hefði reynzt
fullkomlega vel í 80—90 af hverj-
um 100 tilfellum annarar teg-
undar mænuveiki (paralytic
polio).
★ TÍU ÁR
Sá er þetta bóluefni fann, lækn
irinn Jonas E. Salk, sem er fer-
tugur að aldri, tók einnig til
máls um sitt bóluefni. Lýsti hann
ánægju sinni yfir árangri bólu-
setningarinnar og kvaðst vona að
nú væri sigur unnin yfir hörm-
ungum þeim, er þessi hryllilegi
sjúkdómur hefði valdið. Kvað
þessi gæfusami læknir það að
lokum skemmtileg* og einkenni-
lega tilviljun að árangur bólu-
setningarinnar væri kunngerður
nú í dag er 10 ár væru liðin frá
láti þess manns er kunnastur er
allra lömunarveikissjúklinga —
Franklins D. Roosevelts.
Fleiri mætir og víðkunnir menn
innan læknastéttarinnar tóku til
máls. Lýstu þeir Salk-bólulyfinu
sem einni mestu uppfinningu
heims. Sögðu þeir, að fullorðið
fólk þyrfti ekki að hlaupa til í
neinu æði að láta bólusetja sig,
því margir fullvaxta væru ónæm-
ir fyrir sjúkdóminum, en með
börnin gegndi öðru máli.
Það kom fram við umræðurn-
ar, að bólulyfið vinnur gegn öll-
um þeim tegundum mænuveiki,
sem vitað er að hrjáð hafa mann-
kynið. Þetta lyf er því guðsgjöf
! mikil og innan skamms mun
það sent víða um lönd til bless-
I unar flestum þeim er þess njóta.
Dýrt œvintýri!
Bonn, 12. apríl —
frá NTB-Reuter.
YFIRMAÐUR bandarísku herj-
anna sem staðsettir eru í Evrópu,
sagði í Bonn í dag, að það varn-
arkerfi sem nú væri unnið að í
Evrópu, gerði það kleift að draga
varnarlínuna austar í Þýzkalandi,
en gert hefði verið ráð fyrir til
þessa. Sagði hann að horfið hefði
verið frá þeirri skoðun sem ofan
á varð 1950, að hörfa fljótt til
varnarstöðva við Rínarfljót, ef til
árásar kæmi. Nú væri ákveðið,
að verja hverja tcmmu Iands.
Hann kvaðst ekki vilja full-
yrða, að herafli Vesturveldanna
í Þýzkalandi myndi standast
hverja þá árás sem á hann væri
gerð. En hitt kvaðst hershöfðing-
inn fullviss um, að sérhver til-
raun til árásar á Þýzkaland yrði
mjög kostnaðarsamt ævintýri.
Yfirhershöfðinginn, Collins,
lét í ljós ánægju með það að Þjóð-
verjar tækju sér nú stöðu við hlið
innarra Evrópuþjóða er her hefðu
til varnar ef til áiásar kæmi.