Morgunblaðið - 13.04.1955, Side 4
9
MORGUNBLAÐID
Miðvikudagur 13. apríl 1955
1 <lag er 104. dagur ársins.
13. apríl. JSS
Árdegisflæði kl. 8,50.
Síðdegisflæði kl. 21,15.
Læknir er í læknavarðstofunni,
sírai 5030 frá kl. 6 siðdegis til kl.
8 árdegis.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1618. Ennfremur eru
Holts-apótek og Apótek Austur-
feæjar opin daglega til kl. 8, nema
'á laugardögum til kl. 4. Holts-
apótek er opið á sunnudögum
iiilli kl. 1 og 4.
Hafnarf jarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
0—16 og helga daga milli kl. 13-16.
□ MÍMIR 59554147 — kjörf.
St.-.St.-. 59554137 — VII.
• Afmæli •
Sjötug er í dag Valgerður Jóns-
dóttir frá Götuhúsum á Stokks-
eyri. —
Sjötugur er í dag Þorsteinn
Jónasson bóndi að Kongsbakka í
Helgafellssveit.
• Brúðkaup •
s. 1. laugardag fyrir páska voru
fefin saman í hjónaband af séra
orsteini Björnssyni Áslaug
Helga Arngrímsdóttir (Kristjáns-
sonar skólastjóra) og Baldur Mar
íusson garðyrkjumaður, Ólafsson-
ai-, kaupmanns. — Heimili þeirra
er að Hringbraut 39, Rvík.
9. þ.m. voru gefin saman í
lijónaband af séra Þorsteini
Björnssyni Guðlaug K. Alberts-
dóttir, Brautai-holti 22 og Max
Kushner, Keflavíkurflugvelli. —
Heimili ungu hjónanna er að
Bvautarholti 22.
S.l. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Anna Pét-
ursdóttir og Stefán J. Björnsson,
skrifstofustjóri, Mávahlíð 23.
Á páskadag voru gefin saman
í hjónaband af séra Gunnari Árna
syni, ungfrú Hrefna Kristjana
Maríasdóttir og Björn Gislason,
vélvirki. Heimili hjónanna er á
Digranesvegi 12, Kópavogi.
S.l. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Magnúsi
Guðjónssyni, ungfrú Kristín Jó-
steinsdóttir, Stokkseyri og Björg-
vin Guðmundsson, Stokkseyri.
Á páskadag voru gefin saman
í hjónaband af séra Birni Jóns-
syni í Keflavík ungfrú Marin
Marelsdóttir, Sóltúni 7 Keflavík
og Guðjón Ólafsson, sama stað.
Heimili þeirra verður að Sóltúni 7
• Hjónaefni •
Á páskadag opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Elín Jónsdóttir,
Hrepphólum, Hrunamannahreppi
og Baldur Loftsson, iSandlæk,
Gnúpver jahreppi.
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Elsa Jóhannes-
KÆRI JÓN
KOM ÞÚ TIL MÍN
Þessar vinsælu plötur
fást hjá útgefanda:
Lækjarg. 2. Sími 1815.
Sýning Braga Ásgeirssonar framlengd fil fösludags
Sýningunni átti að ljúka í gær, 12. apríl, en vegna góðrar aðsókn-
ar verður hún opin áfram til föstudags n. k. 28 myndir hafa þegar
selzt og hafa á annað þúsund manns sótt sýninguna.
— — - - :**-**mvKK
dóttir, afgreiðslustúlka, Njálsgötu
43A og Hilmar Magnússon, bilstj.,
Miðstræti 4.
Á skírdag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Kristín Bögeskov,
Seljalandsvegi 19 og Björn Sig-
urðsson, Möðruvöllum, Hörgárdal
og einnig ungfrú Marie Bögeskov,
Seljalandsvegi 19 og Hilmar
Björnsson, Kársnesbraut 2.
Á páskadag opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Margrét Árnadótt
ir, verzlunarmær, Norðurstíg 7 og
Gísli Guðmundsson, lögregluþjónn
frá Hurðarbaki í Flóa.
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sina ungfrú Unnur Berg-
sveinsdóttir, Kambsvegi 6 og Þór-
ólfur Ingólfsson, Hverfisg. 92B.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sina ungfrú Ólöf Jónsdóttir,
Tjamargötu 16, Rvík og Baldur
Zophoníasson, Karfavog 33.
Á páskadag opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Jóhanna M. Ing-
ólfsdóttir, Laugarnesvegi 80 og
Sveinn Sigmundsson, skrifstofu-
maður, Sólvallagötu 54.
Á annan páskadag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Ingibjörg
Anna Gísladóttir, Nýjabæ, Garði
og Aðalbjörn Heiðar Þorsteins-
son, Brekku, Siglufirði.
Frammistöðu-
stúlka
óskast. — Uppl. i Gildaskál
anum, Aðalstræti 9, kl. 5—
6 í dag.
1 herbergi
og eldhús óskast til leigu.
Fyrirframgreiðsla, ef óskað
er. Tilb. sendist Mbl., fyrir
15. apríl, merkt: „íbúð —
982“. —
Athugið
Maður, í góðri stöðu, óskar
eftir 8 þús. kr. láni til sex
mánaða. Örugg trygging.
2.000,00 kr. vextir og skil-
vís greiðsla. Tilb. sendist
afgr. Mbl., fyrir kl. 6 e.h.,
föstud. 15. þ.m., merkt: —
„Skilvís — 968‘-‘.
Stúdentar M.R. 1945
Bekkjarfundur verður haldinn
laugardaginn 16. apríl kl. 4 að
Röðli. — '
Tólfti september
í blaðinu s. 1. fimmtudag, 7.
apríl (skírdag), þar sem skíi-t var
frá úrslitum í Danslagakeppni S.
K. T., var höfundarnafnið Tólfti
September ritað „12. september".
Bið ég yður vinsamlegast að leið-
rétta þetta. — Virðingarfyllst,
Tólfti September.
Kvöldvaka í
Góðtemplarahúsinu
Stúkan Einingin gengst fyrir
skemmtikvöldi í G.T.-húsinu í
kvöld kl. 9. Þar verða sýndar 3
kvikmyndir og leikin verða og
sungin íslenzk lög. Aðgangur er ó-
keypis.
Lúðrasveitin Svanur
sér að þessu sinni um kvöldvöku
lúðrasveitanna í Reykjavík og
Hafnarfirði, en þær hafa myndað
með sér samtök til eflingar félags
starfsemi sinni. Hefur ein kvöld-
vaka verið haldin og tókst hún
með ágætum, en þá sá Lúðrasveit
Reykjavíkur um hana. Annað
kvöld kl. 8,30 verður kvöldvaka í
Skátaheimilinu, og verður þar
ýmislegt til skemmtunar.
Sólheimadrengurinn
Afh. Mbl.: Magnús Valur Jó-
hannss., kr. 100,00. S. J. kr. 20,00.
Til fólksins, sem brann hjá
íí Þóroddsstaða-camp
Afh. Mbl.: Hildur kr. 50,00; L.
kr. 100,00.
Sumarskóli
guðspekimanna verður í sumar
fiÆFA FYLGIH
trúlofunarhringunum frá Sig-
urþór, Hafnarstræti. — Sendir
gegn póstkröfu. — Sendið ná-
kvæmt mál. —
sem endranær og hefst hinn 25.
júní í Hlíðardal. Væntir skóla-
nefndin þess að væntanlegir nem-
endur, sem á nám hyggja, gefi sig
fram hið fyrsta, en í nefndinni
eru: Axel Kaaber, Helga Kaaber,
Guðrún Indriðadóttir, Steinunn
Bjartmarsdóttir og Kristján Sig-
urður Kristjánsson og hafa nefnd
armenn allir síma.
Leiðrétting
1 frásögn blaðsins um garð-
yrkjustöðvar, skal leiðrétt, að 27
garðyrkjustöðvar eru í Hvera-
gerði og nágrenni að stærð 9 dag-
sláttur, en ekki á öllu landinu eins
og misritast hefur. — Garðyrkju-
bændur eru nú um 130 á landinu
og hafa garðyrkju sem aðalat-
vinnuveg en gróðurhúsa- og
vermireitaræktun mun vera sem
næst 7,5 ha. að flatarmáli.
Frá Ræktunarráðunauti
Reykjavíkur
Garðræktendur eru áminntir um
að greiða nú þegar afgjöld af
matjurtagörðum sínum, ef þeir
ætla að halda garðinum á kom-
andi sumri.
Skellinöðru
var stolið á þriðjudaginn var,
úr garði hússins Smáragötu 5. —
Var þetta svart hjól og hjálpar-
mótorinn fyrir aftan sætið og var
það Disella-mótor. — Númer
skellinöðrunar var R-238. — Hafi
einhver orðið hennar var, er við-
komandi beðinn að gera rannsókn-
arlögreglunni aðvart.
Spilakvöld Sjálfstæðisfé-
laganna í Hafnarfirði
er í kvöld í Sjálfstæðishúsinu og
hefst kl. 8,30. Spiluð verður fé-
lagsvist og verðlaun veitt. Þetta
verður næst síðasta spilakvöldið á
vetrinuin.
Ferniingar-
% gjafir:
p
\Si Cuifarar
3 rp Munnhörpur
(Krómatískar)
b
PSafuspilarar
rí&ar
^JJet^adóLt (
ur
Lækjarg 2. Sími 1815.
tegfeSSWswtair ■
Styrktarsjóður munaðar-
lausra barna. — Sími 7967,
Bæjarbókasafnið
Lesstofan er opin alla virka daga'
frá kl. 10—12 árdegis og kl. 1—10
síðdegis, nema laugardaga kl. 10
— 12 árdegis og kl. 1—7 síðdegis.
Sunnudaga frá kl. 2—7 síðdegis.
Utl-ánadeildin er opin alla virka
j daga frá kl. 2—10, nema laugar*
daga kl. 2—7 og sunnudaga kL
5-7. J
Hrækið ekki á gangstéttir.
Minningarspjöld
Krabbamcinsfél. íslands
fást hjá öllum póstafgreiðslumi
landsins, lyfjabúðum í Reykjavík
og Hafnarfirði (nema Laugavegs-
og Reykjavikur-apótekum), — Re-
media, Elliheimilinu Grund og
skrifstofu krabbameinsfélaganna,
Blóðbankanum, Barónsstíg, sími
6947. — Minningakortin eru af-
greidd gegnum síma 6947.
Hrækið ekki á gangstéttir.
Málfundafélagið óðinn
Stjóm félagsins er til viðtals
við félagsmenn í skrifstofu félags-
ins á föstudagskvöldum frá kl.
8—10. — Sími 7104.
• Utvarp •
Miðvikudagur 13. apríl:
i 8.00—9,00 Morgunútvarp. 10,10
Veðurfregnir. 12,00—13,15. Hádeg
isútvarp. 15,30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir. 18,55 Bridge-
þáttur (Zóphónías Pétursson). —•
19,10 Þingfréttir. 19,25 Veður-
fregnir. 19,30 Óperulög (plötur).
19,40 Auglýsingar. 20,00 Fréttir.
20.30 Erindi: Bifreiðaferðalög á
meginlandinu (Séra Sigurður Ein-
arsson). 21,00 Óskastund (Bene-
dikt Gröndal ritstjóri). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Upplestur: „Höfuðdúkurinn", smá
saga eftir D. V. Campíbell-Baines
(Guðb.iörg Þorbjarnardóttir leik-
kona). 22.30 Harmonikan hljómar.
Karl Jónatansson kynnir harm-
onikulög. 23,10 Dagskrárlok.
I Drengjahlaap
| Ármanns
DRENGIAHLAUP Ármanns
verður háð fyrsta sunnudag í
sumri 24. ^príl kl. 10,15 árd. —>
Keppt verður í fimm manna
sveitum um bikar, sem Eggert
Kristjánsson stórkaupm. hefur
gefið og í 3 manna sveitum um
bikar gefmn af Jens Guðbjörns-
syni. Handhafi beggja bikaranna
er Glímufélagið Ármann. Öllum
íþróttafélögum innan F.R.Í. er
heimil þátttaka, og skal tilkynna
hana viku fyrir hlaupið.