Morgunblaðið - 14.04.1955, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 14. apríl 1955
MORGVNBLAÐIB
11
Guðrún Þórarinsdóttir — minning rSipður Þ,írilarson
^ i T7VV* ní Klo n
GUÐRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR
andaðist að heimil sínu, Mels-
húsum í Hafnarfirði 1. apríl s. 1.
79 ára að aidri.
Hún var fædd í Fornaseli á
Mýrum rcstra 21. nóvember
1875. Var faðir hennar Þórarinn
Þórarinsson bóndi þar, Þorsteins
sonar prests Einarssonar að
Staðarhrauni, en móóir Guðrún-
ar var Þorgerður Oddsdóttir frá
Ráðagerði á Seltjarnarnesi.
Guðrún ólst upp í föðurgarði
og naut hins bezta uppeldis. Voru
foreldrar hennar góð hjón. Þar
vandist hún allri algengri vinnu
og naut góðrar fræðslu. Um
tvítugt hvarf hún að heiman.
Vistaðist hún þá til hjónanna
í Káranesi á Mýrum, Ásgeirs
Eyþórssonar og Jensínu Matthías-
dóttur. Sagðist henni svo frá, er
hún minntist dvalar sinnar þar,
að lánsöm hefði hún verið með
staðinn, því að betri húsbændur
hefði hún ekki getað kosið sér.
Dvaldi hún með þessum mætu
hjónum í nokkur ár, en mun
fyrir áeggjan og hvatning hús-
freyjunnar hafa horfið til Reykja
víkur til saumanáms. Mun slíkt
ekki hafa verið algengt á þeim
tímum, að húsbændur hvettu hjú
sín til nárns. Dvöl hennar í
Reykjavík varð þó ekki löng.
Þaðan lá leið hennar suður í
Hafnarfjörð, og dvaldi hún þar
til dauðadags.
Árið 1902 giftist hún eftirlif-
andi manm sínum, Helga Guð-
mundssym sjómanni frá Hellu í
Hafnarfirði.
Reistu þau hjón bú í litlu húsi,
er Helgi lét byggja syðst í bæn-
um, og köl:uðu þau hús sitt Mels-
hús.
Á þeim árum voru lífsþægind-
in af skornum skammti, en nægju
semin því meiri. Allt vatn þurfti
að sækja langar leiðir að og voru
ekki önnur ráð en bera það í
fötum. Vatnsburðurinn féll oft-
ast í hlut húsmóðurinnar, þar
sem eiginmaðurinn var sjómað-
ur, og var oft langdvölum að
heiman. Var það erfitt verk og
oft þrekvirki í óveðrum og illri
færð. En þetta er aðeins eitt
dæmi um hinn langa vinnudag
og óskráðu afrek, sem alþýðu-
konan vam í byrjun tuttugustu
aldarinnar.
Þessum afrekum er ekki hald-
ið á lofti, hvorki af þeim, sem
þau unnu, né öðrum. Þau tala þó
skýru máli, þótt þau væru unnin
í kyrrþev og æðruleysi.
Með þrotlausu starfi og striti
'skilaði þessi kynslóð í hendur
afkomendanna betra landi og
fegurra lifi.
Guðrún Þórarinsdóttir var einn
slíkur liðsmaður sinnar kynslóð-
ar. Við hhð bónda síns' stóð hún
örugg, fórnfús og sívinnandi.
Litla húsið þeirra var byggt
á grjótmel, en eigi liðu mörg ár,
unz þau höfðu breytt melnum
í skrúðgrænt tún.
Guðrúnu var í blóð borin
gestrisni, góðvild og hjálpsemi.
Munu þeir ótaldir, göngulúnir
ferðamenn er nutu hressingar og
hvildar í litla húsinu, sem enn
er syðsta húsið í byggðinni við
þjóðbrautina. Aldrei var svo
þröngt í Melshúsum að eigi væri
þar rúm fyrir þá, sem að garði
bar.
En hagur þeirra blessaðist, og
aldrei urðu þau bónbjargar-
menn.
Guðrún lifði þá tíma, að sjá
allt taka miklum og skjótum
framförum. Sliku fagnaði hún
af alhug. Óllum vildi hún vel og
gladdist yfir gengi annarra. Trú-
kona var hún mikil og einlæg,
enda kom það glöggt fram í verk-
um hennar. Sá styrkur var henni
gefinn að bera hverja raun með
stillingu og jafnaðargeði.
Þeim hjónum varð fimm barna
auðið. Stúlku misstu þau á
harnsaldi. Einkasonur þeirra,
sr. Guðmundur prestur í Nes-
kaupstað, féll í valinn á bezta
aldri. Fyrir rösku ári hné önn-
ur bára. Þá drukknaði tengda-
sonur Guðrúnar frá ungri konu
og fimm börnum, en ungu hjón-
in höfðu búið með gömlu hjón-
unum. Auk barna sinna ólu þau
hjónin upp dótturson sinn. Þrjár
dætur eru á lífi, búsettar í Hafn-
arfirði.
j Með fráfalli Guðrúnar lauk
merkri og góðri ævi. Hinn aldni
eiginmaður saknar góðs föru-
nauts. Eftir lifa góðar minning-
] ar, langrar og traustrar sam-
. fylgdar.
Dætur og aðrir ástvinir þakka
mikla og góða móðurást.
Jarðarför Guðrúnar fór fram
laugardag.'nn fyrir páska.
Blessuð ré minning hennar.
Vinur.
Happdrælfi H.l.
18616
18822
19711
|20058
20306
20655
20920
21300
21480
21857
22290
22671
22953
23346
23728
24126
24528
25050
25299
25575
25702
26312
26881
27318
27543
27835
28361
28659
29012
29144
29447
29876
30428
30920
31388
31656
31991
32337
32797
33033
33293
33733
33955
34304
34707
34911
Framh
18640 18740
18891 18909
19795 19914
20060 20084
20311 20384
20680 20704
20960 21076
21328 21457
21508 21682
21883 21963
22329 22377
22774 22893
23109 23141
23412 23425
23954 23989
24128 24142
24746 24834
25171 25198
25524 25529
25579 25590
25832 26229
26459 26481
26958 27012
27352 27456
27646 27665
27884 27957
28383 28509
28699 28788
29016 29032
29211 29277
29530 29565
29961 29992
30514 30744
30955 31056
31507 31511
31661 31827
32090 32136
32493 32684
32834 32848
33156 33184
33304 33406
33782 33816
34013 34073
34457 34504
34752 34770
34946
(Birt án
af bls. 9
18743 18821
19271 19305
20017 20042
20132 20247
20418 20507
20820 20859
21078 21173
21468 21471
21818 21842
22021 22033
22409 22628
22915 22947
23184 23345
23480 23523
23992 24011
24193 24429
24908 24913
25203 25243
25537 25540
25595 25688
26254 26281
26563 26865
27023 27288
27515 27521
27690 27800
28149 28329
28554 28614
28967 29006
29086 29118
29300 29378
29660 29815
30125 30255
30861 30878
31144 31327
31553 31621
31847 31855
32181 32280
32744 32763
32947 32949
33226 33228
33536 33701
33824 33850
34122 33298
34619 34650
34795 34827
ábyrgðar). I
Frh. af bls. 7.
hafa æfingar stundum komizt
upp í 70—100 á starfsárinu. Söng-
ferðir kórsins til útlanda í fjög-
ur skipti voru mikið átak og þó
sérstaklega förin til Bandaríkja
Norður-Ameríku og Kanada 1946.
Sigurður leysti þá af hendi mik-
ið þrekvirki, því meginþungi
undirbúningsstarfsins og sigrar .
kórsins vestan hafs voru fyrst
og fremst hans verk.
í öllum söngferðum kórsins
bæði hér í Evrópu og Ameríku
hefur Sigurður jafnan hlotið
mjög loísamlega dóma fyrir
söngstjórn sína. Þetta kemur
þegar frarr. í fyrstu söngför kórs-
ins til Norðurlanda sumarið 1935.
Þegar ég lít á blaða-ummæli um
söng kórsins í þessari fyrstu ferð
hans, eru þau öll sammála um
þetta atriði Politiken segir t. d.
(17. maí 1935): „Með Sigurði
Þórðarsym hefur kórinn foringja
sem mótar allt af næmum smekk
og söngmenningu, sem er laus
við hverskonar arftekinn óvana
eða fánýtan hégóma, sem oft vill
I loða við söngfélög“. — Þannig
hafa dómar erlendra blaða jafn-
an verið um söngstjórn Sigurðar
! Þórðarsonar.
I Ég mun ekki gera hér að um-
alsefni tór.smíðar Sigurðar, sem
eru merkilegar og miklar að
vöxtum. Þjóðin þekkir margar
þeirra, en megin hlutinn hefur,
því miður, ekki enn komið fyrir
almenningssjónir. En með þeim,
sem þegar eru kunnar, hygg ég,
að Sigurður hafi reist sér óbrot-
gjarnan minnisvarða.
Sigurður er maður hæglátur
og yfirlætislaus og lítið fyrir að
láta mikið á sér bera. Hann unir
sér bezt í návist listarinnar og
vinnur í kyrrþey að hugðarefn-
um sínum sér til hugarhægðar,
en ekki sér til fjár eða frægðar.
Hann er hreinskiptinn og ein-
lægur og finnur glöggt hvað að
honum snýr. Hann hefur skarpa
dómgreind á mönnum og mál-
efnum og fylgist vel með því, sem
gerist, en lætur þó ekki allt jafn
vel líka.
I Mér þvkir fyrir því, að ég
skuli með línum þessum rjúfa
þá þögn, sem ég veit að Sigurður
hefði helzt kosið, að yrði um þessi
tímamót í ævi hans, en ég hugga
mig við það, að hin löngu og
góðu kynni okkar og samstarf
rofni ekki með öllu, þótt ég 1
eitt skipti á 29 árum fari ekki
nákvæmlega eftir taktslögum
hans.
Sigurður er kvæntur hinni
ágætustu konu Áslaugu Sveins-
j dóttur, Árnasonar, búfræðings
frá Hvilft í Önundarfirði, og hef-
• ur hún aí mikilli prýði stutt
> mann sinn í hans umfangsmikla
starfi og : hvívetna reynzt starf-
semi Karlakórs Reykjavíkur
hinn bezti hollvinur.
! Um leið og ég árna Sigurði
Þórðarsyni heilla á þessum tíma-
mótum í ævi hans, þakka ég
samstarfið á liðnum árum, og
vona, að Karlakór Reykjavíkur
eigi enn eftir að njóta mikil-
hæfra start'skrafta hans í mörg
ár.
íbúð í Laugarási
«
í nýju húsi í Laugarási er til leigu íbúð, 3 herbergi I
^ «
og eidhús, eitt herbergi í kjallara gæti fylgt. íbúðin er’ »
óstandsett og situr sá fyrir með leigu. sem getur útvegað
lán, greitt fyrirfram eða tekið að sér að ljúka við íbúð- S
t*
ina. — Tilboðum sé skilað á afgr. blaðsins fyrir laugar- S
dag n. k., merkt: „X — 989“. íi
Stúlka
: Samviskusöm og lipur, helzt vön afgreiðslu, getur •
■ z
■ *1
fengið ATVINNU í Laugavegsapóteki nú í vor. — i
■ ■
■ m
Uppl. í skrifstofunni, 3. hæð. “
■ B
a « m
m w
iM'iMMrmR •viiiim* *■■■*• ■■■ aa «4
■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»«.
- m
SkrifstofuliúsEiæði
■ m
■ ■
* m
j 1—2 stofur, sem næst Miðbænum, óskast nú þegar eða Z
• 14. maí. — Tilboð merkt: „Heildverzlun — 997“, sendist •
; Mbl fyrir þriðjudagskvöld. ”
WASHING^ON — Bandaríska
stjórnin hefir ákveðið að veita
20 rússneskum sjómönnum land-
vistarleyfi í Bandaríkjunum. •—
Sjómennirnir sóttu um landvist-
arleyfi, eftir að skip þeirra, olíu-
skipið „Tuapse", var hertekið af
skipum þjóðernissinnastjórnar-
innar í Formósu-sundi 23. júní
s. 1. ár.
Skipið mun á næstunni fá leyfi
til að ieysa landfestar og halda
heim til Ráðstjórnarríkjanna
með 28 manns af áhöfninni, er
óska að snúa aftur heim.
IBtJÐ TIL SOLti
4ra herbergja íbúð (efri hæð) á góðum stað í Vest- :
urbænum nálægt höfninni er til sölu. — Upplýs- •
ingar (ekki i síma) gefur Bogi Brynjólfsson, Rán- *
argötu 1 milli kl. 2—3 og 7—8. — Sími 2217. £
FERMINGARGJ AFIR
■
■
Gítarar, 6 gerðir, útskornar vegghillur, saumakassar, •
amerískir, hollenzkir og franskir borðlampar. ■
■
VERZL. R í N. — Sími 7692.
ATVINNA
Starfsstúlkur vantar í eldhúsið í sjúkrahúsið Sólvang,
Hafnarfirði. — Uppl. hjá matráðskonunni, sími 9885.
Sveinn G. Björnsson.
Minmf tveggja
blaðajöfra
NEW YORK, 1. apríl: — Eisen-
hower forseti minntist í dag í
ræðu tveggja jöfra bandarískrar
blaðamennsku, er létust í þessari
viku, Joseph Pulitzers og Robert
R. McCormicks. Pulitzer var út-
gefandi eins merkasta blaðs
Bandaríkjanna, St. Louis Post
Dispatch. McCormick hefir um
áratugi verið- útgefandi eins víð-
lesnasta blaðs Bandaríkjanna,
Chicago Tribune. Kvað Eisen-
hower báða þessa blaðajöfra hafa
verið — hvorn á sinn hátt —
holla stuðningsmenn sjálfstæðrar
blaðamennsku, er væri ein mátt-
arstoðin í frjálsu þjóðfélagi.
GERIÐ PENNA YÐAR
ENDIN G ARBETRI
EINA BLEKIÐ
SEM INNIHELDUR
solv-x
Slæmt blek getur eyði-
lagt góðan penna. Það
er ávallt viturlegt að
nota Parker Quink. Að
eins Quink inniheldur
solv-x, sem hreinsar
óhreinindi, vamar tær-
ingu og heldur pennan-
um hreinum,
6 fagrir litir.
Verð 2 oz. kr. 4,75; 16 oz. kr. 17,35: 32 oz. kr. 28,85.
Einkaumboðsmaður: Sig. H. Egilsson, P.O. Box z83. Rvik.
6016-*