Morgunblaðið - 14.04.1955, Blaðsíða 12
12
MGKtrins BLAtíim
Fimmtudagur 14. apríl 1955
I KVOLD:
Dansleikur til kl. 1.
2 hljómsveitir.
SkemrritiatriSi.
Ókeypis aSgangur.
R Ö Ð V L L
staSur hinna vanillátu.
;
) i
Moccas'muskór
Verð kr. 98,00.
Austurstræti 10.
UIMGLINGA
vantar til aS bera hlaSiS
til kaupenda viS
VESTURGÖTU
LÆKJARGÖTU
TaliS strax viS afgreiSslunal
— Sími 1600.
14 karata og 18 karata.
trClofunarhringib
Ragnar Jónsson
hæstaréttarlögm iSur.
Lög'fræðistörf og eignaumsýsla.
Laugavegi 8. — Sími 7752.
Hurðanafnspjöld
Bréfalokur
SkiItagerSin. — Skólavörðustíg 8.
ULLU
kryddvörur
eru ekta og
þess vegna
líka þær bezt,
Við ábyrgi-
umst gæði.
í Þegar þér gerið innkaup?
% BiSiiS uns LILLU-KRYP!>
▲ BEZT AÐ AVGLtSA A
W. i MORGVNBLAÐim “
Héraðssýningar
fyrir hross
á komandi sumri
Frá Búnaðarfélagi íslands:
SUNNUDAGINN 5. júní n.k. verð
ur haldin héraðssýning fyrir
hross á vegum Búnaðarfélags fs-
lands, að Faxaborg á Ferjukots-
bökkum í Borgarfirði. Sýningar-
svæðið er frá Hvalfirði að Gils-
firði.
Einnig verður haldin héraðs-
sýning í Hornafirði sunnudaginn
12. júní.
Línur þessar rita ég til þess
að minna menn í tæka tíð á sýn-
inguna, svo að væntanlegir sýn-
endur fari að undirbúa hrossin til
sýningar. Sýna má stóðhesta, sem
eru tveggja vetra og eldri, og
hryssur, sem eru fjögra vetra og
eldri.
Mjög er mikilvægt, að Borg-
firðingar og aðrir Vestlendingar
sýni sem flesta stóðhesta á sýn-
ingu þessari, þar sem hið ný-
stofnaða hrossaræktarsamband í
Borgarfirði er nú að koma sér
upp stóðhestastofni, og virðist
talsverður skortur á nothæfum
kynbótagripum í héraðinu, eftir
því sem vitað er.
Ennfremur er mikilvægt, að
menn fari nú þegar að undirbúa
hrossin fyrir sýninguna, ala þau
og temja. Tilgangslaust er að sýna
hross, sem ekki eru vel leiðitöm,
og helzt þurfa þau öll að vera
tamin til reiðar, því að á héraðs-
sýningum er reynt að finna og
fá fram kynbótahesta og stóð-
hestamæður. Þetta verður eins
konar góðhestakeppni með víð-
tækara markmiði en sú góðhesta-
keppni, sem fram fer á kappreið-
um hestamannafélaganna. Marg-
ir unglingar og börn í sveitum
munu vera fús til að aðstoða
bændurna við þennan sýningar-
undirbúning, eða annast hann
alveg.
Sýningarþátttöku þarf að til-
kynna sem fyrst og eigi síðar en
25. maí til stjórnar viðkomandi
búnaðarsambands, eða til dóm-
nefndarmanna, en þeir eru:
Símon Teitsson í Borgarnesi,
Stefán Jónsson, Hvanneyri og
undirritaður. Tilkynningunni
þurfa að fylgja eftirfarandi upp-
lýsingar:
1) Nafn hrossins, eiganda þess
og heimili hans.
2) Litur hrossins og auðkenni.
3) Aldur.
4) Nöfn foreldra.
5) Nafn þess, sem tamdi hross-
ið.
Vænti ég, að Borgfirðingar,
Dalamenn og Snæfellingar komi
með mikið og gott úrval hrossa
á héraðssýninguna þ 5. júní, svo
ð keppnin verði hörð og skemmti
leg. Á héraðssýningunni 1951
tóku Dalamenn fremstu sætin.
Varla eru Borgfirðingar svo geð-
litlir, að þeir láti Dalamenn reiða
tvöfaldan heiðurinn heim með sér
aftur um Langavatnsdal fyrir-
hafnarlítið.
Gunnar Bjarnason.
A BEZT AÐ AVGLtSA
t MORGVNBLAÐ1NV
Þykir það ekki
spá góðu
DALVÍK: — Mikil blíðskapar-
tíð hefur verið hér um slóðir
síðustu vikurnar, sólskin og
sunnan vindur nær því dag hvern
og snjór nær því alveg horfinn
af láglendinu. Nokkurt nætur-
frost hefur þó verið stöku nætur.
— En sumum gömlum mönnum
þykir nóg um veðurblíðu þessa
og telja að ekki spái hún góðu
um vorveðráttuna.
Frá áramótum hafa þrír litlir
trillubátar stundað róðra héðan
og hafa gæftir verið sæmilegar,
en afli tregur. Nú virðist hann
aftur á móti vera að glæðast, en
ekki er þó talið að um neina fisk-
göngu sé að ræða, heldur fisk,
sem að jafnaði gengur eftir vor-
sílinu og er mjög mishittur. Rauð
magi gekk óvenju snemma að
landi og hefur verið með ein-
dæmum mikil veiði en markaðs-
tregða er og því eru veiðarnar
ekki stundaðar af neinu kappi.
Hér er Snæfellið að losa 40—50
tonn af togfiski til frystingar og
herzlu. — sipjo.
- Rómarsýninoin
Framh. af bls. 2
sýninguna birtist í Norðurlanda-
blöðunum.
ALMENN ÁNÆGJA MEÐ
ÍSLENZKU DEILDINA
Allir þeir, sem ég talaði við,
voru ánægðir með íslenzku
deildina og sögðu að henni væri
sérlega skemmtilega fyrirkomið
Vil ég þakka samstarfsmanni
mínum, Svavari Guðnasyni, fyrir
það ósíngjarna starf, er hann
lagði í það að koma sýningunni
fyrir og mega ísl. listamenn sann-
arlega vel við una.
Margir höfðu orð á því við
mig hve tilbreyting þar er mikil
og það væri auðséð að hér væru
listamenn sem væru ekki smeyk-
ir við að reyna sitt af hverju,
sagði Valtýr.
Allir þeir, er ég átti tal við
um þátttöku okkar íslendinga,
voru sammála um, að sýningin
væri landi og þjóð til hins mesta
sóma, og einn Itali, er ég átti
tal við, spurði hvort það væri
satt, að fólksfjöldi næmi aðeins
150.000. Hann hafði haldið, að
við værum allt að því 7 millj.,
eins og Svíar og kvað það koma
sér mjög á óvart, að sjá svo
fjölbreytta og „avant-garde“ sýn-
ingu af hálfu svo fámennrar
þjóðar.
Sendiherra ítala í Osló og
Reykjavík var m. a. í heiðurs-
nefnd sýningarinnar af ítala
hálfu.
Reiðhjóli með hjálp-
arvélsidið
REIÐHJÓLI með hjálparvél var
stolið í gær frá Smáragötu 5. Er
þetta venjulegt reiðhjól, en
hjálparmótor er fest við aftur-
hjólið. Var hjólið skráð R-238.
Þeir, sem verða varir við hjól
þetta eru beðnir að gera lög-
reglunni aðvart.
LUÐRASVEITIN SVANUR
KVÖLDVAKA
lúðrasveitanna í Reykjavík og Hafnarfirði verður haldin
í Skátaheimilinu við Hringbraut kl. 8,30 í kvöld.
Félagsvist — Yniis skemmtiatriði — Dans
Öllum yngri og eldri félagsmönnum og öðrum velunnur-
um heimill aðgangur.
Lúðrasveitin Svanur.
KARLAKOR REYKJAVIKUR
SKEM MTIKVÖLD
í Sjálfstæðishúsinu föstudaginn 15. þ. m. kl. 20,30.
Kórsöngur — Einsöngur — Dans
Styrktarfélagar og aðrir, sem þess óska, eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar verða seldir í miðasölu hússins í dag
og á morgun.
Aðaltundur
Barnavinafélagsins Sumargjafar, verður haldinn laugar-
daginn 16. þ. m., að Tjarnargötu 33 (Tjarnarborg), og
hefst klukkan 4 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJORNIN
Atvinna
Reglusamur piltur óskast til afgreiðslustarfa í sér-
verzlun. — Upplýsingar í skrifstofu Verzlunarmanna-
félags Réykjavíkur, Vonarstræti 4, sími 5293.
■•i
■«
4ra — 5 herbergja
í B Ú
óskast í Vogunum eða Kleppsholti. — 3 herbergi í Mið-
bænum, hentug fyrir skrifstofu, geta komið í skiptum.
Tilboð merkt: Vogar —4, sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi
á laugardag.
■«n
■ •■■1
Skrifstofustúlka
óskast á opinbera skrifstofu frá 1. maí n. k. um
3ja mánaða tíma. — Vélritun og kunnátta í Norð-
urlandamálum nauðsynleg. — Umsóknir óskast
sendar afgreiðslu blaðsins merkt: „Skrifstofa —
954“, fyrir 20. þ. m.
1) Tveimur dögum síðar eruikomnir hátt upp í fjöllin, þar
Markús og félagar hans loksinsjsem steingeiturnar búa.
2) Þar er fagurt útsýni og I geiturnar.
brátt fara þeir að sjá fyrstu stein- *