Morgunblaðið - 14.04.1955, Síða 16

Morgunblaðið - 14.04.1955, Síða 16
Yeðurúfiil í dag: SV kaldi eða stinningskaldi. Rign ing eða súld öðru hverju. 83. tbl. — Fimmtudagur 14. apríl 1955 Skíðamóf íslands Sjá grein á bls. 10. Fjölmennur en bragðdaufur i úfifundur á Lækjarforgi Kommúnisfar vara við að samþykkja sátfafillögu OAMNINGANEFND verkalýðsfélaganna boðaði í gær til úti- •v? fundar á Lækjartorgi. Virtist fundurinn fyrst og fremst hald- inn í þeim tilgangi að æsa fólk fyrirfram gegn hugsanlegri sátta- tillögu, er fram kynni að koma frá sáttanefndinni og tryggja með því, að verkfallið héldist sem lengst. Fengu ræðumenn daufar undirtektir og var greinilegt að aðeins iítill hluti fundarmanna tók undir æsingaræður verkfallsstjórnar. Allmikil fram í grip voru á fundinum og nokkur hávaði í unglingum, sem safnast höfðu ,saman í kringum ræðustólinn og víðar um torgið. Þá misstu nokkr- ir kommúnistar vald á sér og óðu fram og ætluðu að berja börnin, sem og sumir gerðu. Var allur þessi gauragangur til leið- inda. Eðvarð Sigurðsson var fyrsti ræðumaður fundarins. Sagði hann m. a. að atvinnuvegirnir bæru sig svo vel, að engin vandi væri að hækka kaupið til muna og benti sérstaklega á togarana í því sambandi. Lýsti hann því yfir, að þó að eitthvert verkalýðs- félagið, sem í deilunni stæði, kæmi til með að samþykkja sátta- tilboð, þá skyldi verkfallið samt .standa þangað til gengið yrði að öllum kröfum allra þeirra félaga, eem í deilunni standa. Þá hótaði Eðvarð því, að stöðva skyldi frystihúsin á næst- unni. Eggert Þorsteinsson tók næst- ur til máls og sagði að iðnaðar- mönnum þætti gott að standa við hlið verkamanna í deilu þessari. Björn Bjarnason varaði verka- lýðsfélögin sérstaklega við því, að samþykkja nokkra málamiðl- unartillögu, sem fram kynni að koma. Guðm. J. Guðmundsson kvart- aði yfir því, að verkfallsvarzlan í þeirri mynd, sem hún er fram- kvæmd, væri óvinsæl hjá al- menningi, og setti þá mikinn hlátur að fundarmönnum. Fipaðist Guðmundi þá ræðan ■og endaði með nokkrum slag- orðum um aukið ofbeldi. Síðast talaði Hannibal. Var iiann með hógværara móti. Boð- aði nú engin ný verkföll, en sagði að Alþýðusambandið hefði alcrifað mörgum verkalýðssam- tökum erlendis og vænti aðstoð- ar þeirra til styrktar verkfalls- mönnum. Mátti heyra það á kommum, að þeim þótti ræða Hannibals heldur bragðdauf, en þeim íannst þó Hannibal bæta nokk- "uð um, þegar hann tilkynnti, að hann væri tilbúinn að tala á öðr- Afli Hornafjarðar- 1 um slíkum fundi, ef húsbændur hans óskuðu að fjórum vikum ■ liðnum og þá skyldi hann hafa hærra. í lok fundarins urðu nokkur ólæti til mikilla leiðinda öllum er fundinn sóttu. Tíðindalaust af sáfia fundi í gærkvöidi I SÁTTANEFNDIN í vinnudeil- unni boðaði í gær til fundar með fulltrúum deiluaðila. Var hon- um frestað þar til kl. 9 um j ! kvöldið vegna útifundarins, sem samninganefnd verkalýðsfélag- anna hafði boðað til kl. 6. | Þegar blaðið hafði síðast fregn- ^ ir af sáttafundinum í gærkvöldi j hafði ekkert nýtt gerzt þar. — | Sennilegt þótti að fundur yrði einnig haldinn í dag enda þótt ákvörðun hefði ekki verið tekin um það. Vítave-rð ólæti unglinga í gær LÖGREGLAN hafðí allmikið að starfa í gærkvöldi þar til klukkan langt gengin 11, er unglingar og börn höfðu í frammi ólæti á göt- unum. Hófust þau um klukkan hálf átta er hópur bama og unglinga safnaðist saman upp við hús kommúnista að Þórsgötu 1. Þar hafði hópurinn í frammi óspekt- ir, grýtti húsið meS moldarköggl- um og eggjum, án þess þó að valda tjóni. Lögreglumenn fóru á vettvang og skökkuðu leikinn. Voru nokkrir unglingar teknir niður á lögreglustöð, en sumir gerðu sig seka um að kasta að lögreglunni grjóti, þótt engan sakaði. Á eftir lögreglunni fór hónurinn niður að lögreglustöð- inni. Það vakti athygli lögreglumann anna, sem fóru á vettvang að meðal barnanna, sem voru á ýmsum aldri, voru yngstu börn- in sjö ára. Þá voru þar og börn sem voru með skólatöskur sínar og voru ekki farin að fara heim til sín úr skólanum. Slíka framkomu fordæmir al- menningur. Ættu foreldrar og aðrir aðstandendur barna að gera þeim ljóst að slíkar æsingar eru lögbrot, eru þeim sjálfum til minnkunar og geta auðveldlega valdið slysum. faáta ÆfÖFN f HORNAFIRÐI, 4. apríl ••— Samanlagður róðrafjöldi Hornafjarðarbátanna í marz- jnánuði voru 108 róðrar og heild- arafli eftir þá 755 lestir af slægð- um fiski með haus. Mestan afla -á mánuðinum höfðu Helgi og .fíigurfari 182 lestir hvor í 23 *-óðrum. Frá áramótum haía bátarnir farið samtals 259 róðra og er .íKimanlagður heildarafli þeirra riú orðinn 1627 smálestir. Fer hér á eftir aflaskýrsla bátanna: Gissur hvíti. 394 lestir í 60 róðr ura, Helgi 389 lestir í 59 róðrum, fíigurfari 363 !4 lest í 57 róðrum, Hvanney 282 lestir í 48 róðrum «g Hrolllaugur 189V2 lest í 35 róðrum. Sjóveður voru ekki hagstæð í mánuðinum, nema síðustu vik- «na en þá var veðurblíða hvern •dag, en afli sáralítill. —Gunnar. Færeyingar fara heim NÝTT vandamál hefur nú skap- azt fyrir togaraútgerðina, en vegna stöðvunar togaranna í verk fallinu, hafa færeyzkir sjómenn óskað eftir því að fá að fara heim. í fyrrakvöld fóru t. d. 50 Færey- ingar af togurum Bæjarútgerðar- innar heim með Gullfossi, en þeir höfðu óskað eftir að verða af- skráðir af þeim togurum Bæjar- útgerðarinnar, sem stöðvazt hafa vegna verkfallsins. Það er hætt við að erfiðlega muni ganga að manna togarana á ný, þegar verkfallinu lýkur. Fél. ísl. bofnvorpu- skipaeigenda og Ægir, semja um kaup og kjör FYRIR skömmu voru undirritað- ir samningar milli Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Ægis og Fé- lags íslenzkra botnvörpuskipaeig- enda. Samið var um kaup og kjör skipstjóra og 1. stýrimanna á tog- urum, en þeir sögðu upp kjara- samningum sínum í fyrrasumar. Var fresturinn útrunninn í sept- ember s.l. Hafa þeir því siglt samningslausir þetta tímabil. B.v. Isólfur landar á ER dregið var í fjórða flokki Happdrætti Háskólans í fyrradag, kom hæsti vinningurinn á fjórð- ungsmiða, sem er hér í Reykja- vík að % og !4 á Akranesi. — Næst hæsti vinningurinn 10,000 krónur, kom á hálfmiða í Kefla- vík og Þórshöfn og þriðji hæsti vinningurinn, 5000 kr., kom á !4 miða. Komið hefur verið á stúdentaskiptum milll Dartmouth háskóla í Hannoverfylki í Bandaríkjunum og Háskóla íslands. — Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður er bókavörður við Dartmouth háskóla og er hann liér á myndinni í bókasafni sínu ásamt Vilhjálmi Ein- arssyni frá Egilsstöðum (v.) sem nám stundar við skólann og Willam G. Mattox, sem í skiptum stundar nám hér við háskólann. Tillaga ran rannsókn á Kötlusvæðinu samþykkt ALÞINGI samþykkti í gær þingsályktunartillögu Jóns Kjartans- sonar um rannsókn á Kötlusvæðinu. En ætlunin með slíkri rannsókn er að fyrirbyggja mikinn háska af Kötluhlaupum með því að fylgjast með undanfara eldgosa, mæla jarðskjálfta og gera landmælingar til að sjá hvort vatnsflaumur í jökulhlaupinu myndi stefna. JÖKLARANNSÓKNAR- FÉLAGIÐ ATHUGI Jón Kjartansson skýrði frá efni frumvarpsins með stuttri ræðu. En fjárveitinganefnd var einhuga með tillögunni, þó með þeirri breytingu að kveða skyldi nánar á um það að Jöklarann- Verkfallsstjórnin misnofar benzínundanþágur aivarlega ÞRÁTT FYRIR benzínverkfallið hér í Reykjavík eru þúsundir lítra af benzíni seldir daglega til þeirra, sem fá undanþágur. Er benzínið afgreitt á vissum tíma á hverjum degi og myndast löng biðröð við þessa staði. Að sjálfsögðu fá læknar benzin til þess að geta gegnt áfram störfum sínum. Magn það, sem þeir fá er þó skammtað. En svonefndir starfsmenn verkfalls- stjórnarinnar fá einnig afgreitt benzín og er ekki skammtað til þeirra. Virðist margt benda til þess að verkfallsstjórnin misnoti benzínafgreiðsluna á alvarlegasta hátt og geti leigubílstjórar, sem starfa í ákveðnum stjórnmálaflokki, fengið ótakmark- að benzín til atvinnu sinnar. sóknarfélagið skyldi framkvæma rannsóknina. / ÞYKKT JÖKULS MÆLD Þess var getið að Jöklarann- sóknarfélagið hefði samband við erlendan vísindamann, er hefði undir höndum tæki til að mæla dýpt jökuls. Með slíkum mæling- um væri hægt að gera sér grein fyrir, hvernig landslag væri undir jöklinum. Þessi erlendi vísindamaður býðst til að gera mælingarnar ókeypis, að öðru leyti en því, að ferðakostnaður og flutningskostnaður yrði greiddur af hálfu hins opinbera. Tillagan var samþykkt með 29 samhljóða otkvæðum og send til ríkisstjórnarinnar. Seyðisfirði SEYÐISFIRÐI 6. apríl — Tog- arinn ísólfur kom hingað í fyrradag og setti í land 105 lest-! ir af ísfiski til herzlu, allt af- hausað, og 75 lestir af saltfiski. Ennfremur 36 lestir af karfa, sem var landað á Norðfirði. | Ný bryggjulyfta var tekin í notkun hér við þessa uppskipun og reyndist hún mjög vel. Verð lyftunnar mun vera um 230 þús. krónur. —B.; MIKIL BIÐRÖÐ í gærdag var benzín selt í rúm- lega tvo tíma frá BP-tankinum við Hlemmtorg kl. 1,30—4.00. — Fór stöðug afgreiðsla fram á þessum tíma frá tveimur dælum. Geysilöng biðröð bíla myndað- ist langt niður eftir Hverfisgötu. Vakti þetta mikla athygli veg- farenda, sem spurðu, hvort verk- fallinu væri nú lokið? Það, sem einkum kom fólki til að álykta þannig, var, að í stað þess að þarna væru eingöngu bílar lækra, var yíirgnæfandi meirihluti í biðröðinni leigubílar frá einni slöð hér í bænum, það er frá bifreiðastöðinni Hreyfli. Á skömrrum tíma fengu eftir- taldir bílar af þessari einu bíl- stöð afgreitt benzín samkvæmt undanþáguleyfi frá verkfalls- stjórninni' R-6875, R-6688, R- 5904, R-6032, R-6199, R-1740, R-3770, R 6655, R-3131, R-723, R-2062, R-2633, R-6056, R-6150, R-6025, R-2735, R-2558, R-7058, R-4781, R-5140, R-42I6, R-1635, R-1585, R 1848, R-1691, R-1907, R-6250 og R-2539. ALVARLEG MISMUNUN Þessi afgreiðsla til bíla á einni bifreiðastöð í bænum, vakti all- mikla athygli. Því á sama tíma og verkfaílsstjórnin gefur þess- um bílstjórum undanþágukort sín, lætur hún starfsmenn sína á ólögmæ*an hátt gera leit að benzíni í bílum á þjóðvegum í nágrenni bæjarins, og taka það með valdi, enda þótt það benzín hafi verið afgreitt á stöðum þar, sem verkf.ill stendur ekki yfir. Hér hefur verið farið inn á mjög vafasama braut að flestra dómi. Á sama tíma, sem starf- andi bílstjórar á öðrum bifreiða- stöðum hafa orðið að takmarka akstur sinn, jafnvel leggja bílum sínum, er Lópi manna úr stétt- inni gert kleift að starfrækja bíla sína eftir vild. Og það, sem gerir þetta sérstaklega alvarlegt er að þessi mismunun er fram- kvæmd á pólitískan hátt. Hrifning áneyrenda mikil á fónleikum T fíörpusnillifigifns ★ SPÁNSKI hörpuleikarinn Nicanor Zabaleta hélt tónleika í gærkvöld í Austurbæjarbíó á vegum Tónlistarfélagsins. Húsið var fullskipað, og hrifning áheyr- enda mikil. Hörpusnillingurinn varð að leika mörg aukalög. ■Á Á efnisskránni var hvert lagið öðru hljómfegurra: Þrjár etýður eftir Bochsa, Tilbrigði um sviss- neskt lag eftir Beethoven, Sónata eftir H. E. Mebul, Sónata eftir F. A. Rosetti, Tilbrigði um ítölsk stef eftir Parish-Alvars, Prelúlía eftir S. Prokofieff, Noktúrna eft- ir G. Pittaluga og Jazz-Band eft- ir M. Tournier. Öll þessi tónverk eru frumsamin fyrir hörpu. ★ Zabaleta er einn mesti hörpu- snillingur, sem nú er uppi í heim- inum, og er íslenzkum tónlistar- unnendum mikill fengur í að fá tækifæri til að hlusta á hann. Harpan hefir löngum verið talin drQttning hljóðfæranna, en því miður hefir alltof sjaldan gefizt kostur á að hlýða á hörpuleik hér á landi. Zabaleta heldur aðra tónleika sina í Austurbæjarbíó í kvöld kL' 7 síðdegis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.