Morgunblaðið - 16.04.1955, Síða 1
16 síður
42» árgangur
85. tbl. — Laugardagur 16. apríl 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólitískar „spekúlasjónir44 kommúnista spilla fyrir sáttum
Verkfoll, sem ekki er hdð til þess að nd því, sem er
fjdrhagslega mögulegt verður engum til góðs
Hin hlautlausa rannsók i á möguleik-
um kjarabóta hefði betur farið fram
Kosningar ákveðnar
í Englandi 26. maí
Þinginu verður slitið 6. maí
LUNDÚNUM, 15. apríl — frá NTB-Reuter.
SIR ANTHONY EDEN, hinn nýskipaði forsætisráðherra Bret-
lands, hélt útvarpsræðu í kvöld, þá fyrstu síðan hann tók
við stjórnartaumunum. í ræðunni lýsti hann því yfir, að ákveðið
væri að almennar þingkosningar færu fram í Englandi hinn 26.
maí n. k. —
* ÞINGSLIT OG ÞING-
SETNING
Eden sagði og, að þingi því
er nú situr, yrði slitið 6. maí og
að hið nýja þing muni koma sam-
an til fundar í fyrsta sinn 7. júní,
en hin formlega setning þingsins
færi fram 14. júní og myndi Elísa-
bet drottning setja þingið.
★ ÓVISSA
Ræddi Eden síðan nokkuð
um þessa nýteknu ákvörðun um
kosningarnar og sagði m. a.:
Óvissa hér heima fyrir og utan-
lands um framvindu stjórnmála
í Bretlandi hefur skaðleg áhrif
út á við, skaðar verzlunarsam-
bönd vor og hefur truflandi á-
hrif á ýmsum öðrum sviðum. —
Það er því að mínu áliti bezt,
j sagði ráðherrann, að vinna bug
á þessari óvissu og standa á
föstum grunni.
20 þúsund
án vinnu
LUNDÚNUM, 15. apríl — Verk-
fallið við Lundúnablöðin hefur
nú staðið í 23 daga. Það er nú
orðin alvaileg vinnustöðvun því
í dag gekk í gildi uppsögn rúm-
lega 20 þúsund annara starfs-
manna við blöðin, en þeirra er
verkfallið höfðu gert.
fá
enga mjólk
• KAUPMANNAHÖFN, 15.
apríl — Danska þingið ræðir nú
um það hvernig afstýra eigi land-
búnaðarvinnudeilunni. Stjórnin
lagði sem kunnugt er fram frum-
varp um gerðardóm með úr-
skurðarvaldi, en það virðist ekki
fá hljómgrunn í þinginu, og
munu þingmenn heldur kjósa
frjálsan gerðardóm. Atvinnurek-
endur hafa lýst því yfir að við
það mur.i þeir ekki sætta sig og
hafa þeir boðað verkbann frá
laugardagskvöldi.
@ Verkbannið er afleiðing af
vinnustöðvun á 79 stórum bú-
görðum. Það mun koma niður á
70000 vinnumönnum á 2000 bú-
görðum, starfsmönnum 1200
mjólkurbúa og 400 garðyrkju-
stöðva. Aðeins fáir af stóru bú-
görðunum dönsku eru í eigu
Framh. á bls. 2
Rúm hálf miilfón ieikhúsgesia hefir sófl
sýningar Þfóðleikhússins frá stotnun þess
HINN 20. apríl n. k., siðasta I
vetrardag, verður frumsýnt
í Þjóðleikhúsinu nýtt leikrit,
„Krítarhringurinn“ eftir þýzka
skáldið Klabund, undir leikstjórn
Indriða Waage. Frumsýning
þessi verður jafnframt 5 ára af-
mælissýning Þjóðleikhússins en
þennan dag, 20. apríl, fyrir fimm
árum, sem þá var sumardagurinn
fyrsti, fór fram fyrsta sýningin
á sviði þess, en það var ævin-
týraleikurinn „Nýársnóttin“ eft-
ir Indriða Einarsson.
„KRÍTARHRINGURINN“
OG HÖF. ÞESS
Klabund, höfundur „Krítar-
hringsins“ er þekktur bæði sem
ljóðskáld og söguskáld og sér-
staklega fyrir snjallar þýðingar
úr japönskum og kínverskum
ljóðum. Er ofangreint leikrit hans
að mestu leyti samið upp úr kín-
verskum efnivið og ber þess
glögg merki í hugsun og heildar-
blæ. Það er eins og mörg af
verkum Klabunds þrungið af við-
kvæmri lýrik og skáldskap, í
senn dramatískt og sorglegt, enda
þótt leikritið sem slíkt sé ekki
þungur sorgarleikur. Það fjallar
um ástir, sorgir og baráttu ungr-
ar kínverskrar stúlku, sem er að-
alpersóna leiksins, en fjölda
margir aðrir koma við sögu.
I BUNDNU OG ÓBUNDNU
MÁLI
Leikrit þetta kom fyrst fram
Framh. á bls. 12
Fimm ára slarísafmælis leikhússins
mimizt með frumsýnin«;ii á þýzka leik-
ritinu „Krítarhringiirinn66
næstkomandi miðvikudag
Úr ræðu Bjarna Benediktssonar déntsmála
ráðherra á Alþingi í gær.
E
INS OG kunnugt er bauð ríkisstjórnin Alþýðusambandi Islands
sóknarnefnd, sem athugaði hvaða efnahagslegur grundvöllur væri
til fyrir kauphækkunum.
Alþýðusambandið hafnaði algerlega þátttöku í slíkri rannsókn-
arnefnd og hindraði þannig að slík rannsókn færi fram.
Nú hefur verkfallið staðið um mánuð. Ef Alþýðusambandið hefði
tekið upp skynsamlegri vinnubrögð og átt samstarf að slíkri rann-
sókn, mætti vænta þess að rannsókninni væri lokið nú. Þannig
væri búið að fá öruggan grundvöll til efnislegra umræðna um
lausn verkfallsins.
Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra benti á þetta í ræðu
sem hann hélt á Alþingi í gær.
Enda er nú svo komið, sagði ráðherrann, að allur almenningur er
orðinn sannfærður um, að betur hefði farið, ef ráðum ríkisstjórnar-
innar hefði verið fylgt og þeirri hlutlausu rannsókn komið af stað,
sem ríkisstjórnin á sínum tíma gerði tillögu um. Almenningur
fordæmir hinar pólitísku áætlanir og „spekulasjónir“, sem komm-
únistar hafa í frammi í sambandi við þetta verkfall.
Þjóðleikhúsið.
ÁMÆLISVERÐUR
ÆSINGATÓNN
Það var kommúnistinn Einar
Olgeirsson, sem efndi til um-
ræðna um verkfallsmálin í sam-
bandi við frv. varðandi áfram
haldandi skattfríðindi Eimskipa-
félags íslands. Var málfar þessa
Við heitum
segja Russar og
Austurríkismenn
VÍNARBORG, 15. apríl — Nokk-
ur þúsund manns söfnuðust sam-
an á ílugvellinum við Vínarborg
í dag, er forsætisráðherrann
Raab og starfsmenn hans komu
frá Moskvu eftir viðræðurnar
þar, sem líkur benda til, að leiði
til þess að Austurríki öðlist sjálf-
stæði fyrir lok þessa árs.
Raab lýsti því yfir að niður-
stöður viðræðnanna í Moskvu
gætu orðiö til eflingar heims-
friðnum. Austurríki, sagði hann,
mun öðlast það, sem þjóðin hefur
beðið eftir í áratug.
í dag var birt sameiginleg
yfirlýsing Raabs og Molotofs um
viðræðurnar.
Austurríkismenn heita því:
4 að' marka utanrikisstefnu
* sína við varðveizlu sjálf-
stæðis landsins.
að Ieyfa ekki erlendar her-
stöðvar í landinu.
Rúsar heita hins vegar:
4 að hafa flutt herlið sitt á
■ brott lir landinu fyrir árslok
að afhenda Austurríkis-
mönmim allar olíustöðvar,
sem þeir hafa á stríðsárunum
rekið í landinu, en þó með því
skilyrði, að þeir fái að kaupa
olíuna.
2
2
þingmanns ákaflega líkt því, sem
tíðkazt hefur í kommúnistablað-
inu að undanförnu. Mikill æs-
ingatónn og svívirðingum ausið
yfir pólitíska andstæðinga komm-
únista.
TAKA ÞURFTI UPP
HÓFSAMLEGRI VINNUBRÖGÐ
Er Bjarni Benediktsson reis
upp til andsvara mælti hann
m. a. á þessa leið:
Fyrir rúmum mánuði, þá
flutti ég tvisvar hér á Alþingi
ræðu til stuðnings og málaleit-
unar 'um það, að verkfallinu, sem
þá var yfirvofandi, yrði frestað,
meðan rannsókn á ýmsum höfuð-
atriðum þessa máls yrði komið
fram, og ég sagði, og lagði á það
áherzlu, að ég teldi sjálfsagt, að
verkalýðurinn tryggði það og sæi
um það, að ekki yrði gengið á
hans hlut um skiptingu þjóðar-
teknanna frá því, sem verið hefði.
En ég taldi ,að greinilegt
væri samkvæmt því, sem þá
hafði komið fram, að hug-
myndir manna um þau efni,
þeirra, er stóðu fyrir verkfall-
inu, væru svo ólíkar hug-
myndum flestra annarra, að
mjög ólíklegt væri, að saman
gæti gengið vandræðalaust, og
einmitt vegna þess, að mér var
þetta Ijóst, þá beitti ég mér
fyrir og gerði að eindreginni
tillögu, að tekin yrði upp hóf-
samlegri og skynsamlegri
vinnubrögð í þessum efnum,
heldur en ofan á urðu.
HVERSVEGNA NEITU.ÐU
ÞEIR?
Ég éfast ekki um það, að all-
ur almenningur í þessum bæ,
mundi nú miklu fremur hafa
kosið, að sú leið hefði verið val-
in, sem ég og sumir aðrir gerð-
ust þá talsmenn að. Þeir hefðu
fremur kosið, að Alþýðusamband
íslands hefði gerzt aðili að þeirri
rannsóknarnefnd, sem ríkis-
Framh. á bls. 2