Morgunblaðið - 16.04.1955, Side 16
Veðurúílii í dag:
SA stinningskaldi, þykkt loft, dá-
lítil rigning.
urptwfoílaMííi
85. tbl. — Laugardagur 16. apríl 1955
Skáiholtskirkja
hin nýja. Sjá bls. 7.
Mdnoða verkfall
framundan
Yfirlýsing forseta Alþýðu-
sambandsins í gœr
IUMRÆÐUM á Alþingi í gær lýsti forseti Alþýðusaxn-
bands íslands, Hannibal Valdimarsson, því yfir, að verk-
íallsmenn yrðu að vera viðbúnir mánaðaverkfalli til við-
bótar. Var auðheyrt að afstaða hans til hugsanlegrar mála-
miðlunartillögu, var mjög neikvæð. Er það einnig mjög í
samræmi við aðvaranir kommúnista á útifundinum til verk-
fallsmanna, gegn samþykkt sáttatillögu, sem fram kynni að
koma á næstunni.
Forseti Alþýðusambandsins upplýsti það ennfremur í
ræðu sinni, að söfnunin til verkfallsmanna næmi aðeins
40 kr. á mann yfir allan þann tíma, sem verkfallið hefði
btaðið.
Frumvarp um skatta-
ívilnanir Eimskips
OLAFUR THORS, forsætisráð-
herra hefur borið fram á
bingi frumvarp um framleng-
jngu á gildi laga nr. 33 7. maí
1928 um skattgreiðslu Eimskipa-
félags íslands. En félagið hefur
eins og kunnugt er notið skatt-
ívilnana allt frá árinu 1928, enda
er þá sett að skilyrði að félagið
greiði hluthöfum aðeins 4% í arð
en verji tekjuafganginum til
kaupa á skipum eða á annan hátt
í þágu samgöngumála.
Ólafur Thors gerði ítarlega
grein fyrir frumvarpinu á
þingfundi í gær. Greindi hann
m. a. frá því að ef sett yrðu
ný og skynsamleg skattalög
fyrir félög, þá yrði ekki fram
ar þörf fyrir skattívilnanir
fyrir Eimskipafélagið. En nú
væri sýnt að á þessu þingi
yrðu ekki sett lög um skatt^
greiðslu hlutafélaga og þæt
því rétt að Eimskipafélagið
nyti enn á þessu ári fyrri skatt
fríðinda.
Sem svar við fyrirspurnum
frá Gils Guðmundssyni sagði
Ólafur að tala hluthafa í Eim-
j skipafélaginu væri álíka há og
þegar félagið var stofnað. Farm-
gjöld á nauðsynjavörum væri
lægri með skipum félagsins en
hægt væri að fá með öðrum skip-
um hingað til lands.
Tíðindalmist var
um miðnætti
ENN VAR sáttafundur í vinnu- I
deilunni og hófst haitn fel. 8.30 í j
gærkvöldi. Er blaðið hafði síðast |
fregnir um miðnætti í nótt hafði j
ekkert markvert gerzt þar.
Dogofli í Ef jnm
14—1500 lesfir
VESTMA1YNTAEYJUM 15. apríl.
Undanfarna tvo daga hefur
bátaflotinn Jandað hér 1400—1500
lestum af fiski. — Hér eru mikl-
ar annir, er slíkt fiskmagn berst
að og er u'.nið fram á miðnætti.
Afli bátanna, sem er saltaður, er
frá 2000—*000 fiskar á bát.
í vetur hefur sama og ekkert
verið flutt. héðan út af frystum
fiski, vegna verkfallanna tveggja,
matsveinaverkfallsins og þess, er
nú stendui yfir Eru því miklar
birgðir af hraðfrystum fiski í
frystihúsunum og þar farið að
þrengjast um En auk þess hefur
aflinn verið saltaður, og því
þegar talsvert magn af saltfiski.
Um aflamagnið, það sem af
er vertíð, er ekki vitað nákvæm-
Iega, en það mun tæplega eins
mikið og á sama tíma í fyrra.
Áhrifa verkfallsins í Reykja-
vík gætir hér nokkuð t. d., er
smjörlíkislaust orðið og bærinn
orðinn kaffilaus. —-B.Guðm.
Sehillereikhúsið.
Berlínarborgar. -
Þetta er ein af hinum glæsilegu nýbyggingum
- (Sjá grein á bls. 9).
Ríkssstjórnin ábyrgist
lán vegna kaupa á tog-
ara fyrir Norðlendinga
RÍKISSTJÓRNIN lagði í gær fram á Alþingi frurnvarp til laga
um heimild handa stjórninni til að kaupa togarann „Vilborgu
Herjólfsdóttur" og selja hann aftur félagi, sem þrír kaupstaðir
I'Iorðanlands stofna um útgerð togarans.
Frumvarpið er á þessa leið:
Ríkisstjórninni er heimilt að
kaupa togarann „Vilborgu Herj-
ólfsdóttur“ og selja hann félagi,
er stofnað verður um útgerð tog-
arans sameiginlega af Húsavíkur-
kaupstað, Ólafsfjarðarkaupstað
og Sauðárkrókskaupstað.
UM 3 MILLJ. KR.,
LÁN OG TRYGGING
Verði ríkisstjórninni heimilt í
þessu skyni að lána allt að 450
þús. kr. og að ábyrgjast lán allt
Lögin um iækninga-
leerðir samþykk!
í GÆR var frumvarpið um lækn-
ingaferðir samþykkt sem lög frá
Alþingi.
Meginefni frumvarpsins, sem
Ingólfur Jónsson, heilbrigðis-
málaráðherra, bar fram á þingi,
var að semja skyldi við nægilega
marga sérfræðilækna um árlegar
lækningaferðir um landið með
viðkomu og hæfilega langri dvöl
á þeim stöðum þar sem ætla má
að þjónustu þeirra sé mest þörf
og hennar verði auðveldast og
almennast notið.
Þetta frumvarp þóttí sjálfsagt
og nauðsynlegt réttlætismál.
að kr. 2,750,000,00 gegn þeim
tryggingum, er hún metur gild-
ar.
MIKILL ÁHUGI
NORÐANLANDS
Eins og kunnugt er af fréttum
úr kaupstöðum Norðanlands rík-
ir þar mikill áhugi fyrir þess-
um togarakaupum. Hafa borgara-
fundir verið haldnir um málið
og er ætlunin að efna til hluta-
fjársöfnunar, til þess að bæjar-
félögin geti eignazt togarann og
þannig bætt atvinnuástandið á
þessum stöðum.
Kaupin hafa annars þegar ver-
ið gerð, en ríkisstjórnin þarf að
leita heimildar 'þingsins.
happdræfifsIánsiRS
DREGIÐ var í A-flokki happ-
drættisláns ríkissjóðs í gær.
Hæstu vinningar eru, sem hér
segir: 57919 kr. 75 þús., 149285
kr. 40 þús., 48666 kr. 15 þús., og
36259, 65669 og 122987 kr. 10 þús.
hver. (Birt án ábyrgðar).
Kommúnistar á Hreyfíi standa
fyrir árásunum á BSR og BBS
Ætla að neyða þessar stöðvar
til þess að hætta öllum akstri
ALMENNINGUR mun ekki gera sér fyllilega grein fyrir þeim
ástæðum, sem til þess liggja, að bílstjórar á Borgarbílstöðinni
og B.S.R., verða svo að segja daglega fyrir ofsóknum og ofbeldi
verkfallsstjórnarinnar. — Þótt verkfallsstjórnin sé látin fram-
kvæma ofbeldisverkin, þá eru það bílstjórar á Hreyfli, þó aðeins
kommúnistarnir þar, sem stjórna þessu öllu.
Eldur að
Þórsgötu 1
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
vinnur nú að rannsókn máls, er
húsráðendur á Þórsgctu 1, kærðu.
Töldu þeir að um meinta í-
kveikjutilraun hafi verið að
ræða, en tTdrög þess máls eru
þessi:
Sprengdur hafði verið upp
gluggi í porti að húsabaki, og
farið inn í veitingastofu, sem er
á neðstu hæð. Þaðan var stolið
um 250 krónum og nokkrum
vindlingapokkum.
Síðan hafði eldur verið borinn
að blaðahiúgu á bekk einum
stoppuðum og lagði af mikinn
reyk, er þvottakona koma að um
morguninn, Var þá og glóð í
bekknum og blöðin að mestu
brunnin, en loftieysi komi í veg
fyrir að rneira yrði úr eldinum.
Rannsókriarlögreglunni hefur
enn ekki tekizt að upplýsa hver
innbrotið framdi.
TELPA DRUKKIMAR
NESK A'UPSTAÐ, 15. apríl. —
UM klukkan sjö í gærkvöldi
vildi þaá slys til hér í bænum,
að lítil íelpa drukknaði í höfn
inni.
Þetta gerðist á hafnarupp-
fyllingunni hér, og var enginn
fuIIorðTjn þær nærstaddur, er
telpan féll fram af bryggju-
garðinum.
Um tuttugu mínútur munu
hafa liðið frá því, að telpan
litla, sem var fimm ára, féll
í sjóinn, unz henni var bjarg-
að úr sjónum. Var þá ekki
sjáanlegt lífsmark með barn-
inu. Fn Þorsteirn Árnason
héraðsiæknir, sem kom skjót-
lega á vettvang, hóf þegar lífg
unartilraunir og hélt þeim
áfram í fjórar klukkustundir,
en ára<igurslaust.
Telpan litla hét Anna Sig-
urbjörg Sigurðardóttir. For-
eldrar hcnnar eru hjónin Mar-
grét Bjarnadóttir og Sigurður
Sigurðsson sjómaður hér í Nes
kaupstað. Hann er nú fjarver-
andi, á vertíð í Sandgerði.
—AT
Það var Magnús Oddsson fram-
kvæmdastjóri Borgarbílastöðv-
arinnar, sem þannig komst að
orði við Mbl. í gær, er það átti
stutt samtal við hann um síðustu
hefndarráðstafanir verkfalls-
stjórparmanna gagnvart bílstjór-
unum á stöð hans.
Þessi orð mín þykja ef til vill
ótrúleg og jafnvel ofsækisfull, en
í eyrum peirra bílstjóra, sem
þekkja málið, eru þau undan-
dráttarlaus sannleikur.
MARKMIÐIÐ
Það, ser.i fyrir kommúnistun-
um á Hreyfli vakir, er að neyða
Borgarbílastöðina og B. S. R.,
með hinum látlausu árásum á
bíla okkar, til þess að loka vegna
benzínskorts. Kommúnistar á
Hreyfli ætla svo sjálfir að ná öll-
um fólksflutningunum undir sig,
með því a? þeirra bílar fá ótak-
markað benzín svo sem alkunna
er, sagði Magnús.
ÁRÁS í GÆRMORGUN
í gærmorgun urðum við á Borg
arbílastöðinni fyrir enn einni
árásinni af hendi verkfallsstjórn-
armanna, sagði Magnús. — Við
áttum benzínbirgðir fjarri öllum
húsum upp við Hafravatn, og
komust njósnarar kommúnista á
Hreyfli, scm eru á stöðugum
verði gagnvart hverri hreyfingu
bíla okkar og B.S.R. bíla, að því,
— og að barna værum við — að
löglegum aðgerðum — við að
láta benzm á bílana af tunnum.
Hver bíll átti 60 lítra skammt,
og annaðist ég sjálfur dreifing-
EG TEK TUNNURNAR
Þegar eftir var benzín í fimm
tunnum, rom fjölmennur hópur
verkfallsstjórnarmanna, 40—50,
og var fyrir þeim maður, að nafni
Ragnar Giirnarsson, Sigluvogi 12.
Hann kvaðst vera kominn með
þennan hop með sér til þess að
taka þessar fimm tunnur, svo
og allar tómar tunnur, sem þar
voru.
ALLT LEYFILEGT
í VERKFÖLLUM
Ég svaraði því til, sagði Magn-
ús Oddsson, að hann ætti ekki
með slíkt, þareð benzínið væri
eign bílstjóra stöðvarinnar, en
ekki hans eða hans manna. Borg-
arbílastöðvarmenn hefðu keypt
benzínið og hefðust ekkert ólög-
legt að. En ef verkfailsstjórnar-
menn tækju það, fremdu þeir
með því ofbeldisverk og þjófnað.
— Ragnar Gunnarsscn lét þessi
orð sem vind um eyrun þjóta og
kvað allt leyfilegt í verkföllum,
Síðan gaf Þann mannsöfnuði sín-
um fyrirskipun um að taka ben-
zínið.
Magnús kvazt hafa leitað að-
stoðar lögrtglunnar. Sú varð út-
koman, að því er lögreglan tjáði
Magnúsi, að benzíninu hefði ver-
ið ekið á „olíustöðina“ á Laugar-
nestöngum.
— m —
Magnús gat þess að lokum, að
hann mynd' kæra mál þetta til
sakadómara og höfða mál gegn
forsprakka verkfallsstjórnar-
manna fyrir ofbcldi og rán.
n
KVEIKT I BENZININU
í sambaiidi við þessar aðgerðif
verkfallsstjórnarmanna, er svo
þess að geta, að þeir gerðu leit
að bensíni í námunda við Hafra-
vatn, og í réttinni fundu þeif
IV2 tunnu af benzíni, sem leigu-
bílstjórar á Borgarbílastöðinni
áttu. Því helltu verkfallsstjórn-
armenn niður og kveiktu síðan í
því. Eigendur benzínsins munu
hafa ákveðna leigubílstjóra grun-
aða um þátttöku í þessum að-
gerðum.
Fiskbílarnir i
fá benzín
í GÆR átti að koma til fram-
kvæmda fcenzínbann verkfalls-
stjórnar á bíla fiskbúða bæjarins.
Þá hefði matvælaástandið hér i
bænum verið líkast því, sem
borgin væri í herkví. Það tókst
að koma vitinu fyrir verkfalls-
stjórnina, sem féllst á að veita
fiskflutningabílunum undan-
þágu fyrir benzíni. Slíkt bann á
fiskflutningi í fiskbúðirnar, hefðl
að sjálfsögðu komið hart niður á
alla bæjarbúa, en þó harðast nið-
ur á þeim verkamönnum, sem ná
hafa átt i mánaðarverkfalli.