Morgunblaðið - 17.04.1955, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. apríl 1955
Kristín A. Helgndóttir
Skemmtilegu íslnndsméti í
bndminton lokii i Stykkis
Vagn Qttóson TBR cg Etba Lárus- i
dóttsr Sncsi. í sérflokki karla og kvenna
■jjSLANDSMEISTARAMÓT í badmintonkeppni fór fram í Stykkis-
hólmi annan páskadag og þriðjudaginn 12. apríl. Voru þar mætc
konur og karlar frá Ungm.fél. Snæfelli og Tennis- og badmintonfél.
Reykjavíkur.
Mótið var sett í íþróttahúsi
Stykkishólms, og hófst það með
því að lúðrasveit Stykkishólms
lék nokkur lög, en síðan setti
forseti ÍSÍ Benedikt G. Waage,
mótið með ræðu. Þá bauð séra
Sigurður Ó. Lárusson keppendur
og gesti velkomna með nokkr-
um orðum.
ÚRSLITAKEPPNIN
Á ÞRIÐJUDAG
Síðan hófst keppnin, sem stóð
yfir allan daginn til kl. 7 um
kvöldið, en úrslitakeppnin var
háð daginn eftir, um kvöldið.
Er mótinu var slitið, af forseta
ÍSÍ, færði hann ungmennafélag-
inu í Stykkishólmi að gjöf brjóst-
mynd af Jóni Sigurðssyni, í til-
efni af 15 ára afipæli félagsins.
Þakkaði formaður ungmennafé-
lagsins, Steinar RagnarSson, gjöf-
ina og eins keppendum fyrir góð-
an og drengilegan leik og áhorf-
endum fyrir komuna.
Mjög margir áhorfendur voru
viðstaddir allt frá því að keppnin
hófst, en húsfyllir var við úr-
slitin seinni daginn
Úrslitakeppnin fór þannig, að
í einliðaleik karla sigraði Vagn
Ottósson Þorgeir Ibsen með 15:4
Meistaramótið
í suradi
og 15:10. í tvíliðaleik karla sigr-
uðu Vagn Ottósson og Einar
Jónsson frá TBR þá Þorgeir Ib-
sen og Ólaf Guðmundsson með
15:3 og 15:6.
í einliðaleik kvenna sigráði
Ebba Lárusdóttir Snæfelli Rögnu
Hansen Snæfelli með 11:3 og
11:10. —
í tvíliðaleik kvenna sigruðu
þær Ebba Lárusdóttir og Ragna
Hansen þær Ellen Mogesen og
Halldóru Thoroddsen TBR með
15:4 og 15:9.
Tvenndarieikur fór þannig að
Vagn Ottósson og Ellen Mogen-
sen TBR sigruðu Einar Jónsson
og Halldóru Thoroddsen TBR með
15:6 og 15:4. —
Þar með lauk þessu íslands-
móti með því að TBR fékk þrjá
meistara en Snæfell tvo. Vagn er
í sérflokki i karlaflokki nú sem
fyrr og sýndi að enginn badmin-
tonmaður hérlendis ógnar honum
í leik. Jafnmikla yfiburði hefur
Ebba Lárusdóttir í kvennaflokki.
Bæði unnu þau nú íslandsmeist-
aratitla sína í fjórða sinn.
Heiðursgestir mótsins: Benedikt
G. Waage, forseti ÍSÍ, og sóknar-
presturinn í Stykkishólmi, séra
j Sigurður Lárusson. Séra Sigurð-
ur mun vera elztur allra íslend-
inga er badminton iðka. Hann er
j rúmlega 60 ára og leikur bad-
minton að staðaldri og hefur gert
frá því, að sú íþrótt „nam þar
land“ og þar er áhuginn fyrir
íþróttinni svo mikill, að fim-
leikahúsið var fullt út úr dyrum
er íslandsmótið fór þar fram á
Idögunum.
Helgi Sigurðsson:
enn eitt met nú?
Setur hann
SUNDMEIST AR AMÓT
ÍSLANDS hefst í Sundhöllinni á
mánudagskvöld kl. 8,30 og lýkur
á þriðjudagskvöldið.
Á mótinu verður keppt í öll-
um meistaragreinum karla og
kvenna, þ. e. fyrir karla: 100. 400
og 1500 m skriðsundi, 200 og 400
m bringusundi, 100 m baksundi,
100 m flugsundi og 4x200 m skrið
sundi. Konur keppa í 100 m bak-
sundi, 200 m bringusundi og 100
m skríðsundi. Þá eru og keppnis-
greínar unglinga, bæði telpna og
drengja.
Þátttaka er mikil í mótinu frá
Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík
og Akranesi.
Sundfólkið hefur að undan-
förnu veitt áhorfendum að sund-
mótum góða kvöldstund og víst
er að gvo verður enn
Hlaupið fer fram á svipuðum
slóðum og áður og endar við
hljómskálann.
Allir þátttakendurnir í hlaup-
inu fá minningarpening um þetta
hlaup.
VEGLEG SIGURLAUN
Silli og Valdi hafa gefið for-
kunnar fagran silfurbikar, sem
sigurvegarinn í hlaupinu fær til
eignar, en auk þess gefur stjórn
íslandsmeistarar í badminton 1955 —talið frá vinstri: Einar Jóns-
í son TBR, Ragna Hansen Snæf., Ebba Lárusdóttir Snæf., Ellen
Mogensen TBR og Vagn Ottósson TBR. — Ljósm. Rafn Viggósson.
40. Víí nvangshlaup ÍR
^ Alsrgt tið hátíðabrigða
40. VÍÐAVANGSHLAUP Í.R. fer fram næstkomandi fimmtudag,
sumardaginn fyrsta hinn 21. apríl, kl. 2 siðdegis eins og venjulega.
Að hlaupinu loknu hefur stjórn ÍR kaffisamsæti í Tjarnarkaffi kl.
15.30 fyrir forystumenn íþróttahreyfingarinnar í höfuðstaðnum,
keppendur og starísmenn hlaupsins.
ÍR 1., 2. og 3. manni litla silfur-
bikara í tilefni af þessu 40. víða-
vangshlaupi. Þá er að sjálfsögðu
keppt um „sveitabikara" sem eru
glæsileg verðlaun fyrir beztu 3ja
manna og 5 manna sveitirnar í
hlaupinu.
Jón Kaldal, ljósmyndari —
hinn frægi hlaupagarpur og 1.
sigurvegarinn í víðavangshlaup-
inu verður hlaupstjóri, en Helgi
Á MORGUN verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni frú Kristín
Agnes Helgadóttir, Sundlauga-
vegi 24, hér í bæ.
Frú Kristín var fædd að Gísla-
bæ á Hellnum, Snæfellsnesi, h.
21. jan. 1876 og var því komin á
síðasta ár 8. tugsins. Foreldrar
hennar voru Helgi Árnason
hreppstjóri og kona hans Kristín
Grímsdóttir, alkunn merkishjón
í heimahéraði sínu og víðar. —
Áttu þau 16 börn — 8 syni og
8 dætur — og eru nú af þeim
aðeins tvær systur á lífi, Guð-
björg, búsett hér í Reykjavík og
Júníana á Akureyri.
Frú Kristín var heima hjá for-
eldrum sínum til 19 ára aldurs,
en réðist þá sem aðstoðarstúlka
til prestshjónanna á Staðastað,
séra Eiríks Gíslasonar og t'rú Vil-
borgar Jónsdóttur. Var hún hjá
þeim um fjögurra ára skeið.
Árið 1909 giftist hún Jóhann-
esi M. Sandhólm, kaupmanni á
Hellissandi. Var brúðkaup þeirra
haldið á heimili foreldra hennar
með miklum rausnarbrag. Áttu
þau heima á Sandi til ársins 1932,
en fluttust þá hingað til Reykja-
víkur. Mann sinn missti frú
Kristin árið 1947, og eftir það
hélt hún heimili um nokkur ár
með bróður sínum, Árna Helga-
syni, sem dvalið hafði hjá þeim
hjónum um langt skeið. Hann
lézt árið 1951 og nokkru síðar
fluttist hún til fósturdóttur sinn-
ar Þórhildar Hallgrímsdóttur og
manns hennar Atla Þorbergsson-
ar skipstjóra og var hjá þeim
síðan, unz hún þurfti að fara í
sjúkrahús, í desember s.l.
Þeim Jóhannesi og Kristínu
varð ekki barna auðið. En einn
dreng hafði hún eignast áður, en
missti hann 3 ára gamlan. Var
það henni mikill harmur og sár,
sem aldrei greri til fulls. En þótt
þau hjón eignuðust ekki börn
sjálf, voru börn þó jafnan á heim-
ili þeirra. Tvær fósturdætur ólu
þau upp og gengu þeim að fullu
í foreldra stað. Sú eldri, frú
Ingileif Magnúsdóttir, sem er
bróðurdóttir Jóhannesar, kom til
þeirra 5 ára gömul, en bá ''mgri,
Þórhildi, tóku þau nýfædda. —
Faðir hennar drukknaði áður en
hún fæddist og móðirin dó frá
henni tveggja daga gamalli Hún
þekkti því ekki aðra foreldra en
fósturforeldra sína, enda hefði
samband þeirra ekki getað verið
ástúðlegra, þótt hún hefði verið
þeirra eigið barn. Ýms önnur
börn dvöldu einnig á heimili
þeirra hjóna um lengri eða
skemmri tíma, og öllum var þeim
Jónasson frá Brennu, sá er átti
hugmyndina að hlaupinu fyrir 40
árum, verður ræsir.
26 keppendur verða í hlaupinu
að þessu sinni, 7 frá ÍR, 6 frá
UÍA, 5 frá UMSE, 2 frá KR, 5
frá HSK og 1 frá UMFK.
Stjórn ÍR hefur þegar að mestu
gengið frá undirbúningi hlaups-
ins; dregið hefur verið um númer
keppenda, en þeir eru þessir:
1. Oddgeir Sveinsson KR
2. Njáll Þóroddsson, ÍR
3. Sigurður Guðnason, ÍR
4. Stefán Árnason, UMSE
5. Þórhallur Guðjónsson UMFK
6. Már Hallgrímsson UIA
7. Hilmar Guðjónsson ÍR
8. Árni Óskarsson UMSE
9. Hafsteinn Sveinsson, HSK
10. Sveinn Jónsson, UMSE
11. Rafn Sigurðsson, UIA
12. Svavar Magnússon, KR
13. Óskar Sigurðsson, UIA
14. Stefán Skagfjörð, UMSE
15. Guðmundur Bjarnason ÍR
16. Stefán Magnússon UMSE
17. Bergur Hallgrímsson UÍA
18. Niels Sigurjónsson, UÍA
19. Sigurgeir Bjarnason, ÍR
20. Guðm. Hallgrímsson, UÍA
21. Kristján Jóhannsson, ÍR
22. Heiðar Georgsson, ÍR
23. Eiríkur Þorgeirsson, HSK
24. Eiríkur Steindórsson, HSK
25. Einar Benediktsson, HSK
26. Sigmundur Ámundason HSK
Minningarorð
auðsýnd sú umhyggja og ástúð,
sem Jóhannes og Kristín áttu í
svo ríkum mæli og létu ávallt
í té þeim, sem hjálpar þurftu
eða á einhvern hátt höfðu farið
á mis við hamingju lífsins. Munu
þeir ótaldir, sem minnast þeirra
með þakklátum huga frá áruhum
í Sandi fyrir margs konar kær-
leiksverk, sem unnin voru ón vit-
undar almennings, en geymast í
hjörtum þeirra, sem nutu.
Frú Kristín var kona dul og
stillt vel, sem flíkaði ekki til-
finningum sínum framan í ná-
ungann. Nóvist hennar fylgdi allt
af friður og notaleg kyrrð. Festa
og öryggi einkenndi mjög alla
framkomu hennar. í hópi ætt-
ingja og vina var oft létt yfir
henni og brá hún þá fyrir sig
góðlátlegri gamansemi á sinn sér-
stæða og hugljúfa hátt. — Hún
undi bezt á heimili sínu, fór lítið
út og gaf sig lítt að ókunnugum.
En vinátta hennar og tryggð við
þá, sem hug hennar unnu, var
traust sem bjarg.
Frú Kristín tók öllum áföllum
lífsins með þeirri festu og still-
ingu, sem henni var í blóð borin.
Hún bar harm sinn í hljóði, þótt
sárin væru djúp og sein að gróa.
Eitt þyngsta áfall hennar í lífinu
var það er bróðir hennar, Jó-
hannes tréskurðarmeistari, sem
hún unni mjög, varð úti á afmæl-
isdegi hennar árið 1920, þegar
hann var á leið til að heimsækja
hana og færa henni í afmælis-
gjöf listaverk, sem hann hafði
smíðað til þess að gleðja hana
á þessum degi. Eftir það fór hún
að kenna hjartabilunar, sem
þjáði hana nokkuð það sem eftir
var ævinnar, en að öðru léyti var
heilsa hennar góð, þangað til s.l.
haust, er hún fór að kenna sjúk-
d.óms þess, er sigurinn vann að
lokum.
Frú Kristín átti því láni að
fagna, að eiga ástvini, sem unnu
henni mjög og létu sér alla stund
j annt um hana. Mun næsta fátíð
sú ástúð og umhyggja, sem hún
naut hjá fósturdóttur sinni, Þór-
hildi, manni hennar og sonum
þeirra, sem voru miklir ömmu-
drengir. Eigi má heldur gleyma
þeirri frábæru ræktarsemi, sem
Guðbjörg, systir hennar, sýndi
henni alla tíð. Komu þær frú Þór-
hildur báðar til hennar í sjúkra-
húsið flesta daga og léttu henni
banaleguna með öllum þeim
hætti, sem í mannlegu valdi stóð.
Við vinir og ættingjar frú
Kristínar gerum okkur þess
fulla grein, að eins og heilsu henn
ar var komið, var æskilegt að
vistaskiptin drægjust ekki leng-
ur. En söknuður fyllir hug okkar
þegar við lítum yfir liðna daga,
minnumst alls, sem við eigum
henni að þakka. Við kveðjum
hana í öruggri vissu um það, að
hún muni nú uppskera eins og
hún sáði og segjum: „Hafðu þökk
fyrir allt og allt“.
V. M.